Morgunblaðið - 31.10.2012, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þ
að er notalegt að koma
inn úr kuldanum í
Smiðjuna og finna Tolla
á kaffistofunni þar sem
hann er að spila á gítar
og syngja fyrir Bjarna vin sinn,
staðarhaldara. Tónlistin er ein af
mörgum hliðum Tolla, en hann hef-
ur komið víða við, meðal annars í
hljómsveitarbransanum, stundað
sjóinn, unnið sem farandverkamað-
ur og hoggið skóg í Noregi. En
myndlistin varð hans lífsstarf.
„Þegar ég var lítill strákur var ég
alltaf að teikna. Svo komu erfið
unglingsár og ég lagði þetta al-
gjörlega frá mér og endaði sem
ungur maður á togara. Að verða
myndlistarmaður þótti óhentug
hugmynd en mín gæfa var að ég
dreif mig í inntökupróf í Myndlist-
arskólanum og stóðst það. Ég hef
ekki vikið af þessari braut allar
götur síðan. Ég fékk að tengjast
sjálfum mér og er þakklátur fyrir
það,“ segir Tolli og bætir við að
þeir bræður hafi alist upp við mikið
sköpunarfrelsi og leikið sér mikið
við að móta úr leir. „Fyrir vikið
hefur það alltaf verið mér eðlilegt
að búa til það sem ég vil. Ég á til-
tölulega auðvelt með að mæta í
vinnu á morgnana og byrja að
mála, ég treysti á flæðið. Pensill lit-
ur og strigi sjá um þetta ef maður
hefur hugrekki til að stíga inn í
það.“
Verkin eins og dagbók
Tolli hélt sína fyrstu sýningu
fyrir þrjátíu árum í Norræna hús-
inu en þá var hann enn í Myndlista-
og handíðaskólanum. „Við listnem-
ar vorum ansi framtakssamir og
frískir á þessum tíma. Ég var í ný-
listadeildinni og ekkert mikið í því
að mála til að byrja með, en svo
varð málverkið allt í einu kúl og
töff og við rukum í verkið og byrj-
uðum að mála af krafti. Menn voru
frjálsir á þessum árum, áhyggju-
lausir og höfðu gaman.“ En á þess-
um þrjátíu árum hafa orðið gríð-
arlegar breytingar í því sem Tolli
er að fást við, málverkinu. Þó vissu-
lega séu Tollaeinkennin augljós í
nýjustu verkum hans, þá eru þau
allt öðruvísi en þau sem hann gerði
í upphafi ferilsins. „Ég nenni ekki
að vakna upp til vinnu á hverjum
degi og vera alltaf að gera það
sama. Ég reyni að kreista meira og
meira úr því sem ég bý yfir og
þroska með mér hæfileika sem ann-
ars væru vannýttir. Ég hef líka
breyst heilmikið sem manneskja og
myndlistin mín og ég erum sam-
tvinnuð. Þegar ég lít um öxl þá eru
verkin mín eins og dagbók, þau
segja hvernig mér líður á hverjum
tíma.“
Þurfum mannúðarstjórnmál
Tolli ætlar að sýna tuttugu
nýjar myndir á sýningunni sem
hefst á morgun. „Ég lít á þessa
sýningu sem óð til friðar og feg-
urðar. Í stóru myndunum keyri ég
inn á huglæga kyrrð í landslaginu,
þetta er einskonar hugleiðsla, and-
leg skírskotun í landslagið. Að taka
andlega afstöðu til lífsins er ákveð-
in pólitísk afstaða, sem felst í því að
taka ábyrgð á eigin hamingju með
því að fara inn á við og breyta sjálf-
um sér og viðhorfum sínum. Þá
hefur maður sterkari forsendur til
að hafa áhrif á umhverfið. Sýningin
heitir Friður af því mér finnst
vanta frið í samfélagsumræðuna.
Afleiðingar kreppunnar verða ekki
leystar með því að taka aðeins á
ytri aðstæðum. Stjórnmála-
umræðan er því miður pikkföst í
gömlu karma gremju og reiði. Sam-
skiptin á þinginu ganga út á að
dýpka gjána á milli flokkanna.
Stjórnmálamenn eru alltaf að veifa
því sem aðskilur þá í stað þess að
hætta að líta á sig sem stjórn-
málamenn og líta á sig sem fólk
sem er að þjóna öðru fólki. Við
þurfum mannúðarstjórnmál. Það er
klárlega hagkvæmt. Menn þurfa að
Myndlistin mín og ég
erum samtvinnuð
Tolli er kraftmikill boðberi friðar og fegurðar sem birtist í nýjustu myndum hans á
sýningu sem hefst á morgun í Smiðjunni Lishúsi. Hann heldur í leiðinni upp á
það að þrjátíu ár eru síðan hann hélt sína fyrstu myndlistarsýningu. Margt hefur
gerst á þeim þremur áratugum og hann er óhræddur við að stíga inn á ný svið.
