Morgunblaðið - 31.10.2012, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
laugardaginn 24.nóvember.
Í jólablaðinu í ár komum við víða við, heim-
sækjum fjölda fólks og verðum með fullt af
spennandi efni fyrir alla aldurshópa.
Jólablaðið er flottasta sérblaðið
sem Mogginn gefur út og er eitt
af vinsælustu blöðum lesenda.
SÉRBLAÐ
Pöntunartími auglýsinga:
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
19.nóvember
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569-1105
kata@mbl.is
Uppáhalds jólauppskriftirnar.•
Uppskriftir að ýmsu góðgæti til að•
borða á aðventu og jólum.
Villibráð.•
Hefðbundnir jólaréttir og jólamatur.•
Smákökur.•
Eftirréttir.•
Jólakonfekt og sælgæti.•
Grænmetisréttir og einnig réttir fyrir•
þá sem hafa hollustuna í huga þegar
jólin ganga í garð.
Vínin með veislumatnum í ár•
Gjafapakkningar.•
Tónlistarviðburðir, söfn, kirkjur á aðventu•
og í kringum jólahátíðina.
Kerti og aðventukransar.•
Jólagjafir•
Heimagerð jólakort.•
Jólaföndur.•
Jólabækur og jólatónlist.•
Jólaundirbúningur með börnunum.•
Margar skemmtilegar greinar sem•
tengjast þessari hátíð ljóss og friðar.
MEÐAL EFNIS:
– Meira fyrir lesendur
Morgunblaðið gefur út
stórglæsilegt jólablað
JÓLABLAÐ
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Bæjarstjórn Seltjarnarness hefur
samþykkt deiliskipulagstillögu fyrir
Bygggarðasvæðið til auglýsingar.
Byggingarland hefur verið af skorn-
um skammti í bænum. Samkvæmt
tillögunni verður um að ræða fjöl-
breytta og blandaða húsagerð, ein-
býlis-, par-, rað- og fjölbýlishús.
Byggingar verða 1-3 hæðir, tak-
markaður fjöldi þriggja hæða húsa
verður á svæðinu og gert er ráð fyrir
að ný byggð rísi ekki hærra en núver-
andi byggð. „Seltirningar hafa verið
að bíða eftir að þetta svæði verði
byggt upp. Deiliskipulagsvinnan hef-
ur verið unnin í sátt við íbúana, búið
er að halda þrjá íbúafundi þar sem
ferlið hefur verið kynnt og ábend-
ingar frá íbúum verið skoðaðar,“ seg-
ir Ásgerður Halldórsdóttir, bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi.
Íbúar verða um 370
„Svæðið hefur verið skipulagt fyrir
blandaða íbúabyggð. Hér er tækifæri
fyrir fólk að eignast íbúð allt frá 80
fermetrum upp í einbýlishús. Við vilj-
um sjá að þarna verði samfélag fólks
á öllum aldri, þarna verður ungt fjöl-
skyldufólk, fólk á miðjum aldri og
þeir sem eldri eru,“ segir Ásgerður
og bætir við að tillagan geri ráð fyrir
um 140 íbúðum á svæðinu að hámarki
og gera megi ráð fyrir að íbúar verði
að um 370. Deiliskipulagið verður nú
auglýst eins og lög gera ráð fyrir og í
kjölfarið gefst almenningi kostur á að
gera athugasemdir innan sex vikna.
Landey ehf. á byggingarrétt á
svæðinu. Ingi Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri segist reikna með að
deiliskipulag verði hugsanlega tilbúið
á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.
„Hugsanlega geta lóðir farið í sölu á
næsta ári, ég er þó ekkert sér-
staklega bjartsýnn á það,“ segir Ingi
en Landey á um 60-70% af umræddu
landi. Aðspurður hvort einhverjir
hafi sýnt lóðakaupum áhuga segist
hann vissulega hafa orðið var við slík-
an áhuga. „En ég held að það verði
ekki neinn alvöru áhugi fyrr en deili-
skipulag verður samþykkt,“ segir
Ingi.
33 íbúðir á Hrólfskálamelum
Á Hrólfsskálamelum á Seltjarn-
arnesi ráðgerir fjárfestingafélagið
Stólpi að ráðast í gerð fjölbýlishúss
með 33 íbúðum. Framkvæmdir
munu væntanlega hefjast um eða
eftir áramót. „Verktakarnir sem
standa fyrir þessum framkvæmdu
segjast heyra á fólki að mikill áhugi
sé meðal fólks á Seltjarnarnesi og í
Vesturbænum. Það hefur verið
stefna bæjarins að vera með lágar
álögur á bæjarbúa og veita góða
þjónustu. Okkar leiðarljós er að hlúa
vel að börnum og unglingum, með
góðum leik- og grunnskóla og í gegn-
um íþrótta- og tómstundastarf.
Þjónusta við eldri borgara skiptir
okkur einnig miklu máli og bygging
hjúkrunarheimils hefst á næsta ári,“
segir Ásgerður. Eflaust heilli líka
nálægð við útivistarsvæðin við
ströndina, Gróttu og golfvöllinn.
Íbúum mun fjölga á Nesinu
Deiliskipulagstillaga fyrir Bygggarðasvæðið samþykkt til auglýsingar Blönduð húsagerð, ein-
býlis-, fjölbýlis-, par- og raðhúsa Bæjarstjóri segir að á svæðinu verði samfélag fólks á öllum aldri
Breytingar Hér má sjá skipulag svæðisins. Við skipulagsvinnu var stefnt að því að skapa byggð í sátt við nágrennið.
