Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
BÍLARAF
BÍLAVERKSTÆÐI
Bílaraf
www.bilaraf.is
Strandgötu 75 • 220 Hafnarfjörður • Sími 564 0400 • bilaraf.is
Allar almennar
bílaviðgerðir
Tímapantanir í síma 564 0400
Gott verð, góð þjónusta!
Startarar og alternatorar
í miklu úrvali
Opið: mán-fös 12:30 - 18:00 Dalvegi 16a - Rauðu múrsteinshúsunum, 201 Kópavogi - S. 517 7727 - nora.is
Kúluseríur
Yndislegar til þess að lýsa upp
haustið og
skammdegið
Löng sería 35 kúlur 9900,-
Stutt sería 20 kúlur 6990,-
Ný sending, nýjir litir
Opið á laugardögum til jóla
frá 12:00 - 16:00
Samkvæmt fréttaveitunni AFP sagði
pólska dagblaðið Rzeczpospolita frá
því í gær að leifar af sprengiefnum
hefðu fundist í flaki pólsku forseta-
flugvélarinnar sem fórst 10. apríl
2010 með forsetanum Lech Kac-
zynski og 95 öðrum farþegum innan-
borðs.
Í frétt blaðsins segir m.a. að leifar
af TNT og nítróglyseríni hafi fundist
á 30 sætum vélarinnar og á samskeyt-
um vélarbolsins og annars vængsins.
Pólskir og rússneskir rannsakend-
ur höfðu áður útilokað að sprenging
hefði valdið flugslysinu en nýju at-
huganirnar voru framkvæmdar af
pólskum saksóknurum og sérfræð-
ingum, segir í fréttinni.
„Við verðum að bíða eftir því að
saksóknarar dragi sínar ályktanir og
reki uppruna efnanna áður en við
grípum til einhverra ráðstafana,“
sagði Pawel Gras, talsmaður pólskra
stjórnvalda, í samtali við ríkismiðilinn
TVP.
Í frétt Rzeczpospolita segir að
hugsanlega megi rekja efnaleifarnar
til ósprunginna sprengja úr seinni
heimstyrjöldinni en í henni voru harð-
ir bardagar háðir í Smolensk, þar sem
vélin brotlenti.
Í pólskri skýrslu, sem kom út í júlí
á síðasta ári, var áhöfninni kennt um
flugslysið en hún var sögð hafa verið
illa þjálfuð. Í skýrslunni voru „öfga-
útskýringar“ á tildrögum slyssins út-
lokaðar, s.s. að um skemmdarverk
hefði verið að ræða eða að þrýst hefði
verið á flugáhöfnina um að lenda
þrátt fyrir slæm veðurskilyrði.
Pólski hersaksóknarinn Ireneusz
Szelag sagði í gær að frétt Rzecz-
pospolita væri ekki rétt og að ekki
hefði verið staðfest að sprengiefna-
leifar væri að finna í vélarflakinu.
holmfridur@mbl.is
AFP
Brotlending Rússneskir björgunarmenn virða fyrir sér flak Tupolev-
vélarinnar sem hrapaði 10. apríl 2010 nærri flugvellinum í Smolensk.
Fundu leifar af
sprengiefnum
TNT og nítróglyserín á flugsætunum
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Rannsókn endurskoðenda jap-
anskra stjórnvalda hefur leitt í ljós
að allt að fjórðungi af jafnvirði tæp-
lega 18.900 milljarða króna sem ætl-
að var að nota til uppbyggingar eftir
flóðbylgjuna og kjarnorkuslysið í
mars í fyrra hefur verið varið í
ótengd verkefni á borð við styrki til
augnlinsuverksmiðju og rannsóknir
á hvölum.
Mörg verkefnanna sem ekki
tengjast uppbyggingu hamfara-
svæðanna voru sett inn á fjárhags-
áætlunina undir því yfirskini að þau
gætu hjálpað til við að koma hjólum
efnahagslífsins aftur á hreyfingu.
Viðurkenna mistökin
Enn á eftir að úthluta meira en
helmingi alls þess fjár sem ætlað
var í uppbygginguna en á meðan
ríkir óvissa hjá þeim 340 þúsundum
manna sem þurftu að flýja heimili
sín um hvort og þá hvenær heima-
slóðir þeirra verða byggðar upp að
nýju. Ríkisstjórnin hefur nú viður-
kennt að þetta hafi verið mistök.
„Það er satt að ríkisstjórnin hefur
ekki gert nóg og ekki nægilega vel.
Við verðum að hlusta á þá sem segja
að enduruppbygging eigi að vera í
forgangi,“ sagði Yoshihiko Noda,
forsætisráðherra landsins, á þingi á
mánudag.
Hann lofaði því einnig að óskyld
verkefni yrðu tekin út af fjárhags-
áætluninni fyrir uppbygginguna.
Uppbygging í Jap-
an út af sporinu
Stór hluti fjár til
uppbyggingar fór í
óskyld verkefni
AFP
Mistök Noda forsætisráðherra hef-
ur viðurkennt mistök sín.
Talsmaður
bandaríska
utanríkisráðu-
neytisins tók í
gær undir með
eftirlitsfulltrúum
öryggis- og sam-
vinnustofnunar
Evrópu og sagði
nýafstaðnar
þingkosningar í
Úkraínu skref aftur á bak fyrir
lýðræðið í landinu. Sagði talsmað-
urinn að stjórnvöld í Washington
væru uggandi vegna ásakana um
svindl og falsanir í kosningaferl-
inu.
Þegar atkvæði höfðu verið talin
í 90% kjördæma í gær hafði flokk-
ur forsetans, Viktors Janúkóvits,
hlotið 31,4% atkvæða en flokkur
Júlíu Tímósjenkó, fyrrverandi for-
sætisráðherra, 24,6%.
Fulltrúar frá ÖSE óskuðu eftir
því í gær að fá að heimsækja Tí-
mósjenkó, sem er í haldi á spítala í
Kharkiv vegna bakverkja, en var
tjáð að það væri ómögulegt þar
sem hún væri undir eftirliti lækna
vegna hungurverfalls sem hún hóf
eftir að úrslit kosninganna voru
gerð kunn.
ÚKRAÍNA
Stjórnvöld í Wash-
ington hafa áhyggj-
ur af þróun mála
Júlía Tímósjenkó
Lögregluyfirvöld
í Simbabve
höfðu á dög-
unum hendur í
hári tveggja
manna þegar
þeir reyndu að
endurheimta
eiturlyf úr lík-
ama látins
manns á útfararstofu í höfuðborg-
inni, Harare.
Maðurinn, Ally Omari Mpili, lést
á ferðalagi til Suður-Afríku en
þegar hann var krufinn fundust
1,4 kg af heróíni í maga hans.
Mennirnir tveir hafa verið
ákærðir fyrir brot gegn fíkniefna-
löggjöf landsins.
SIMBABVE
Fundu eiturlyf í
maga látins manns