Morgunblaðið - 31.10.2012, Síða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
✝ Oddur Helga-son fæddist 10.
júlí 1922 á Syðra-
Seli, Hrunamanna-
hreppi, Árnessýslu.
Hann lést 19. októ-
ber 2012 á Hjúkr-
unarheimilinu
Holtsbúð á Vífils-
stöðum.
Foreldrar hans
voru Helgi Ágústs-
son, f. 6.2. 1891 á
Gelti í Grímsnesi, d. 3.12. 1977,
og Anna Valgerður Oddsdóttir,
f. 22.10. 1894 á Sámsstöðum í
Fljótshlíð, d. 6.1. 1965. For-
eldrar Helga voru Ágúst Helga-
son, bóndi í Birtingaholti, og
kona hans Móeiður Skúladóttir
Thorarensen frá Móeiðarhvoli.
Foreldrar Önnu Valgerðar voru
Oddur Oddsson, gullsmiður á
Eyrarbakka, og kona hans
Helga Magnúsdóttir frá Vatns-
dal í Fljótsdal. Systkini Odds
voru Helga Ingibjörg Helgadótt-
ir fóstursystir, systurdóttir
Önnu, Ágúst og Móeiður.
Hinn 2. nóvember 1946
kvæntist Oddur Ragnheiði Guð-
jónsdóttur, f. 12. maí 1920 á
Starmýri í Álftafirði, d. 21.4.
2012. Hún var dóttir Guðjóns
Brynjólfssonar, bónda á Star-
mýri, sem síðast var búsettur á
sleit barnsskónum á Syðra-Seli
en ólst síðan upp á Selfossi. Odd-
ur stundaði nám við MA og lauk
stúdentsprófi þaðan 1942. Hann
hóf störf hjá Mjólkursamsölunni
í Reykjavík á árinu 1942 fyrst
sem skrifstofumaður og sölu-
stjóri. Hann var framkv.stj.
markaðsrannsókna og vöruþró-
unar hjá MS 1986-1992.
Oddur var mikill áhugamaður
um stangaveiði og notaði hvert
tækifæri á yngri árum til að
stunda lax- og silungsveiði í ám
og vötnum landsins. Hann var
um tíma í stjórn SVFR en tók á
leigu Hítará á Mýrum á árinu
1968 ásamt Agnari Kofoed-
Hansen og öðrum. Félag þeirra,
Grettistak, var með ána á leigu í
25 ár. Síðar vann hann um tíma
með stjórn SVFR að því að ná
samkomulagi við netabændur á
Suðurlandi um upptöku neta á
vatnasvæði Hvítár og Ölfusár.
Þá var Oddur um árabil félagi
í Lionsklúbbi Kópavogs. Ræktun
var einnig mikið áhugamál hans
og þeirra hjóna enda bar marg-
verðlaunaður garður þeirra við
Digranesveginn í Kópavogi þess
vitni. Oddur var með eindæmum
laginn smiður og hefði örugg-
lega náð langt í þeirri grein ef
hann hefði eytt meiri tíma í
hana. Eftir hann liggja margir
fallegir smíðisgripir.
Útför Odds fer fram frá Kópa-
vogskirkju í dag, 31. október
2012, og hefst athöfnin kl. 13.
Kaldaðarnesi í Ár-
nessýslu, f. 16.12.
1878 á Geithellum,
Geithellnahreppi,
d. 5.12. 1958, og
k.h. Halldóru Ás-
mundsdóttur, f. 4.2.
1882 á Flugustöð-
um, Geithellna-
hreppi, d. 1.11.
1930. Börn þeirra
eru: 1. Anna Val-
gerður kennari, f.
22.9. 1947. Maður hennar er
Steinar Friðgeirsson rafmagns-
verkfræðingur, f. 18.8. 1947.
Börn þeirra eru: A) Oddur giftur
Brynju Kristínu Þórarinsdóttur
og börn þeirra eru: Anna Val-
gerður, Þórunn Edda og Steinar
Þór. B) Auður Ýr gift Geir Þór-
hallssyni og börn þeirra eru:
Hjördís Lilja og Helgi Þór. 2.
Halldóra leikskólakennari, f.