Morgunblaðið/Sverrir
Skipulag Húsnæði menningarmiðstöðvarinnar Norðurpólsins mun víkja samkvæmt skipulagstillögunum.
Tölvumynd/Úr deiliskipulagsstillögu
Töluverðrar
óánægju
gætti meðal
íbúa varðandi
skipulags-
hugmyndir á
Bygg-
garðasvæð-
inu á árunum
2007-2008
og lýstu íbúa-
samtök á Sel-
tjarnarnesi
yfir áhyggjum af miklu bygg-
ingarmagni á svæðinu. Í kjöl-
farið var fallið frá hugmynd-
unum sem gerðu ráð fyrir
hærri byggð og meira bygging-
armagni en núverandi tillaga
gerir ráð fyrir.
Að sögn Ásgerðar voru um
80 manns á íbúafundi sem
haldinn var í síðustu viku þar
sem kynnt voru drög að deili-
skipulagi og skýringarmyndir
af Bygggarðasvæðinu.
Ásgerður segist skynja
ánægju íbúa með nýjar deili-
skipulagstillögur. Að hennar
sögn komu engar at-
hugasemdir fram á íbúafund-
inum. „Nýtingarhlutfallið er
mun lægra, fer úr 0,8 í 0,6,
auk þess sem hæðin á fjöl-
býlishúsunum er lægri. Á þeim
þremur íbúafundum sem við
höfum haldið hafa þeir sem
mætt hafa á fundina lýst yfir
ánægju sinni með fyr-
irkomulagið og að þarna muni
fólk bæði getað minnkað og
stækkað við sig. Auk þess að
geta keypt sína fyrstu íbúð,“
segir Ásgerður.
Minna bygg-
ingarmagn
SKIPULAG BYGGGARÐA
Ásgerður
Halldórsdóttir
Ríkiskaup hafa fyrir hönd Land-
helgisgæslunnar auglýst útboð á
leigu á 2-3 björgunar- og gæsluþyrl-
um, sambærilegum og TF-LIF, sem
er af gerðinni Super Puma og er í
eigu Landhelgisgæslunnar. Tvær
þyrlur sömu gerðar, TF-SYN og TF-
GNA, hafa verið á leigu en samn-
ingur um þá fyrrnefndu rennur út
upp úr áramótum og vegna TF-GNA
í maí árið 2014.
Í útboðsskilmálum er talað um
leigu til sex ára, með möguleika á
framlengingu um tvö ár. Afhending á
þyrlunum á að fara fram frá apr-
ílmánuði 2013 fram á mitt ár 2014.
Að sögn Hrafnhildar Brynju Stef-
ánsdóttur, upplýsingafulltrúa, þarf
Landhelgisgæslan að hafa þrjár þyrl-
ur til taks á staðnum við eftirlits- og
björgunarstörf, til að vera örugg um
að komast í öll útköll.
Samkvæmt gögnum Ríkiskaupa er
miðað við leigu á tveimur Super
Puma þyrlum, með möguleika á leigu
á þremur sambærilegrar gerðar.
„Það er ekki svo mikið til af Super
Puma þyrlum í heiminum þannig að
við getum ekki verið örugg um að fá
tvær þannig þyrlur. Hagstæðast er
að vera með þyrlur sömu tegundar í
umferð hverju sinni.“ bjb@mbl.is
Auglýsa leigu á
nýjum þyrlum
Leiga á Gæsluþyrlum að renna út
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gæslan TF-GNA, ein af þremur
þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Þór, hið nýja varðskip Land-
helgisgæslunnar, er á leiðinni í
slipp til lokayfirferðar áður en
ábyrgðartími skipsins, sem
vélaframleiðandinn Rolls Royce
gaf, rennur út um áramótin. Um
helgina var ár liðið frá því að
skipið kom til landsins. Síðan
þá hefur það farið í vélarskipti
til Noregs, eftir að titringur kom
upp í vélarrýminu.
Á leið í slipp
VARÐSKIPIÐ ÞÓR
Landssamband
hestamanna-
félaga ítrekar
fyrri athuga-
semdir sínar um
að skilgreina
þurfi reiðvegi
sérstaklega í nýj-
um umferðar-
lögum, en frum-
varp að þeim liggur nú fyrir Alþingi.
Þeir vilja að réttarstaða þeirra verði
tryggð með banni við akstri vélknú-
inna ökutækja á reiðvegum.
Nokkrir hestamenn sendu inn at-
hugasemdir í eigin nafni, þar á með-
al Bergljót Rist sem rekur hestaleig-
una Íslenski hesturinn í Reykjavík.
„Það gildir einu hvort um er að ræða
vana eða óvana knapa – okkur stafar
öllum hætta af vélknúnum ökutækj-
um á reiðvegi. Ég þekki því miður
vel hvernig tilfinning það er að vera í
útreiðartúr og fara fyrir stórum hópi
farþega og heyra svo skyndilega í
mótorkrosshjóli í nálægð! Þetta get-
ur sett hestamenn í stórhættu. Ör-
yggi þessara tveggja hópa er ekki
jafnt farið hér, því hjólið getur ekki
undir neinum kringumstæðum
hræðst hestana,“ skrifar hún.
Hjólin
hræðast
ekki hesta
Tryggi réttarstöðu