Morgunblaðið - 31.10.2012, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 31.10.2012, Qupperneq 35
manni sínum við byggingaverktaka- fyrirtæki þeirra, Pálmatré og hefur starfað þar að meira og minna leyti, með námi og heimilisstörfum sl. 12. ár. Hildigunnur hefur verið virk í ung- liðastarfi Fram og Fylkis vegna íþróttaþátttöku barnanna, var einn af stofnendum Foreldrafélagsins í Ing- unnarskóla í Grafarholti, sat í stjórn þess og hefur setið í sóknarnefnd Grafarholtssóknar. Almennur áhugi á fornleifarann- sóknum er afar mikill Áhugamál Hildigunnar snúast að mestu leyti um fornleifafræði. En hvað er að frétta af slíkum rannsóknum í dag? „Þær eru núna, því miður, í skelfi- legu lágmarki. Með stofnun Kristnihátíðarsjóðs upp úr aldamót- unum fóru í gang margar mikilvægar rannsóknir, s.s. eins og á Hólum, í Reykholti, Skálholti og á Kirkjubæj- arklaustri. En með hruninu hefur orð- ið gífurlegur niðurskurður í þessum rannsóknum.“ Hafa þessar rannsóknir skilað okk- ur einhverju mikilvægu? „Já, tvímælalaust. Þær hafa styrkt ákveðnar kenningar, fyllt upp í eyður og svarað margvíslegum spurningum. Þetta á ekki síst við um byggingar- og hýbýlasöguna, tengsl hennar við Norðurlöndin og síðan almennari tengsl við Evrópu.“ Maður hefur á tilfinningunni að fornleifarannsóknir skili litlu hvað varðar minjar og mannvirki. „Þær hafa skilað ítarlegum skýrslum og vönduðum fræðiritum um niðurstöður. Áhugi almennings á fornleifarannsóknum er mjög mikill hér á landi en beinist kannski fyrst og fremst að tilteknum gripum eða sýni- legum mannvirkjum og það er eðli- legt. Landnámsskálinn í Aðalstræti í Reykjavík er þó dæmi um mjög sýni- legt og mikilvægt mannvirki en hann er svolítið falinn og í raun mætti gera meira með hann og fleiri mann- virkjaleifar.“ Fjölskylda Eiginmaður Hildigunnar er Pálmi Pálsson, f. 8.10. 1970, bygg- ingaverktaki. Hann er sonur Páls Pálmasonar, bónda á Hjálmsstöðum í Laugardal, og Fanneyjar Gests- dóttur, bónda og húsfreyju þar. Börn Hildigunnar og Pálma eru Páll, f. 2.11. 1993, nemi við Borg- arholtsskóla; Pétur, f. 26.7. 1996, nemi við ML; Agnes, f. 22.10. 2001, grunn- skólanemi; Eydís, f. 31.3. 2005, grunn- skólanemi. Systkini Hildigunnar eru Sigríður, f. 13.1. 1954, íþróttakennari og nudd- ari í Mosfellsbæ; Grétar Gunnlaugur, f. 14.1. 1957, verktaki í Miðfelli; Mó- eiður, f. 14.3. 1960, leikskólakennari á Flúðum; Svanhildur, f. 1.5. 1963, stafsmaður hjá Nova í Reykjavík; Herdís, f. 15.12. 1970, starfsmaður Vodafone í Reykjavík; Kristjana, f. 14.2. 1975, leik- og söngkona í Reykja- vík. Foreldrar Hildigunnar: Skúli Gunnlaugsson, f. 25.10. 1927, fyrrv. bóndi í Miðfelli, og k.h., Arndís Sigríð- ur Sigurðardóttir, f. 21.7. 1930, d. 10.1. 