Morgunblaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2012
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Hæðasmára 6
201 Kópavogi
www.lifandimarkadur.is
Fákafeni 11
108 Reykjavík
Nýtt
Argan olían frá NO
W
Mjög rakagefandi olía sem lætur
hárið glansa og gefur hársverði, húð
og naglaböndum raka til að viðhalda
heilbrigði. Argan olían er 100% hrein
,
lífræn og rík af fitusýrum
–Olía sem allir þurfa að eiga.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
S
telpur þurfa ekkert að
óttast. Ég hvet þær til
að koma og prófa, við
tökum vel á móti þeim.
Þetta er rosalega
skemmtileg íþrótt og mikil útrás
sem fylgir því að spila íshokkí.
Vissulega er þetta svolítið röff
íþrótt en við höfum verið að vinna
í því að hvetja stelpur til að koma
og vera með. Kannski hafa þær
séð þetta fyrir sér sem einhverja
karlaíþrótt, en það er algjör mis-
skilningur, þetta hentar ekkert síð-
ur stelpum en strákum,“ segir Ás-
dís Birna Hermannsdóttir en hún
er í hópi þeirra kvenna sem skipa
eina íshokkíkvennaliðið hjá
Skautafélagi Reykjavíkur. „Við er-
um yngsta kvennaliðið á Íslandi,
enda ekki búnar að æfa nema í
þrjú ár. Það eru aðeins þrjú
kvennalið á Íslandi í íshokkí, eitt
hjá Birninum í Egilshöll, annað hjá
SA á Akureyri sem skiptist í yngra
og eldra liðið, og svo erum það við
hér hjá Skautafélagi Reykjavíkur.“
Skautaskólinn góður
„Stelpurnar fyrir norðan og
þær sem eru í Birninum hér fyrir
sunnan eru með sterkt lið enda
stór hluti þeirra í landsliðinu. Um
helmingur liðsins okkar eru konur
sem eru tiltölulega nýjar og byrj-
uðu að æfa fyrir aðeins nokkrum
mánuðum. Fyrir vikið er mjög
mikill munur á getunni innan okk-
ar liðs, sumar okkar eru enn að
læra að skauta. Við mælum með
því fyrir nýliða hjá okkur að fara í
sérstakan skautaskóla sem er í
Íshokkí hentar
stelpum vel
Hún segir að íshokkí sé ekkert hættulegt eins og margir haldi og sennilega sé
meiri slysatíðni í fótbolta. Ásdís Birna er í yngsta íshokkíkvennaliði Íslands
og hún hvetur stelpur hiklaust til að koma og prófa.
Morgunblaðið/Kristinn
Stöllur Ásdís Birna og liðsfélagar taka vel á móti nýliðum.
Grunnur Mælt er með að nýliðar fari í sérstakan skautaskóla.
Vefsíðan www.geeksugar.com/Geek-
Fitness er sú rétta fyrir tæknióða
sportista. Á henni má meðal annars
finna tólf forrit í farsímann til að
nota í jóga, sundi, hlaupum og fleiri
íþróttum. Bæði til að tímamæla sig
og eins til að finna hugmyndir að æf-
ingum. Á síðunni má líka finna uppá-
stungur að einhverju sniðugu í jóla-
pakkann handa þeim sem eru
duglegir að stunda líkamsrækt. Einn-
ig má sjá hvaða heyrnartól eru talin
best fyrir hlaupara, sniðin þannig að
þau detti ekki úr eyrunum á hlaupum.
Fjölbreytt síða og ágæt í sarpinn.
Vefsíðan www.geeksugar.com/Geek-Fitness
Hlaup Þægilegur fatnaður og fylgihlutir auðvelda líkamsræktina.
Íþróttaforrit í farsímann
Hlaupahópurinn Flandri í Borgarnesi
stendur fyrir mánaðarlegum Flandra-
spretti þriðja fimmtudagskvöld í
hverjum mánuði frá október til mars.
Nú er komið að öðrum Flandra-
sprettinum sem fer fram fimmtudag-
inn 15. nóvember næstkomandi og er
upphaf og endir hlaupsins við
Íþróttamiðstöðina í Borgarnesi.
Hlaupið er innanbæjar í Borgarnesi
á upplýstum götum og gangstéttum,
frá íþróttamiðstöðinni, áleiðis norður
nesið og svipaða leið til baka. Leiðin
er mishæðótt en alveg laus við fjöll.
Mesta hæð er um 40 m.y.s. og á leið-
inni eru m.a. 2-4 stuttar brekkur með
u.þ.b. 20 m hækkun. Brautarvarsla
og merkingar verða í lágmarki og því
æskilegt að sem flestir kynni sér
leiðina sem best áður en lagt er af
stað. Þátttakendum verður skipt í
fjóra aldurshópa en allar nánari upp-
lýsingar um skráningu og stigagjöf
má nálgast á www.hlaup.is.
Endilega…
…hlaupið
Flandrasprett
Morgunblaðið/Eggert
Sprettur Eftir hlaup er gott að synda.
Ferðafélag barnanna, sem heyrir
undir Ferðafélag Íslands, heldur í
vetrarferð með jólaþema á föstudag-
inn næstkomandi í Þórsmörk. Um er
að ræða helgarferð þar sem aðvent-
an verður undirbúin með jólaföndri
og kvöldvöku þar sem rykið er dust-
að af jólalögunum og rifjaðar upp
hrekkjasögur af jólasveinunum. Allir
finna eitthvað í náttúrunni til að
föndra úr. Einnig verður farið í
stjörnuskoðun og leiki. Þátttakendur
skulu taka með sér svefnpoka, nesti,
góðan búnað og hlýjan, regnheldan
fatnað.
Haldið verður af stað með rútu frá
Ferðafélagi Íslands í Mörkinni kl.
17.00 föstudaginn 16. nóvember og
komið til baka um 17.00 á sunnudegi.
Verð er 10.000 kr. en börn yngri en
16 ára greiða hálft gjald. Skráning
fer fram á skrifstofu FÍ en far-
arstjórar eru þau Brynhildur Ólafs-
dóttir og Róbert Marshall.
Ferðafélag barnanna
Vetrarferð með jólaþema
Morgunblaðið/hag
Norðurljós Farið verður í stjörnuskoðun í Þórsmörk og jólaföndrað.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.