Morgunblaðið - 13.11.2012, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 3. N Ó V E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 266. tölublað 100. árgangur
www.kaupumgull.is
Græddu
á gulli
Kringlunni
3. hæð mán. þri.
mið. frá kl. 11.00
til 18.00
Upplýsingar og tímapantanir:
Sverrir s. 661-7000
HOKKÍSTELPUR
TAKA VEL Á
MÓTI NÝLIÐUM
DRAUMURINN
OG BÍLAR
OFURRÍKRA
UNDANKEPPNI
SÖNGVAKEPPNI
SJÓNVARPSINS
BÍLAR SVEINN MEÐ ÞRJÚ LÖG 41SKEMMTILEGUR LEIKUR 10
Það var heldur hráslagalegt á útsýnisstígnum við Gunnuhver
á Reykjanesi í gær en þeir sem áttu leið um létu bleytuna þó
ekki á sig fá og virtu fyrir sér leirhverinn. Almannavarnir
lokuðu aðgengi að Gunnuhver fyrir fjórum árum, þegar
virkni hverasvæðisins tók að aukast, en svæðið var opnað á ný
árið 2010 og nýr útsýnispallur vígður við hverinn.
Hráslagi við sjóðandi heitan Gunnuhverinn
Morgunblaðið/RAX
„Íslenskir háskólar stefna frá því
að vera þekkingarsamfélög og yfir
í að verða „skyndimenntunarstað-
ir“. Þetta kemur fram í viðtali við
Guðmund Ævar Oddsson, dokt-
orskandídat við Missouri-háskóla.
Undirrótin, ásamt fleiru, er ofur-
áhersla á hagræðingu og vöruvæð-
ingu háskólamenntunar. »14
„Skyndimenntun“ í
háskólum landsins
Andri Karl
Guðni Einarsson
Hópur fjögurra sérfræðinga sem fór yfir tillögur stjórn-
lagaráðs að nýrri stjórnarskrá gerði 75 breytingar á til-
lögum ráðsins. Sérfræðingahópurinn skilaði af sér í gær.
Skilabréfinu fylgja drög að frumvarpi að stjórnarskrá
upp á 114 greinar auk bráðabirgðaákvæðis.
Veigamesta breyting sérfræðingahópsins verður að
teljast sú að hann tekur upp óbreytta grein um þjóðkirkj-
una úr núgildandi stjórnarskrá og er það gert í samræmi
við niðurstöðu ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá eru
gerðar margar breytingar á orðalagi, víða er textinn
styttur og á nokkrum stöðum aukið við.
Við grein um menntun er t.d. bætt ákvæði um að virða
skuli „rétt foreldra til þess að tryggja að menntun barna
þeirra sé í samræmi við trúar- og lífsskoðanir þeirra.“
Sérfræðingahópurinn bendir á það í skilabréfinu að
ekki hafi farið fram „heildstætt og skipulagt mat á áhrif-
um stjórnarskrártillagnanna í heild. Það verkefni kallar
á þverfaglega vinnu sem hópnum var ekki falin“. Hóp-
urinn gerir ráð fyrir að slíkt mat fari fram á vettvangi Al-
þingis. Auk þess bendir hann á tiltekin atriði sem kalla á
nánari skoðun. Þar má t.d. nefna að ekki er getið um hlut-
deild forseta í löggjafarvaldi í tillögunum. Þá er bent á að
gjaldtöku fyrir nýtingu auðlinda þurfi að laga að eðli við-
komandi auðlindar. Eins bendir hópurinn m.a. á að til-
laga um afnám þröskulda í kosningalögum geti leitt til
erfiðleika við myndun ríkisstjórna.
Stefnt er að því að leggja frumvarp að nýrri stjórn-
arskrá fram á Alþingi í næstu viku, að sögn Valgerðar
Bjarnadóttur, formanns stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar Alþingis. Hún telur að „tillögur stjórnlagaráðs
hafi vel staðist álagspróf“.
Birgir Ármannsson, sem á sæti í stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd, segir ljóst að langt sé frá því að vinnu við
stjórnarskrármálið sé lokið. Hann telur útilokað að ljúka
því svo vel sé fyrir næstu alþingiskosningar.
Tillögu stjórn-
lagaráðs breytt
Sérfræðingar leggja til tugi breytinga Stefnt er að því
að leggja fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá í næstu viku
Morgunblaðið/Kristinn
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Fimm tíma fundur.
MTöluverð vinna eftir » 2
Meirihluti fjárlaganefndar hefur lagt
til að 577 milljónir króna verði lagðar
til hliðar vegna skaðabóta sem ríkið
þarf að greiða verktakafyrirtækj-
unum ÍAV og NCC vegna útboðs
Héðinsfjarðarganga, sem Vegagerðin
hætti við á sínum tíma. Þar af eru
dráttarvextir upp á 318 milljónir
króna, sem reiknaðir eru frá október
2007 til greiðsludags.
Hæstiréttur dæmdi ríkið í haust til
greiðslu skaðabótanna, en þá kom
ekki fram hvað dráttarvextirnir væru
miklir. Áður hafði héraðsdómur
sýknað ríkið af kröfu fyrirtækjanna.
Ríkið réðst síðan í gerð ganganna en
þau kostuðu um 16 milljarða króna,
17% umfram áætlun. »4
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Héðinsfjörður Göngin voru grafin.
Göngin
kosta sitt
577 milljónir króna
í bætur til verktaka