Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012 Ótrúlegt úrval af gluggatjaldaefnum, þykk, þunn, kappar og allt þar á milli. Við lánum þér gardínulengjur heim til að auðvelda valið. GLUGGATJÖLD Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18 Ef þú staðg reiðir sendum vi ð frítt hvert á lan d sem er Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Umræða er hafin um það í Fagráði í hrossarækt að herða reglur til að draga úr áverkum sem verða á hrossum á kynbótasýningum. Sam- antekt sýnir að áverkar urðu í 21,5% tilvika á þessu ári, umtals- vert fleiri en verið hefur síðustu ár. „Menn eru ekki á eitt sáttir um það hvað veldur. Ætli það sé ekki stór þáttur að mönnum hleypur kapp í kinn á sýningum,“ segir Kristinn Guðnason, formaður Fé- lags hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt. „Þetta hefur alltaf verið en eftirlit með heilbrigði hrossanna hefur verið aukið stöð- ugt, um að þau komi heil til sýn- ingar og út úr sýningu. Þrátt fyrir fræðslu og eftirlit er frekar að síga á ógæfuhliðina. Við munum ekki una því og þurfum að taka stórt skref til að bregðast við,“ segir Kristinn. Alls sýndu 44 knapar 10 sinnum eða oftar á árinu. Af þeim voru sautján með meidd hross í 25% sýninga eða meira. Í einstaka til- vikum reyndust yfir 40% hrossa sýnenda með áverka. Fagráðið hefur sent knöpunum sautján bréf til að vekja athygli þeirra á að þeir væru með fleiri áverkaskráningar en meginþorri knapanna. Kristinn segir verst að mestu ágripin hafi orðið á landsmótinu í sumar þar sem aðstæður hafi verið frábærar og bestu knapar landsins sýnt bestu hrossin. Ágrip er það þegar hestur rekur afturfætur í fram- fætur sína. Meðal annarra áverka eru særindi í munni. Kristinn segir hugsanlegt að áverkarnir komi fyrir slysni en það sé aðeins lítill hluti. Farið að stíga skref Sýning og dómur hross sem reynist vera með alvarlegri áverka, áverka 2, er ógild. Tólf þannig sýn- ingar voru dæmdar ólöglegar á árinu. Kristinn segir að umræða sé hafin um það að herða reglurnar. Hugmynd sé um að flokka áverk- ana í þrjá flokka. Í þann fyrsta fari aðeins smá rispur sem skaði ekki hrossið. Aðrir áverkar leiði til þess að dómur falli niður. „Við tökum umræðu um þetta á fundunum í haust og vetur. Þetta er mikil breyting og kallar á samstöðu en eigendur og knapar hljóta að vera farnir að hugsa sinn gang. Mark- miðið er alveg skýrt. Hross eiga að vera ósár fyrir og eftir keppni. Það þarf að stíga skref til að tryggja það,“ segir Kristinn. Vilja herða reglur um kynbótasýningar  Fimmtungur hrossa með áverka eftir kynbótasýningar Morgunblaðið/Kristinn Landsmót Flestir áverkarnir urðu við kynbótasýningar á landsmótinu í sumar þótt aðstæður væru til fyrirmyndar. Heimir Snær Guðmundsson Hjörtur J. Guðmundsson Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykja- víkurborgar fyrir árið 2013 er gert ráð fyrir 7,6 milljarða króna afgangi af samstæðureikningi borgarinnar. Áætlunin sem kynnt var á blaða- mannafundi í gær, gerir ráð fyrir að A-hluti samstæðunnar sem er hinn eiginlegi rekstur borgarinnar skili 329 milljóna króna afgangi á næsta ári. „Þetta er nú töluvert ánægjulegra heldur en hefur verið síðustu ár. Þetta mun vera þriðja fjárhagsáætl- un sem þessi meirihluti leggur fram og það er ljóst að hagur Reykjavíkur er að batna. Við höfum ástundað það sem við höfum gjarnan kallað ömmu- hagfræði, öðru nafni ábyrga fjár- málastjórnun sem einkennist af sparnaði, ábyrgð og niðurgreiðslu skulda. En jafnframt höfum við stað- ið þétt um velferðarmálin og nú er svo komið að við leggjum hér fram fjárhagsáætlun sem er að mestu leyti ákaflega gleðileg,“ sagði Jón Gnarr borgarstjóri á fundinum og bætti því við að bjart væri framund- an í Reykjavík. Rúmur helmingur til skóla- og frístundamála Fjárfestingar í borginni munu nema tæplega sjö milljörðum króna á næsta ári. Þar á meðal eru fram- kvæmdir við miklar endurbætur á Hverfisgötu. Í fréttatilkynningu seg- ir að um helmingur nýframkvæmda verði fjármagnaður með lántökum. Framlög til fjárhagsaðstoðar í Reykjavík hækka um rúman milljarð króna en við vinnslu fjárhagsáætl- unar var litið til aðgerða á vinnu- markaði sem nauðsynlegt er talið að ráðast í á næsta ári. