Morgunblaðið - 31.10.2012, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
Kex Hostel og Reykjavík Rocks
munu bjóða upp á leiðsögn um tón-
listarsögu Íslands og Reykjavíkur á
meðan á Iceland Airwaves stendur.
Haldið verður í rútuferðir frá Kex
Hosteli og geta áhugasamir pantað
sér ferð á vef Reykjavík Rocks:
reykjavikrocks.bigcartel.com/
product/kex-rocks-tour. Ferðin
endar á sama stað og hún hófst, á
Kex Hosteli þar sem boðið verður
upp á léttar veitingar. Leið-
sögumaður í ferðunum er Jón Atli
Jónasson, leikskáld með meiru, en
það var poppspekingurinn dr.
Gunni sem aðstoðaði hann við sam-
setningu ferðarinnar. Í fyrra var
gefið út kynningarritið Reykjavík
Rocks en í því er ljósi varpað á
Reykjavík nútímans af höfundum á
borð við Hallgrím Helgason, Örn
Úlfar Sævarsson og Jón Atla. Jón
Gnarr, skrifaði leiðara.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Rokk Jón Atli veitir leiðsögn um tón-
listarsögu Íslands og Reykjavíkur.
Tónlistarsagan
rakin í rútuferð
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þessi plata er rökrétt framhald af
fyrstu plötunni minni, Celebrating
life. Hún er þroskaðra verk og ég
vissi mun betur hvað ég vildi fá út
úr þessari plöt. Kannski má segja
að tónninn sé fundinn, en á fyrstu
plötunni minni var ég meira leit-
andi,“ segir Björn Kristjánsson um
aðra breiðskífu sína, Born to be
free, sem hann nýverið sendi frá
sér. Á plötunni eru níu frumsamin
lög eftir Björn eða Borko eins og
listamaðurinn kýs að kalla sig.
Hann á jafnframt flesta textana, en
Örvar Þóreyjarson Smárason á tvo
texta.
Berskjaldaður með eigin texta
Spurður hvernig lögin komi til
hans segir Borko allur gangur á því.
„Sum lögin verða til með gítar eða
píanó við hönd, en taka ekki á sig
endanlega mynd fyrr en maður fer
að útsetja í stúdíóinu. Meðan önnur
lög verða aðallega til í tölvunni, en
þá verður lagið og útsetningin til
um leið,“ segir Borko og bætir við:
„Fyrri platan mín var í grunninum
unnin sem raftónlistarplata og síðan
fór ég að prófa að spila með hljóm-
sveit sem kom þá eins og eftir á
skraut ofan á grunninn. Meðan
þessi plata er unnin meira eins og
hefðbundin hljómsveitarplata með
rafflúri. Ólíkt fyrri plötunni eru öll
lögin á nýju plötunni sungin.“
Lögin á plötunni eru öll sungin á
ensku og leikur blaðamanni forvitni
á að vita hvers vegna. „Ég hef alltaf
sungið á ensku, en það var ekki
meðvituð ákvörðun. Um daginn var
ég að syngja lögin af plötunni á tón-
leikum þar sem ég var bara einn
með kassagítar og þá fannst ég allt í
einu vera svolítið gervilegur að vera
að syngja fyrir tónleikagesti á
ensku. Í framhaldinu fór ég að velta
fyrir mér hvers vegna ég syng alltaf
á ensku. Ég held að ástæðan sé sú
að mér finnst textarnir svo persónu-
legir, en maður verður ofboðslega
berskjaldaður þegar maður er að
syngja sína eigin texta. Ætli maður
nái ekki frekar að fela sig á bak við
enska tungu og búa þannig til ein-
hverja fjarlægð.“
Borko kemur fram á Iceland
Airwaves en hann leikur á Reykja-
vík Restaurant á föstudaginn kl. 14,
sama dag á Þýska barnum kl. 21.40
og á Kex Hosteli á laugardaginn kl.
17.
Mögnuð orka í borginni
Aðspurður segist Borko vera orð-
inn fastagestur á Iceland Airwaves.
