Morgunblaðið - 27.11.2012, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.11.2012, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Gréta Hergils sópransöngkona heldur útgáfu- tónleika í Bústaðakirkju í kvöld, þriðjudag, klukkan 20, og fagnar útgáfu nýs geisladisks sem nefnist Ave Maria og er hennar fyrsti diskur. Hún segir öll ellefu lögin tengd Maríu Guðsmóður á einn eða annan hátt. „Þessi lög eru öll ólík þótt þau fjalli um þessa helgu persónu í kristinni trú,“ segir söngkonan og bætir brosandi við að hún sé þó alls ekki að syngja sama lagið aftur og aftur. „Margir þekkja bara eina „Ave Maríu“, þá sem Schubert samdi og hún er á diskinum, og sum- ir þekkja önnur lög þar einnig, til að mynda það sem Sigvaldi Kaldalóns samdi, en sum hafa lítið sem ekkert heyrst hér. Eitt lagið er til að mynda samið um 1500 og það má ímynda sér að sú Ave Maria kunni að hafa hljómað hér í kirkjum fyrir siðaskiptin, en eftir siðaskipti og fram undir árið 1930 er þessi tónlist bönnuð hér, eftir að kaþólsk trú vék. Á síðustu áratugum hefur þessi fallega tónlist farið að heyrast aftur í kirkjum og við fögnum því,“ segir Gréta Hergils. „Þetta eru allt svo fín tónskáld“ Í mörgum laganna er sunginn hinn forni lat- neski texti en Gréta syngur einnig á spænsku og þrjú laganna eru á íslensku. „Það eru Ave María eftir Kaldalóns, við afar fallegan texta Indriða Einarssonar, þá syng ég Máríuvers Páls Ísólfssonar, sem ég fékk tvær vinkonur mínar til að syngja með mér í tríói, og loks Máríukvæði Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Halldórs Laxness,“ segir hún. „Þetta eru allt svo fín tónskáld. Lag Sig- valda Kaldalóns er ekki auðvelt í flutningi, þetta er alvöru tónlist og það þarf alvöru radd- bönd í þetta,“ segir hún og hlær. Gréta hefur gengið lengi með þá hugmynd að gefa disk með lögum um Maríu. „Ég hef verið að safna Ave Maríum í nokk- urn tíma. Eitt lagið hef ég sungið oft und- anfarið, en það er eftir spænska tónskáldið William Gomez og samið um árið 2000. Þetta er einstaklega fallegt tónlist sem ég fann á net- inu. Tónlistin var upphaflega samin fyrir messósópran og ég benti vinkonu minni á hana en þegar hún gerði ekkert með það sat ég uppi með þetta fallega lag og það hefur fylgt mér síðan. Ég fer hreinlega í annan heim þegar ég syng það.“ Gréta Hergils bætir við að hún hafi sungið mörg laganna á diskinum oft á und- anförnum árum en þetta spænska verk finnst henni vera „drottningin á diskinum. Þetta er léttara lag en mörg hinna og á heima víðar en í kirkjum,“ bætir hún við. Á tónleikunum koma Jónas Þórir píanóleik- ari og Matthías Stefánsson fiðluleikari fram með Grétu, auk félaga í kór Bústaðakirkju en hann er skipaður þrautþjálfuðum söngvurum. Gréta hefur sungið víða undanfarin ár og nú síðast í Il trovatore í Íslensku óperunni. „Nú eru jólin framundan og það verður mik- ið um einsöng í kirkjum og víðar kringum há- tíðirnar,“ segir hún. Margir þekkja bara eina „Ave Maríu“  Öll lögin á diski Grétu Hergils fjalla um Maríu Guðsmóður  Söngkonan heldur útgáfutónleika Morgunblaðið/Kristinn Söngkonan „Þessi lög eru öll ólík þótt þau fjalli um þessa helgu persónu í kristinni trú,“ segir Gréta Hergils um lagavalið á nýja diskinum. Hún hefur lengi safnað lögum um Maríu mey. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Aþena er ein af þessum persónum sem heimta alltaf framhaldslíf. Það er auðvitað ákveðin frekja hjá sögu- persónum þegar þær vilja ekki láta afgreiða sig í einni bók,“ segir Mar- grét Örnólfsdóttir sem sent hefur frá sér þriðju bókina um Aþenu, sem nefnist Aþena – að eilífu, kúmen. Margrét viðurkennir að hún hafi skilið Aþenu eftir í lausu lofti í síð- ustu bók sem út kom fyrir tveimur árum. „Ég var ekki búin að ákveða hvort það yrði þriðja bók eða ekki, en þegar ég fór svo að fá áskorarnir frá lesendum sem heimtuðu fram- hald þá hugsaði ég með mér að Aþena ætti það skilið að ég gæfi henni a.m.k. þessa þriðju bók í við- bót. Svo verður bara að sjá til hvort hún lætur sér það nægja eða heldur áfram að suða í mér,“ segir Margrét og tekur fram að hún sé með svo mörg járn í eldinum að hún sé ekki tilbúin að einskorða sig aðeins við eina skáldsagnapersónu. Ekki bara bók fyrir stelpur Í Aþenu – að eilífu, kúmen er Aþena komin á fermingaraldurinn og undirbúningur fermingarinnar og pælingar þar að lútandi eru því fyr- irferðarmikil í sögunni. „Aþena er að eldast og verða unglingur. Því fylgir mikið umrót í sálarlífinu. Hún stend- ur á ákveðnum tímamótum og því snýst bókin mikið um val, um þessa kvöl að þurfa að velja og finna sína leið. Hún þarf aðeins að prófa sig áfram og kanna hluti sem gætu leitt hana inn á lendur sem eru ekki endi- lega réttur staður fyrir 13 ára stelpu, enda er þetta hættulegur heimur. Við fáum að fylgjast með henni fóta sig í þessu nýja umhverfi, en hún lendir í skrautlegum félagsskap.“ Aðspurð segist Margrét verða vör við að Aþena hitti vel í mark hjá ákveðnum lesendahóp. „Það eru stelpur sem eru aðeins yngri og að- eins eldri en Aþena. Þær hafa þörf fyrir að spegla sig í þessum sögu- heimi,“ segir Margrét og bætir við: „Raunar hafa strákar, sem ekki eru með ofnæmi fyrir bleikum bókakáp- um, líka gaman af bókunum. Enda eru þetta ekki bara stelpubækur þótt þær séu um stelpu.“ Margrét segist bæði glöð og þakklát fyrir þann áhuga sem lesendur sýni bók- um hennar. „Mér finnst ekki sjálf- sagt að fólk setjist niður í marga klukkutíma og lesi bækur eftir mig. Ég er hrærð yfir því að fólk skuli verja sínum tíma þannig og ef það hefur svo ánægju af þá er ég svaka- lega hamingjusöm líka.“ Athygli vekur að bókin er skrifuð á Íslandi, Frakklandi, Indlandi og Ástralíu. „Það er ekkert því til fyr- irstöðu að skrifa bók þegar maður er á flakki. Ég get skrifað hvar sem er. Maður þarf bara finna sér eitthvert skot og hafa næði,“ segir Margrét og segist sannfærð um að allir hafi gott af því að skoða heiminn. „Hvort sem það endar síðan í bók eða bara sem næring fyrir sálina.“ „Aþena heimtar alltaf framhaldslíf“  Sögupersónan Aþena stendur á tímamótum Morgunblaðið/Sigurgeir S. Flakk Margrét segist sannfærð um að allir hafi gott af því að skoða heiminn, en hún er sjálf nýkomin heim úr fimm mánaða flakki um heiminn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.