17.8. 1951. Maður hennar er Jón
Björgvin Björgvinsson skip-
stjóri, f. 14.1. 1949. Börn þeirra
eru: A) Ragnheiður gift Haraldi
Guðna Eiðssyni og eru börn
þeirra: Eygló Helga, Jón Hilmir
og Halldór Hrafn. B) Jórunn sem
er í sambúð með Sigurði Svein-
birni Gylfasyni og á hún börnin
Silju Sól og Darra Dór en Sig-
urður á dótturina Helgu Krist-
ínu. C) Guðrún Björg. Oddur
Ég var á ferð erlendis þegar
skilaboð komu um það að heiman að
verulega drægi af tengdaföður mín-
um og óvíst að margir sólarhringar
væru eftir hjá honum. Ég hraðaði
mér því heim og rétt náði að kveðja
hann áður en hann lagði upp í sína
hinstu ferð.
Það voru bjartir og fallegir
haustdagar þegar Oddur tengda-
faðir minn kvaddi þetta líf einmitt
þegar landið skartaði sínu fegursta.
Það var glæsilegur og góður maður
sem var að kveðja þegar hann var
nýlega búinn að fylla níu áratugi.
Löng og farsæl ævi var að renna
sitt skeið á enda og löngu dagsverki
að ljúka.
Ég kynntist Önnu eiginkonu
minni fyrir liðlega fjörutíu árum og
í kjölfarið Ragnheiði og Oddi sem
tóku mér strax með opnum örmum.
Þegar Oddur sonur okkar fæddist
var enginn natnari við kornabarnið
en stolt amman og stoltur afinn sem
fögnuðu sínu fyrsta barnabarni.
Eftir ferðalög erlendis eða úti á
landi gat verið erfitt fyrir okkur for-
eldrana að fá börnin með okkur
heim eftir pössun hjá ömmu og afa
því slíkur var kærleikurinn og um-
hyggjan hjá þeim. Þegar börnin
uxu úr grasi og erfiður próflestur
stóð yfir var hvergi betra athvarf að
fá heldur en hjá ömmu og afa á
Digranesveginum í Kópavogi sem
báru þau á höndum sér um leið og
þau voru umvafin kærleika og
hlýju.
Um árabil voru Oddur og Agnar
Kofoed-Hansen með Hítará á Mýr-
um á leigu ásamt öðrum. Þar var oft
dvalið um helgar frá því á vorin og
fram á haust við margvísleg verk
sem fylgja rekstri veiðiár. Undir-
búningur að vori og síðan frágang-
ur að hausti auk þess sem veiðigyðj-
an var dýrkuð á stundum ásamt því
að leiðsögn var veitt. Hvort sem
fjölskyldan var ein á ferð eða er-
lendir veiðimenn áttu í hlut var
Oddur ávallt foringinn í hópnum.
Með höfðingsskap og reisn stjórn-
aði hann af öryggi og þekkingu. Þau
hjónin eignuðust fjölda vina á þess-
um árum vestur við Hítará.
Fallegt heimili tengdaforeldra
minna og margverðlaunaður garð-
urinn voru samkomustaðir fjöl-
skyldunnar þar sem ávallt var mikil
reisn yfir öllu og gleði. Þar var gott
að koma og dveljast með fjölskyld-
unni.
Í dag kveðjum við Odd Helgason
sem var einhver heilsteyptasti og
besti maður sem ég hef kynnst. Far
í friði, kæri Oddur, og hafðu þökk
fyrir allt. Það voru forréttindi að
kynnast þér og tengjast þinni fjöl-
skyldu.
Steinar Friðgeirsson.
Nú ert þú fallinn frá, kæri vin-
ur. Þú varst mikill öðlingsmaður
og heiðarlegur fram í fingurgóma.
Leiðir okkar lágu saman fyrir 44
árum þegar ég kynntist henni
Dóru dóttur ykkar Heiðu, sem
voru mín gæfuspor. Þú varst þús-
undþjalasmiður, hvort sem það
var garðyrkja eða smíðar og við-
gerðir og bar bílskúrinn þinn á
Digranesveginum þess glöggt
vitni. Þar forræktaðir þú öll ykkar
sumarblóm og grænmeti og varðir
þar miklum tíma við smíðar og
njótum við þess nú fjölskyldan öll
þar sem margar gersemar liggja
eftir þig. Við sátum oft í bílskúrn-
um og spekúleruðum og spáðum
og ég sem kunni varla að halda á
hamri og var lítið inni í garðyrkju
þakka þér einum það sem ég kann
á þessu sviði í dag. Þú áttir eitt
mottó sem ég hef tileinkað mér:
Aldrei byrja á neinu fyrr en mað-
ur er búinn að sitja og hugsa til
enda hvernig útkoman verður og
hefur það reynst mér afar vel.
