Morgunblaðið - 13.11.2012, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2012
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Þó jólapakkinn í ár verði harður að
utan getur innihaldið verið bæði
mjúkt eða hart allt eftir smekk hvers
og eins. Þó hvorki sé hægt að klæðast
jólagjöfinni eða borða hana mun hún
bæði ylja og næra þá sem gjöfina
fær,“ segir í skýrslu Rannsóknaset-
urs verslunarinnar við Háskólann á
Bifröst um jólaverslun 2012 og jóla-
gjöfina í ár en niðurstaða skýrsl-
unnar er sú að íslensk tónlist sé jóla-
gjöf ársins.
„Það er mat valnefndarinnar að
gróska í íslenskri tónlist hafi aldrei
verið meiri en nú og því muni algeng-
asti jólapakkinn í ár innihalda ís-
lenska tónlist. Tónlistaráhugi sem áð-
ur beindist að erlendum flytjendum
færist í æ meira mæli til íslenskra
hljómsveita sem hvarvetna hljóta
mikið lof,“ segir í skýrslunni en þar
kemur einnig fram að jólagjöf ársins
sé hægt að gefa í ýmsu formi, þar á
meðal í rafrænu formi, á geisladisk
og á vínilplötu.
Sjö prósent aukning milli ára
Samkvæmt niðurstöðum skýrsl-
unnar er einnig áætlað að jólaversl-
unin í ár aukist um 7% frá síðasta ári
en ef leiðrétt er fyrir verðhækkunum
má ætla að raunvirði hækkunarinnar
nemi um 2,5%. Þá er áætlað að heild-
arvelta í smásöluverslun í nóvember
og desember verði tæplega 67 millj-
arðar króna án virðisaukaskatts en
ætla má að hver Íslendingur verji að
meðaltali um 43 þúsund krónum sem
rekja má til jólahaldsins.
Þá segir í skýrslunni að þegar
Rannsóknasetur verslunarinnar hafi
leitað eftir hugmyndum að jólagjöf-
um í ár hafi ítrekað komið fram óskir
um „þrettánda mánuðinn“, þ.e. auka-
mánuðinn sem algengt var að fyr-
irtæki greiddu starfsmönnum sínum í
góðærinu.
Loks er bent á það í skýrslunni að
útlitið sé til dæmis jákvætt fyrir
verslun sem selur raftæki, tölvu- og
farsímabúnað. En einnig njóti af-
þreying og menningartengd þjónusta
aukinna vinsælda. Þá telur rann-
sóknasetrið að fólk velji frekar gæði
en magn fyrir komandi jól.
Íslensk tónlist
er jólagjöfin í ár
Sakna „þrettánda mánaðarins“
Morgunblaðið/Arnaldur
Tónlist Jólagjöfin í ár er íslensk tón-
list en hún er til í ýmsu formi.
Ólafur Bernódusson
Skagaströnd
Venjulegt skólahald í Höfðaskóla á Skagaströnd var brotið
upp á baráttudegi gegn einelti, sem var 8. nóvember. Krakk-
arnir fjölluðu um einelti og gildi vináttunnar í skólanum á
meðan þau útbjuggu áróðursspjöld um efnið. Þegar því var
lokið fóru þau og starfsfólk skólans í skrúðgöngu um bæinn
og komu skilaboðum sínum um vináttu á framfæri. Heim-
sóttu þau nokkur fyrirtæki og gáfu starfsfólki þar myndir til
að minna á gildi þess að standa saman og hjálpa náunganum.
Nokkrir foreldrar slógust í för með skólafólkinu þannig að
þessu þarfa málefni var rækilega komið í umræðuna.Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Skrúðganga
gegn einelti
Úr háskólaverkefni í forystu
á alþjóðamarkaði
Í dag, þriðjudaginn 13. nóvember, kl. 12.00
í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands
í Alþjóðlegu athafnavikunni.
Um er að ræða fyrirlestur í nýrri fyrirlestraröð Háskóla
Íslands um nýsköpun og stofnun fyrirtækja sem ber
yfirskriftina Fyrirtæki verður til.
Rögnvaldur Ólafsson, dósent við Háskóla Íslands og
einn upphafsmanna Marel,
Gylfi Aðalsteinsson, fyrsti framkvæmdastjóri Marel,
Kristinn Andersen, verkfræðingur og rannsóknar-
stjóri hjá Marel og Hrund Rudolfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri starfsþróunar hjá Marel, fjalla um upp-
hafsár fyrirtækisins, þróun þess og þann lærdóm sem
draga má af sögu þess.
Marel er eitt þeirra fyrirtækja sem orðið hafa til innan
Háskóla Íslands og gott dæmi um hvernig lítil hug-
mynd verður að öflugu fyrirtæki sem byggir vöxt sinn
og þróun á sífelldri nýsköpun.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Sköpunarsaga Marel
www.hi.is
– FYRIRTÆKI VERÐUR TIL –
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
30
93
Úrslit kosninga í fjölmenningarráð
Reykjavíkurborgar voru tilkynnt í
gær en kosning fór fram dagana 8.-
10. nóvember. Alls voru fimmtán í
framboði en ráðið er skipað sjö
fulltrúum og eru þeir skipaðir til
tveggja ára.
Þeir sem hlutu kosningu voru
Candace Alison Loque frá Filipps-
eyjum, Aleksandra Chlipala frá Pól-
landi, Jessica Abby VanderVee frá
Bandaríkjunum, Harald Schaller frá
Þýskalandi, Tung Phuong Vu frá Ví-
etnam, Juan Camilo Roman Estrada
frá Kólumbíu og Josephine Wanjiru
frá Kenía.
Unnið úr niðurstöðunum
Kosningar í fjölmenningarráð
voru haldnar samhliða fjölmenning-
arþingi Reykjavíkurborgar, sem
haldið var í annað sinn síðastliðinn
laugardag. Samkvæmt tilkynningu
frá borginni voru fulltrúar í fjöl-
menningarráði almennt ánægðir
með þingið.
„Mikilvægt væri að nýta þann
lærdóm sem fékkst af þinginu en að-
alumræðuefni þingsins að þessu
sinni var aðgengi innflytjenda að
upplýsingum,“ segir í tilkynning-
unni.
Niðurstöður fjölmenningarþings-
ins verða teknar saman og þýddar
og mun fjölmenningarráð byggja á
þeim við úrvinnslu næstu verkefna.
Ánægðir með fjöl-
menningarþing
Kosið í sjö manna fjölmenningarráð
Þing Fyrir helgi höfðu 200 manns
skráð sig til þátttöku á þinginu.