Morgunblaðið - 31.10.2012, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 31.10.2012, Qupperneq 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012 ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGÓLFUR GUÐJÓNSSON frá Eyri, Ingólfsfirði, Nýbýlavegi 80, Kópavogi, sem lést mánudaginn 22. október, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 2. nóvember kl. 13.00. Ólafur Ingólfsson, Svanhildur Guðmundsdóttir, Lára Ingólfsdóttir, Jón Leifur Óskarsson, Sigurður Ingólfsson, Ingunn Hinriksdóttir, Halldór Kr. Ingólfsson, Hrönn Jónsdóttir, Guðjón Ingólfsson, Harpa Snorradóttir, Þórhildur Hrönn Ingólfsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamamma og amma, DÓMHILDUR JÓNSDÓTTIR, lést á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi fimmtudaginn 18. október. Útförin fer fram frá Hólaneskirkju á Skagaströnd föstudaginn 2. nóvember kl. 14.00. Jón Hallur Pétursson, Guðríður Friðriksdóttir, Pétur Ingjaldur Pétursson, Guðrún Margrét Jónsdóttir, Auður Anna Jónsdóttir. ✝ Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, GUÐFINNA HENNÝ JÓNSDÓTTIR, Fögrukinn 13, Hafnarfirði, andaðist þriðjudaginn 23. október. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 2. nóvember kl. 13:00. Sólveig Jónsdóttir, Sævar Gunnarsson, Jenný Jónsdóttir, Jón Auðunn Jónsson, Ólafía Guðjónsdóttir, börn og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA STEINSDÓTTIR frá Hrauni á Skaga, Fróðengi 3, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 24. október, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 2. nóvember kl. 15:00. Benedikt Andrésson, Guðrún H. Benediktsdóttir, Halldór Jónsson, Vilborg Benediktsdóttir, Árni Hjaltason, Auður Benediktsdóttir, Guðni Karl Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa, sonar og bróður, ELINÓRS HARÐAR MAR, Eyjabakka 10, Reykjavík, fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. nóvember klukkan 13.00. Árni Eggert Harðarson, Elinóra Ósk Harðardóttir, Gunnar Valgeirsson, Halldór Þór Harðarson, Alda Sigurrós Júlíusdóttir, Óskar Árni Mar, Vilborg Sigurðardóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur sonur okkar, bróðir og faðir, HALLDÓR GUNNLAUGSSON, Hamravík 28, sem lést þriðjudaginn 23. október, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 1. nóvember kl. 13.00. Rósa Emilía Óladóttir, Gunnar Ársælsson, Sindri Gunnarsson, Vala Ósk Gylfadóttir, Guðrún Björg Gunnarsdóttir, Ágúst Freyr Halldórsson, Elín Helga Halldórsdóttir, Sölvi Thor Halldórsson, Emilía Ósk Halldórsdóttir. ✝ Ásgeir Karls-son fæddist í Reykjavík hinn 29. janúar 1932. Hann lést 16. október sl. Foreldrar hans voru Karl Ásgeirs- son málarameist- ari frá Fróðá Snæ- fellsnesi, f. 16. júní 1906, d. 6. apríl 1998, og María Stefanía Sigurðardóttir frá Hólabaki Húnavatnssýslu, f. 2. apríl 1907, d. 13. mars 1961. Systk- ini hans eru Ólafur Ragnar, f. 1929, d. 2005, Ólína Bergljót, f. 1930, Sigrún, f. 1933, Stef- án, f. 1935, Már, f. 1937, d. 2007, og Sigurður Karl, f .1950. Ásgeir kvæntist 1955 Ástu Hallý Nordgulen. For- eldrar hennar voru Lúðvík Á. Nordgulen, f. 1915, d. 1983, og Þórunn R. Ólafsdóttir, f. 1913, d. 1993. Ásgeir og Ásta eign- uðust þrjú börn; Þórarinn Ragnar Ásgeirsson, f. 2.12. 