Morgunblaðið - 31.10.2012, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
Þórdís BjarneyJóhanns-dóttir er 60
ára í dag, fædd 31.
október 1952. Eig-
inmaður hennar er
Helgi Hermannsson
og eru þau búsett á
Selfossi. Í tilefni
stórafmælisins ætl-
ar Þórdís að hafa
heitt á könnunni,
síðdegiskaffi, fyrir
gesti og gangandi
heima við. „Ég býst
við því að nánasta
fjölskylda, vinnu-
félagar og vinir líti
inn. Ég hef nú yfir-
leitt gert eitthvað í
tilefni dagsins á
stórafmælum,“ seg-
ir Þórdís. Hún er
nýkomin frá Spáni
þar sem hún og
maður hennar
dvöldu í viku ásamt
vinahjónum. „Ferð-
in var farin í tilefni
af afmælinu. Þetta
var yndisleg, end-
urnærandi og góð
ferð.“
Þórdís var á fullu að baka fyrir afmælisveisluna þegar blaða-
maður hringdi í hana en hún tók sér frí frá vinnu í gær og dag.
Þórdís vinnur í Arion banka á Selfossi og þar var henni haldin
afmælisveisla á mánudaginn. „Dagurinn endaði með ægilega
fínni veislu. Yfirleitt kemur fólk sjálft með köku í vinnuna ef
það á afmæli en samstarfsfélagarnir bökuðu í þetta skiptið, lík-
lega út af því að ég er að verða svo gömul,“ segir Þórdís og
hlær.
Þórdís og Helgi eiga þrjú börn, eitt þeirra er búsett út í Nor-
egi en hin eru búsett á Selfossi. Þórdís er úr Vestmannaeyjum
en flutti upp á land eftir gos. Þau bjuggu á Hvolsvelli fram að
árinu 2000 þegar þau fluttu á Selfoss. Þórdís segir að hún hafi
verið mjög ánægð þar sem hún hefur búið en ræturnar séu mik-
ið í Eyjum. ingveldur@mbl.is
Þórdís Bjarney Jóhannsdóttir er 60 ára
Afmæli Þórdís Bjarney Jóhannsdóttir á
Selfossi er sextug í dag.
Með heitt á könn-
unni fyrir gesti
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Heiðurshjónin Aðalbjörg Magnúsdóttir og Þorsteinn Sigurðsson frá Reykholti,
Fáskrúðsfirði, eiga 70 ára brúðkaupsafmæli í dag, 31. október. Þorsteinn stund-
aði sjómennsku á Fáskrúðsfirði alla sína starfsævi og Aðalbjörg var virkur þátt-
takandi í ýmsum góðgerðamálum auk húsmóðurstarfa. Hún var m.a. ein af stofn-
endum Styrktarfélags vangefinna á Austurlandi og Krabbameinsfélags
Austfjarða. Þau munu fagna þessum merkisdegi með nánustu fjölskyldu sinni á
hjúkrunarheimilinu Eir þar sem Aðalbjörg hefur dvalið síðustu tvö árin.
Platínubrúðkaup
H
ildigunnur ólst upp í
stórum systkinahópi í
Miðfelli í Hruna-
mannahreppi við öll
almenn sveitastörf þar
sem foreldrar hennar stunduðu
kúabúskap. Hún var í Grunnskól-
anum á Flúðum, lauk stúdentsprófi
frá ML 1992 og kynntist þar eig-
inmanni sínum.
Eftir stúdentspróf fluttu þau til
Reykjavíkur og við tók barnauppeldi
hjá Hildigunni. Hún lauk prófi sem
snyrtifræðingur frá FB 2001, hóf síð-
ar nám í mannfræði við HÍ, söðlaði
síðan um og fór í fornleifafræði og út-
skrifaðist þaðan vorið 2011.
Hildigunnur vann við fornleifa-
rannsóknir að Hólum í Hjaltadal og
við Kolkuós, skammt frá Hólum 2010,
og við Nesstofu á Seltjarnarnesi,
2010.
Hildigunnur vinnur nú með eigin-
Hildigunnur Skúladóttir fornleifafræðingur – 40 ára
Fjölskyldan Hildigunnur og Pálmi með börnin, Agnesi, Pál, Pétur og Eydísi.
Fornleifafræðingur úr
Hrunamannahreppi
Fornleifarannsóknir Hildigunnur við uppgröft við Nesstofu sumarið 2010.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæð-
ingum eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
HVERFISGÖTU 6 S. 551 3470
BALDESSARINI
ALEXANDER WANG
SEE BY CHLOE
SCHUMACHER
PEDRO GARCIA
ROCCO P
STENSTRÖMS
VAN LAACK
EMPORIO ARMANI
CAMBIO
www.facebook.com/saevarkarlverslun