Morgunblaðið - 27.11.2012, Side 4

Morgunblaðið - 27.11.2012, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012 Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00 Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00 Hátíðarkörfur Ostabúðarinnar eftir þínu höfði Við erum byrjuð að taka á móti pöntunum í síma 562 2772, ostabudin@ostabudin.is og á ostabudin.is Baldur Arnarson baldura@mbl.is Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd samþykkti sl. föstudag að senda öðr- um þingnefndum ný stjórnskipunar- lög til umsagnar. Lögin byggja á grunni tillagna stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá og hafa þingnefnd- irnar frest til 10. desember til að skila inn athugasemdum. Að því loknu fara stjórnskipunar- lögin til 2. umræðu í þinginu. Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, telur þetta rúman tíma fyrir nefnd- irnar. „Við báðum um þennan tíma og það var gerð athugasemd við það eins og allt innan stjórnskipunar- og eft- irlitsnefndar. Það er hægt að fram- lengja þann frest ef með þarf. Allar umsagnir frá því í fyrra eru aðgengi- legar og á þessu tímabili eru fimm nefndadagar í þinginu. Nefndirnar hafa því mikinn tíma. En við verðum að sjá hvort hann dugar þeim,“ segir Valgerður. Unnið eins og vel og hægt er Aðspurð hvort til greina komi að gefa nefndunum frest fram yfir ára- mót segir Valgerður ótímabært að ræða það. Hún eigi eftir að ræða við formenn þingnefndanna. „Það kemur allt til greina í þessu enda er ætlunin að vinna þetta eins vel og mögulegt er. Einu tímamörkin sem við setjum okkur er að ljúka mál- inu fyrir kosningar. Við viljum vinna með stjórnarandstöðunni. Það er allt opið í því. En við þurfum að vita hvað stjórnarandstaðan vill annað en að henda þessum pappír og það viljum við ekki gera,“ segir hún. Undrast hraðann í málinu Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur nefndun- um skammtaður alltof naumur tími en hann situr í fjárlaganefnd. „Það er með ólíkindum að nefndir þingsins eigi að afgreiða umsögn á svona knöppum tíma, ef menn vilja á annað borð hafa hana vandaða. Ég skil satt að segja ekki hvað liggur á. Fjárlög ríkisins eru lögð fram í september og eru afgreidd í desem- ber. Þau gilda aðeins til eins árs. Stjórnarskrá endist miklu lengur og mér finnst mjög óeðlilegt ef henni er ekki gefinn sá tíma sem þarf til þess að vanda til verka. Það getur vel verið að við þurfum að fá álit annarra á fundum í fjár- laganefndinni og ef það á að afgreiða þetta í hvelli á fimm dögum finnst mér það jafngilda kröfu um að við leggjum ekki þá rækt við þessa vinnu sem þarf að gera. Þessi hraði í afgreiðslu jafn mikil- vægs máls er með ólíkindum,“ segir Kristján Þór Júlíusson. Stjórnskipunarlögin í nefndir  Þingnefndir hafa frumvarp til stjórnskipunarlaga til umsagnar til 10. des.  Form. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar telur tímann rúman  Þingmaður Sjálfstæðisflokks telur of geyst farið í málinu Valgerður Bjarnadóttir Kristján Þór Júlíusson Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Að sögn Gunnlaugs Grettissonar, rekstrarstjóra Herjólfs, er búist við því að viðgerð á Herjólfi taki sex daga, en önnur skrúfa skipsins lask- aðist í óhappi við Landeyjarhöfn á laugardag. Skipið fór í slipp í Hafn- arfirði í gærkvöldi en skipt verður um eitt fjögurra blaða skrúfunnar en hin þrjú verða lagfærð. „Kostnaður mun liggja fyrir á morgun eða á miðviku- dag,“ segir Gunnlaugur. Á laugardag lenti Herjólfur í þung- um straumi fyrir utan Landeyjarhöfn sem leiddi til þess að önnur skrúfa skipsins tók niðri við vestari varnar- garðinn. Vegagerðin brást skjótt við beiðni Vestmanneyinga um farkost á milli lands og Eyja og var Breiðafjarðar- ferjan Baldur fengin í verkefnið í gær. Herjólfur getur flutt allt að 500 