Morgunblaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2012
Aðdráttaröflin að 6. áskrift-artónleikum vetrarins íHörpu með Sinfón-íuhljómsveitinni hinn 8.
október voru þreföld og öll vand-
skákandi: Beethoven, Keisarakons-
ertinn og Víkingur Heiðar Ólafs-
son. Aðsóknin var eftir því. Og
jafnvel þótt seinna verkið teldist
vart meðal hinna vinsælustu eftir
þennan höfuðjöfur klassískra
meistara, þá leyndist þar að baki
viðbótartromp: frumflutningur á
Íslandi – eftir tveggja alda bið!
Fimmti og síðasti píanókonsert
Beethovens er örugglega meðal 10
kunnustu klassískra verka allra
tíma; ígildi alls sem sígilt er að
gæðum, tign og fegurð. Álíka Kær-
leiknum í Kórintubréfi Páls postula
sem fellur aldrei úr gildi.
Það lá því ekki lítil eftirvænting í
lofti meðan beðið var eftir tón-
rænni gegnlýsingu sólístans í
skugga ótalmargra undangenginna
slaghörpusnillinga. En Víkingur
stóðst væntingarnar að mestu leyti
í I. þætti, jafnvel þótt eimaði enn
svolítið af fyrri æskuóeirð á nokkr-
um stöðum þar sem hefði mátt
gefa sér aðeins meiri tíma – eink-
um úr því ekkert amaði að
tækninni. Það þarf ekki aðeins að
spila á hljóðfærið, heldur líka á
hlustendur.
Hinn yfirjarðneskjulegi Adagio-
miðþáttur kom mér því gleðilega á
óvart. Þar fór sjaldan þessu vant
eldgamall hundur í hettunni, ef svo
má karlfæra nístingsinnsæja með-
ferð Víkings á fegurri músík en
tárum tekur. Tær og tiktúrulaus
yfirvegun – og sannfærandi í botn.
Lokarondóið er ekki jafn-
viðkvæmt í mótun en útheimtir
samt sitt – ekki sízt í snerpu. Þar
tókst Víkingi líka vel upp. Áferðin
var skýr, og slíkt heldur ávallt
fullu gildi enda sjaldgæfara en
halda mætti þegar skáldskapur
færist í aukana með aldri og
reynslu.
Aukalagið – hin íbyggna píanó-
barnagæla Brahms, Intermezzo í F
Op. 117,1 (1892) – kórónaði af-
bragðsgóða túlkun þessarar
fremstu vonarstjörnu okkar á hvít-
um nótum og svörtum, enda kunni
salurinn augljóslega að meta það
að verðleikum.
Eina óratóría Beethovens, er
hann samdi 1803 um andvöku Jesú
á Olíufjalli rétt fyrir krossfestingu,
ber með sér sterk áhrif frá síðustu
kórverkum Haydns eins og Sköp-
uninni og Árstíðunum, en bendir að
sumu leyti líka fram á veg að C-
dúr messunni og Missa Solemnis.
Þó að miðlungstexti söngritshöf-
undarins Franz Hubers virðist hafa
verið tónskáldinu fjötur um fót,
örlar samt það víða á uppljómun í
55 mín. langri óratóríunni að
hvarflaði að manni hvort hún væri
hugsanlega vanmetin. Þar bætir
auðvitað góður flutningur um bet-
ur. Hljómsveit Volkovs var innlifuð
og fylgin, og þjáll söngur Mót-
ettukórsins var sem næst óaðfinn-
anlegur.
Einsöngvararnir ungu glöddu og
eyrað, þó að styrkur og botnsvið
væru enn ekki alveg fullþroskuð.
Sópranrödd Herdísar Önnu var
bráðfalleg, þétt og hrein (get ekki
beðið eftir að heyra hana í Dulc-
issime í Carmina Burana!), og
Sveinn Dúa var með björtustu og
efnilegstu tenórum sem maður hef-
ur heyrt hér um langa hríð. Jóhann
Smára hafði ég að vísu áður heyrt í
betra formi, en vonandi fór þar að-
eins tímabundið millibilsástand.