2012, húsfreyja og bóndi í Miðfelli. Úr frændgarði Hildigunnar Skúladóttur Hildigunnur Sigurðardóttir Móeiður Skúladóttir Thorarensen frá Móeiðarhvoli. Sigurður Ágústsson tónskáld og söngstj. í Birtingarholti Sigríður Sigurfinnsdóttir húsfr. í Birtingarholti Arndís Sigríður Sigurðardóttir húsfr. í Miðfelli Jónína Þórðardóttir húsfr. í Keflavík Sigurfinnur Sigurðsson í Keflavík Kristjana Bjarnadóttir húsfr. Sigurður Sigurmundason b. í Miklaholti í Hraunhreppi Margrét Ólöf Sigurðardóttir húsfr. í Miðfelli Gunnlaugur Magnússon b. í Miðfelli Skúli Gunnlaugsson fyrrv. b. í Miðfelli í Hrunamannahr. Sigríður Herdís Hallsdóttir húsfr. í Hallkelsstaðahlíð Magnús Magnússon b. í Hallkelsstaðahlíð í Kolbeinsstaðahr. Ágúst Helgason alþm. í Birtingarholti, af Reykjaætt Katrín Briem Helgad. húsfr. að Stóra-Núpi Jóhann Briem listmálari Magnús Gunnlaugsson b. í Miðfelli V og fjallaferðamaður Þorsteinn Thorarensen b. á Móeiðarhvoli Skúli Thorarensen b. á Móeiðarhvoli Þorsteinn Skúlason Thorarensen borgarfógeti í Rvík Ástríður Thorarensen hjúkrunar- fræðingur Nálægt Dettifossi Hildigunnur og Pálmi á leið yfir Kröflusvæðið 2010. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012 Einar Benediktsson, skáld ogathafnamaður, fæddist aðElliðavatni 31.10. 1864, sonur Benedikts Sveinssonar, yfirdómara og alþm., og Katrínar Einarsdóttur. Einar lauk stúdentsprófi í Reykja- vík 1884 og lögfræðiprófi 1892. Hann var með föður sínum á Héðinshöfða 1892-94, stofnaði Dagskrá 1896, fyrsta íslenska dagblaðið, var mál- flutningsmaður í Reykjavík og síðan sýslumaður á Stóra-Hofi í Rang- árvallasýslu frá 1904 en fór utan 1907 og var búsettur í Noregi, Edinborg, Kaupmannahöfn og í Lundúnum til 1921, stundaði kaupsýslu og beitti sér fyrir nýtingu íslenskra auðlinda. Hann var búsettur í Reykjavík frá 1921 en bjó tólf síðustu æviárin í Her- dísarvík. Ljóðabækur Einars eru Sögur og kvæði, 1897; Aldamótaljóð, 1900; Haf- blik, 1906; Hrannir, 1913; Vogar, 1921; Hvammar, 1930; Ólafs ríma Grænlendings, 1930, og Alþingis- hátíðarljóð, 1930. Einar var fullþroskað skáld í sinni fyrstu ljóðabók sem er í senn í anda raunsæis og nýrómantíkur. Skáld- skapur hans varð tilkomumeiri eftir því sem á leið. Hann varð skáld hinna löngu hástemmdu setninga um al- gilda visku og æðstu sannindi – heim- spekilega þenkjandi og hallur undir algyðistrú. Um Einar varð snemma til fjöldi sagna, um stórlyndi hans, höfðings- skap og tröllaukna drauma um stór- iðju og verksmiðjuframkvæmdir. Ljóð hans eru þess eðlis að aðdá- endur hans nánast dýrkuðu hann og töluðu þá gjarnan um Skáldið með stóru essi. Þórbergur Þórðarson var á tímabili ritari hans og undir miklum áhrifum frá honum og til eru sagnir af fundum hans með ungum skáldum, s.s. Tómasi Guðmundssyni, Halldóri Laxness og Steini Steinarr. Ýmsir hafa skrifað um Einar en ítarleg og stórskemmtileg ævisaga hans, eftir Guðjón Friðriksson sagnfræðing, kom út í þremur bindum á árunum 1997-2000. Einar lést 21.1. 