Morgunblaðið - 31.10.2012, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
Jóhann Óli Hilmarsson
Stokkseyri
Sólvellir á Stokkseyri voru malbikaðir á mánu-
dag. Þar með er síðasta íbúðagatan í þorpinu
komin með bundið slitlag. Mikil umferð er um
þessa 250 metra löngu götu og voru íbúar orðnir
langþreyttir á vondum malarveginum. Leiðin að
leikskólanum liggur um fremsta hluta götunnar
og var sá hluti venjulega stórvarasamur yf-
irferðar vegna holna. Jafnframt liggur leiðin að
hinu fjölsótta tjaldstæði Stokkseyrar um Sólvelli
og á sumrin lá rykmökkur yfir nærliggjandi hús-
um og görðum. Þessu hefur nú loksins verið
kippt í liðinn. Sérstaklega þótti ástandið grát-
broslegt þegar skammt austur af Sólvöllum er
malbikuð gata með kantsteini og ljósastaurum
en engum húsum, hún var lögð árið 2007. Elstu
húsin við götuna eru frá því fyrir aldamótin 1900
og Páll Ísólfsson tónskáld fæddist í Sím-
onarhúsum, einu húsanna þar.
Morgunblaðið/JÓH
Síðasta gatan á Stokkseyri malbikuð
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Landsvirkjun uppfyllir kröfur um
góðar starfsvenjur í 20 þáttum af 21
sem skoðaður var samkvæmt nýjum
alþjóðlegum matslykli um sjálfbærni
vatnsaflsvirkjana. Úttekin fór fram í
maí sl. og náði yfir undirbúnings-
vinnu Landsvirkjunar vegna fyr-
irhugaðrar Hvammsvirkjunar í
neðri hluta Þjórsár.
Matslykill er unninn að frum-
kvæði Alþjóðavatnsaflssamtakanna
en samkvæmt upplýsingum Lands-
virkjunar hafa margir alþjóðlegir
hagsmunaaðilar komið að þróun
hans. Fimm alþjóðlegir sérfræð-
ingar unnu úttektina en alls ræddu
þeir við 58 einstaklinga. Sá eini þátt-
ur sem Landsvirkjun uppfyllti ekki
kröfur um snéri að samskiptum og
samráði.
„Við erum ánægð með þessa nið-
urstöðu. Þetta er gagnleg vinna. Þó
að við komum í flestum atriðum vel
út þá eru þarna hlutir sem má laga,
og við erum að vinna í því. Markmið
svona úttektar er að finna út hvað
má betur fara,“ segir Hörður Arn-
arson, forstjóri Landsvirkjunar, um
niðurstöður skýrslunnar.
Hvammsvirkjun er efst á því
virkjanasvæði sem tilheyrt hefur
neðri Þjórsá og Landsvirkjun haft
áform um að ráðast fyrst í gerð
þeirrar virkjunar, sem er 80-90 MW
að stærð. Með aukinni hagkvæmni
gæti orkan aukist.
Spurður hvort þessi vinna hjálpi
til við að koma Hvammsvirkjun úr
biðflokki í rammaáætlun segir Hörð-
ur hana ekki gerða í þeim tilgangi.
„Þetta snýr að undirbúningsvinn-
unni og úttektin staðfestir að hún
hefur í flestum atriðum verið mjög
vönduð. Við munum bæta sam-
skiptin og samráðið, eins og bent er
þarna á,“ segir Hörður en Lands-
virkjun hefur sett sér það markmið
að láta vinna svona úttektir í
tengslum við allrar aðrar fyrirhug-
aðar virkjanir, til samræmis við
þennan alþjóðlega matslykil. „Það er
mjög gagnlegt að fá utanaðkomandi
aðila til þess að meta hvernig staðið
er að umdeildum framkvæmdum.“
Hörður segir Landsvirkjun hafa í
umsögnum til Alþingis talið að virkj-
anir í neðri hluta Þjórsár eigi að fara
aftur í nýtingarflokk. Áhrif þessara
virkjana á t.d. lax séu ólík. Hvamms-
virkjun og Holtavirkjun hafi ekki
áhrif á náttúrulegt búsvæði laxfiska
og því sé ekki ástæða til að setja þær
í biðflokk.
Kröfur uppfylltar
í 20 þáttum af 21
Bæta þarf samskipti og samráð vegna Hvammsvirkjunar
Virkjanir í neðri hluta Þjórsár
5 km
SKEIÐA- OG
GNÚPVERJAHREPPUR
RANGÁRÞING YTRA
ÁSAHREPPUR
FLÓA-
HREPPUR
Þjórs
á
Hestfjall
Vörðufell
Hv
ítá
Skarðsfjall
Gíslholtsvötn
Búðafoss
Þjórsártún
Kálfhóll
Háholt
Blesastaðir
Brautarholt
Árnes
Stórinúpur
Hagi
Skarð
Árneslón
4,5 km2
Hagalón
4,6 km2
Heiðarlón
12,5 km2
Urriðafossvirkjun
125 MW
Holtavirkjun
50 MW
Hvammsvirkjun
80 MW
Hvammsvirkjun er samkvæmt
þingsályktunartillögu um ramma-
áætlun eins og aðrar virkjanir í
neðri Þjórsá sett í biðflokk en var í
nýtingarflokki í tillögu verkefnis-
stjórnar um rammaáætlunina.
