Morgunblaðið - 27.11.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.11.2012, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú eru síðustu forvöð að ganga frá þeim málum sem þú hefur tekið að þér. Tal- aðu um tilfinningar þínar og tjáðu þær. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu allar illdeilur á vinnustað sem vind um eyru þjóta. Vandamálin eru eftir sem áður til staðar og eina leiðin er að bretta upp ermarnar og leysa þau. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú vilt fá meira út úr starfi þínu en raun ber vitni en einhver hindrun er í veg- inum. Vog kemur að miklu gagni þegar leysa á vandamál. Dagurinn hentar vel til alls konar rannsóknarvinnu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Viðræður við fjölskyldumeðlimi verða mikilvægar í dag. Fyrr en síðar nærðu tökum á aðstæðunum og þá er allt í góðu. Að sama skapi áttu ekki að láta aðra valta yfir þig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Láttu það ekki draga úr þér þótt sam- starfsmenn þínir séu að pískra eitthvað þér á bak. Viljirðu ná athygli annarra fer best á því að setja mál sitt rólega fram en ákveðið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Freistingar láta á sér kræla. Kannski er þrýstingurinn sem þú finnur fyrir til að ganga í augun á öðrum bara kominn frá þér sjálfum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hugsun þín er skýr og því ættirðu að komast til botns í því sem þú ert að velta fyrir þér. Aðeins þannig verður þér eitthvað ágengt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur allt sem þarf til að tak- ast á við erfiðleikana. Sinntu yfirmanni þínum í dag. Haltu ró og reyndu að vinna skipulega því þannig nýtist tíminn þér best. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þér er ekki eðlislægt að taka nokkra áhættu svo þú skalt láta það eiga sig. Klæddu þig eftir eigin höfði og segðu það sem þér býr í brjósti. 22. des. - 19. janúar Steingeit Sumir dagar eru góðir og aðrir dagar eru ennþá betri. Farðu vel með þau einkamál sem þér er trúað fyrir og gættu þess að láta ekki glepjast til slúðurs þótt freistingarnar séu margar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Frábær samvinna eykur velsæld og félagi þinn kemur með tillögur. Vertu sem mest með þeim sem kunna að meta þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hver einasta breyting í lífinu þarf ekki að gerast af djúpum og þýðingarmiklum ástæðum. Njóttu þess bara að vera innan um fólk og láta gott af þér leiða. Rit það sem hér er hleypt afstokkunum hefur fengið nafn- ið Stuðlaberg,“ segir í inngangs- orðum Ragnars Inga Aðalsteins- sonar í fyrsta tölublaði Stuðlabergs, tímarits helgaðs hefð- bundinni ljóðlist. „Það er sett sam- an og gefið út til að styðja við og styrkja þá kveðskaparhefð sem hef- ur þróast og lifað meðal Íslendinga í meira en 1100 ár. Stuðlaberg er helgað þeirri hugsun að þessi kveð- skaparhefð sé óaðskiljanlegur hluti af menningararfi sem okkur beri að varðveita, leggja rækt við og sýna virðingu.“ Á meðal efnis eru viðtöl við Ómar Ragnarsson og Kristínu á Hlíð, um- sagnir um vísnabækur útgefnar á árinu, limrur eftir krakka, lausavís- ur og ýmislegt um bragfræði. Þá er þar grein Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis um tvennur undir yfir- skriftinni „Latur skrifar letingja“, en tvennur kallar hann vísnapar þar sem varpað er vísu að einum, en sá svarar á móti. Og hann nefnir dæmi: „Markús Jónsson á Borgareyrum kom til granna síns Valdimars Auð- unssonar frá Dalseli. Valdimar svaf og Markús náði ekki sambandi við hann. Hann skildi þá eftir vísu og fór: Á sunnudögum sefur vært í sínu fleti. Af honum geta aðrir lært aðeins leti. Valdimar rumskaði og sendi þessa vísu á eftir gestgjafanum: Latur skrifar letingja af lítilli snilli. Latur hefur litla hylli. Latur flækist bæja milli.