Morgunblaðið - 31.10.2012, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
Krúsaðu
frítt í eitt ár
*Upphæð inneignarkortsins er 260.000 kr. sem samsvarar 1.000 lítrum á núverandi verði.
**Meðalakstur miðað við fólksbíl (bensín), árið 2011, samkvæmt Umferðarstofu.
1.000
LÍTRAR INNIFALDIR*
Cruze LTZ bsk. 4d | Verð aðeins 3.190 þús.
Aðein
s
örfáir
bílar
eftir!
Tangarhöfða 8 • 590 2000 | Njarðarbraut 9 • Reykjanesbæ • 420 3330 | Bílaríki • Glerárgötu 36 Akureyri • 461 3636 | www.benni.is
Þegar þú kaupir Chevrolet Cruze
færðu 1.000 lítra* inneignarkort
með hágæða Shell V-Power
bensíni. Miðað við um 12.200
km** akstur á ári má segja að
þú akir frítt í eitt ár.
Chevrolet Cruze er áberandi
glæsilegur og hlaðinn staðalbúnaði
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Hera ÞH 60 verður væntanlega
fyrsti báturinn sem heldur til
rækjuveiða á Skjálfandaflóa í
meira en áratug. Rækjuveiðar hafa
ekki verið leyfðar þar síðan í lok
síðustu aldar þar til nú að gefin
voru út þrjú leyfi til veiða á tæp-
lega 400 tonnum.
„Við hefðum sennilega farið út í
þessari viku, en það spáir ekki vel,
svo ég reikna ekki með að við kíkj-
um á þetta fyrr en eftir helgi,“
segir Jón Hermann Óskarsson,
skipstjóri á Heru ÞH. „Það hefur
margt breyst síðan rækja var
veidd hér um aldamótin og nú eru
ekki lengur neinar verksmiðjur á
svæðinu. Við höfum landað úthafs-
rækjunni okkar hjá Kampa á Ísa-
firði og finnst líklegt að við verðum
áfram í viðskiptum við þá og rækj-
an verði keyrð vestur.“
Rækjubætur minnkuðu höggið
Hann segir að á ýmsu hafi geng-
ið hjá mönnum frá því að veiðar
voru bannaðar á Skjálfanda.
Rækjubætur hafi þó minnkað
höggið, sérstaklega framan af, en
þær hafi minnkað smátt og smátt.
Þorskkvóti hafi hjálpað einhverjum
en þeir hjá Flóka, sem er útgerð
Heru, hafi endurnýjað bátakostinn
og stundað veiðar á úthafsrækju,
síðustu vikur meðal annars fyrir
utan línu úti fyrir Skjálfanda.
Hluta af úthafsrækjunni hefur
verið landað á Húsavík og keyrt
með hana til vinnslu annars stað-
ar. Þokkalegt verð hefur fengist
fyrir rækjuna undanfarið og á
þessu ári, þegar flestar fiskteg-
undir hafa lækkað í verði, hefur
spurn verið eftir rækju og verð
haldið velli, að sögn Jóns Her-
manns.
„Við höfum fylgst vel með þró-
uninni í Skjálfanda og síðustu
misseri hefur rækjan verið að síga
jafnt og þétt upp á við. Það er
mikið fagnaðarefni að nú skuli
veiðar leyfðar að nýju,“ segir Jón
Hermann. Líklega verða fimm í
áhöfn Heru.
Síðast þegar rækjuveiðar voru
leyfðar á Skjálfanda var Óskar
Karlsson, faðir Jóns, með 60 tonna
trébát á rækjunni. Hann hætti
skipstjórn í fyrravetur og Jón
Hermann tók við bátnum. Fram-
kvæmdastjóri fjölskyldufyrirtæk-
isins Flóka er hins vegar Ósk Þor-
kelsdóttir móðir Jóns og eiginkona
Óskars. Nafnið á bátnum er sótt
til Heru, móður Óskars og ömmu
Jóns Hermanns.
Auk Heru er Haförn ÞH 26 með
leyfi til að veiða þriðjung rækju-
kvótans í Skjálfanda, en þriðja
leyfið er í eigu Byggðastofnunar.
Byggðastofnun selur leyfi
Óskað var tilboða í leyfið í byrj-
un mánaðarins og bárust tólf til-
boð. Samkvæmt upplýsingum frá
Byggðastofnun var Sjóstangaveiði-
félag Húsavíkur ehf. hæstbjóðandi
og er verið að ganga frá sölu á
leyfinu til félagsins. Það tengist
Gentle Giants-hvalaskoðunarfyrir-
tækinu, en einnig útgerð nokkurra
minni báta á Húsavík.
Á vef Hafrannsóknastofnunar er
greint frá niðurstöðum árlegrar
stofnmælingar á rækju á grunn-
slóð vestan- og norðanlands. Um
Skjálfanda segir að stofnvísitala
rækju hafi verið svipuð og haustið
2011, en þá hafði stofnvísitalan
hækkað töluvert frá fyrri árum og
sé nú yfir meðallagi. Hlutfall ung-
rækju hafi verið lægra en í fyrra.