Hörður Arnarson segir undirbún-
ingi virkjunarinnar haldið í lág-
marki. „Við höfum verið að við-
halda hönnunarvinnu og leita leiða
til að ná fram meiri hagkvæmni.
Endurskoðun miðar að nokkurri
kostnaðarlækk-
un,“ segir Hörður
en einnig hafa
komið tillögur
um að draga úr
áhrifum virkj-
unarinnar á laxa-
gengd í Þjórsá,
með því t.d. að
setja upp seiða-
fleytu eins og fyrirhuguð er í
Urriðafossvirkjun.
Undirbúningi haldið í lágmarki
FORSTJÓRI LANDSVIRKJUNAR UM HVAMMSVIRKJUN
Hörður Arnarson
Heilbrigðisnefnd Suðurlands hefur
lagt til að forsvarsmenn Þjórsár-
laugar verði kærðir til lögreglu
vegna brota á starfsleyfisskyldu. Til-
efnið er banaslys sem varð í júlí síð-
astliðnum en þá lést þýskur ferða-
maður á sextugsaldri í lauginni.
Hann var nýkominn á laugarsvæðið
og var að stíga ofan í laugina þegar
hann virtist missa afl og detta ofan í
laugina. Honum var þegar komið til
hjálpar en lífgunartilraunir báru
ekki árangur.
Á síðasta fundi nefndarinnar var
lagt fram minnisblað Heilbrigðiseft-
irlits Suðurlands (HES) sem innihélt
samantekt yfir upplýsingar og sam-
skipti HES og forsvarsmanna Þjórs-
árdalslaugar frá því í sumar. Í bókun
nefndarinnar segir síðan eftirfarandi
um málið: „Í ljósi þess að fyrir lá
ítrekuð afstaða HES um starfsleyf-
isskyldu og úttekt áður en starfsemi
hæfist og villandi upplýsingar frá
forsvarsmönnum laugarinnar er lagt
til að málið verði kært til lögreglu
vegna brota á starfsleyfisskyldu.“
Laugin er í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi. Gunnar Örn Marteinsson,
oddviti sveitarstjórnar hreppsins,
segir forsvarsmenn laugarinnar hafa
tjáð sér að þeir hafi heyrt fyrst af því
í fréttum að til stæði að kæra þá.
„Mér finnst þetta afskaplega und-
arleg vinnubrögð af hálfu heilbrigð-
iseftirlitsins að fara með svona mál í
fjölmiðla áður en viðkomandi er sagt
frá því,“ segir Gunnar. Aðspurður út
í bókun nefndarinnar segir Gunnar:
„Ég veit að þau seldu ekki inn í laug-
ina í sumar, þannig að þau ætla, eftir
því sem hann sagði mér sá sem rak
þetta í sumar, að fá sér lögfræðing
og skoða þetta.“
Kæri forsvarsmenn
Þjórsárdalslaugar
Oddviti furðar sig á vinnubrögðum
Guðmundur
Örn Jóhanns-
son, fram-
kvæmdastjóri
Slysavarna-
félagsins
Landsbjargar,
hefur óskað
eftir leyfi frá
störfum sínum vegna fréttar sem
birtist í DV í dag, að því er segir í
tilkynningu frá stjórn Lands-
bjargar í gærkvöldi.
Þar segir að fréttin fjalli um
viðskipti sem hann tók þátt í
tveimur árum áður en hann hóf
störf hjá Landsbjörg.
skulih@mbl.is
Óskar eftir leyfi
vegna fréttar í DV
Ómissandi á pizzuna,
í ofn- og pastaréttina,
á tortillurnar og salatið.
Heimilis
RIFINN OSTUR
ÍSLENSKUR OSTUR
100%
Póst- og fjar-
skiptastofn-
un hefur
samþykkt
tvær beiðnir
Íslandspósts
um heimild
til þess að loka póstafgreiðslu-
stöðum. Um er að ræða annars veg-
ar póstafgreiðslustöð á Flateyri og
hins vegar á Bíldudal.
Á heimasíðu Póst og fjarskipta-
stofnunar segir að það sé mat stofn-
unarinnar að sú þjónusta sem Ís-
landspóstur ætli að bjóða íbúum
bæjarfélaganna tveggja í staðinn
fullnægi gæðakröfum laga um póst-
þjónustu sem og þeim skyldum sem
hvíla á fyrirtækinu sem alþjón-
ustuveitanda.
Heimilar lokun á
póstafgreiðslum