Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012 ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁLFHEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR, áður til heimilis í Hörgatúni 11, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum fimmtudaginn 25. október. Jarðsungið verður frá Garðakirkju föstudaginn 2. nóvember kl. 13.00. Jóhanna S. Sigmundsdóttir, Eiríkur Hjaltason, Birna J. Sigmundsdóttir, Kolbrún S. Sigmundsdóttir, Jón Torfason, Kristján P. Sigmundsson, María E. Ingvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR GÍSLADÓTTIR, Sætúni, Eyrarbraut 7, Stokkseyri, andaðist á Ljósheimum, Selfossi, föstudaginn 19. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Ljósheima. Gísli Rúnar Guðmundsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Pétur Steingrímsson, Sigríður Guðmundsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn, og barnabarnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓDÍS KRISTÍN JÓSEFSDÓTTIR, ,,Dísa á Mogganum”, Norðurgötu 54, Akureyri, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð sunnudaginn 28. október. Útförin verður auglýst síðar. Eiríkur Stefánsson, Hulda Stefánsdóttir, Ståle Eriksen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ELLERT STEFÁNSSON, Hjallatúni, Vík í Mýrdal, lést á heimili sínu fimmtudaginn 25. október. Útförin fer fram frá Stórólfshvolskirkju, Hvols- velli, laugardaginn 3. nóvember kl. 14.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasjóð Hjallatúns í Vík í Mýrdal. Ólafur Björn Jónsson, Lilja Harðardóttir, Kristjana Karen Jónsdóttir, Kjartan Már Benediktsson, Ragnhildur Birna Jónsdóttir, Böðvar Bjarnason, Sveinn Ásgeir Jónsson, Elísabet Valdimarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MATTHILDUR Þ. MARTEINSDÓTTIR, Stella, bókasafnsfræðingur, Bræðraborgarstíg 9, Reykjavík, lést á Borgarspítalanum fimmtudaginn 25. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 6. nóvember kl. 13:00. Ólafur Árnason, Þuríður Vigfúsdóttir, Marteinn G. Árnason, Tinna Ólafsdóttir, Haukur Þórðarson, Stella Ólafsdóttir, Hrafn Gunnarsson, Vigdís A. Jónsdóttir, Dagný Haraldsdóttir og barnabarnabörn. ✝ Hans Óli Hans-son fæddist í Randers í Dan- mörku hinn 28. mars. 1946. Hann lést af slysförum 20. október 2012. Foreldrar hans voru Björg Krist- mundsdóttir saumakona, fædd 23. júní 1915, látin 27. jan. 2006, og Hans Christian Larsen Elíason járnsmiður, fæddur 25. janúar 1910, látinn 18. nóvember 1987. Þau fluttust til Íslands eftir stríð, þá var Hans Óli tveggja ára. Þau slitu sam- vistum 1951. Björg giftist aftur Árna Evert Jóhannssyni, f. 26.5. 1904. Árni féll frá 13.12. 1992. Hans Óli kvæntist 31. des. 1972 Þóru Sigurðardóttur, f. 3. maí. 1938. Þau slitu samvistum 1988. Börn þeirra eru: 1) Berg- steinn Sævar, fæddur 5. júlí 1966, kvæntur Valdísi Brynj- ólfsdóttur, f. 26. júlí 1966, sam- an eiga þau Aron Hans f. 1996, Irenu, f. 1999, og Eyrúnu Þóru, f. 2002. 2) Sigrún Júlía, fædd 19. nóvember 1969, sambýlis- Magni Helgason, f. 1981. Sambýliskona Hans Óla frá 2008 var Ólöf Ólafsdóttir, f. 18.7. 