Morgunblaðið - 31.10.2012, Page 17
FRÉTTIR 17Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
gr
af
ís
k
hö
nn
un
Ráðstefna
um gæðakerfi
íslenskra háskóla
Gæðaráð íslenskra háskóla stendur fyrir ráðstefnu um gæðakerfi íslenskra háskóla
og ræðir um reynslu síðasta árs af nýju gæðaeftirliti með háskólastarfsemi. Einnig verður
fjallað um nýjustu úttekt ráðsins á gæðum náms við Háskólann í Reykjavík.
Dagskrá
13:00 Setning
13:10 Norman Sharp, formaður gæðaráðs
13:25 Frank Quinault, formaður úttektarhóps
14:00 Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
14:20 Lilja Dögg Jónsdóttir, fulltrúi nemenda í úttektarhópi
14:40 Kaffihlé
15:00 Almennar umræður
16:00 Ráðstefnulok
Fundarstjóri er Einar Hreinsson
Ráðstefnan fer fram á ensku
Allir velkomnir
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og
framkvæmd stefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda-
og tæknisamfélagsins og hefur umsjón með opinberum samkeppnissjóðum s.s.
Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og
nýsköpun og gerir áhrif þeirra á þjóðarhag sýnileg. Rannís er miðstöð upplýsinga og
miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins.
Föstudaginn 2. nóvember kl 13:00-16:00
Háskólanum í Reykjavík, stofu M103
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Gildi lífeyrissjóður var á meðal
þeirra sem sendu fulltrúa sinn til að
sækja aðalfund Eimskips 2010 þar
sem kaupréttaráætlun félagsins var
samþykkt, að því er heimildir Morg-
unblaðsins herma. Fram hefur kom-
ið í yfirlýsingu frá stjórn Eimskipa-
félags Íslands að á þeim fundi hafi
fulltrúar hluthafa félagsins, meðal
annars nokkurra lífeyrissjóða, sam-
þykkt kaupréttaráætlun Eimskips
án athugasemda.
Stjórn Gildis, sem er þriðji stærsti
lífeyrissjóður landsins, tók þá
ákvörðun, nokkrum dögum áður en
hlutafjárútboð Eimskips hófst, að
taka ekki þátt í útboðinu vegna
kauprétta sem var úthlutað til sex
lykilstjórnenda Eimskips á árunum
2010 til 2012. Auk Gildis tóku lífeyr-
issjóðirnir Festi og LSR ekki þátt í
útboði Eimskips fyrir fagfjárfesta.
Ástæðan var annars vegar óánægja
með kaupréttarsamningana og hins
vegar hátt gengi í útboðinu.
LSR og Gildi fengu send gögn
Ólafur William Hand, upplýsinga-
fulltrúi Eimskips, staðfestir í samtali
við Morgunblaðið að „allir hluthafar
Eimskips, þar á meðal lífeyrissjóð-
irnir LSR og Gildi, hafi fengið send
gögn með lögbundnum fyrirvara um
þær tillögur sem leggja átti fram á
aðalfundi Eimskips“, í maí 2010.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var Heiðrún Jónsdóttir, þá-
verandi framkvæmdastjóri lögfræði-
sviðs Eimskips, ennfremur ritari á
fyrrnefndum aðalfundi félagsins
2010, en hún var á sama tíma í stjórn
Gildis. Heiðrún, sem lét nýverið af
störfum fyrir Eimskip, sat þó ekki
þann fund á vegum lífeyrissjóðsins,
heldur aðeins sem starfsmaður Eim-
skips. Hún er í dag varaformaður í
stjórn Gildis lífeyrissjóðs.
Eftir að fyrsta áfanga að skrán-
ingu Eimskips lauk á fimmtudaginn í
síðustu viku, þar sem fagfjárfestar
keyptu 20% hlut í félaginu fyrir 8,3
milljarða króna, var sagt frá því í til-
kynningu frá stjórn Eimskips að lyk-
ilstjórnendur félagsins hefðu ákveð-
ið að falla frá öllum kaupréttum.
Þurftu að bíða í þrjú ár
Á tímabilinu 2010 til 2012 var lyk-
ilstjórnendum Eimskips veittur
kaupréttur að samtals 4,4% hlut í fé-
laginu. Sá kaupréttur sem þeir fengu
úthlutaðan á árunum 2010 og 2011,
samtals átta milljónir hluta, var á
genginu 132,75 krónur á hlut. Sé
horft til þess að útboðsgengi Eim-
skips í liðinni viku var 208 krónur er
markaðsvirði þessa hlutar ríflega 1,6
milljarðar króna. Stjórnendurnir
hefðu hins vegar getað keypt þennan
sama hlut fyrir ríflega milljarð króna
á árunum 2013 og 2014.
Í gær hófst almennt útboð Eim-
skips þar sem boðnir eru til sölu tíu
milljón hlutir í félaginu sem sam-
svarar 5% af heildarhlutafé. Verði
umframeftirspurn mun Eimskip aft-
ur á móti stækka útboðið um sex
milljón hluti, eða sem nemur allt að
8% af útgefnum hlutum.
Fulltrúi Gildis samþykkti
kauprétti stjórnenda Eimskips
Sótti aðalfund félagsins 2010 Ritari Eimskips á fundinum sat í stjórn Gildis
Eimskip Sex stjórnendur félagsins féllu frá kaupréttum sínum í síðustu viku.
Fulltrúar alþjóðlega ráðgjafarfyrir-
tækisins McKinsey & Company
kynntu á blaðamannafundi í gær
viðamikla úttekt á hagvaxtarmögu-
leikum Íslands.
