Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 20
FRÉTTASKÝRING
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Náttúruhamfarirnar í norðaustur-
hluta Bandaríkjanna hafa reynst
óvænt prófraun fyrir Barack Obama
forseta og áskoranda hans, repúblik-
anann Mitt Romney, á lokaspretti
kosningabaráttunnar þar vestra.
Það hvernig hvor frambjóðandi um
sig stendur sig í kjölfarið gæti jafn-
vel ráðið úrslitum um hvor þeirra
ber sigur úr býtum í kosningunum
eftir tæpa viku.
Bæði Obama og Romney settu
kosningavélar sínar í hægagang
strax um helgina til þess að virðast
ekki skeytingarlausir um þær
þrengingar sem fellibylurinn Sandy
veldur nú íbúum norðaustur-
strandarinnar og sér ekki fyrir end-
ann á. Munurinn á fylgi þeirra í
skoðanakönnunum í lykilríkjum hef-
ur verið afar mjór undanfarið og því
gæti það orðið þeim dýrkeypt að
misstíga sig í því viðkvæma ástandi
sem nú ríkir.
Forsetinn hætti við kosningafundi
í Flórída og Virginíu og sneri aftur í
Hvíta húsið á mánudagsmorgun þar
sem hann hefur síðan fylgst grannt
með afleiðingum fellibylsins.
Romney og varaforsetaefni hans,
Paul Ryan, breyttu áformum sínum í
skyndi. Sá fyrrnefndi hélt í gær fund
í lykilríkinu Ohio sem að nafninu til
var til stuðnings hjálparstarfi vegna
fellibylsins. Ekki stóð til að Romney
ræddi um pólitísk mál og gestir voru
beðnir að hafa með sér dósamat til að
senda til hamfarasvæðanna.
Góð viðbrögð styrki Obama
Í herbúðum beggja frambjóðenda
eru menn um leið meðvitaðir um að
skammur tími er til stefnu fyrir
kosningarnar. Þannig ætlar Romney
að halda þrjá framboðsfundi í Flór-
ída strax í dag jafnvel þó að Obama
forseti hafi frestað sínum framboðs-
fundi í Ohio til að einbeita sér að
neyðarástandinu.
Bæði Obama og Romney leggja
kapp á að virka sem „forsetalegast-
ir“ á ögurstundu. Í því gæti falist for-
skot fyrir sitjandi forsetann.
„Því fleira fólk sem verður fyrir
barðinu á storminum áður en yfir
lýkur, því betri sem viðbrögðin
verða, þeim mun betur á Obama eftir
að líta út,“ hefur CNN-fréttastofan
eftir Larry Sabato, forstöðumanni
stjórnmálafræðistofnunar Virginíu-
háskóla. Að sama skapi gætu slæleg
viðbrögð yfirvalda við neyðar-
ástandinu hins vegar skaðað mögu-
leika forsetans á endurkjöri.
Í því sambandi voru ýmsir repú-
blikanar hissa á félaga sínum Chris
Christie, ríkisstjóra í New Jersey,
sem hrósaði Obama í hástert fyrir
viðbrögð hans og samstarf stjórn-
valda við yfirvöld í ríki hans.
Á meðan getur Romney lítið gert
til að taka frumkvæði í kosningabar-
áttunni. „Romney getur ekki gert
neitt annað en að lýsa áhyggjum sín-
um,“ segir Sabato.
Ummæli um FEMA dregin fram
Í leiðara dagblaðsins The New
York Times á mánudag voru um-
mæli Romneys um almannavarnir
Bandaríkjanna, FEMA, í forkosn-
ingum repúblikana í fyrra rifjuð upp
og notuð gegn honum.
Í kappræðum þeirra sem sóttust
eftir útnefningu sem forsetaefni
Repúblikanaflokksins var Romney
spurður að því hvort stjórnir ein-
stakra ríkja ættu að taka við umsjón
neyðaraðstoðar af alríkisstjórninni.
Romney játaði því og vildi ganga svo
langt að einkavæða neyðarstarfið.
„Í hvert sinn sem færi er á að færa
eitthvað frá alríkisstjórninni til
ríkjanna er það skref í rétta átt. Ef
það er hægt að ganga enn lengra og
færa það yfir í einkageirann er það
enn betra,“ sagði Romney.
