Morgunblaðið - 27.11.2012, Side 22

Morgunblaðið - 27.11.2012, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fylgi ríkis-stjórn-arinnar og flokkanna tveggja sem að henni standa er í lág- marki og hefur ver- ið lengi, eða allt frá því almenn- ingur áttaði sig á að loforðin um skjaldborgina og efnahags- uppbygginguna voru orðin tóm. Að tal um gagnsæi og umbætur í stjórnsýslu voru öfugmæli og að ríkisstjórnarflokkarnir hefðu meiri áhuga á að fylgja eftir eigin sérviskumálum en að vinna að hagsmunum almenn- ings. Af þessum sökum hefur áhugi á forvali og prófkjörum þessara flokka verið ótrúlega lítill meðal flokksmanna og jafnvel í stórum kjördæmum er þátttakan ekki nema eins og í stóru fjölskylduboði eða í besta falli ættarmóti af minni gerð- inni. Stór hluti fyrrverandi stuðningsmanna þessara flokka er með öðrum orðum hættur að taka þátt í starfi þeirra og telur sig ekki lengur í hópi stuðn- ingsmanna þegar um það er spurt. Einhverjir myndu bregðast við slíkum vanda með því að leitast við að endurnýja fram- boðslista og bjóða fram nýtt fólk í bland við það sem fyrir er. Slíkt fylgistap gæti orðið hinum sömu tilefni til að endurskoða störf og stefnu flokka sinna og taka í það minnsta til umræðu hvort þá hafi borið nokkuð af leið. Í tilviki Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur hvorugt gerst. Báðir flokkar hafa valið lista sína í flestum kjör- dæmum og í þeim kjördæmum þar sem einhverjir raunhæfir mögu- leikar voru á umtalsverðri end- urnýjun. Hún hefur nánast eng- in orðið. Samfylkingunni hefur tekist að birta eitt tiltölulega nýtt andlit í öðru sæti á lista á Norðausturlandi, en í Reykja- víkurkjördæmunum, Krag- anum og Suðurkjördæmi er allt við það sama. Vinstri grænir eru ámóta nýjungagjarnir, þeir halda sig við þá þingmenn sem fyrir eru nema í því tilviki þar sem þing- maður kjördæmisins sagði sig úr flokknum. Ekkert minna dugði til að þeir fáu sem eftir eru í flokknum velti fyrir sér skilaboðum fyrrverandi kjós- enda og fyrrverandi flokks- manna. Stjórnarandstaðan, sem stendur mun betur í skoðana- könnunum, teflir ólíkt ríkis- stjórnarflokkunum fram nýju fólki ásamt því sem reyndara er. Þar var ekki jafn brýn þörf á endurnýjun en flokksmenn hafa engu að síður talið að ákveðin endurnýjun væri æskileg og að flokkarnir stæðu sterkari í kosningunum ef þeir sem reyndari eru fengju stuðning af nýjum liðsmönnum. Kjósendur munu án efa telja athyglisvert að ríkisstjórnar- flokkunum þyki fara best á því að ríghalda í þá þingmenn sem brugðist hafa kjósendum sínum og hafna hinum. Samfylking og VG telja þingmenn sína ómissandi og vilja enga nýja í hópinn} Engin endurnýjun hjá ríkisstjórnarflokkunum Jón Bjarnasonritaði athygl- isverða grein í Morgunblaðið um helgina þar sem hann fyllti í þá mynd sem dregin hefur verið upp, meðal annars í fréttum Morgunblaðsins, af fundi ís- lenskra þingmanna og þing- manna ESB í liðinni viku. Jón upplýsti til að mynda að hinum erlendu þingmönnum hefði komið á óvart hve veikan pólitískan stuðning umsóknin um aðild að ESB hefði hér á landi og að nýleg skoðana- könnun sýndi að 54% lands- manna vildu draga umsóknina til baka. Framganga utanríkis- ráðherra og annarra þeirra sem eiga að gæta hagsmuna Íslands í viðræðunum við ESB virðist æ sér- kennilegri eftir því sem nánari fréttir berast af þekking- arleysi ráðamanna í Brussel á afstöðu Íslendinga til aðildar að sam- bandinu. Augljóst er að Evr- ópusambandið hefur verið blekkt til að hefja aðlögunar- ferlið og er það mikill ábyrð- arhluti af hálfu ráðherra. Nauðsynlegt er að sem fyrst verði undið ofan