Kærleikurinn var hafður að leið-
arljósi í lífi ykkar Heiðu og var
alltaf gott að koma til ykkar.
Þú varst mikill íþróttamaður
sem ungur maður og lifðir alltaf
mjög heilbrigðu lífi og varstu mik-
ill og flinkur stangveiðimaður og
vörðum við stórfjölskyldan mikl-
um tíma með ykkur Heiðu, aðal-
lega við Hítará á Mýrum og eiga
börnin okkar þaðan sínar sælu-
minningar.
Það var þér erfiður tími eins og
okkur öllum þegar tengdamamma
veiktist í apríl síðastliðnum og lést
stuttu seinna. En þú barst höfuðið
hátt og náðir að eiga mjög góðar
stundir í sumar með okkur þar
sem við fórum saman á æskuslóðir
þínar, bæði á Eyrarbakka og upp í
hreppa í Birtingarholt og í bústaði
dætra þinna og nutum við þessara
ferða ekki síður en þú.
Nú eruð þið tengdamamma aft-
ur saman og er ég viss um að hún
er búin að elda hrygg handa þér á
himnum.
Við Dóra mín þökkum ykkur
samfylgdina og eigum eftir að
sakna ykkar en vitum að ykkur
líður vel saman þar sem þið eruð.
Með kveðju og þökk.
Jón B. Björgvinsson.
Í dag kveðjum við Odd afa.
Amma kvaddi í vor og var afi sátt-
ur við að kveðja nú. Hann átti
langa og góða ævi. Þau amma
ræktuðu garðinn sinn og gáfu mér
ómetanlegt veganesti út í lífið.
Þau eignuðust tvær dætur og er-
um við fimm barnabörnin og er ég
eini strákurinn í hópnum. Afi var
mikill veiðimaður og hafði veitt frá
barnsaldri. Hann var leigutaki
Hítarár á Mýrum í 25 ár. Þaðan á
ég margar góðar minningar. Afi
hafði alltaf tíma fyrir mig og
kenndi mér að þekkja ána og
kasta flugu. Síðar fékk ég það
hlutverk að leiðbeina erlendum
veiðimönnum í nokkur sumur þar
sem ég gat nýtt þá kunnáttu sem
hann færði mér.
Hann var örlátur og höfðingi
heim að sækja. Hann byggði
heimili á Digranesvegi 68 í Kópa-
vogi og þar bjuggu þau amma í 55
ár. Hann var mjög laginn í hönd-
unum og undi sér vel við smíðar.
Garðurinn þeirra var einstakur og
var endurtekið verðlaunaður af
Kópavogsbæ. Afi lá ekki á liði sínu
þegar við Brynja hófum búskap
og keyptum okkar fyrstu íbúð.
Þar þurfti að taka til hendinni og
fengum við ómetanlega hjálp frá
afa við að gera upp íbúðina. Að
hafa átt jafn góða að og Odd afa er
ekki sjálfgefið. Nú þegar hann
hefur kvatt er það okkar að miðla
því góða sem okkur var gefið til
okkar barna og vonandi síðar
barnabarna. Við Brynja, Anna,
Þórunn og Steinar þökkum fyrir
samfylgdina og allar þær yndis-
legu stundir sem við áttum með
afa og ömmu. Minningin um þau
mun fylgja okkur alla tíð.
Oddur Steinarsson.
Elsku afi minn.
Nú ertu farinn til elsku ömmu
og ég veit að ykkur líður vel sam-
an núna. Margt kemur upp í hug-
ann þegar ég hugsa til þín. Allar
ferðirnar okkar í Hítará á Snæ-
fellsnesi eru mér mjög minnis-
stæðar. Þú varst snillingur með
veiðistöngina og kenndir mér að
veiða og seinna kenndir þú mér
einnig að kasta flugu. Þú varst
mjög laginn smiður og gast smíð-
að hvað sem var og alltaf var
handbragðið fullkomið. Þú rækt-
aðir síðan fallegasta garð sem ég
hef komið í og mér fannst alltaf
gaman að koma í Kópavoginn og
eyða tíma með ykkur ömmu í
garðinum ykkar og hjálpa til við
garðverkin og gæða mér á jarð-
arberjum, radísum, rabarbara og
öllu hinu góðgætinu sem var þar
að finna.