Í kjölfar þess að ummælin voru
rifjuð upp hefur framboð hans þurft
að sverja þau af sér og lýsa því yfir
að hann vilji ekki leggja FEMA nið-
ur þótt hann sé enn þeirrar skoðunar
að ríkin sjálf ættu að hafa verkefni
stofnunarinnar á sinni könnu.
AFP
Aðstoð Mitt Romney tekur á móti neyðaraðstoð sem gestir á fundi hans í Kettering í Ohio í gær komu með ætlaða
íbúum þeirra ríkja sem urðu verst úti í fellibylnum Sandy. Kosningafundum Romneys í ríkinu var frestað í gær.
Kosningabaráttan í bið
Forsetaframbjóðendur varir um sig eftir hamfarirnar í norðausturríkjunum
Reyna báðir að koma „forsetalega“ fram þegar aðeins vika er til kosninga
Neyðarástand Barack Obama í höfuðstöðvum FEMA á sunnudag. Forset-
inn gerði hlé á kosningabaráttunni og hefur fylgst náið með gangi mála.
Áhrif á kosningarnar
» Fellibylurinn hefur sett utan-
kjörfundaratkvæðagreiðslu í
uppnám víðsvegar í norðaust-
urríkjunum en Obama hefur
vonast eftir lyftistöng fyrir
framboð sitt í henni.
» Hugsanlegt er að enn verði
rafmagnslaust á sumum stöð-
um á kjördag í næstu viku.
Stjórnvöld í Virginíuríki hafa
þegar undirbúið að færa til
kjörstaði af þessum sökum.
» Rafmagnsleysið gæti skað-
að Obama sem þarf á góðri
kjörsókn að halda þar sem
Romney hefur forskot.
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
Ertu að taka til …
… á vinnustaðnum
Komdu spilliefnunum og raftækjunum
á söfnunarstöðina næst þér …
… við sjáum um framhaldið!
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is… í bíls umkúrn
Hamfarirnar í Bandaríkjunum
Fellibylurinn Sandy gekk yfir eyjar
í Karíbahafi fyrir helgi en þar lét-
ust að minnsta kosti 69 manns og
þúsundir eru heimilislausar.
Stormurinn gekk yfir sex eyríki á
svæðinu en Haítí varð harðast úti
þrátt fyrir að fellibylurinn hafi ekki
gengið beint yfir landið. Þar létust í
það minnsta 52 menn þegar ótraust
hús voru hrifin burt í aurskriðum
eða skolað út á haf í flóðbylgjum.
Auk þess er tuga annarra saknað.
Eftirköstin gætu orðið enn verri
á Haítí en um 200.000 manns eru
heimilislaus eftir fárviðrið. Aðeins
er rými fyrir 17.000 í neyðar-
skýlum. Fyrir utan sjúkdómahættu
gæti orðið fæðuskortur þar sem
uppskera varð illa úti í hamför-
unum.
Á Kúbu týndu ellefu manns lífi og
um 137.000 hús skemmdust. Talið
er að það taki mörg ár að bæta tjón-
ið þar. Verst var ástandið í borginni
Santiago þar sem sjúkrahús, skólar
og íbúðarhús eyðilögðust. Þá er allt
að þriðjungur kaffiuppskerunnar í
landinu ónýtur en aðalupp-
skerutíminn ætti að standa yfir
þessi dægrin.
Stjórnvöld í Venesúela brugðust
skjótt við hörmungunum í ná-
grannaríkjum sínum og var Vene-
súela á meðal þeirra landa sem
fyrst sendu neyðaraðstoð, matvæli,
vatn og búnað til Haítí og Kúbu.
Þá olli Sandy mannfalli og tjóni í
minna mæli á Jamaíka, Dóminíska
lýðveldinu, Púertó Ríkó og Ba-
hamaeyjum. kjartan@mbl.is
AFP
Neyðarskýli Kona í tjaldbúðum á
Haítí hreinsar til eftir fellibylinn.
Tæplega
sjötíu látnir
í Karíbahafi
Þó nokkrar vinsælar bandarískar
frétta- og slúðursíður á borð við
Huffington Post og Gawker lágu
niðri í gær í kjölfar þess að Sandy
gekk á land. Vefsíðurnar duttu út
þegar orkufyrirtækið ConEd sló út
rafmagnið á hluta neðri Manhattan,
þar sem mörg vefsvæði eru hýst.
Huffington Post brást við með því
að halda úti einfaldaðri útgáfu af
vefsíðu sinni, þar sem birtar voru
nýjustu fréttir af storminum.
Heimasíður
lágu niðri