Morgunblaðið - 31.10.2012, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er eitt og annað sem þú hefur
látið sitja á hakanum að undanförnu. Það er
orðið tímabært að þú hafir samband við vini
þína þótt þeir hafi ekki haft samband við þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er í góðu lagi að leyfa sér að njóta
velgengni og enginn hroki í því. Stundum átt
þú til að setja reglur um ástina, án þess að
gera þér grein fyrir því.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sameign kallar enn einu sinni á
samningaviðræður við maka eða vini. Mundu
samt að gera ekki meiri kröfur til annarra en
sjálfs þín.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Samstarfsmenn þínir munu koma
auga á hæfileika þína og vilja njóta þeirra. Ef
þú situr á reiðinni án ástæðu, er kominn tími
til að spyrja sig hvað tilgangi hún þjóni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Samræður við maka og nána vini eru
erfiðar núna, ekki síst ef umræðuefnið er
peningar. Þú getur þakkað sjálfum þér fyrir
hluta af þeirri gæfu er hendir þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það getur verið erfitt að eiga við and-
stæðing sem er svo líkur manni sjálfum að
furðu sætir. Best væri að tryggja að sem
minnst fari fyrir hlutunum og mundu að síg-
andi lukka er best.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er engin ástæða til þess að láta sér
leiðast. Hvernig væri að halda látlaust boð
fyrir vini sem þú hefur ekki hitt nýlega?
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu það vera að flýta þér því
það býður hættunni heim og þú skilar verri
vinnu fyrir vikið. Listrænn árangur næst með
aga og hollustu og þú hefur hvort tveggja.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Afköst þín eru með ólíkindum og
vinir og samstarfsmenn fylgjast með þér í
forundran. Það getur reynt á þolinmæðina að
þurfa að hafa hlutina fyrir sig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er óhugsandi að lifa í þessum
heimi án þess að þurfa að taka tillit til gild-
ismats annarra. En lítil ævintýri geta líka glatt
svo þú skalt ekki fúlsa við þeim.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sköpunargáfa þín og ímyndunar-
afl eru einstaklega frjó. Hlustaðu á það sem
aðrir hafa fram að færa og mundu að það er
enginn sem vill eyðileggja þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú verður þú að bretta upp ermarnar
og kippa þeim mörgu hlutum í liðinn sem þú
hefur látið danka alltof lengi. Njóttu þess að
leika við börnin.
Gylfi Pálsson sendir Vísnahorn-inu góða kveðju: „Af því að þú
minntist á limrur um daginn datt
mér í hug að senda þér eina slíka
sem ekki hefur flogið víða.
Fyrir langa löngu keypti ég í forn-
bókaverslun Flóru Íslands eftir Stef-
án Stefánsson – merkta Guðfinnu
Þorsteinsdóttur, sennilega hefur
Teigs-nafnið fylgt með. Árum síðar
hitti ég Þorstein Valdemarsson hjá
sameiginlegum vinum og sagði hon-
um að ég hefði undir höndum gamla
bók móður hans en fyndist rétt að
hann eignaðist bókina og afhenti
honum hana skömmu síðar. Þor-
steinn brást við með því að senda
mér nýútkomna bók sína Limrur
(1965). Á saurblaðið var ritað:
Eftir Hlé er ennþá reimt,
ei úr Boðn til þurrðar streymt.
En Flóru heimt –
hvern hefði dreymt
um hana! Er ekkert týnt né gleymt?
Veit ekki til þess að vísan sé skráð
annars staðar en henni er hér með
komið á framfæri.
Runólfur Ágústsson sagði frá því
á fésbókinni að hann hefði upplifað
„þann einstæða atburð í síðari tíma
sögu sinni að vera algjörlega sam-
mála leiðara Morgunblaðsins!!!“
Séra Hjálmar Jónsson skaut inn at-
hugasemd:
Þroskinn vex hjá sumum seint,
samt er áfram staðið.
Runólfur er ljóst og leynt
að lesa Morgunblaðið.
Sigrún Haraldsdóttir rak augun í
setninguna: „Glymjandi hrannir
gengu á land“ um flóðin í New York.
Hún skrifar: „Þessi fallega fyrirsögn
var í Morgunblaðinu í dag þar sem
fjallað var um ofurstorminn Sandy. Í
greininni var önnur falleg setningin:
„Við landtöku rumdi sollinn sær.“
Önnur fyrirsögn í Mbl.is var á
þessa leið: „Myrkur á Manhattan“.