1953, maki Hildur Friðriks- dóttir, f. 9.11. 1956, börn ar Már, f. 2006. Lúðvík Jóhann Ásgeirsson, f. 31.1. 1959, maki Guðrún Björg Berndsen, f. 6.9. 1961, börn þeirra Adolf Þór Lúðvíksson, f. 1983 sambýlis- kona Helga Dóra Jóhanns- dóttir, f. 1984. börn þeirra eru Óliver Atlas, f. 2010, og Aron Breki, f. 2010. Ásta Hallý Lúð- víksdóttir, f. 1991, og Hjördís Laufey Lúðvíksdóttir, f. 1993. Lúðvík Jóhann átti son úr fyrri sambúð, Stefán Lúðvíks- son, f. 1980, d. 1998, og á hann einn son, Kristófer Anton, f. 1998. Ásgeir nam málaraiðn í Iðn- skólanum í Reykjavík og starf- aði við það hjá föður sínum allt til hann hóf störf hjá Pósti og síma árið 1963. Hjá Síman- um lærði hann til línumanns og síðar símsmiðs. Hann starf- aði lengst af á Keflavík- urflugvelli við viðgerðir og mælingar á símkerfum fyrir bandaríska herinn. Ásgeir verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í dag, 31. október 2012, kl. 13. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. þerra eru Ásta Þórarindsóttir Nordgulen, f. 1976, börn hennar eru Ásgeir Þór, f. 1996, Ragnar Freyr, f. 2005, og Brynjar Geir, f. 2007. Kristinn Ei- ríkur Þórarinsson, f. 1983, sambýlis- kona Tinna Dögg Jónsdóttir, f. 1987, sonur þeirra Brimar Darri, f. 2010. Erla María Ásgeirs- dóttir, f. 23.1. 1955, maki Jón Einarsson, f. 19.12. 1954, börn þeirra eru Ásgeir Karl Jóns- son, f. 1974, maki Fanney Þor- steinsdóttir, f. 1975, börn þeirra eru Dagrún Eyr, f. 1997, og Jón Steinar, f. 1999. Þórunn Magnea Jónsdóttir, f. 1976, sambýlismaður Ingi Steinar Jensen, f. 1975, börn þeirra eru Margrét Ósk, f. 2003, og María Sól, f. 2009. Atli Már Jónsson, f. 1982, maki Ellen Mjöll Hallgríms- dóttir, f. 1984, börn þeirra eru Embla María, f. 2005, og Arn- Elsku Ásgeir afi. Þótt þú hafir í raun yfirgefið mig fyrir þó nokkru, m.a. vegna Alzheimerssjúkdómsins sem tók þig frá okkur er sárt að horfa á eftir þér inn í eilífðina. En huggun mín er að nú ertu kominn á betri stað þar sem þú getur aftur verið þú sjálfur. Síðast kom ég til þín stuttu eftir að þú kvaddir þennan heim og það ríkti svo mikill friður yfir þér. Ég er mjög þakklát fyrir að þú hafir fengið að fara með svona mikilli frið- sæld. Þótt við höfum ekki átt mikla samleið síðastliðin ár hefur mér alltaf orðið hugsað til þín, elsku afi. Ég á mér margar sælar æskuminningar og eru þær margar frá Hóf- gerðinu í Kópavoginum þar sem þú og amma bjugguð. Ég, Ásgeir bróðir og Ásta elstu barnabörnin þín lékum okkur löngum stundum í kofanum úti í garði og fengum við oft að gista hjá ykkur. Þú gast auð- veldlega glatt okkur þegar þú komst heim með kettlingana, Mike og Spike ofan af velli og leyfðir heim að vera yfir helgi. Fannst okkur líka spennandi að fá að fara með þér í vinnuna ef þú þyrftir að skjótast þang- að á laugardegi. Ég man líka mjög sterklega eftir nánu augnabliki sem við tvö áttum þegar þú kenndir mér að reima skó 6 ára gamalli. Þú og amma höfðuð mjög gaman af að ferðast til útlanda og varð sólarstaður yfirleitt fyrir valinu hjá þér. Þú gjör- samlega elskaðir sólina enda er hún uppspretta lífsins og án hennar er ekkert líf. Við krakk- arnir biðum alltaf spennt eftir að fá