Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 18
FRÉTTASKÝRING
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Að minnsta kosti 40 eru látnir og
nokkurra er enn saknað eftir að
fellibylurinn Sandy gekk á land
nærri Atlantic City í New Jersey-
ríki á mánudag, klukkan 20 að stað-
artíma. Sjávarborð við austurströnd
Bandaríkjanna hækkaði um allt að
fjóra metra og stór hluti neðri Man-
hattan fór undir vatn. Þá hafa flóð
valdið gríðarlegum skemmdum í
New Jersey og milljónir eru án raf-
magns.
Barack Obama lýsti yfir stór-
hamfaraástandi í New York-ríki og
New Jersey en í New York-borg
flæddi sjór yfir göturnar í fjármála-
hverfinu á Manhattan og ofan í neð-
anjarðarlestarkerfi borgarinnar og
veggöng. Yfirmaður almennings-
samgangna í New York, Joseph
Lhota, sagði að lestarkerfi borg-
arinnar hefði aldrei mátt þola aðrar
eins hörmungar og borgaryfirvöld
sögðu alls óvíst hvenær eðlilegar
samgöngur kæmust á að nýju.
Sögulegar hamfarir
„Ég held að það sé ekki ofsagt að
nota orð eins og „hamfarir“ eða
„sögulegur“ til að útskýra áhrif
[fellibylsins],“ sagði ríkisstjóri New
York, Andrew Como, í gær. Í
Breezy Point-hverfinu í Queens
börðust um tvö hundruð slökkviliðs-
menn við eld sem eyðilagði a.m.k. 80
heimili en 25 var bjargað úr eldinum
af björgunarmönnum á bátum. Alls
létust 15 í New York-ríki, þar af 10 í
New York-borg, og 1,7 milljónir
voru án rafmagns í gærkvöldi, sam-
kvæmt upplýsingum frá orkufyr-
irtækjum.
Þremur kjarnorkuverum, tveimur
í New York-ríki og einu í New Jer-
sey, var lokað eftir að fellibylurinn
fór yfir en stjórnendur þeirra sögðu
almenningi þó ekki stafa ógn af
þeim. Chris Christie, ríkisstjóri New
Jersey, sagði að fárviðrið hefði vald-
ið „óhugsandi“ skemmdum meðfram
Jersey-strandlengjunni en í Atlantic
City huldi hnéhæðarhátt vatn götur
í miðbænum og tilkynnt var um
miklar skemmdir á öllum lestar-
leiðum borgarinnar.
Meira en tvö hundruð vegum var
lokað í ríkinu og 2,3 milljónir manna
voru án rafmagns í gær. Þá voru
björgunarmenn önnum kafnir við að
bjarga hundruðum íbúa nokkurra
bæja, sem sumir biðu á þökum
heimila sinna, eftir að stíflugarður
brast í Moonachie. Ríkisstjórinn
lýsti því hvernig skemmtigarðar
væru nú neðansjávar og að heim-
ilum hefði skolað út á þjóðveg 35.
„Það mun taka okkur marga mánuði
að ná okkur eftir þetta,“ sagði
Christe.
Snjórinn eins og steinsteypa
Snemma í gær voru alls 7,5 millj-
ónir án rafmagns í 15 ríkjum og
Washington DC en 11 þúsund höfðu
leitað í neyðarskýli Rauða krossins
áður en fellibylurinn gekk á land. Í
Connecticut létu tveir lífið þegar tré
féllu á þá og einn lést í Maryland
þegar tré féll á heimili hans. Í
Massachusetts voru íbúar varaðir
við áframhaldandi sterkum vindum
og í New Hampshire réð ríkisstjór-
inn, Jon Lynch, fólki frá því að
ferðast á þjóðvegunum.
Í Vestur-Virginíu sló stórhríð út
rafmagn, reif upp tré og huldi götur
undir miklum og blautum snjó, sem
veðurfræðingurinn Reed Timmer
sagði helst líkjast steinsteypu. Þá
lýsti Beverly Perdue, ríkisstjóri
Norður-Karólínu, yfir neyðar-
ástandi í 24 sýslum í vesturhluta rík-
isins vegna snjókomu.
Stormurinn ekki genginn yfir
Heldur dró úr styrk Sandy þegar
fellibylurinn gekk lengra inn í land,
en klukkan 17 í gær, að íslenskum
tíma, mældust sterkustu vindar
bylsins 19 m/s. Þá var miðja hans
einhvers staðar yfir Pennsylvaníu.
Sérfræðingar vöruðu þó við því að
áfram myndi flæða meðfram þétt-
byggðri strandlengjunni og um
7.400 heimavarnarliðar voru ræstir
út til að aðstoða við björgunarstörf í
ellefu ríkjum.
„Stormurinn er enn ekki genginn
yfir,“ sagði Barack Obama þegar
hann heimsótti höfuðstöðvar Rauða
krossins í Washington í gær. Hann
sagðist hafa fyrirskipað embættis-
mönnum alríkisstjórnarinnar að
„stytta sér leið“ framhjá viðteknum
starfsreglum til að koma þeim millj-
ónum sem hafa orðið fyrir barðinu á
fellibylnum til aðstoðar.
„Ekki velta því fyrir ykkur af
hverju við getum ekki gert eitthvað.