1939. Hans Óli kom til Ólafsvíkur 18 ára gamall og þá á vertíð, fljótlega eignaðist hann sína eigin útgerð, fyrst með tveim öðrum. Seinna átti hann bát með Berki Guðmundssyni og gerðu þeir út saman í nokkur ár. Að endingu var hann einn eigandi. Í Ólafsvík kynntist hann kon- unni sinni (Þóru) og byggðu þau Skipholt 14, seinna fluttist hann til Keflavíkur og þar kom hann aftur upp húsi en nú flutti hann tilbúið hús til Keflavíkur frá Austur-Eyjaföllum. Til þess þurfti mikið hugvit og mikla vinnu. En það var sama hvað hann tók sér fyrir hendur hann hafði alltaf lag á að láta það takast. Hans Óli átti sér gríðarlegt áhugamál allt frá barnæsku, það var flugið. Hann eignaðist tvo svifdreka síðan þrjá mót- ordreka og svo komu fisflug- vélar, bæði sem hann setti sam- an sjálfur og keypti tilbúnar. Hann var mikill frumkvöðull í að stofna fisfélag, koma upp fis- flugvelli og flugskýlum. Útför hans verður gerð frá Digraneskirkju í dag,31. októ- ber 2012, kl. 11. maður hennar er Vilmundur Ægir Friðriksson, f. 28. apríl. 1970. Barn hennar og Jóns Steinars Krist- inssonar er Garðar Þór, f. 1986, börn hennar og Jóns Eld- járns Bjarnasonar eru Natalía Mist, f. 1996, og Hilmir Eldjárn, f. 2000. Barn hennar og núverandi sam- býlismanns er Viktor Örn, f. 2007. 3) Kolbrún Steinunn, fædd. 30. nóvember 1972, sam- býlismaður hennar er Þórarinn Karl Gunnarsson, f. 18. nóv- ember 1960. Barn hennar og Hilmars Bernhards Guðmunds- sonar, f. 13.8. 1962, d. 22. febr- úar 1995, er Hilmar Andri, f. 1995. Barn hennar og Sævars Sævarssonar er Bjarki Sólon, f. 2001. Hans Óli hóf sambúð 1988 með Maríu K. Jónasdóttur, f. 28.12. 1944. Þau slitu samvistum 1999. Hún átti 6 börn fyrir, þrjú voru upp komin. Stjúpbörn Hans Óla eru Svandís Ósk Helgadótt- ir, f. 1980, Sveinn Finnur Helga- son, f. 1981, og Guðmundur Ég er að vanda mig við að finna réttu orðin sem lýsa því sem best hvern mann pabbi hafði að geyma, hve vænt mér þykir um hann og hve þakklát ég er fyrir allt sem hann hefur kennt mér. Pabbi var góður maður, tilfinn- ingaríkur, dulur á eigin tilfinning- ar, handlaginn, listrænn, uppfinn- ingasamur, skemmtilegur, fór ótroðnar slóðir og óhræddur við að gera ekki alltaf eins og fjöld- inn. Hann var kennari í eðli sínu. Hann hugsaði og pældi í ótrúleg- ustu hlutum. Mikið hef ég grátið síðustu daga en ég hef líka hlegið. Ég græt vegna þess að það er svo sárt að vita að ég mun ekki sjá þig á næstunni. Sárt að ég get ekki hringt í þig fljótlega til að fá ráð hjá þér eða bara spjalla við þig um allt milli himins og jarðar. Svo sárt að vita að þú segir okkur engar sögur á næstunni, komir ekki með nýja gátu fyrir okkur að leysa, nýtt töfrabragð eða lélegan brandara. Svo sárt að geta ekki fengið að hlæja og fíflast með þér. Svo sárt að fá ekki að faðma þig einu sinni enn. Hjartað mitt er í molum í dag en ef það er eitthvað sem þú hefur kennt mér, þá er það að vera sterk og bera höfuðið hátt. Ég hugsa hvað þú myndir segja við mig núna, hvernig þú hefðir huggað mig í þessum sorg- arsporum sem við fjölskylda þín, vinir og kunningjar erum að ganga. Ég hugsa að það væri eitt- hvað á þessa leið. „Það er allt í lagi að gráta og vera sorgmædd- ur, það má bara ekki vera of mik- ið.“ Ég er ekki bara sorgmædd í dag, ég er líka mjög þakklát. Ég er þakklát fyrir að vera dóttir þín. Að eiga þig sem pabba. Allt sem þú hefur kennt mér. Allar skemmtilegu stundirnar sem við höfum átt saman og fyrir það að þú hefur verið vinur minn. Ég hef hlegið vegna minning- anna sem ég á um þig, uppátæki þín og af óendanlegum sögum, sem hafa verið rifjaðar upp. Ég vil enda þessi orð á því sem þú sagðir mér einu sinni. Ein af þess- um skemmtilegu vangaveltum þínum. „Þegar okkur líður illa eigum við það til að velta okkur upp úr leiðindum, vandamálum og jafn- vel sorg. Af hverju veltum við okkur ekki líka upp úr því þegar vel gengur? Nú ætla ég bara að velta mér aðeins upp úr því hve gott ég á, sagðir þú. Ég er þokka- lega heilsuhraustur, börnin mín hraust og dugleg, engin stórkost- leg vandamál, fullt af heilbrigðum barnabörnum, bara allt alveg hreint frábært.