Ég raðaði nokkrum línum í kring
um þessar fínu setningar:
Sandy
Napur að sjá var New York bær,
neyðarástand á flestum þar.
Við landtöku rumdi sollinn sær,
svarraði brim um göturnar.
Öldurnar báru upp blakkan sand,
brutu þar sérhvern varnargarð.
Glymjandi hrannir gengu á land,
grönduðu því er fyrir varð.
Riðlaðist um á feiknafart
fála af æsing drifin var.
á Manhattan ríkti myrkur svart
múgur var felmtri sleginn þar.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af limru Þorsteins, leiðara
og myrkri á Manhattan
eftir Jim Unger
„VIÐ EIGUM ENGAR.“
HermannÍ klípu
„HANN SKYGGIR ALLTAF Á ÚTSÝNIÐ EF
VIÐ FÖRUM EITTHVAÐ.“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að leyfa honum að
klára kríuna sína.
HJÓNABANDS-
RÁÐGJAFI
ÉG ER FEGINN AÐ
VERA EKKI ÞÚ.
SJALDGÆFAR BÆKUR
SÁ YKKAR SEM FYRSTUR KLIFRAR YFIR VEGGI
KASTALANS OG BERST VIÐ HUNDRUÐ ÓVINA MUN FÁ
AÐ LAUNUM ÞÚSUND GULLDALI!
ER ÞAÐ FYRIR
EÐA EFTIR
SKATT?
Víkverji var nýverið staddur íÓsló. Þótt hann hefði ekki mik-
inn tíma til stefnu gat hann ekki á
sér setið að heimsækja hið glæsilega
nýlistasafn Astrups Fearnleys, sem
stendur á Þjófshólma og var opnað í
lok september. Í safninu er að finna
rjómann af nútímalist okkar daga.
Ber þar hæst verk eftir Jeff Koons
og Damien Hirst. Safnið sjálft er
einnig glæsilegt, tvær byggingar sitt
hvorum megin við þröngt síki
klæddar gleri og viði.
x x x
Renzo Piano, einn helsti arkitektsamtímans, hannaði safnið.
Hann er einnig höfundur Pompidou-
safnsins í París og höfuðstöðva New
York Times í New York. Astrup Fe-
arnley er afkomandi rómantíska
nítjándualdarmálarans Thomasar
Fearnleys. Hann er afkomandi
skipakónga, en ákvað að nota arfinn
í þágu listarinnar og kannski við
hæfi að safnið standi þar sem áður
var skipasmíðastöð. Gunnar Kvaran
er safnstjóri og hefur ásamt Fearn-
ley mótað innkaupastefnu safnsins.
Áherslan er á bandaríska og evr-
ópska list, en í safninu gefur einnig
að líta listaverk frá Japan og Kína,
en ekkert bólar á málverkum róm-
antíska forföðurins.
x x x
Víkverji heillaðist af safninu ognaut hinnar fjölbreyttu sýn-
ingar út í ystu æsar. Þá kom honum
skemmtilega á óvart hvernig safnið
hefur tekið tæknina í sína þjónustu.
Safngestir fá lykilorð til þess að
tengjast netinu á aðgangsmiðum
sínum. Síðan geta þeir notað snjall-
síma til þess að lesa QR-kóða við hlið
valinna verka, borið símann að eyra
sér og fengið fyrirlestur um þau og
listamennina. Í nokkrum tilvikum
sögðu listamennirnir sjálfir frá verk-
um sínum. Þetta þótti Víkverja hið
mesta þing og ágætt að þurfa ekki
að fá eitthvert tæki lánað í afgreiðsl-
unni gegn panti og burðast um með
það til að hlýða á upplýsingar. Vík-
verja leið eins og sönnum nútíma-
manni þar sem hann rápaði um með
snjallsímann við eyrað í hinu nýja og
glæsilega nútímalistasafni á Þjófs-
hólma og rýndi í listaverkin.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Og þetta er traustið sem við berum til
hans: Ef við biðjum um eitthvað eftir
hans vilja, þá heyrir hann okkur.
(Fyrsta Jóhannesarbréf 5:14).
Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 -23
Indverskt buff í grófu
naanbrauði, grilluð
paprika, rauðlaukur,
jöklasalat, raita og
mangó chutney
Indverji Borgari, franskar,
gos og kokteilsósa
1.550 kr.