af blekkingunni og komið hreint fram gagnvart ESB um áhuga – eða öllu heldur áhugaleysi – Íslands um aðild að samband- inu. Verði það gert er viðræð- unum sjálfhætt og Ísland get- ur að nýju tekið upp eðlileg og heiðarleg samskipti við Evr- ópusambandið og aðildarríki þess. Kominn er tími til að stjórnvöld komi hreint fram} Hættum að blekkja ESB H art er barist með reglulegu milli- bili um völd í hestamannafélag- inu, leikfélaginu og íþróttafélag- inu. Kosið er í stjórnir en ekki algengt að á þann veg sé ákveð- ið hverjir eru í byrjunarliði í handboltaleik eða hvernig skipað í hlutverk hjá áhugaleikfélag- inu. Það gerðist þó nýverið í litlu plássi úti á landi. Nýtt leikrit skal taka til æfinga. Tvennum sögum fer af vinnuheitinu; sumir segja Eitrað peð, aðrir Drottning drepur kóng. Verkið var sérstaklega samið fyrir næstu vorhátíð og ákveðið að raða í hlutverk tímanlega, æfa af krafti í vetur svo ekkert klikki eins og síðast, þegar sýning félagsins fékk bæði lakari dóma og dræmari aðsókn en vonast var til. Það skrýtna var að sú var þó valin áhugasýning árs- ins í lok vetrar en það er önnur saga. Leikmynd vorsins hefur þegar verið ákveðin; teiknað verður hefðbundið taflborð með svörtum og hvítum reit- um og áhorfendur hengdir upp í rjáfur til að þeir hafi al- mennilega sýn yfir bardagann; enginn skal missa af því þegar andstæðingarnir verða stráfelldir. Metnaður félagsmanna er mikill. Flestir sem mættu til fundar sögðust vilja fá „gott“ hlutverk en nokkrir, þeir sem farið hafa með helstu rullur í sýningum félagsins síð- ustu árin, sögðu einungis hlutverk kóngs eða drottningar koma til greina. Rétt er að taka fram að þau eru jöfn að völdum í verkinu enda höfundurinn annálaður femínisti. Þessar yfirlýsingar ollu nokkrum titringi þótt enginn léti á neinu bera; sá sem fékk að segja tvær setningar í sýningu síðasta vetrar, hafði þó látið sig dreyma um að færast upp metorðastigann, og fámáll sölumaður í sama verki stefnt að því að fara með hlutverk kaup- félagsstjórans. En þar sem kaupfélagsstjóri er ekki taflmaður í hefðbundnum skilningu vildi sölumaðurinn í það minnsta verða biskup. Velja átti í eitt lið, hvítt, því leikfélagið úr næsta hreppi leikur svörtu mennina í vor. Að því leyti verður viðburðurinn einstakur og leik- urum auk þess leyfður spuni að vild þótt stuðst verði við handrit. Einn, nýfluttur í sveitina og bjóða átti að teikna sviðsmyndina, kvað upp raust sína á miðjum fundi, sagðist vanur og sætti sig því bara við að verða annaðhvort kóngur eða drottning. Nokkrir gátu vel sætt sig við embætti hróks, biskups eða riddara, en enginn hafði nefnt peð, svo vitað væri. „Ég má mjög vel við una. Ég stefndi vissulega að betri rullu, en við erum óvenju glæsilegur hópur og engin skömm að lúta í lægra haldi fyrir öðrum framúrskarandi leikurum, amma mín,“ heyrðist eitt peðanna muldra í sveitasímann um kvöldið. Hann þerraði tár og bætti viði: „Leikurum ber að standa hver með öðrum og dægurþrasið stundum að víkja. Ég reyni aftur, en JR deyr ekki nema einu sinni. Hugur minn nú er hjá Sue Ellen og börnunum.