“ Mig langar að beina þessum orðum hans pabba til allra sem þekktu hann og líka þeirra sem ekki þekktu hann. Þegar vel gengur, þegar það er gaman og lífið leikur við okkur, veltum okkur þá aðeins upp úr því og njótum, njótum. Ekki gleyma að segja ástvinum okkar hve vænt okkur þykir um þau. Það er svo vont og sárt þegar það eru mörg „ef ég bara hefði“ þegar það er orðið of seint. Ég er þakklát fyrir að það eru ekki mörg „ef ég bara hefði“ hjá mér í dag. Pabbar eins og þú deyja ekki, þú verður alltaf, alltaf með mér. Minningin um þig mun lifa. Sigrún Júlía Hansdóttir. Hann er farinn hann litli bróðir minn og að mínu mati allt of fljótt. Ég er fædd og uppalin í Dan- mörku, var einbirni til 10 ára ald- urs og átti þá ósk heitasta að eignast systkini. Sú ósk rættist þegar litli bróðir minn fæddist, hann Hans Óli. Hamingja mín var mikil og það var ekki til stoltari stóra systir en ég þegar ég keyrði barnavagninn með þessum fal- lega og yndislega bróður mínum. Þegar hann var tveggja ára flutt- umst við til Íslands og kunnum við systkinin ekki stakt orð í ís- lensku. Við vorum samt furðu fljót að ná tökum á málinu, nema Óli gat ekki borið fram þ. Svo ég tók mig til að sýna honum hvernig ætti að segja þ. Þetta var erfitt fyrir þann stutta og eftir ótal til- raunir var hann orðinn þreyttur og argur svo hann hreytti í mig „þ teiguðu“. Þetta vakti mikinn hlát- ur hjá okkur mömmu og atriðið gleymdist aldrei. Einhvern tíma þegar Óli var smástrákur var honum gefin leikfangaflugvél, þetta fannst honum stórkostlegt og sú hrifning og áhugi entist honum alla ævi. Fyrst voru það módelflugvélar, síðan svifdrekar, svo mótordreki og síðast fisflug- vél. Þegar hann sinnti þessum áhugamálum sínum „tókst hann allur á loft“ og það geislaði af hon- um gleðin og ákafinn. Í gegnum tíðina höfum við Óli stundum átt heima í sitt hvorum landshluta og sáumst sjaldan. En þegar hann átti heima í Ólafsvík með fjölskyldu sinni og ég bjó í Laxárholti var góður samgangur á milli og þegar börnin mín kom- ust á legg fóru þau til Ólafsvíkur að vinna m.a. á sjó með Óla frænda sínum. Alltaf var gaman að hitta Óla hann var svo hress og kátur og kunni ótal brandara. Hann Óli var mikill hagleiks- maður eins og hann átti ætt til. Þegar hann átti heima í Keflavík keypti hann t.d. íbúðarhús fyrir austan, fór austur og hlutaði hús- ið í þrjá parta, sem síðan voru fluttir til Keflavíkur. Síðan setti hann húsið saman og var það þá eins og nýtt. Á þessum tíma átti ég heima í Keflavík og var mikill samgangur á milli okkar. Það er margs að minnast sem ekki gleymist. Ég votta samúð mína öllum ættingjum,vinum og ekki síst Ólöfu konu hans. Eins votta ég Björgu sambýliskonu Felix og hans ættingjum samúð mína. Sonja Ísafold. Við vorum sjö ára guttar þegar mamma og Óli hefja sambúð í lít- illi kjallaraíbúð í Hafnarfirði. Fljótlega var svo ráðist í stór- framkvæmdir þar sem íbúðarhús var flutt undan Eyjafjöllum og á Freyjuvelli 16 í Keflavík þar sem við bjuggum svo næstu 12 árin. Þótt við værum þá ungir að árum er þetta ævintýri okkur eftir- minnilegt og oft rifjað upp. Óli var þúsundþjalasmiður og það var fátt sem hann ekki gat gert, hann fann lausn á öllu. Börnin læra það sem fyrir þeim er haft og er þessi útsjónarsemi og dugn- aður hans meðal þess sem við tók- um með okkur út í lífið. Reglurn- ar hans Óla eru okkur líka ofarlega í huga og þótt við höfum kannski ekki haft fullan skilning á þeim á sínum tíma þá gerum við það í dag. Við máttum til dæmis alls ekki vera með mat eða drykk inni í herbergi eða inní stofu fyrir framan sjónvarpið en eins og strákormum