Mér fannst þú kunna allt og
geta allt og ef það var eitthvað
sem pabbi minn gat ekki gert (eða
nennti kannski ekki) þá var ég
alltaf með svarið á reiðum hönd-
um: „Spyrjum bara afa, hann get-
ur allt.“ Mér fannst alltaf gott að
vera hjá ykkur ömmu á Digranes-
veginum og eftir að ég eignaðist
síðan börnin mín var það einnig
mjög vinsælt að fara í heimsókn til
löngu og langa og fá ís, súkkulaði
eða bestu jarðarber í heimi úr fal-
lega garðinum ykkar.
Elsku afi, hvíldu í friði.
Jórunn.
Elsku hjartans afi minn.
Það ætti ekki að koma á óvart
að þú kveðjir okkur nú aðeins
nokkrum mánuðum eftir fráfall
ömmu. Þið voruð afar samrýmd
hjón. Ég minnist þess oft í gegn-
um tíðina að hafa séð ykkur leiðast
en það er fátt fallegra en að sjá
fólk sem hefur varið nær allri æv-
inni saman svo náið eins og þið
voruð. Mér finnst ég svo heppin að
hafa átt ykkur að og ég held að
það sé leitun að afa og ömmu sem
voru jafn natin og þið við barna-
börnin, og síðar barnabarnabörn-
in ykkar. Ég á eftir að sakna ykk-
ar beggja sárt en minningarnar
eru sem betur fer margar og mun
ég geyma þær í hjarta mínu ævi-
langt og deila þeim með mínum af-
komendum.
Þú varst mikill fyrirmyndar-
maður að svo mörgu leyti, elsku
afi minn. Víðlesinn og vel að þér,
hvort sem um var að ræða þjóð-
félagsmál, bókmenntir eða annað.
Það var alltaf gaman þegar við
Halli komum í kaffi til ykkar
ömmu á menntaskólaárunum. Þið
gáfuð ykkur nægan tíma til að
setjast niður með okkur og oftast
snérist spjallið um stúdentapóli-
tíkina eða það sem var á döfinni í
þjóðfélaginu. Síðar, þegar börnin
okkar komu til sögunnar, nutum
við þess að koma með þau í hlý-
lega húsið ykkar á Digranesveg-
inum þar sem þau nutu ótakmark-
aðrar athygli sem þið veittuð
þeim.
Þú varst mjög hraustur og til
fyrirmyndar um heilbrigða lífs-
hætti en þú varst líklega löngu bú-
inn að átta þig á mikilvægi góðrar
hreyfingar og holls mataræðis á
undan flestum en ég man eftir því
að oft hafi hádegismaturinn þinn
einungis samanstaðið af ávöxtum
og grænmeti. Þú varst ansi lag-
hentur og bar garðurinn ykkar
ömmu á Digranesveginum þess
glöggt vitni en þar upplifði ég
margar af mínum bestu stundum
enda garðurinn mikill ævintýra-
heimur. Þú varst líka mikill smið-
ur og skilur eftir þig marga fallega
muni og þykir mér undurvænt um
kistuna sem þú smíðaðir undir
prjónadótið hennar ömmu og ég
fæ að njóta núna. Ferðirnar okkar
vestur í Lund á Mýrum voru mér
alltaf mikið tilhlökkunarefni en
það voru fyrst og fremst stund-
irnar með stórfjölskyldunni sem
mér þótti vænst um þar sem ég
var aldrei mikið fyrir veiðina. Ég
veiddi þó maríulaxinn minn í Hít-
aránni og það með þinni aðstoð og
verður það augnablik mér ávallt
minnisstætt. Þú tókst af mér
mynd með fína laxinum en lést
ekki þar við sitja heldur sendir
myndina til erlends veiðitímarits
sem sendi mér verðlaun í pósti
sem ég geymi enn. Góðar minn-
ingar sem ég mun alla tíð geyma.
Takk fyrir allt, elsku afi. Ég bið
að heilsa ömmu.
Ragnheiður Jónsdóttir.
Elsku afi eða „langi“. Nú hef-
urðu kvatt þennan heim og sökn-
uðurinn er mikill. Við vorum að
vonast til þess að geta átt sam-
verustundir með þér þegar við
kæmum heim um jólin þar sem þú
varst búinn að vera nokkuð hress
undanfarið.