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að rúmur helmingur útgjalda aðalsjóðs borg- arinnar fari til skóla- og frístunda- mála og ennfremur að á næsta ári verði bætt í sérkennslu og afleys- ingahlutfall leikskólakennslu verði fært í sama horf og það var fyrir hrun. Í myndrænni framsetningu á vef Reykjavíkurborgar má sjá að heildarútgjöld í fjárhagsáætlun verða rúmir 70 milljarðar og hækka um 5,5 milljarða samkvæmt endur- skoðaðri áætlun 2012. Einnig var kynnt á fundinum í gær fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar en í tilkynningu segir að hún geri ráð fyrir „mikilli niðurgreiðslu skulda“. „Við erum að greiða skuldir niður býsna hratt. Sérstaklega næstu fimm árin. Það er Orkuveitan sem er stóra ástæðan fyrir því. Á næsta ári erum við að greiða niður skuldir þar um 25 milljarða. Það kæmi mér ekki á óvart þó það væri einhverskonar Íslands- met,“ sagði Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, á blaðamanna- fundinum í gær. Dagur var inntur eftir því hvers vegna útsvar væri ekki lækkað í borginni fyrst staðan væri að batna og svaraði hann því til að álögur á borgarbúa hefðu verið lækkaðar í tíð núverandi meirihluta. Þannig hefðu fasteignagjöld verið lækkuð á síðasta ári þó það væri ekki gert nú. Enn- fremur væru gjaldskrár lægstar í Reykjavík af sveitarfélögum lands- ins. Sjö milljarðar til fjárfestinga í borginni  Afgangur af A-hluta verði 329 milljónir Morgunblaðið/Golli Áætlun Forsvarsmenn meirihlutans segja bjart framundan í borginni. Fjárhagsáætlun » A- hluti borgarsjóðs mun skila sívaxandi afgangi til árs- ins 2017 skv. fimm ára áætlun. » Skuldir og skuldbindingar dragast saman um 51,4 millj- arða og nema 249 milljörðum 2017, skv. sömu áætlun. » Útsvar í Reykjavík var 14,4% árið 2010 en var hækkað í 14,48% árið 2011, í tíð núver- andi meirihluta. „Ég reyni að biðja hestinn aldrei um meira en hann er tilbúinn að gera,“ segir Gísli Gíslason, hrossaræktandi og tamn- ingamaður á Þúfum í Skaga- firði. Hann sýndi kynbótahross 28 sinnum á þessu ári og aldrei varð vart við áverka á hross- unum. Hann er á lista þeirra tíu knapa sem voru með fæsta áverka á kynbótahrossum sín- um. „Ég sýni yfirleitt aðeins hesta sem ég hef verið með all- an veturinn og þekki vel. Geri lítið af því að hoppa á bak hest- um sem ég þekki lítið.“ „Þetta liggur fyrst og fremst hjá knöpunum sjálfum. Sumir verða svo uppteknir af því að fá sem hæstar tölur, dómkerfið biður um mikil afköst. Hasarinn verður þá svo mikill að það gleymist að hestarnir eru ekki tilbúnir í þetta,“ segir Gísli um ástæðu áverkanna. Gleymist í hasarnum SLYSALAUS Í TVÖ ÁR „Útþensla kerfisins á kostnað borgar- búa er það sem stendur upp úr þegar litið er yfir verk meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar. Meirihlutinn seilist enn í vasa borg- arbúa þrátt fyrir að skatttekjur A- hluta borgarinnar fari úr 50 millj- örðum árið 2010 í 66,2 milljarða í fjár- hagsáætlun 2013,“ segir í ályktun sem borgarstjórnarflokkur Sjálf- stæðisflokksins sendi frá sér í gær vegna fjárhagsáætlunar meirihlut- ans. Þar segir m.a. að meirihluti Sam- fylkingarinnar og Besta flokksins hafi kostað meðalfjölskyldu í höfuð- borginni 330 þúsund kr., sem svarar meðallaunum kennara í borginni, í formi skatta- og gjaldskrárhækkana. Þá segir að taka þurfi í taumana og stöðva þessa útþenslu borgarkerfis- ins sem skili borgarbúum ekki meiri þjónustu heldur eingöngu minni ráð- stöfunartekjum. skulih@mbl.is Útþensla á kostnað borgarbúa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.