Morgunblaðið - 13.11.2012, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2012
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Framkvæmdastjórn Landspítala hef-
ur samþykkt nýja umhverfisstefnu
fyrir Landspítala og starfsáætlun
umhverfismála fyrir árin 2012-2013. Í
stefnunni eru tilgreind ýmis markmið
í umhverfismálum.
Skerpt á förgun spilliefna
Mikið magn af úrgangi fellur til
vegna starfsemi Landspítalans og er
aðstaða til flokkunar misgóð. Með
bættum flokkunaraðferðum má
minnka úrgang sem fer til urðunar og
brennslu um 15% til ársins 2013.
Samtals er úrgangur frá Landspítala
um 3,5 tonn á hverjum degi og fara
um 23% hans til urðunar og brennslu.
Meðal annars er stefnt að því að
skerpa verkferla um förgun hættu-
legs úrgangs. „Þessi hættulegi úr-
gangur er einungis lítill hluti þessara
3,5 tonna. Það þarf að vera algjörlega
skýrt hvernig á að farga þessum
spilliefnum. Við urðum vör við það í
greiningu að sumir voru ekki vissir
um það hvernig meðhöndla ætti úr-
ganginn. Þetta er mjög flókinn mála-
flokkur og við viljum að allir séu með
verkferlana 100 prósent á hreinu,“
segir Birna Helgadóttir, verk-
efnastjóri umhverfi- og samgöngu-
mála hjá Landspítala.
Stefnt er að því að auka vistvæn
innkaup frá þeim 2.800 birgjum sem
þjónusta spítalann. Innkaup á hverj-
um degi nema um 25 milljónum
króna. Í innkaupareglum verða gerð-
ar auknar kröfur til birgja um vist-
vænar áherslur. „Umhverfiskröfur í
innkaupum hafa ekki alltaf verið á
oddinum. Lögð verður aukin krafa á
þær í okkar útboðum. Jafnframt
munum við horfa til líftímakostnaðar
varanna en ekki einungis horfa á inn-
kaupaverð. Með þessu höfum við
samhliða áhrif á fyrirtæki sem vilja
bjóða umhverfisvænar lausnir. Við
höfum fundið fyrir því að þau eru al-
gjörlega tilbúin til þess að svara
þessu kalli,“ segir Birna.
Samgöngustyrkir í boði
Hvetja á starfsfólk til þess að
nota vistvænni ferðamáta til að koma
sér í og úr vinnu. Þannig megi auka
hlutfall þeirra sem ferðast með hjóli,
strætó, eða á tveimur jafnfljótum úr
21% starfsfólks árið 2011 í 30% árið
2013. Það verður gert með því að
„auka hagræna hvata“. „Reynsla,
hérlendis og erlendis, sýnir að hvatar
í formi samgöngustyrkja virka mjög
vel og starfsfólk virðist mjög spennt
fyrir þessum lausnum,“ segir Birna.
8 milljóna króna sparnaður
Landspítalinn notar heitt vatn
sem samsvarar notkun 1600 heimila
og rafmagn í sama mæli og um 4600
heimili. Í umhverfisstefnunni kemur
fram að stefnt sé að því að minnka
notkun á rafmagni og heitu vatni um
3% til ársins 2013. Sé miðað við þær
275 milljónir sem notaðar eru í þessa
þætti árlega má ná 8 milljóna króna
sparnaði.
„Nýr Landspítali á að fá um-
hverfisvottun. Það sem felst í því er
t.d. val á byggingarefnum og að
hanna hann út frá vistvænum sam-
göngum með tilliti til hjólaaðkomu og
almenningssamgangna. Eins að þar
verði gott inniloft og orkunotkun í
lágmarki. Þannig má auka vellíðan
þeirra sem eru í byggingunni,“ segir
Birna.
Stefnt að enn vist-
vænni Landspítala
Morgublaðið/Kristinn
Umhverfisstefna Landspítala Birna Helgadóttir verkefnastjóri kynnti áætlunina á blaðamannafundi.
Stjórnin vill auka vellíðan starfsfólks sjúkrahússins
„Sumt mun kosta okkur pen-
inga en annað mun spara okkur
peninga,“ segir Björn Zoëga,
forstjóri Landspítalans, um nýja
umhverfisstefnu og starfs-
áætlun umhverfismála fyrir árið
2012-2013. Hann segir að ekki
liggi fyrir fjárhagsleg greining á
innleiðingu umhverfisstefn-
unnar. „Aðalatriðið í þessu máli
er umhverfið og þetta snýst
ekki um fjárhagslegan ávinning.
Greining mun þó á endanum
liggja fyrir, en ekki á þessari
stundu,“ segir Björn.