Þú varst einstaklega vel gerður
maður, mikið ljúfmenni, fróður
um ýmsa hluti og það var gaman
að spjalla við þig. Þú varst mikill
áhugamaður um sögu, jarðfræði
og garðrækt, enda var garðurinn
ykkar við Digranesveginn engu
líkur. Þú varst líka mikill smiður
og hafðir yndi af því að dunda þér í
bílskúrnum í frítímanum við að
smíða hina ýmsu fallegu gripi sem
við afkomendurnir fengum að
njóta góðs af. Einnig varstu mikill
sælkeri og hafðir sérstakt dálæti á
góðu súkkulaði, sem var alltaf
gaman að færa þér við hin ýmsu
tækifæri.
Þú varst einstaklega hjálpsam-
ur maður og hafðir yndi af því að
aðstoða við ýmis garðverk, smíða-
verkefni eða hvað annað sem þörf
var á og það þurfti ekki að biðja
um aðstoðina heldur var hún yf-
irleitt boðin fram að fyrra bragði
og þá þýddi ekkert að afþakka.
Okkur er til dæmis minnisstætt
þegar Geir kom með í fyrstu ferð-
ina sína í Hítará með fjölskyld-
unni og þú tókst hann að þér og
kenndir honum grundvallaratrið-
in í stað þess að fara sjálfur út að
veiða, en þetta var mjög lýsandi
fyrir þig.
Þið amma hafið verið svo stór
partur af okkar lífi og hafið kennt
okkur svo ótal margt sem við er-
um svo þakklát fyrir. Það var allt-
af svo gott að heimsækja ykkur,
þið voruð sérstaklega náin og
samheldin hjón og tókuð á móti
öllum, jafnt stórum sem smáum,
með opnum örmum.
Þó að söknuðurinn sé mikill og
sár þá er okkur samt efst í huga
þakklæti fyrir að hafa verið svo
lánsöm að hafa átt þig og ömmu
að í svo langan tíma og hafa lært
svo margt af ykkur sem við mun-
um vonandi kenna okkar afkom-
endum.
Hvíl í friði, elsku afi, við
sjáumst síðar.
Auður Ýr, Geir, Hjördís
Lilja og Helgi Þór.
Elsku besti langi. Á hverju
kvöldi hugsum við um þig og um
góðu tímana sem við áttum með
þér. Núna ertu kominn til elsku
löngu og vonandi líður ykkur vel.
Það var erfitt fyrst þegar við viss-
um að þú værir farinn en hugs-
unin um að þú fengir að hitta
löngu aftur var góð. Það sem er
helst í huga okkar er hvað þú
varst góður og alltaf til í að gefa
manni ís-blóm eða bleika köku.
Við munum vel eftir Digranes-
veginum og fallega garðinum
ykkar, með öllum blómunum og
sérstaklega jarðarberjunum. Þú
náðir háum aldri og lifðir löngu og
góðu lífi og við munum aldrei
gleyma þér.
Þú og langa búið bæði í hjört-
um okkar að eilífu og við elskum
ykkur út af lífinu.
Eygló Helga, Silja Sól,
Jón Hilmir, Darri Dór og
Halldór Hrafn.
Á einu hlýjasta og bjartasta
sumri hér sunnanlands og á feg-
urstu haustdögum í manna minn-
um höfum við kvatt kæra vini.
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast.
– Það er lífsins saga.
(Páll J. Árdal.)
Það er óhjákvæmilegt að jafn-
vel hinar traustustu eikur og
björkin fagra fella sín síðustu lauf,
lífið tekur enda.
Oddur Helgason frændi og vin-
ur er látinn. Það var gott að hann
þurfti ekki að bíða lengur eftir að
hitta hana Heiðu sagði ung
frænka hans er hún frétti af and-
láti hans.
Að eiga stóran frændgarð er
dýrmætt, en að eiga frændur að
vinum er gulli betra.
Við vorum svo gæfusöm að eiga
Odd og Heiðu að vinum og hugs-
um nú til þeirra í djúpri þökk fyrir
ótaldar samverustundir sem
ávallt gerðu mann að betri manni.
Þau voru veitendur á öllum svið-
um, eintaklega samhent hjón full
af ást og virðingu hvort til annars
og vöktu í hvívetna verðskuldaða
athygli.
Oddur helgaði íslenskum
bændum og samfélaginu lífs-
krafta sína en hann var lengst af
sölustjóri hjá Mjólkursamsölunni
og síðast sem framkvæmdastjóri
markaðsrannsókna og vöruþró-
unarsviðs. Hann lét af störfum
þar fyrir aldurssakir árið 1992 eft-
ir 50 ára farsælt starf. Gaman og
fróðlegt var að heyra Odd segja
frá fyrstu starfsárum sínum í
Mjólkursamsölunni um og eftir
stríð, mjólkurframleiðsla var ekki
næg svo oft þurfti að grípa til
skömmtunar á mjólk og mjólkur-
vörum. Hann hafði brennandi
áhuga á hvers konar framþróun í
íslenskum landbúnaði, ekki síst í
íslenskum mjólkuriðnaði.
