Morgunblaðið - 27.11.2012, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.11.2012, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. N Ó V E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  278. tölublað  100. árgangur  NÝJA PLATAN TILEINKUÐ UNNUSTUNNI MEIRA EN BARA MÓTORHJÓL ÞRIÐJA BÓK MARGRÉTAR UM AÞENU BÍLAR HEIMTAR FRAMHALDSLÍF 38HERBERT NÝR MAÐUR 39 Eitt blað brotnaði og þrjú löskuðust á bak- borðsskrúfu Herjólfs við það að rekast í vestari hafnargarðinn við Landeyjahöfn á laugardag. Jafnframt er stýrið lítillega snú- ið bakborðsmegin. Gert verður við þrjú blaðanna en skipt um hið fjórða. Vegagerðin átti blaðið til og standa væntingar til þess að viðgerð taki 5-6 daga. Skemmdirnar komu í ljós þegar Herjólfur kom í slipp í Hafnarfirði í gær- kvöldi. »4 Eitt skrúfu- blað brotið og þrjú löskuð Morgunblaðið/Árni Sæberg Skrúfan Sérfræðingar meta tjónið. Blikur á lofti » Eins og rakið var í Morgun- blaðinu fyrir helgi hafa hags- munaaðilar í byggingariðnaði áhyggjur af vaxtahækkunum Seðlabankans. » Það bætist við áhyggjur af því að ný byggingarreglugerð hækki byggingarkostnað. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ef verkefnastaðan á næstu tveim árum verður eins og hún hefur ver- ið síðustu tvö ár mun það kalla á aðgerðir. Fyrirtækin þyrftu þá að skera niður og um leið yrði geta þeirra til að takast á við stór verk- efni minni. Þau þola ekki eitt til tvö svona ár til viðbótar án þess að það láti undan síga,“ segir Alexander G. Alexandersson, framkvæmda- stjóri Steypustöðvarinnar, um erf- iða stöðu í byggingargeiranum. Tilefnið er tölur frá Hagstofu Ís- lands sem sýna að veltan í bygg- ingarstarfsemi og mannvirkjagerð í maí til ágúst sl. sumar var minni en 2010 og munar þar 3,3 milljörð- um á núvirði. Samanlögð velta fyrstu átta mánuði ársins 2010 á núvirði var 80,4 milljarðar, 72,9 milljarðar 2011 og 71,8 milljarðar í ár. Miklu minna en í meðalári Að sögn Alexanders er veltan hjá steypustöðvum nú um þriðj- ungur af því sem hún var þegar best lét og mörgum tugum pró- senta minni en í meðalári á höf- uðborgarsvæðinu. „Félögin ganga á eigið fé. Það segir sig sjálft. Svo ég taki dæmi af mínu eigin félagi þá hafa núverandi eigendur átt Steypustöðina í tvö ár og á þeim tíma hefur gengið veru- lega á eigið fé félagsins. Hvert ár sem líður áður en hlutirnir fara af stað er því dýrkeypt. Maður heldur að sér höndum. Eðlileg endurnýj- un á tækjum og búnaði er í frosti. Flotinn eldist, viðhaldskostnaður eykst. Það er alveg sama við hvern er talað. Það vantar stærri verkin í breytuna, verk frá opinberum að- ilum. Þar er ekkert í gangi,“ segir Alexander. Nær ekkert um nýbyggingar Þorbjörn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samiðnar, segir afar lítið um nýframkvæmdir í ár. „Það er nánast hægt að telja á fingrum annarrar handar þær nýfram- kvæmdir sem hafa hafist á þessu tímabili. Það er nánast ekkert,“ segir Þorbjörn. MMinna byggt í sumar »14 Mun minna byggt en 2010  Veltan í byggingargreininni fyrstu átta mánuði ársins var 71,8 milljarðar  Var 80,4 milljarðar 2010  Fyrirtæki hafa gengið verulega á eigið fé „Báturinn er að mestu ónýtur og honum verður ekki bjargað. Ef það gerir smánorð- austanátt á svæðinu mun skipið hverfa,“ seg- ir Reimar Vilmundarson, skipstjóri á Sædísi ÍS, en hann fór ásamt fleirum að Straumnesi, norðan Aðalvíkur á Hornströndum, þar sem Jónína Brynja ÍS 55 strandaði í fyrrakvöld. Farið var á strandstað til þess að reyna að bjarga verðmætum úr bátnum. „Það var mjög vont að lenda þarna og mikið brim,“ segir Reimar. Hann segir að þeir hafi náð að bjarga ýmsum tækjabúnaði sem farið var með til hafnar í Bolungarvík í gærkvöldi. Hluti verðmætanna varð eftir í landi, þó að búið væri að ná þeim úr bátnum. ,,Mennirnir fóru á land í slöngubát og reyndu að ná tækjum úr bátnum. Menn stóðu stundum al- veg upp að mitti í sjó og áttu fótum sínum fjör að launa við að komast undan brotunum. Ef þeim hefði skolað út hefðu þeir ekki verið til frásagnar,“ segir Reimar um aðstæður þeirra sem fóru að bjarga búnaði á strand- stað. Reimar telur nær ómögulegt að ná bátnum af strandstað. „Eina leiðin til að ná bátnum væri ef sjóinn slétti. En þarna er svo mikill undirsjór og því erfitt að athafna sig við hann,“ segir Reimar. vidar@mbl.is MÞurfti á öllu sínu afli að halda »6 „Áttu fótum sínum fjör að launa við að komast undan brotunum“ Ljósmynd/Reimar Vilmundarson  Bátnum verður ekki bjargað af strandstað að sögn skipstjóra Ónýtur Stórgrýtið gengur inn í botn bátsins. Á strandstað Jónína Brynja ÍS 55 brotin á strandstað. Ekki var hægt að bjarga bátnum en hægt var að ná verðmætum tæknibúnaði úr honum. Minnihluti fjárlaganefndar bókaði á fundi nefndarinn í gær mótmæli við því að fjár- lögin væru tekin út úr nefndinni á þessu stigi, að sögn Kristjáns Þórs Júlíussonar, þingmanns Sjálfstæðis- flokksins og fulltrúa í fjárlaganefnd. Að hans sögn voru breytinga- tillögurnar margar og heildarpakkinn tugir blaðsíðna. Breytingar nefndarmeirihlutans hafi numið um hálfum millj- arði og útgjaldabreyt- ingar ríkisstjórnar 7,2 milljörðum. „Við eigum síðan eftir að fara í gegnum allan þennan pakka en það er hinsvegar alveg ljóst að það er fjöldi mála sem eru þess eðlis að það er ekki tekið á þeim inni í fjárlagafrumvarpinu eins og það kemur til annarrar umræðu, við erum að ræða þar um stór mál eins og Íbúðalánasjóð og fjármögnun á honum, Hörpu og rekstr- arframlagið inn í það dæmi, einhver umræða er um áform um byggingu Landspítala – há- skólasjúkrahúss, lögreglumálin, en allir þekkja umræðuna um hvernig þau liggja og svo framvegis,“ segir Kristján. Hann bætir við að það sé alveg ljóst að taka verði með einhverjum hætti á þessum þáttum. Að því gefnu að ekki komi til tekjur til móts við þau útgjöld sem af þessu stafa segir Kristján að mikið þurfi að ganga á til að áformin um afkomuna á fjárlögum ársins 2013 standist. skulih@mbl.is Bókuðu mótmæli við vinnubrögð  Breytingar upp á sam- tals tæplega 8 milljarða Kristján Þór Júlíusson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.