„Þetta eru markmið sem ná
til ársins 2013. Þau verða svo
endurskoðuð að ári liðnu. Þá
munum við setja okkur ný
markmið í umhverfismálum.“
Ný markmið
árið 2013
BJÖRN ZOËGA FORSTJÓRI
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 4.590 m2
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
STUTT
Þórhalla Arnar-
dóttir gefur kost á
sér í 5.-6. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokkisins í
Reykjavík 24. nóv-
ember næstkom-
andi.
„Skuldavandi heimilanna er mein
í okkar samfélagi sem þarf að upp-
ræta. Það þarf að leiðrétta skulda-
stöðu heimila þar sem eignabruni
hefur átt sér stað. Ísland er eina
OECD-ríkið sem verðtryggir skuld-
ir heimilanna,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu frá Þórhöllu.
Þórhalla er með sjúkraliða-
menntun og kennarapróf. Hún hef-
ur verið framhaldsskólakennari
síðan 2007 og einnig kennt í grunn-
skóla til fjölda ára.
Framboð í 5.-6. sæti
Ingibjörg Þórð-
ardóttir gefur kost
á sér í 2. sætið í
forvali VG í Norð-
austurkjördæmi
fyrir alþingiskosn-
ingar á næsta ári.
„Jafnrétti kynj-
anna er mín ástríða. Ég tel að besta
tækifærið til að ná fram jafnrétti
kynjanna liggi í menntakerfinu.
Skipulögð og markviss jafnrétt-
isfræðsla á öllum skólastigum á að
vera sjálfsögð og eðlileg,“ segir
m.a. í tilkynningu frá Ingibjörgu.
Ingibjörg fæddist í Neskaupstað
árið 1972 og er búsett þar. Hún
starfar sem íslenskukennari við
Verkmenntaskóla Austurlands.
Hún er gift Guðmundi Arnari Guð-
mundssyni og eiga þau tvö börn.
Framboð í 2. sæti
Samkvæmt samantekt Samtaka
verslunar og þjónustu nemur árleg
rýrnun vegna þjófnaðar í verslunum
um 6 milljörðum króna. Fram-
kvæmdastjóri Hagkaupa, Gunnar
Ingi Sigurðsson, segir ráðstafanir sí-
fellt hertar vegna þessa en engu að
síður komi það fyrir að fólk „hreinsi
úr heilu hillunum“.
„Við skráum öll tilvik hjá okkur en
líklega er annað eins sem við vitum
ekki af,“ segir Gunnar. „Við erum sí-
fellt að auka ráðstafanir. Fyrir
nokkru settum við einstefnuhlið í all-
ar búðir og höfum fjölgað öryggis-
vörðum. Að auki höfum við bætt ör-
yggismyndavélakerfið hjá okkur,
sem fólk fylgist grannt með og erum
með fólk, sumt af því einkennisklætt,
sem gengur um og fylgist með. En
við lítum á þetta eftirlit fyrst og
fremst sem forvörn,“ segir hann.
Að sögn Gunnars eru öll þjófnað-
armál kærð til lögreglu en í fyrr-
nefndri samantekt kemur fram að
verslunareigendum hafi reynst erfitt
að fá kröfur teknar upp af ákæru-
valdinu. Mál sem tengist búðarþjófn-
uðum séu oft felld niður og kröfum
sé oft mótmælt af ákærðu.
Grípa til ýmissa bragða
Gunnar segir að áður en ein-
stefnuhliðin voru sett upp hafi það
gerst að fólk hafi ekið fullum búð-
arkörfum út úr versluninni, án þess
að greiða fyrir. Búðarþjófar grípi til
ýmissa bragða.
„Einu sinni kom maður inn í eina
verslunina, merktur einum af birgj-
um okkar í bak og fyrir og sagðist
þurfa að bæta á lager verslunarinn-
ar. Enginn kannaðist við kauða og í
ljós kom að hann hafði komist yfir
fatnað, sem var merktur tiltekinni
heildverslun, í þeim tilgangi að fá að-
gang að lagernum,“ segir Gunnar.
Hann segir aukagæslu vera í
verslunum Hagkaupa fyrir og um
jólin, ekki síst vegna öryggis við-
skiptavina. „Það hafa komið upp
þannig dæmi í jólaösinni að fólk sem
er ekki heilsuhraust þarf á aðstoð að
halda,“ segir hann.
Hann segir ýmislegt hafa komið
fram á undanförnum árum sem tor-
veldi búðarþjófum iðju sína, þar á
meðal segulmerkingar á varningi.
„En þetta er endalaus barátta og við
getum ekki slakað á í þessum efn-
um,“ segir Gunnar. annalilja@mbl.is
Hnuplað úr
verslunum fyrir
6 milljarða á ári
„Annað eins sem við vitum ekki af“
Morgunblaðið/RAX
Hnupl Gunnar segir baráttuna við
búðaþjófa engan endi taka.