ykkur heim enda fengum við ýmsan glaðning frá ykkur. Og alltaf komstu með nóg að M&M og súkkulaðikossunum. Mér varð hugsað til þess um daginn þegar Margrét Ósk dóttir mín fór á skauta í fyrsta sinn, að þú hafði mjög gaman af því að fara með okkur krakkana niður á Tjörn á skauta þegar við vorum á hennar aldri. Þú varst mjög flinkur á skautum og bast sam- an nokkra trefla og útbjóst þannig til langt band og dróst okkur síðan á eftir þér. Ég vil þakka þér fyrir öll góðu árin sem ég fékk með þér. Allar stundirnar sem ég átti með ykkur ömmu í Hóf- gerðinni eru mjög sérstakar minningar sem ég á um þig, elsku afi. Þær mun ég aldrei gleyma og ávalt varðveita í hjarta mínu. „Munum þá sem gleyma“ Hvíl í friði, elsku Ásgeir afi. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. Höndin þín, Drottinn, hlífi mér, þá heims ég aðstoð missi, en nær sem þú mig hirtir hér, hönd þína eg glaður kyssi. Dauðans stríð af þín heilög hönd hjálpi mér vel að þreyja, meðtak þá, faðir, mína önd, mun ég svo glaður deyja. Minn Jesús, andlátsorðið þitt í mínu hjarta eg geymi, sé það og líka síðast mitt, þá sofna eg burt úr heimi. (Hallgrímur Pétursson.) Þín dótturdóttir, Þórunn Magnea Jónsdóttir (Tóta.) Ásgeir Karlsson ✝ Soffía Jóns-dóttir fæddist í Elínarhöfða á Akranesi 22. mars 1918. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sólvangi 18. októ- ber 2012. Foreldrar hennar voru Guð- rún Guðnadóttir, fædd í Sarpi í Skorradal og Jón Diðriksson fæddur í Grashúsum á Álfta- nesi. Soffía var áttunda í röð 13 systkina en af þeim kom- ust 12 til fullorðinsára. Systkini hennar voru: Guðni, Margrét, Ásgeir, Guðmundur, Jóhanna, Diðrik, Ásgrímur, Halldóra, Helgi, Ásta, Eðvard ar, kvæntur Dagbjörgu Traustadóttur, börn þeirra eru Dagrún, Margrét, Berg- lind og Davíð Þór. 2) Kol- brún, gift Steingrími Magn- ússyni, börn þeirra eru Ágústa, Soffía og Jón Vignir. 3) Bragi Vignir, kvæntur Rut Helgadóttur, börn þeirra eru Helgi Vignir, Sif og Svava. 4) Sigurður Ólafur, kvæntur Dagrúnu Guðlaugsdóttur og á hún soninn Fannar Þór. Soffía og Jón Vignir bjuggu allan sinn búskap í Hafnarfirði og var Soffía heimavinnandi húsmóðir alla tíð. Soffía verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju í dag 31. okt. 2012, og hefst at- höfnin kl. 13. og Lilja. Eftirlif- andi eru syst- urnar Ásta og Lilja. Soffía flutt- ist 5 ára frá Akranesi með fjölskyldu sinni að Bjarnastöðum á Álftanesi í Bessastaðahreppi. Eiginmaður Soffíu var Jón Vignir Jónsson, framkvæmdastjóri í Hafn- arfirði, en hann lést 21. júlí 2004. Foreldrar hans voru Jónína Sesselia Jónsdóttir frá Ytri-Galtavík í Skila- mannahreppi í Borgarfirði og Jón Þórarinsson frá Gerðum í Garði. Þau eignuðust fjögur börn, en þau eru 1) Jón Rún- Í dag kveðjum við þig, elsku amma. Við systkinin áttum bara eina ömmu en þú varst líka besta amman í heiminum. Svo margar minningar um þig, um allt sem þú gerðir með okkur og fyrir okkur. Þú hafðir alltaf tíma fyrir okkur og síðar börnin okkar. Kenndir okkur að sauma, prjóna, baka, fara með ljóð, klippa út dúkkulísur, spila á spil og leggja kapal, því iðjulaus mátti enginn vera. Alltaf vorum við velkomin til þín og oft með vini með okkur hvenær sem var dagsins