“ Í tímaritinu er rifjað upp ljóð Jöklaskáldsins Kolbeins Gríms- sonar sem uppi var á 17. öld og varð frægur fyrir að kveða djöfulinn í kútinn. Bragur Kolbeins hljóðar svo: Hér í vörum heyrist bárusnarið, höld ber kaldan öldu vald á faldi, seltu piltar söltum veltast byltum, á sólar bóli róla í njólu gjólu; öflgir tefla afl við skeflu refla, sem að þeim voga boga toga, soga; en suma geymir svíma-drauma rúmið; sofa ofurdofa í stofu kofa. Stuðlaberg skorar á hagyrðinga að keppa við Jöklaskáldið, yrkja undir þessum hætti og senda blaðinu. Félag ljóðaunnenda á Austurlandi veitir vegleg bóka- verðlaun fyrir bestu vísurnar. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af Stuðlabergi, tvennum og vísnakeppni Í klípu „ÞAÐ VAR ENGINN TÍMI TIL AÐ GERA ÞETTA EFTIR BÓKINNI SVO ÉG GERÐI ÞETTA EFTIR FREMRA INNÁBROTINU AF BÓKARKÁPUNNI.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „LÁTTU ÞIG DREYMA, ÞAÐ MUN EKKERT LÍTA SVONA VEL ÚT Á ÞÉR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að finna hamingjuna öðru sinni. Bindi 50% afsláttur Herraföt LÚÐVÍK, VEISTU HVAÐ MUNDI GERAST EF ÞÚ YFIRGÆFIR MIG? ÞÚ YRÐIR EYÐILÖGÐ? NEI, LÚÐVÍK. ÞÚ YRÐIR EYÐILAGÐUR ... ... MEÐ STÓRRI KYLFU! VÍÍÍÍÍ! ÉG GET FLOGIÐ! ÞAÐ ER ÞÍN SKOÐUN!Víkverji hefur nú ekki mikið veriðað flíka sínum pólitísku skoð- unum en hann neytir þó atkvæð- isréttar síns hvenær sem færi gefst, hvort sem það er í prófkjörum eða kosningum. Fyrir prófkjör síðustu helgar var mikið hringt frá skrif- stofum frambjóðenda og póstur hrúg- aðist inn, ýmist með rafrænum hætti eða gamla laginu inn um póstlúguna. Beðið var um stuðningsyfirlýsingar og til að hafa nú alla góða, og nokkuð volga, sagðist Víkverji styðja allt gott fólk til góðra verka. x x x Vel getur verið að heiðarlegra sé aðsegja bara „nei, kemur ekki til greina að ég styðji þennan mann“. En það finnst Víkverja bara ókurteisi. Þegar mannvalið er mikið getur verið erfitt að velja á milli og Víkverji er ekki þannig gerðar að hann segi bara upp í opið geðið á fólki að það sé von- laust og ekki traustsins vert. Hins vegar hafa þeir fengið að njóta þess sem þó muna eftir Víkverja og taka upp tólið! Það gerðu ekki allir fram- bjóðendur. x x x Einn þeirra var hins vegar svoóheppinn að kynningar- og hvatningarbréf barst Víkverja ekki í pósti fyrr en í gær, að prófkjöri af- stöðnu. Mikil er samviska Póstsins ef þetta hefur klikkað í fleiri tilvikum. Það er fljótvirkara og ódýrara að senda bara tölvupóst. x x x Eitt finnst Víkverja hallærislegafyndið eftir kosningar og próf- kjör, þegar talað er við stjórnmálafræðiprófessora og -kenn- ara og beðið um álit á úrslitum. Þeir bæta yfirleitt aldrei neinu við, sem þegar var ekki vitað, og alveg eins hægt að spyrja Jón og Gunnu úti í bæ. Þetta er ekki fagur vitnisburður um heila stétt en svona er þetta bara því miður í langflestum tilvikum, þó ekki alveg öllum. Þetta er svipað og þegar talað er við leikmenn og þjálfara eftir fót- boltaleiki. „Ja, við skoruðum ekki nógu mikið af mörkum og hinir skor- uðu of mörg, þetta gengur jú út á að skora mörk og fá ekki á sig mörk.“ víkverji@mbl.is Víkverji En öllum þeim sem tóku við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim sem trúa á nafn hans. (Jóhannes- arguðspjall 1:12)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.