Finnið út úr því hvernig við getum
gert eitthvað,“ sagði Obama og
bætti því við að nú væri engin afsök-
un til fyrir aðgerðarleysi.
Stjórnvöld í þeim ríkjum sem
verst urðu úti voru sammála um að
framundan væri mikil vinna við að
koma hlutunum í samt horf. Tjóna-
matsfyrirtæki voru flest sammála
um að tjónið af völdum Sandy gæti
numið 20 milljörðum dollara en víst
þykir að mun meira tjón verði af
völdum flóða og ofankomu en af
vindinum sem slíkum.
Kauphöllin opin í dag
Fjöldi fólks hafði hamstrað nauð-
synjar á borð við vatn á flöskum áð-
ur en Sandy nam land. Þá bárust
fréttir af því að verslanir hefðu
hækkað verð, t.d. á vasaljósum, sem
eflaust koma sér vel nú þegar millj-
ónir eru rafmagnslausir.
Starfsemi hefur legið niðri hjá
fjölda fyrirtækja á austurströndinni
en tilkynnt var í gær að kauphöllin í
New York yrði opnuð í dag eftir að
hafa verið lokuð tvo daga í röð vegna
veðurs, í fyrsta sinn síðan 1888.
Í gær hafði alls 15 þúsund flug-
ferðum verið aflýst vegna fellibyls-
ins en Andrew Cuomo, ríkisstjóri
New York-ríkis, sagði mögulegt að
JFK-alþjóðaflugvöllurinn yrði opn-
aður í dag. LaGuardia yrði hins veg-
ar lokaður áfram vegna mikilla
skemmda.
Gekk yfir með manntjóni
Að minnsta kosti 40 látnir eftir að
fellibylurinn Sandy gekk á land á aust-
urströnd Bandaríkjanna
Flóð Sjór flæddi ofan í veg- og lestargöng í New York og víða líktust háhýsin einna mest eyjum í vatnsflaumnum.
Rýmd svæði í New York
Heimild: WNYC
Yfirvöld fyrirskipuðu 375 þúsund manns að yfirgefa heimili sín er
Sandy nálgaðist austurströndina.
Manhattan
LaGuardia-
flugvöllurinn
JKF-
alþjóða-
flugvöllurinn
Belle Harbor
Staten
Island
Brooklyn
Bronx
Fyrirskipuð
rýming
Möguleg flóðahætta
af 2. stigs fellibyl
Möguleg flóðahætta
af 4. stigs fellibyl
Jersey
City
Newark
New York
New York
USA
5 km
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
Hamfarirnar í Bandaríkjunum
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Óvenjulegar aðstæður urðu til þess
að fellibylurinn Sandy gekk á land á
norðausturströnd Bandaríkjanna í
fyrrinótt. Að sögn Trausta Jónssonar
veðurfræðings var Sandy upphaflega
venjulegur fellibylur. Þeir eyðist
venjulega þegar þeir komist í snert-
ingu við svokallað vestanvindabelti
sem ríki í efri lögum veðrahvolfsins.
Tilviljanakenndar aðstæður hafi
hins vegar orðið til þess að fellibyl-
urinn hafi rekist á lægð sem var á því
stigi myndunar að hún gat tekið á
móti honum án þess að eyðileggja
hann.
„Hann stækkar mikið en hinn
eiginlegi fellibylur eyðist og úr verður
stór og slæm
lægð. Vindhrað-
inn er ekki mikið
meiri en í lægðum
sem við fáum hér
á Íslandi en tjónið
er fyrst og fremst
af sjávarflóðum.
Meginhluti tjóns-
ins er vegna flóða
frekar en vinds-
ins,“ segir
Trausti.
Lægðin sé mun stærri um sig en
venjulegur fellibylur og því geti hún
blásið lengri vegalengdir yfir sjó og
myndað stærri öldur. Stærðin og
óheppileg aðkoma að ströndinni geri
það að verkum að tjónið verði mikið.
Trausti segir að það sé þekkt að
fellibyljir gangi yfir þennan hluta
Bandaríkjanna, til dæmis Long Is-
land og hluta Virginíu-ríkis. Svæðið
þar á milli hafi hins vegar lent í færri
stormum. Því séu þar margir staðir
við ströndina sem séu illa undir
veðurofsa á borð við þennan búnir.
Áfram hvassviðri
Afl fellibylsins fer dvínandi eftir
því sem hann gengur lengra upp með
landinu þar sem meira viðnám yfir
landi en sjó og loft sem sogist inn í
lægðarmiðjuna grynnki hana.
Þrátt fyrir það segir Trausti að lík-
legt sé að vindur upp í 15-20 m/s verði
viðvarandi eitthvað áfram. Þá fylgi
úrkoma í formi rigningar og snjóa í
hærri byggðum sem eigi eftir að
valda vatnavöxtum og ófærð.
Stærri um sig en fellibylur
Megintjónið af Sandy vegna sjávarflóða en ekki vindsins
Tilviljun að stormurinn stækkaði í stað þess að eyðast
Trausti
Jónsson
AFP
Fárviðri Gervihnattamynd geimvísindastofnunarinnar NASA sem sýnir
fellibylinn Sandy nálgast austurströnd Bandaríkjanna á mánudag.