sæmir þá stálumst við nú samt til þess. Óli komst nú stundum að því þegar við höfðum verið að stelast til að gera það sem ekki mátti en aldrei hellti hann sér yfir okkur með skömmum, nei hann hafði sínar aðferðir, hann klippti til dæmis bara í sundur sjónvarpssnúruna. Rosalega urðum við fúlir en mik- ið getum við hlegið að þessu núna. Óli var okkur mjög góður og vildi allt fyrir okkur gera án þess beinlínis að gera hlutina fyrir okkur heldur vildi hann að við leystum hlutina sjálfir, notuðum hausinn og hugsuðum út fyrir kassann, við nutum leiðsagnar hans og aðstoðar hvort sem það var við hjólaviðgerðir, skelli- nöðrustúss eða í bílastandi. Þetta hefur reynst okkur vel allar göt- ur síðan. Hjá Óla lærðum við líka að vinna þegar hann setti okkur fyrir verkum á loðdýrabúinu milli þess sem við djöfluðumst á skellinöðrunum og sugum bensín af pallbílnum hans til að nota á skellinöðrurnar. Pallbíllinn hans Óla var svo kennslubifreiðin sem notuð var við æfingaakstur þeg- ar við bræður lærðum að keyra og skiptumst við á að keyra að heiman og inná loðdýrabú. Þegar leiðir mömmu og Óla skildu minnkaði sambandið en Óli passaði uppá að týna okkur ekki alveg, hann sló gjarnan á þráðinn til að heyra í okkur hljóðið, leit við eða bauð okkur með fjölskyldurnar í kaffi. Óli var með okkur í 12 ár, það telst eflaust ekki langur tími en hann var með okkur á okkar mik- ilvægustu árum, hann kynntist okkur sem börnum og ól okkur upp í menn. Hann hafði mikil áhrif á okkur og markaði hann sín spor í okkur sem verða ávallt til staðar svo lengi sem við lifum. Við erum ákaflega þakklátir hon- um og allt sem hann hefur gert fyrir okkur. Óla verður sárt saknað. Hans Óla þökkum við innilega fyrir okkar tíma saman og send- um um leið samúðarkveðjur til fjölskyldu hans og allra þeirra sem nutu þeirrar gæfu að kynn- ast honum. Þínir drengir, Finnur og Magni Hans Óli Hansson HINSTA KVEÐJA „Dáinn, horfinn“ – harmafregn! hvílíkt orð mig dynur yfir! En eg veit að látinn lifir; það er huggun harmi gegn. … (Jónas Hallgrímsson.) Ástarkveðja, Ólöf. Jóhannes Proppé var einn af forystumönnum í sveit hjarta- sjúklinga til margra ára. Hann sat í stjórn Landssamtaka hjartasjúklinga frá stofnun fé- lagsins árið 1983 til ársins 2002 er hann lét af störfum vegna ald- urs, alla tíð sem gjaldkeri sam- takanna í 19 ár. Jóhannes var ávallt tilbúinn að leggja samtök- unum lið s.s. með því að sækja fundi og taka þátt í ýmsum verk- efnum sem til hans var leitað með. Fyrir samtökin var ómetan- legt að fá mann eins og Jóhannes til liðs við sig og hin mikla reynsla hans á sviði félagsmála kom sér afar vel auk þess sem Jóhannes Haraldur Proppé ✝ Jóhannes Har-aldur Proppé fæddist í Tjarn- argötu 3 í Reykja- vík 26. desember 1926. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans 21. júlí 2012. Útför Jóhann- esar fór fram frá Fossvogskirkju 30. júlí 2012. eftir var tekið þegar hann tók til máls. Jóhannes var mikill baráttumaður og lagði sig allan fram um að ná góð- um árangri í öllum þeim málum sem hann tók að sér. Það var sérlega gott að leita til Jóhannesar eins og þegar hug- myndin um nafnið Hjartaheill kom til umræðu inn- an samtakanna þá var hann al- veg samþykkur þeirri breytingu. Hjartaheill, landssamtök hjartasjúklinga, þakka Jóhann- esi öll hans störf í þágu samtak- anna og senda eiginkonu hans, Unni Guðmundsdóttur Proppé, og öðrum aðstandendum innileg- ar samúðarkveðjur. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Guðmundur Bjarnason, formaður, og Ásgeir Þór Árnason, fram- kvæmdastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.