Vísitala rækju í Axarfirði
hækkaði töluvert frá fyrri árum,
en stofninn hefur verið í lægð og
ekkert verið veitt úr honum síðan
2002. Mikið var af ungrækju og
þar sem rækjan er mjög smá í
Axarfirði er lagst gegn veiðum
þar.
Fagnaðarefni að fá að veiða rækju
Fyrsti báturinn væntanlega til rækjuveiða í Skjálfandaflóa í næstu viku eftir bann í meira en áratug
Rækjunni keyrt frá Húsavík til vinnslu annars staðar þar sem ekki eru lengur verksmiðjur á svæðinu
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Hera ÞH 60 Eftir margra ára bið fá þrír bátar leyfi til veiða á innfjarðarrækju í Skjálfanda í vetur.
Brautryðjendur í rækjuveiðum
og vinnslu hér á landi voru þeir
Simon Olsen og Ole G. Syre frá
Karmöy í Noregi.
Þeir stunduðu tilraunaveiðar
á kampalampa, eins og rækjan
var í fyrstu nefnd, á þriðja ára-
tug síðustu aldar, en árið 1934
hófu þeir fyrir alvöru rækjuveið-
ar í Ísafjarðardjúpi og gerðu út
frá Ísafirði. Í samstarfi við fleiri
stofnuðu þeir á þessum árum
félagið H.f. Kampalampi í þeim
tilgangi að stofnsetja rækju-
verksmiðju.
Veiðar á
kampalampa
NORSKIR FRUMKVÖÐLAR
Eftir góða vertíð í fyrra voru það Ís-
firðingum mikil vonbrigði að rækju-
veiðar skyldu ekki leyfðar í Ísafjarð-
ardjúpi í vetur. Þeir fara fram á meiri
rannsóknir og binda vonir við að tog
rannsóknaskipsins Drafnar á rækju-
slóð í Djúpinu síðastliðinn föstudag
gefi tilefni til að heimila veiðar.
Hjá Hafrannsóknastofnun fengust
þær upplýsingar í gær að verið væri
að vinna úr þeim viðbótargögnum,
sem Dröfnin hefði aflað fyrir helgi.
Fundur yrði haldinn með hags-
munaaðilum á Ísafirði á mánudag
þar sem farið yrði yfir mælingar
haustsins, niðurstöður og rök fyrir
ákvörðunum stofnunarinnar.
Guðmundur Konráðsson, skip-
stjóri á Ísafirði, sagði í gær að rækju-
sjómenn á Ísafirði vildu miklu meiri
rannsóknir á rækju í Djúpinu. Full
ástæða væri til að fara rækilega yfir
rækjuslóðina eftir eina til tvær vikur.
Niðurstöður leiðangursins í haust
væru í litlu samræmi við það sem
menn sáu í fyrravetur. Helst þyrfti
að gera slíkar rannsóknir einu sinni í
mánuði.
Hann sagðist alls ekki vera úrkula
vonar um að rækjuveiðar yrðu leyfð-
ar í Ísafjarðardjúpi í vetur.
Ekki hægt að kvarta
Aðeins er leyfð veiði á innfjarð-
arrækju á tveimur svæðum í vetur,
en auk Skjálfanda má veiða 450 í
Arnarfirði. Fjórir bátar hafa leyfi til
veiðanna þar, þrír frá Bíldudal og
einn frá Þingeyri. Allir eru þessir
bátar í viðskiptum við Kampa á Ísa-
firði og á heimasíðu fyrirtækisins
kemur fram að Bíldudalsbátarnir
lönduðu 21 tonni á fimmtudag, fyrsta
dag vertíðarinnar. Vel aflaðist einnig
á föstudag og mánudag og útlitið var
gott í gær þegar haft var samband
við Björn Magnús Magnússon, skip-
stjóra á Brynjari BA, um hádeg-
isbilið.
Þeir voru þá að draga á Borgar-
firði innst í Arnarfirði og veðrið var
ekki farið að setja strik í reikninginn.
„Þetta hefur gengið mjög vel frá því
að við byrjuðum í síðustu viku. Það
eru um 250 stykki í kílói og það er
ekki hægt að kvarta þegar maður
landar 5-6 tonnum,“ sagði Björn.
Hann sagðist reikna með að kvótinn
entist fram í mars, en það færi þó eft-
ir gæftum og aflabrögðum.
Fimm verksmiðjur
Fimm rækjuverksmiðjur eru
starfræktar á landinu. Þær eru á
Siglufirði, Sauðárkróki, Hólmavík,
Ísafirði og Grundarfirði, en á sumum
þessara staða er ekki unnið á fullum
afköstum. Minna mun hafa verið flutt
inn af rækju í ár en síðustu ár, t.d. frá
Noregi og Kanada.
Vilja frekari
rækjurannsóknir
í Ísafjarðardjúpi
Rækjuvertíð byrjar vel í Arnarfirði
Morgunblaðið/Ómar
Byrjar vel Björn Magnús Magnús-
son og Jón Hákon Ágústsson róa á
Brynjari BA frá Bíldudal.