Friður Vatnið er hugurinn, þúfnakollar eru lótusblóm norðursins.
Hrekkjavakan er í dag og þá er sá
háttur hafður á í Bandaríkjunum að
krakkar fari hús úr húsi í ýmiskonar
ógnvænlegum grímubúningum og fái
sælgæti. Ekki ósvipað því sem ung-
dómurinn gerir hér heima á Fróni á
öskudaginn. Margir halda hrekkja-
vökupartí en það er líka hægt að
halda skemmtilegt kaffiboð og baka
flottar hrekkjavökukökur. Á vefsíð-
unni www.bbc.co.uk/food/
occasions/halloween má finna upp-
skriftir að veglega skreyttum kökum í
hrekkjavökustíl. Það getur verið gam-
an að bjóða börnunum og vinum í
smá kaffi í dag og sumar skreytingar
eða uppskriftir má einfalda til að
þetta taki nú ekki allt saman of lang-
an tíma. Drauga-, uppvakninga- og
leðurblökukex er líka hægt að baka
með börnunum og eiga þannig nota-
lega samverustund saman, fjöl-
skyldan.
Vefsíðan www.bbc.co.uk/food/occasions/halloween
Ógnvænlegt Drauga- og graskerskökur er dæmigert að hafa á Hrekkjavöku.
Draugakex og leðurblökukökur
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
S k e i f u n n i 8 | S 5 8 8 0 6 4 0 | K r i n g l u n n i | S 5 8 8 0 6 6 0 | c a s a . i s
Rosendahl
Grand Cru Ofndiskur 24x24 kr 4.150,-
Grand Cru Grind undir ofndisk kr 3.150,-
Rosendahl Grand Cru
Piparkvörn kr 5.150,-
Saltkvörn kr 5.150,-
Olía lítil kr 3.650,-
Bakki kr 3.650,-
Lokakvöld Dömulegra dekurdaga og
Bleika októbermánaðarins fer fram á
Icelandair hótelinu á Akureyri í kvöld.
Hefst dagskráin klukkan 20 og
stendur til 22 en aðgangseyrir er
1500 krónur og rennur hann óskiptur
til Krabbameinsfélags Akureyrar og
nágrennis. Konur eru hvattar til að
njóta saman kvöldstundar þar sem
Dóróthea Jónsdóttir les upp úr bók-
inni Bleikur barmur og fjallar um
reynslu sína af baráttunni við
brjóstakrabbamein, séra Hildur Eir
Bolladóttir flytur hugvekju, Mareka
kvartettinn syngur nokkur lög og
flutt verða atriði úr gamanleiknum Ég
var einu sinni frægur sem sýndur
verður í Ketilhúsinu í nóvember og
desember. Þar taka höndum saman
stórleikararnir Gestur Einar Jón-
asson, Aðalsteinn Bergdal og Þráinn
Karlsson. Síðast en ekki síst verður
afhentur styrkur til Krabbameins-
félags Akureyrar og nágrennis sem
fékkst með sölu taupoka sem gerðir
voru á Dömulegum dekurdögum.
Miðarnir eru seldir gegn staðgreiðslu
í afgreiðslu hótelsins.
Lokakvöld Bleika októbermánaðarins
Dömuleg stund á Akureyri
Morgunblaðið/Eggert
Dömulegt Harpa böðuð bleiku ljósi í tilefni Bleika októbermánaðarins.
Í dag hefst tónlistarhátíðin Airwaves
og verður tónlistin þar með í fyr-
irrúmi í höfuðborginni. Fólk þarf ekki
að örvænta þó að það eigi ekki arm-
band inn á hátíðina því að nóg verður
af „off venue“-tónleikum. Það er að
segja tónleikum þar sem aðgangur er
ókeypis og allir geta mætt og kynnt
sér tónlist frá ýmsum löndum.
Dagskráin verður á kaffihúsum,
börum, verslunum og bíóhúsum víða
um borg og er um að gera að kíkja á
vefsíðuna www.icelandairwaves.is til
að kynna sér dagskrána.
Endilega …
… njótið góðr-
ar tónlistar
Morgunblaðið/Ernir
Stemning Airwaves-tónleikagestir.