“ skapti@mbl.is Skapti Hallgrímsson Pistill Leikarar af guðs náð STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is A lþjóðaheilbrigð- ismálastofnunin (WHO) hefur ráðlagt eingöngu brjóstamjólk til sex mánaða aldurs. Iðulega koma upp spurningar hjá mæðrum hversu lengi þær eigi að gefa börnum sínum eingöngu brjóstamjólk. Rannsókn sem tók til þessa þáttar og var framkvæmd hér á landi styður það. Niðurstöðurnar hafa birst í tveimur fræðigreinum og vakið athygli erlendis, einkum rann- sóknarsniðið sjálft. Rannsóknarsniðið er með þeim hætti að konunum sem tóku þátt í rannsókninni var raðað af handahófi í íhlutunarhóp. Þegar barnið hafði náð fjögurra mánaða aldri fengu þær að vita hvort þær héldu áfram að gefa eingöngu brjóst til sex mánaða eða gæfu ábót og brjóst til sex mán- aða. „Margir héldu að þetta væri ekki hægt,“ segir Ólöf Helga Jóns- dóttir, doktorsnemi á Rannsókn- arstofu í næringarfræði við HÍ, einn af rannsakendum. Auk hennar stóðu Geir Gunnlaugsson landlæknir og Inga Þórsdóttir prófessor að rann- sókninni ásamt þverfaglegum hóp ís- lenskra, enskra og bandarískra fræðimanna í samvinnu við heil- brigðisstarfsfólk á sjö heilsugæslu- stöðvum hér á landi. Fleiri greinar um efnið munu birtast í vísindatímaritum á næst- unni. Ólöf Helga segir að bráðlega liggi fyrir rannsóknir á börnunum við tveggja og hálfs árs aldur, hvaða áhrif brjóstagjöfin hafi á þroska og vöxt þeirra. Mjólkurframleiðslan mæld „Við vitum að það eru mjög margar konur í þeirri stöðu að hvorki vilja né geta verið með barnið á bjósti í sex mánuði. Þá er mik- ilvægt fyrir okkur sem störfum í heilsuvernd að koma með góðar upp- lýsingar til mæðranna,“ segir Geir Gunnlaugsson og bendir á að rann- sóknin svari þeim spurningum. Geir segir að í rannsókninni hafi verið beitt þróaðri tækni sem mældi hvort móðirin framleiddi nógu mikla mjólk. „Við staðfestum að þær konur sem eru eingöngu með barn á brjósti framleiða marktækt meiri mjólk en þær sem gefa einnig ábót,“ segir Geir. Ólöf Helga Jónsdóttir doktors- nemi benti á að rannsóknin sýndi einnig fram á að „það er ekki slæmt að gefa ábót með brjóstagjöf við fjög- urra mánaða aldur. Barnið vex hvorki hraðar né er með verri járnbúskap. Við getum samt sem áður aldrei ráð- lagt það út frá þessari rannsókn. Það er líka gott fyrir þær mæður sem geta ekki haft börnin á brjósti til sex mánaða aldurs að vita það.“ Ólöf segir að ýmsar tilgátur hafi verið í upphafi. Rannsakendur héldu að þau börn sem hefðu eingöngu ver- ið á brjósti til sex mánaða myndu vaxa hægar og væru með lægri járnbúskap en sú var ekki raunin. Há brjóstagjafatíðni á Íslandi Ísland varð fyrir valinu því hér á landi er brjóstagjafatíðni há og því raunhæft að leggja rannsóknina fyr- ir, segir Ólöf. „Í mörgum löndum hefði þetta ekki verið hægt því mæður eru yfir- leitt ekki svona lengi með börn ein- göngu á brjósti. Ef við tökum Bret- land sem dæmi er um það bil 1% kvenna með barn eingöngu á brjósti við sex mánaða aldur,“ segir Ólöf. Geir bendir á að 98% íslenskra kvenna eru með barn á brjósti, við einnar viku aldur, sem kann vera mjög gott miðað við nágranna- löndin. Íslenskar mæður snúa á fræðiheiminn Morgunblaðið/Brynjar Gauti Brjóstagjöf Íslenskar mæður lögðu sitt af mörkum til rannsókna á brjóstagjöf og hefur rannsóknin vakið athygli á erlendum vettvangi. „Það var erfitt að fá styrk fyrir þessari rannsókn vegna rann- sóknarsniðsins. Margir héldu að að þetta væri ekki hægt og vekur hún athygli erlendis fyrir vikið,“ segir Ólöf Helga. Eins og fyrr greinir fengu mæðurnar ekki að vita fyr- irfram í hvorum hópnum þær myndu lenda. „Þegar það lá ljóst fyrir voru mæðurnar ein- staklega jákvæðar og við erum þakklát fyrir það,“ segir Ólöf. Geir bætir við og segir: „Ís- lensku konurnar gerðu þetta með stæl.“ Margir telja ekki siðferð- islega rétt að slembiraða börn- um á þessum aldri, eins og gert var í þessu rannsókn- arsniði. Börnin sem voru í hópn- um og fengu við- bót fengu þó mikla brjóstamjólk einnig, segir Ólöf. „Gerðu þetta með stæl“ RANNSÓKNARSNIÐIÐ Geir Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.