„Verkefnið var upphaflega kynnt í
ræðu Hreggviðs Jónssonar, for-
manns Viðskiptaráðs á Viðskipta-
þingi í febrúar síðastliðnum þar sem
gerð var grein fyrir því að McKinsey
myndi ráðast í þessa úttekt … Út-
tekt McKinsey er í grófum dráttum
þrískipt. Í fyrsta lagi er farið ítar-
lega yfir helstu áskoranir íslensks
efnahagslífs nú. Í öðru lagi eru drif-
kraftar hagkerfisins skoðaðir og
dregið fram hvar helstu þröskuldar í
vegi hagvaxtar liggja. Að lokum eru
helstu hlutar í hagvaxtaráætlun Ís-
lands dregnir saman ásamt tillögum
að því hvernig megi hátta innleið-
ingu þeirra. Úttektin hefur að
geyma margvíslegar gagnlegar og
þarfar ábendingar um hvað betur
megi fara í ranni atvinnulífs, stjórn-
sýslu og í hagkerfinu í heild,“ segir í
fréttatilkynningu frá Viðskiptaráði
Íslands.
Helstu niðurstöður úttektar
McKinsey eru að Ísland hafi fallið
niður lista efnuðustu landa heims,
mælt í landsframleiðslu á mann, og
helsta áskorunin nú sé að endur-
heimta vaxtarmöguleika í krefjandi
umhverfi.
Mc Kinsey segir að þröskuldar á
þeirri vegferð séu fjölmargir en þar
megi helst nefna hættuna á að aftur
stefni í viðvarandi viðskiptahalla
samfara aukinni neyslu á meðan
fjárfesting standi í stað. Þetta myndi
leiða til þess að landið festist í víta-
hring gjaldeyrishafta, hás fjár-
magnskostnaðar, lágs fjárfestingar-
stigs og lítils hagvaxtar.
Hárri landsframleiðslu á mann sé
að verulegu leyti haldið uppi af mik-
illi atvinnuþátttöku og löngum
vinnutíma en þetta óvenju háa fram-
lag vinnuafls skyggir á framleiðni-
vandamál sem sé í flestum greinum
atvinnulífsins. Mikilvægt sé að hags-
munaaðilar komist að samkomulagi
um vaxtarstefnu fyrir Ísland og að-
gerðir sem stuðli að því að stefnan
nái fram að ganga.
Framleiðni lág í
flestum greinum
McKinsey kynnir skýrslu um Ísland
Morgunblaðið/Styrmir
McKinsey Klemens Hjartar hjá
McKinsey kynnti m.a. skýrsluna.
● Tveir háttsettir stjórnendur hjá
Apple, þeir Scott Forstall, yfirmaður
iOS kerfisins og John Browett yfirmað-
ur verslana, voru í fyrradag látnir taka
pokann sinn, en engin skýring var gefin
á brotthvarfi þeirra. Talið er víst að
rekja megi uppsagnirnar til vandræða-
gangs í starfsmannamálum Apple versl-
ananna og við innleiðingu kortakerfis
Apple, en það var tekið í notkun á sím-
um og spjaldtölvum, en svo fljótlega
tekið út aftur vegna kvartana. Þetta
kom fram í frétt The New York Times.
Forstall kom til fyrirtækisins árið 1997
með Steve Jobs frá Next.
Reknir frá Apple
● WOW air tók í fyrradag á móti nýrri
Airbus A320-vél árgerð 2011 og fór hún
með farþega WOW air frá London til Ís-
lands í fyrrakvöld. Þetta er fyrsta vélin
af fjórum nýlegum Airbus A320-vélum
sem WOW air mun taka í gagnið fyrir
næsta vor. Nýju Airbus A320-vélarnar
eru mun sparneytnari en eldri vélar fé-
lagsins og jafnframt menga þær minna,
samkvæmt tilkynningu frá WOW air.
Ný A320-vél til WOW air
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./,
,/0
+,1.2+
,,./0-
,,./1-
+2./3
+41./5
+.32-2
+23.4+
+10.0-
+,-.4,
,/0.3
+,-.,5
,,.++,
,,.+4,
+2.+/1
+41.01
+.1/,1
+23.52
+10.24
,,-.,/4
+,-.1,
,/3
+,-.13
,,.+--
,,.+2-
+2.+1,
+41.50
+.1/-4
+21.0-
+13.42
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Eimskip stefnir að því að greiða hluthöfum um 10-30% af hagnaði fé-
lagsins í arð á ári hverju, en gert er ráð fyrir að Eimskip verði skráð á
hlutabréfamarkað hinn 16. nóvember næstkomandi. Þetta kom fram í
máli Gylfa Sigfússonar, forstjóra Eimskips, á fræðslufundi VÍB, eign-
astýringarþjónustu Íslandsbanka í gær.
Að sögn Gylfa eru mikil tækifæri til vaxtar, ekki síst á Norður-
Atlantshafinu, án þess þó að Eimskip þurfi sérstaklega að ráðast í frekari
fjárfestingar. Í kjölfar fjárhags- og rekstrarlegrar endurskipulagningar
hefur félagið einblínt á að fjárfesta í innviðum og greiða niður skuldir.
Gylfi benti ennfremur á að magn inn- og útflutnings til og frá Íslandi, í
gegnum Sundahöfn, hefur ekki verið minna frá árinu 1996.
Greiða 10-30% af hagnaði í arð
GYLFI SEGIR TÆKIFÆRI TIL VAXTAR ÁN MEIRI FJÁRFESTINGA