„Ég hef spilað á hátíðinni árlega
síðan 2004. Ég á mjög erfitt með að
ímynda mér Airwaves án þess að
vera að spila. Það er eitthvað sér-
stakt við þessa helgi. Það er svo
mögnuð orka í gangi í borginni,“
segir Borko og tekur fram að hann
hafi ekki ætlað sér að koma fram
fyrir tveimur árum. „Þá voru tvö ár
frá útgáfu plötunnar og ekkert nýtt
efni búið að taka á sig mynd. Svo
þegar leið að hátíðinni fékk ég
skrýtna tilfinningu af því að ég var
ekki með og hringdi í skipuleggj-
endur hátíðarinnar og náði að troða
mér inn daginn áður en dagskráin
var gefin út,“ segir Borko.
Aðspurður segist hann gera ráð
fyrir að leika einvörðungu efni af
nýju plötunni á komandi tónleikum.
„Enda hefur maður svo stuttan
tíma. Við höfum hálftíma og þar
sem ég kann ekki að gera stutt lög
þá náum við sennilega ekki að spila
nema fimm til sex lög á þeim tíma,“
segir Borko og heldur áfram til út-
skýringar: „Stysta lagið á plötunni
er 3,5 mínúta og það lengsta 7,5
mínúta. Maður fer ekki með það í
Eurovision,“ segir Borko að lokum
og hlær.
Rökrétt framhald
Borko sendir frá sér aðra breiðskífu sína, Born to be free
Getur ekki ímyndað sér Airwaves án þess að spila
Leit „Kannski má segja að tóninn sé fundinn, en á fyrstu plötunni minni var ég meira leitandi,“ segir Björn Krist-
jánsson betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Borko. Eins og sjá má er hann býsna rafmagnaður.
Frjáls Umslag plötunnar nýju.
myspace.com/borkoborko
ÁLFABAKKA
16
7
L
L
L
12
VIP
16
16
16
7
EGILSHÖLL
12
12
L
16
16
Meryl Streep og Tommy Lee Jones eru frábær
í þessari rómantísku gamanmynd
Entertainment Weekly New York Observer Empire Boxoffice.com
L
HOPE SPRINGS KL. 5:50 - 8 - 10:10
FRANKENWEENIE SÝNDÍ3DMEÐÍSLTEXTAKL. 6 - 8 - 10
END OF WATCH KL. 5:50 - 8 - 10:20
END OF WATCH VIP KL. 5:40 - 8 - 10:20
LOOPER KL. 10
SAVAGES KL. 8
FINDING NEMO ÍSL.TALI KL. 5:50
THE CAMPAIGN KL. 8
LAWLESS KL. 10:40
BRAVE ÍSL.TALI KL. 5:50
L
12
16
KEFLAVÍK
SKYFALL KL. 8 - 11
HOPE SPRINGS KL. 8
END OF WATCH KL. 10:10
AKUREYRI
7
L
L
16
16
16
FRANKENWEENIE SÝNDÍ3DMEÐÍSL TEXTAKL.6
LAWLESS KL. 8
LOOPER KL. 10:20
BRAVE ÍSL.TALI KL. 6
HOPE SPRINGS KL. 8
END OF WATCH KL. 10:20
Entertainment Weekly
BoxOffice.com
16
Ein besta mynd ársins!
- Boxoffice Magazine
JOSEPH
GORDON-LEVITT
BRUCE
WILLIS
EMILY
BLUNT
HAUNAST
FRÁ LEIKSTJÓRANUM TIM BURTON
12
16
16
7
KRINGLUNNI
UPPLIFÐU NÝJA SAMBÍÓIÐ KRINGLUNNI
SKYFALL NÚMERUÐ SÆTI
KL. 5 - 6 - 8 - 9 - 10 - 11
OTHELLO (ÓPERA ENDURFLUTT) KL. 6 L
12
UPPLIFÐU NÝJA
SAMBÍÓIÐ Í
KRINGLUNNI
SKYFALL KL. 5 - 8 - 10:20 - 11
FRANKENWEENIE SÝNDÍ3DMEÐÍSLTEXTA KL. 6
END OF WATCH KL. 5:40 - 8 - 10:20
HOPE SPRINGS KL. 5:40 - 8
LOOPER KL. 8
LAWLESS KL. 10:30
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
-FBL
-FRÉTTATÍMINN