Morgunblaðið/Kristinn
Víkingur Heiðar „Hinn yfirjarðneskjulegi Adagio-miðþáttur kom mér því
gleðilega á óvart …Tær og tiktúrulaus yfirvegun – og sannfærandi í botn.“
Fegurra en tárum tekur
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikarbbbbn
Beethoven: Píanókonsert nr. 5 í Es.
Kristur á Olíufjalli (frumfl. á Ísl.). Vík-
ingur Heiðar Ólafsson píanó; Herdís
Anna Jónasdóttir S, Sveinn Dúa Hjör-
leifsson T, Jóhann Smári Sævarsson B
og Mótettukór Hallgrímskirkju (kórstj.:
Hörður Áskelsson) ásamt Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Stjórnandi: Ilan Vol-
kov. Fimmtudaginn 8. október kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Bastarðar - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fim 15/11 kl. 20:00 Fös 16/11 kl. 20:00 lokas
Ný stórsýning frá Vesturporti, loks á Íslandi. Síðustu sýningar
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið og Hof)
Lau 17/11 kl. 19:00 9.k Fös 23/11 kl. 20:00 aukas Lau 1/12 kl. 19:00 11.k
Lau 17/11 kl. 22:00 aukas Lau 24/11 kl. 19:00 10.k Sun 2/12 kl. 20:00 aukas
Fim 22/11 kl. 20:00 aukas Fös 30/11 kl. 20:00 aukas Sun 30/12 kl. 20:00
Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur.
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Sun 18/11 kl. 14:00 15.k Sun 2/12 kl. 14:00 Mið 26/12 kl. 14:00
Lau 24/11 kl. 14:00 16.k Sun 9/12 kl. 14:00 Sun 30/12 kl. 14:00 lokas
Sun 25/11 kl. 14:00 17.k Sun 16/12 kl. 14:00
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma. Sýningum lýkur í desember
Rautt (Litla sviðið)
Sun 18/11 kl. 20:00 22.k Fim 22/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00
Þri 20/11 kl. 20:00 Sun 25/11 kl. 20:00 Lau 1/12 kl. 20:00
Mið 21/11 kl. 20:00 Þri 27/11 kl. 20:00 Sun 2/12 kl. 20:00
Margverðlaunað meistaraverk. Aukasýningar í nóvember og desember
Gullregn (Nýja sviðið)
Mið 14/11 kl. 20:00 aukas Fim 29/11 kl. 20:00 13.k Sun 16/12 kl. 20:00 aukas
Fim 15/11 kl. 20:00 8.k Fös 30/11 kl. 20:00 14.k Fim 27/12 kl. 20:00
Fös 16/11 kl. 20:00 aukas Lau 1/12 kl. 20:00 aukas Fös 28/12 kl. 20:00
Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Fös 7/12 kl. 20:00 15.k Lau 29/12 kl. 20:00
Sun 18/11 kl. 20:00 10.k Lau 8/12 kl. 20:00 16.k Sun 30/12 kl. 20:00
Lau 24/11 kl. 20:00 11.k Fös 14/12 kl. 20:00 17.k Fim 3/1 kl. 20:00
Sun 25/11 kl. 20:00 12.k Lau 15/12 kl. 20:00 aukas Fös 4/1 kl. 20:00
Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fim 15/11 kl. 20:00 aukas Lau 24/11 kl. 20:00 11.k Lau 8/12 kl. 20:00 15.k
Fös 16/11 kl. 20:00 8.k Fim 29/11 kl. 20:00 12.k Fös 14/12 kl. 20:00 16.k
Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Fös 30/11 kl. 20:00 13.k Lau 15/12 kl. 20:00
Fös 23/11 kl. 20:00 10.k Fös 7/12 kl. 20:00 14.k
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum.