Oddur var einarður og fylginn
sér í hverju sem hann tók sér fyrir
hendur. Hann var unnandi ís-
lenskrar náttúru og eitt af aðal-
áhugamálum Odds voru laxveiðar.
Þau hjónin nutu lengi dvalar við
ána fallegu vestur á Mýrum. Odd-
ur hafði sterkar skoðanir á rækt-
un laxastofna, ekki síst á Ölfusár-
svæðinu.
Lengst af bjuggu þau Oddur og
Heiða á Digranesveginum. Fal-
legt heimili þeirra bar vott um
hagleik og listfengi þeirra beggja
svo ekki sé minnst á garðinn
þeirra, sem var einstakur í sinni
röð.
Í sumar fór Oddur með fjöl-
skyldu sinni á æskuslóðir fyrir
austan fjall um Eyrarbakka og til
Hreppafjalla. Ferðin var honum
mikils virði og naut hann útsýn-
isins.
Nú er komið að leiðarlokum.
Ástvinunum öllum sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Magnús og Guðbjörg.
Þá eru okkar kæru nágrannar
bæði farin, gleðigjafinn Ragnheið-
ur dó í vor og hreystimennið og
séntilmaðurinn Oddur fylgdi
henni núna í haust. Þeirra hjóna
verður sárt saknað.
Í minningunni er Oddur í
vinnugallanum úti í garði að
Digranesvegi 68 að hlaða veggi,
hlúa að gróðri eða smíða, í veiði-
gallanum að kasta fyrir lax eða
heimilislegur að færa okkur
Ragnheiði drykk eða krökkunum
kex. Hann var alltaf boðinn og bú-
inn að aðstoða okkur „unga fólkið“
við garðvinnuna, lánaði verkfæri,
gaf góð ráð (benti m.a. kurteislega
á lögmálið um blómin og býflug-
urnar, þegar við ætluðum nú ald-
eilis að tryggja öfluga jarðar-
berjauppskeru með því að breiða
vel yfir plönturnar) og á afmæl-
isdegi mínum í júní kom hann
gjarnan með hjólbörur fullar af
sumarblómum svo við gætum gert
beðin okkar fín.
Eitt sinn buðu þau hjón okkur
með í veiðitúr vestur í Hítará, en
áður áttum við að fá kennslu í
flugukasti hjá Oddi. Sú kennslu-
stund endaði hinsvegar snarlega
þegar kisa beit á agnið og Siggi
hljóp í angist með stöngina á eftir
henni allskyns krókaleiðir yfir að-
liggjandi garða þar til hún ákvað
að sleppa flugunni, sem var sem
betur fer agnhaldslaus. Á meðan
lágu kennarinn og hinn nemand-
inn í hláturskasti. Öflugasta veið-
arfærið á heimili okkar reyndist
þó til langs tíma litið vera húnninn
á útidyrahurðinni, því ósjaldan
þegar við komum heim úr
vinnunni hékk þar poki með ný-
veiddum sjóbirtingi eða laxi og
vissum við þá að Oddur og Ragn-
heiður væru komin að vestan.
Á meðan Oddur vann hjá
Mjólkursamsölunni þá fékk hann
Sigga til að leita að góðu vatni til
mögulegs útflutnings. Siggi fór
vítt og breitt um landið, tók sýni
og efnagreindi, en lokaprófið fólst
í að smakka vatnið. Þá fóru hann
og Oddur í tveggja daga leiðangur
um Vesturland, með fín glös og
hvítar tauservíettur og smökkuðu
lindarvatnið við uppspretturnar
og reyndu að tengja saman bragð
og efnasamsetningu. Oddur með
gott „nef“ og næmt bragðskyn,
gamalreyndur smakkari, hafsjór
af fróðleik og góður sögumaður.
Ógleymanlegar stundir við klið-
andi lindarlæki í fallegri náttúru.
Minningarnar um Odd eru
margar og allar góðar. Það er því
með þakklæti og virðingu sem við
kveðjum heiðursmanninn Odd
Helgason.
Málfríður K. Kristiansen,
Sigurður R. Gíslason, Anna
Diljá og Birnir Jón.
Oddur Helgason