Morgunblaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2012
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Þingmenn úr báðum flokkum gagnrýna nú
bandarísku alríkislögregluna, FBI, fyrir að hafa
ekki látið viðeigandi þingnefndir vita af grun-
semdum þess efnis að framhjáhald Davids Petra-
eus, fyrrverandi forstjóra bandarísku leyniþjón-
ustunnar, CIA, hafi valdið hættulegum
upplýsingaleka. FBI rakst fyrir tilviljun sl. vor á
berorð tölvuskeyti milli Petraeus og ævisögurit-
ara hans, Paulu Broadwell, en þau áttu um hríð í ást-
arsambandi. Bæði eru gift.
Petraeus sagði óvænt af sér sem forstjóri CIA á föstu-
dag. Leynileg gögn stjórnvalda fundust í tölvu Broadwell
en FBI mun að lokum hafa sannfærst um að
þau hafi hún komist yfir án aðstoðar Petraeus.
Hann yrði því ekki ákærður.
Að sögn Wall Street Journal vissi Eric Hold-
er dómsmálaráðherra af málinu þegar í sumar.
Og tímasetningar vekja grunsemdir, repúblik-
anar segja að beðið hafi verið með að skýra frá
málinu til að koma ekki stjórnvöldum í bobba
fyrir forsetakosningarnar 6. nóvember. Yfir-
maður leyniþjónustumála í ríkisstjórninni,
James Clapper, tjáði Petraeus miðvikudaginn
7. nóvember að réttast væri að hann segði af sér. Petra-
eus átti á fimmtudeginum að vitna fyrir þingnefnd um
morðárás í Benghazi í Líbíu á bandaríska sendiráðsmenn
en málið var mjög umdeilt í kosningabaráttunni.
Mál Petraeus veldur deilum
Repúblikana grunar að málið hafi verið þaggað niður fram yfir forsetakosningar
Obama í vanda
» Petraeus varð yfirmaður CIA
í fyrra en hafði áður stýrt herj-
um NATO í Írak og í Afganistan.
» Barack Obama forseti þarf
nú að finna sem fyrst nýjan yf-
irmann CIA. Einnig er talið lík-
legt að ráðherrar utanríkis-
mála, varnarmála og fjármála
séu að hætta.
Paula Broadwell
Kínverskir herlögreglumenn ganga fylktu liði fram hjá
áróðursspjaldi við herbúðirnar hjá Alþýðuhöllinni
miklu í Peking í gær. Á spjaldinu stendur: Þjónið
flokknum og alþýðunni. Flokksþing kommúnistaflokks-
ins einráða stendur nú yfir og verður þar kjörið nýtt
forystulið til 10 ára.
AFP
Fyrirmæli sem kínversku lögreglunni ber að hlýða
„Þjónið flokknum“
Múslímaklerkurinn Sheikh Moaz al-
Khatib var um helgina kosinn leið-
togi nýrra samtaka sameinaðra
stjórnarandstöðuafla í Sýrlandi. Al-
Khatib, sem er 52 ára og talinn hóf-
samur í trúarefnum, var ímam Uma-
jad-moskunnar í Damaskus en flúði
til Egyptalands í júlí. Hann ætlar nú
að leita stuðnings við nýju samtökin
hjá öðrum arabaríkjum.
Samtökin voru stofnuð á vikulöng-
um fundi helstu andstæðinga Bas-
hars al-Assads Sýrlandsforseta í
borginni Doha við Persaflóa. Mikill
klofningur hefur ríkt í röðum stjórn-
arandstæðinga og hefur það dregið
úr áhuga margra þjóða á að styðja
uppreisnina gegn Assad með vopn-
um. Utanríkisráðherrar aðildarríkja
Arababandalagsins komu saman í
Kaíró í gær, ekki síst til að fjalla um
ástandið í Sýrlandi. Lakhtar Bra-
himi, erindreki alþjóðasamfélagsins í
málefnum Sýrlands, sat fundinn.
Harðir bardagar voru í norðan-
verðu Sýrlandi í gærmorgun og loft-
árásir voru gerðar á landamæra-
borgina Ras al-Ain. kjon@mbl.is
Óvinir Assads
forseta sameinast
AFP
Farnir Sýrlenskir flóttamenn á leið yfir landamærin til Tyrklands við Ras al-
Ain á sunnudaginn. Talið er að um 36 þúsund manns hafi fallið í Sýrlandi.