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 18/11 kl. 13:00 lokas
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri. Allra síðasta sýning
Íslenski Dansflokkurinn: Októberuppfærsla (Stóra sviðinu)
Sun 18/11 kl. 20:00 5.k Sun 25/11 kl. 20:00 6.k
It is not a metaphor, Cameron Colbert og Hel haldi sínu, Jérôme Delbey.
Íslenski Dansflokkurinn: Á nýju sviði (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 frums Sun 2/12 kl. 20:00 4.k Fim 13/12 kl. 20:00
Fös 23/11 kl. 20:00 2.k Fim 6/12 kl. 20:00
Mið 28/11 kl. 20:00 3.k Sun 9/12 kl. 20:00
Fjögur spennandi og ólík dansverk eftir dansara Íslenska dansflokksins
Rautt – HHHHH – MT, Ftími
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Lau 17/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 8/12 kl. 14:00 Aukas. Sun 30/12 kl. 17:00 32.sýn
Sun 18/11 kl. 14:00 21.sýn Lau 8/12 kl. 17:00 Aukas. Sun 6/1 kl. 13:00 33.sýn
Sun 18/11 kl. 17:00 22.sýn Sun 9/12 kl. 14:00 27.sýn Sun 6/1 kl. 16:00 34.sýn
Sun 25/11 kl. 14:00 23.sýn Sun 9/12 kl. 17:00 28.sýn Sun 13/1 kl. 13:00 35.sýn
Sun 25/11 kl. 17:00 24.sýn Lau 29/12 kl. 14:00 29.sýn Sun 13/1 kl. 16:00
Sun 2/12 kl. 14:00 25.sýn Lau 29/12 kl. 17:00 30.sýn
Sun 2/12 kl. 17:00 26.sýn Sun 30/12 kl. 14:00 31.sýn
Sýningar í desember komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út!
Tveggja þjónn (Stóra sviðið)
Fim 15/11 kl. 19:30 12.sýn Fim 22/11 kl. 19:30 15.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 18.sýn
Fös 16/11 kl. 19:30 13.sýn Fös 23/11 kl. 19:30 16.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 19.sýn
Lau 17/11 kl. 19:30 14.sýn Lau 24/11 kl. 19:30 17.sýn Lau 1/12 kl. 19:30 20.sýn
Óborganlega skemmtilegur nýr gamanleikur!
Jónsmessunótt (Kassinn)
Fim 15/11 kl. 19:30 Aukas. Fös 23/11 kl. 19:30 18.sýn Lau 1/12 kl. 19:30 22.sýn
Fös 16/11 kl. 19:30 15.sýn Lau 24/11 kl. 19:30 19.sýn Fim 6/12 kl. 19:30 23.sýn
Lau 17/11 kl. 19:30 16.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 8/12 kl. 19:30 24.sýn
Fim 22/11 kl. 19:30 17.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 21.sýn
Meinfyndið nýtt íslenskt verk, svört kómedía beint úr íslenskum samtíma.
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið )
Fim 31/1 kl. 20:30 19.sýn Fös 8/2 kl. 20:30 21.sýn
Sun 3/2 kl. 20:30 20.sýn Sun 10/2 kl. 20:30
Nýtt sýningatímabil hefst eftir áramót - miðasala í fullum gangi!
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Mið 14/11 kl. 19:30 Lau 17/11 kl. 17:00 Sun 18/11 kl. 19:30
Miðasala hafin. Aðeins örfáar sýningar í nóvember!
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 24/11 kl. 11:00 Lau 1/12 kl. 11:00 Lau 8/12 kl. 11:00
Lau 24/11 kl. 13:00 Lau 1/12 kl. 13:00 Lau 8/12 kl. 13:00
Lau 24/11 kl. 14:30 Lau 1/12 kl. 14:30 Sun 9/12 kl. 11:00
Sun 25/11 kl. 11:00 Sun 2/12 kl. 11:00 Sun 9/12 kl. 12:30
Sun 25/11 kl. 12:30 Sun 2/12 kl. 12:30
Miðasala hafin á vinsæla aðventuleikrit Þjóðleikhússins - og miðarnir rjúka út!
Aukablað alla
þriðjudaga