1940 og var jarð- settur, fyrstur Íslendinga, í heið- ursgrafreit á Þingvöllum. Merkir Íslendingar Einar Benediktsson 85 ára Brynhildur Garðarsdóttir Unnur Sigurjóna Jónsdóttir 80 ára Áslaug Jónasdóttir Jón E. Kjerulf Óskar H. Gunnarsson Stefán Haukur Jakobsson 75 ára Grétar Geirsson Guðjón Benediktsson Lúðvík Ólafsson Valgerður Gísladóttir Vilmundur Þ. Kristinsson 70 ára Henný Nielsen Jón B. Stefánsson Kristín Pétursdóttir Kristín Þorvaldsdóttir Lárus Þórir Sigurðsson 60 ára Ásta Jeremíasdóttir Bergljót Sjöfn Steinarsdóttir Guðfinna Guðmundsdóttir Hafsteinn Jóhannesson Hannes Hólm Hákonarson Hermann Kristjánsson Margrét Erna Halldórsdóttir Ragnheiður Ragnarsdóttir Unnar Ólafsson Þorgerður María Gylfadóttir Þórdís Bjarney Jóhannsdóttir 50 ára Ásthildur Sigurðardóttir Bergljót Anna Haraldsdóttir Gréta Garðarsdóttir Laufey Sigurgeirsdóttir Ragnheiður G. Ragnarsdóttir Sigurjón Hermann Herbertsson Sigurþór Pétur Þórisson Þórður Birgisson 40 ára Auðun Freyr Ingvarsson Ásmundur Kristján Sigurðsson Bergljót Einarsdóttir Hildur Hrund Bjarnadóttir Ingólfur Arnarson Katrín Björg Fjeldsted Lyubomyra Petruk Magdalena Baurska Sigurbjörn Stefán Eiríksson Sigurður Karsten Bogason Svala Guðmundsdóttir 30 ára Adrian Jerzy Grzywa Guðmundur Skúli Margeirsson Hans Benjamínsson Hreinn Heiðar Halldórsson István Oláh Jón Tómas Einarsson Marinó Þórisson Sigurgeir Halldór Garðarsson Til hamingju með daginn 30 ára Vala ólst upp í Reykjavík, lauk prófum sem félagsliði og starfar við hjúkrunarh. Mörk. Maki: Jökull Viðar Harð- arson, f. 1978, mat- reiðslumeistari. Börn: Viktor Ingi, f. 2002; Erna Magnea Elísa, f. 2005; Guðrún Elfa, f. 2009. Foreldrar: Ólafur Ingi Óskarsson, f. 1958, og Erna Björg Baldursdóttir, f. 1958. Vala Ósk Ólafsdóttir 40 ára Stefán ólst upp á Skagaströnd, hefur verið sjómaður lengst af og er nú háseti á Kristínu EA. Maki: Hafdís Hrund Ás- geirsdóttir, f. 1975, hár- snyrtir. Börn: Daði Snær, f. 2002; Stefanía Hrund, f. 2006, og óskírð, f. 2012. Foreldrar: Sveinn Garð- arsson, f. 1934, fyrrv. sjó- maður, og Guðný Björns- dóttir, f. 1938, fyrrv. fiskvinnslukona. Stefán Sveinsson 30 ára Helga ólst upp á Selfossi, hefur starfað á hárgreiðslustofu og stundar nú nám við Iðn- skólann í Hafnarfirði. Sonur: Daníel Sindri Sverrisson, f. 2002. Systkini: Leifur Birgir, f. 1966; Ægir, f. 1964 og Bjarney Ágústsdóttir, f. 1970. Foreldrar: Þórunn Eng- ilbertsdóttir, f. 1950, og Jón Kristján Sig- ursteinsson, f. 1945. Helga Bettý Jónsdóttir Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.