Fjármálaráðherrar ríkjanna 17 á
evrusvæðinu komu saman í gær til
að ræða næstu skref til aðstoðar
Grikkjum sem samþykktu um
helgina mikinn niðurskurð á fjár-
lögum. Dugði samþykkt þingsins til
að tryggja stjórnvöldum í Aþenu
rösklega 30 milljarða evra aðstoð
sem dugar í bili til að greiða m.a.
laun ríkisstarfsmanna.
Laun og eftirlaun verða lækkuð
og ljóst að höggið er þungt fyrir
margar fjölskyldur. Atvinnuleysi er
um 25% og vel yfir 50% hjá ungu
fólki. Um 10 þúsund manns komu
saman fyrir utan þinghúsið á sunnu-
dag til að mótmæla niðurskurðinum,
en ekki urðu neinar óeirðir eins og
við atkvæðagreiðslu um hertar að-
haldsaðgerðir sl. miðvikudag.
Einnig hafa verið fjölmenn mót-
mæli í Portúgal og á Spáni. Í báðum
löndunum hefur verið boðaður
harkalegur niðurskurður ríkis-
útgjalda í samræmi við kröfur
þýskra stjórnvalda. kjon@mbl.is
Ræða að-
stoð handa
Grikkjum
Kröfum um nið-
urskurð mótmælt
Óveður reið yfir
Ítalíu um
helgina, í Fen-
eyjum hækkaði
sjávaryfirborð
skyndilega um
149 sentimetra,
að sögn Guardi-
an. Meirihluti
borgarinnar er
undir vatni.
Er þetta mesta flóðhæð frá 1966
þegar hún mældist 194 cm. Túr-
istar ösluðu Markúsartorgið á
sunnudag, sumir bundu plastpoka
um fæturna, aðrir fóru einfaldlega
úr skóm og fötum. Margir íbúar
skömmuðu veðurfræðinga fyrir að
hafa ekki séð flóðið fyrir í tæka tíð
en yfirvöld sögðu að mjög óvenju-
legar aðstæður hefðu valdið þess-
um hamförum.
Matelda Bottoni, sem rekur
skartgripabúð, er vön flóðunum og
hefur komið sér upp vatnsþolnum
húsgögnum, einnig hallar gólfinu
að dyrunum. Mengað flóðvatnið
rennur því sjálfkrafa út þegar
Adríahafið lækkar á ný.
kjon@mbl.is
ÍTALÍA
Mestu flóð í Fen-
eyjum frá 1966
Michael O’Leary, forstjóri lág-
gjaldaflugfélagsins Ryanair, segir
að öryggisbelti gagnist farþeg-
unum ekki neitt ef vél hrapi.
Hann vill fá leyfi til að bjóða far-
þegum að kaupa ódýr stæði í vél-
inni stað sæta, að sögn Dagens
Nyheter.
„Flugvél er bara strætó með
vængi,“ segir O’Leary. Hann segir
að „bjánar“ hjá stjórnvöldum hafi
gert kröfu um öryggisbelti í far-
þegavélum. „Maður þarf ekki að
vera með öryggisbelti í jarðlest-
unum í London, þarf það ekki í
lest sem fer með 180 km hraða. Ef
hún lendir í árekstri deyja allir.“
Forstjórinn vill fá heimild til að
fjarlægja 10 öftustu sætaraðirnar
í sumum flugvélum sínum, einkum
á stuttum flugleiðum og selja þar
stæði handa stúdentum og öðrum
sem vilji spara. kjon@mbl.is
YFIRMAÐUR RYANAIR
„Flugvél er bara
strætó með vængi“
OPNUNARTÍMI EFNALAUG
MÁN - FÖS: 8-18 • LAU: 11-13
OPNUNARTÍMI FATALEIGA
MÁN - FÖS: 13-17 • LAU: LOKAÐ
EFNALAUG OG FATALEIGA GARÐABÆJAR | GARÐATORGI 3 | GARÐABÆ | SÍMI 565 6680 | FATALEIGA.IS
Hröð og vönduð þjónusta. Fjölskyldufyrirtæki til 27 ára.
Persónuleg þjónusta og hagstætt verð.
Efnalaug Garðabæjar ætlar að láta
30% af andvirði
hreinsaðra gluggatjalda
renna til mæðrastyrksnefndar
í nóvember
Komið tímanlega