og alltaf var nóg að borða og drekka, ný- bakað brauð og jólakökur. Elsku amma, það tekur svo langan tíma að segja frá öllu sem við höfum brallað með þér í gegn- um árin, allar skemmtilegu stundirnar sem koma upp í hug- ann. En við vitum að afi er búinn að taka á móti þér og þið byrjuð að rækta blóm og gróðursetja í garðinn ykkar. Lítill fugl á laufgum teigi losar blund á mosasæng, heilsar glaður heiðum degi, hristir silfurdögg af væng. Flýgur upp í himinheiðið, hefir geislastraum í fang, siglir morgunsvala leiðið, sezt á háan klettadrang. Þykist öðrum þröstum meiri, þenur brjóst og sperrir stél, vill, að allur heimur heyri, hvað hann syngur listavel. Skín úr augum skáldsins gleði, skelfur rödd við ljóðin ný, þó að allir þrestir kveði þetta sama dírri-dí. Litli fuglinn ljóða vildi listabrag um vor og ást. Undarlegt, að enginn skyldi að því snilldarverki dást. (Örn Arnarson.) Þín barnabörn. Dagrún, Margrét, Berglind og Davíð Þór. Elskulega mamma mín, með söknuði og sorg í hjarta, kveð ég þig við leiðarlokin þín. Ekki þurfti mikið til að gleðja mömmu í heimsóknum mínum á Sólvang, þar sem hún dvaldi síð- ustu ár. Súkkulaðimoli og góður kaffisopi var nóg. Mikið er ég þakklát fyrir að hafa átt svona góða mömmu, því minningin lifir og öll hennar gull- korn eru geymd í hjarta mínu. Mamma var alltaf jafn róleg og blíð, gefandi og talandi um það góða. Hún var létt í spori og létt í lund og í lífsins hjarta, elsku góða mamma mín. Ég vil bara þakka þér fyrir allt og allt sem við höfum átt saman, þú varst alltaf til staðar en mamma mín, núna ertu loksins búin að fá hvíldina og komin til hans pabba, sem ég veit að hefur tekið á móti þér á sinn hátt og það hafa orðið fagnaðarfundir. Þú varst frábær mamma, amma og síðast en ekki síst vinkona mín. Elskulega mamma mín Mjúk er alltaf höndin þín. Tárin þorna í sérhvert sinn Er þú strýkur vanga minn. … (Sig. Júl. Jóhannesson.) Blessuð sé minning þín. Þín dóttir, Kolbrún. Nú hefur amma Soffía kvatt okkur södd lífdaga og er komin í faðm afa á betri stað. Eftir sitj- um við með yndislegar minning- ar um yndislega konu. Minning- ar sem fá mann til að brosa, hlæja og gráta. Ég var svo hepp- in að fá að vera mikið hjá ömmu Soffíu og afa Jóni þegar ég var að alast upp og á ég endalaust af minningum sem ég mun ylja mér við um ókomna tíð. Amma tók alltaf vel á móti manni og skipti þá engu máli hvort ég kom ein til hennar eða með vinahóp- inn með mér og seinna Ragga minn og börnin. Hún átti alltaf eitthvað gott að borða og svo var það kaffibolli og spjall. Þá gát- um við amma rætt um allt og oft enduðum við á því að hlæja vel og lengi. Þakklæti er það sem helst kemur upp í hugann þegar ég hugsa um ömmu Soffíu. Hún vildi allt fyrir mann gera, sama hvað það var. Hún var alltaf til staðar, í sorg og í gleði og um- vafði mig með ást og trú. Ég á svo margt að þakka ömmu minni fyrir og hún kenndi mér svo margt. Mundu það sem ég hvíslaði að þér rétt áður en þú kvaddir í hinsta sinn að þér mun ég aldrei gleyma, elsku amma mín. Þú varst best. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Ég elska þig, amma mín. Þín litla Soffía. Soffía Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.