Morgunblaðið - 31.10.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í
gær 32 ára karlmann, Helga Ragnar
Guðmundsson, í þriggja og hálfs árs
fangelsi. Dómurinn taldi sannað að
Helgi Ragnar hefði skipulagt um-
fangsmikið skjalafals og fjársvik og
fengið fjóra aðra karlmenn til að sjá
um verkin fyrir sig. Alls var um að
ræða tæpar fjörutíu milljónir króna
sem hafðar voru af Íbúðalánasjóði og
endurheimtist féð ekki.
Í dóminum er því lýst að Helgi
Ragnar aflaði upplýsinga og gagna
varðandi tvö tiltekin eignarhaldsfélög
og fasteignir í kerfi Creditinfo og
Landskrár fasteigna, þar á meðal
undirritaðra skjala varðandi fasteign-
irnar og félögin auk annarra undirrit-
aðra skjala. Þannig var unnt að líkja
eftir undirritunum og falsa þau skjöl
sem notuð voru. Helgi Ragnar útbjó
skjölin sem notuð voru og lagði fyrir
annan sakborning að undirrita skjölin
í eigin nafni og falsa undirritanir ann-
arra á skjölin, þar á meðal votta, og
gaf honum fyrirmæli um hvar hann
ætti að framvísa skjölunum.
Aðrir sakborningar höfðu ekki
burði til skipulagningar
Allir voru mennirnir dæmdir fyrir
sinn þátt, þar á meðal 23 ára karl-
maður, Jens Tryggvi Jensson, sem
hlaut þriggja ára fangelsi. Sá á að
baki nokkurn sakarferil og var skil-
orðsdómur dæmdur upp auk þess
sem dómurinn taldi brotavilja hans
styrkan og einbeittan. Jens var einnig
dæmdur fyrir fjárdrátt upp á 12 millj-
ónir og hylmingu.
Aðrir hlutu vægari refsingu og seg-
ir í niðurstöðu dómsins að þeir hafi
hvorki haft þekkingu né burði til að
skipuleggja eða útfæra jafn umfangs-
mikil og flókin brot. Þá þótti sannað
að þeir hefði ekki hlotið ávinning af
brotunum. Á hinn bóginn segir að
Helgi Ragnar hafi bæði haft tilskilda
þekkingu og mikla reynslu í fast-
eignaviðskiptum og fyrirtækja-
rekstri.
Þrjú og hálft ár fyrir
umfangsmikil fjársvik
Alls voru fimm menn dæmdir fyrir aðild sína að málinu
Á dögunum
greindist mótefni
gegn smitandi
barkabólgu í
talsverðum
fjölda gripa á
búinu á Egils-
stöðum á Völlum
og í einum grip
sem þaðan var
gefinn að bænum Fljótsbakka í
Eiðaþinghá. Í framhaldi af því
ákvað Matvælastofnun að taka sýni
af öllum kúabúum í Austur-
umdæmi, fjörutíu talsins, sem öll
reyndust neikvæð. Að ósk Lands-
sambands kúabænda voru í kjölfar
þess tekin sýni frá öllum öðrum
kúabúum landsins, alls 615 sýni.
Búið er að greina þau og er niður-
staðan sú að öll eru neikvæð. Því
bendir allt til þess að um einangrað
tilfelli sé að ræða, sem einskorðist
við framangreind býli. Tekin hafa
verið fleiri sýni þar til að kanna út-
breiðslu smitsins innan þeirra og er
niðurstaðna að vænta á næstu dög-
um, segir á vef Landssambands
kúabænda.
Mótefni gegn barka-
bólgu hefur ekki
fundist í fleiri kúm
www.hjahrafnhildi.is • Sími 581 2141
-20% af
Gjafir sem gleðja
Verð 58.000 kr.
LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660
Á morgun 1. nóvember gefur Íslandspóstur út jólafrímerki
og frímerkjaröð tileinkaða annarri kynslóð frumherja
í íslenskri myndlist. Einnig kemur út frímerki þar sem
myndefnið er kóngssveppur. Boðið er upp á Jólaprýði
Póstsins 2012 í gull- og silfurlit. Myndefni jólafrímerkjanna
og Jólaprýðinnar er sótt í þjóðsöguna um Nátttröllið.
Fyrstadagsumslög fást stimpluð á
pósthúsum um land allt. Einnig er
hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni.
Sími: 580 1050 Fax: 580 1059
Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
Safnaðu litlum listaverkum