Morgunblaðið - 27.11.2012, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er mjög eðli-
leg krafa að þjón-
ustustofnanir
eins og Vegagerð-
in bregðist við
nýjum aðstæðum,
í atvinnuvegi sem
skiptir miklu
máli. Ég veit að
Vegagerðin er
full af vilja til að
gera sitt besta,“
segir Einar Karl Haraldsson, for-
maður stjórnar markaðsátaksins Ís-
land – allt árið. Markaðsstofa Norð-
urlands og ferðaþjónustuaðilar hafa
óskað eftir reglulegum snjómokstri
vega að helstu ferðamannastöðum á
svæðinu vegna mikillar fjölgunar
ferðafólks í vetur.
Gagnrýnt hefur verið að markaðs-
átakið hafi ekki verið undirbúið
nægilega vel, meðal annars með því
að tryggja aðgengi ferðafólksins að
helstu náttúruperlum á landsbyggð-
inni, svo sem Dettifossi sem flestir
ferðamenn sem fara um Norðurland
hafa áhuga á að sjá. Í sumum tilvik-
um hefur verið hægt að fara með ein-
staka hópa þangað á sérútbúnum bíl-
um. Í snjómokstursreglum Vega-
gerðarinnar er ekki gert ráð fyrir
mokstri að Dettifossi, nema þegar
snjólétt er. Því hefur ekkert verið
mokað þar að undanförnu.
Einar Karl segir að Ísland – allt
árið sé fyrst og fremst markaðsverk-
efni. „Eitt af markmiðunum hefur
verið að dreifa ferðamönnum um
landið. Það hefur gerst í haust að
ferðamannastraumurinn til Norður-
lands hefur margfaldast. Það gat
maður ekki séð fyrir en er afskap-
lega ánægjulegt,“ segir Einar Karl.
Hann tekur fram að við undirbún-
ing verkefnisins hafi verið vakin at-
hygli stjórnvalda, Vegagerðar og
annarra stofnana á mikilvægi góðs
aðgengis að náttúruperlum. Sérstak-
lega hafi verið rætt hvernig bregðast
ætti við veðuráhlaupum eins og kom-
ið hafi í haust og sett ferðaþjónustu-
leiðir úr skorðum.
Svar á leiðinni
Einar Karl segir að ekki gangi að
hafa engan mokstur á þessum ferða-
mannaleiðum yfir vetrarmánuðina,
þegar umferðin aukist jafn mikið og
gerst hefur í vetur. Vegagerðin er
búin með fjárveitingar til snjómokst-
urs á þessu ári. Þó hafa verið umræð-
ur innan Vegagerðarinnar um það
hvernig hægt sé að bregðast við er-
indi Markaðsstofu Norðurlands um
breytingar á flokkun ferðamanna-
leiða. Svar vegamálastjóra mun vera
á leiðinni til Markaðsstofunnar.
„Það er full ástæða til þess að
þingmenn og ríkisstjórn hugi sér-
staklega að þessu vandamáli fyrir
norðan við afgreiðslu fjárlaga. Þetta
er sérstakt mál vegna þess hvað
aukningin hefur verið mikil yfir vetr-
armánuðina og við því þarf að bregð-
ast með einhverjum hætti,“ segir
Einar Karl Haraldsson.
Bregðast þarf við
nýjum aðstæðum
Styður óskir um aukinn snjómokstur
Einar Karl
Haraldsson
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4
VERÐ FRÁ 10.950.000 KR.
MYNDARLEGUR
Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins
8,3 l / 100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun
á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu.
Ef þig langar að prófa Discovery skaltu ekki hika við að hafa samband
við okkur í síma 525 8000 eða koma við og skreppa í reynsluakstur.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
www.landrover.is
Tryggðu þér nýjan DISCOVERY 4 fyrir breytingar
á vörugjöldum þann 1. jan. nk
ATHUGIÐ!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
3
5
1
*Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.