far- þega en Baldur um 190. „Hann mun geta sinnt þessu með fjórum ferðum á dag, þó að mögulega verði þrengra á þingi en í Herjólfi. Einhverjir gætu þurft frá að hverfa á föstudag og sunnudag, því þá ferðast flestir,“ seg- ir Gunnlaugur. Allt að 7-800 manns ferðast með Herjólfi á föstudögum og sunnudög- um að sögn hans. „Aðallega er bíla- plássið takmarkað. Við munum fyrst og fremst lenda í vandræðum með það,“ segir Gunnlaugur. Óljúft að fella niður siglingar Hin hliðin á teningnum er sú að áætlanaferðir Baldurs um Breiða- fjörð, milli Stykkishólms og Brjáns- lækjar, með viðkomu í Flatey falla niður næstu 7-10 daga samkvæmt heimasíðu Sæferða sem sér um rekst- ur ferjunnar. „Við þær aðstæður sem uppi eru sáum við okkur ekki annað fært en að verða við þessari beiðni þó svo að okk- ur sé vægast sagt óljúft að fara út úr okkar siglingaráætlun, sérstaklega á þessum árstíma. Sem betur fer lítur svo út næstu viku til 10 daga að veð- urfar verði gott og færi á landi þokka- legt,“ segir á heimasíðu Sæferða. Baldur sendur Eyja- mönnum til bjargar  Hefðbundnar áætlanaferðir í Breiðafirði falla niður í 7-10 daga Morgunblaðið/Árni Sæberg Skemmd skrúfa Þrjú blöð löskuðust og eitt blað brotnaði á bakborðsskrúfu Herjólfs á laugardag. Í Landeyjahöfn Ferjan Baldur sést hér í Landeyjahöfn en hún mun sinna ferðum á milli lands og Eyja næstu daga. Hún getur flutt 190 farþega í einu. Það var föstudaginn 23. nóv- ember sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ákvað að vísa stjórnskipunarlögum til þing- nefnda til umsagnar. Þingmenn hafa því 12 virka daga til að fara yfir málið, eða virku dagana 26. til 30. nóv- ember og frá 3. til 7. desember, auk og mánudagsins og þriðju- dagsins 10.-11. desember. Hafa tólf virka daga FRESTUR NEFNDANNA Skúli Hansen Una Sighvatsdóttir Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur að eigin sögn tilkynnt kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að hún óski eftir að leiða lista flokksins í Reykjavík- urkjördæmi suð- ur. Að sögn Hönnu Birnu ætlar hún ekki að gefa kost á sér til formanns Sjálfstæðis- flokksins gegn Bjarna Bene- diktssyni. Hún ætli að virða niðurstöðu síðasta landsfundar flokksins. Einbeitir sér að sigri í borginni Hún segist ekki útiloka að gefa kost á sér til formennsku á ein- hverjum tímapunkti en hún hafi þegar gefið kost á sér sem val- möguleika við Bjarna. Það fram- boð hafi eingöngu verið til að gefa landsfundi flokksins val um hver leiddi flokkinn í komandi alþing- iskosningum. Þrátt fyrir að hún hafi fengið mikinn stuðning hafi niðurstaðan orðið sú að formað- urinn náði endurkjöri. Að sögn Hönnu Birnu virðir hún þá niðurstöðu landsfundar. „Bjarni Benediktsson ætlar að gefa kost á sér aftur sem formaður á næsta landsfundi og þann fund munu að mestu skipa sömu einstaklingar og veittu honum umboð til forystu síð- ast,“ segir Hanna Birna og bætir við: „Frekar en að fara aftur fram gegn sitjandi formanni mun ég beita öllum mínum kröfum í að leiða okkur til sigurs hér í höf- uðborginni. En breytist forsendur síðar mun ég ekki skorast undan ábyrgð.“ Aðspurð hvort hún ætli að gefa kost á sér sem varaformaður Sjálf- stæðisflokksins á næsta landsfundi segir Hanna Birna: „Ég hef enga ákvörðun tekið um það.“ Upplýsa ekki um listana „Við gefum út listann þegar hann er tilbúinn og þá upplýsum við hvernig við förum að því að velja og hvernig valið er gert, við getum ekki verið að upplýsa það núna,“ segir Halldór Guðmundsson, for- maður kjörnefndar vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, aðspurður hvernig frambjóðendur raðist á lista flokksins í Reykjavík- urkjördæmunum tveimur. Hanna Birna leiðir í Reykjavík suður  Fer ekki í formanninn á móti Bjarna Hanna Birna Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.