Morgunblaðið - 27.11.2012, Qupperneq 11
Íþrótt Gönguskíðabrautin í Seljalandsdal er á heimsmælikvarða og útsýnið yfir fjörðinn og fjöllin er ekkert slor.
Nýliðar á leið í þrekþraun
Í búðunum um helgina voru
nokkrir nýliðar sem, þrátt fyrir að
eiga augljóslega ýmislegt ólært,
stefna ótrauðir á að ljúka 50 km
leggnum vor. Fólk í góðu formi, t.d.
langhlauparar, sem hefur fengið til-
sögn og tekið nokkrar langar æfingar
á gönguskíðunum á nefnilega góðan
möguleika á að ljúka þeirri vega-
lengd, að sögn kunnugra. Fólki er þó
ráðlagt að leita sér álits og upplýs-
inga áður en það anar út í einhverja
vitleysu. Og það þýðir ekkert að
klaga Morgunblaðið ef illa fer.
Þátttökugjald í búðunum var
12.500 krónur. Sameiginlegur kvöld-
verður, með ljúffengum saltfisk-
réttum og súkkulaðiköku í eftirrétt
kostaði 4.000 krónur, rútuferð innifal-
in.
Æfingarnar sem boðið var upp á
voru fjölbreyttar og skemmtilegar en
um leið krefjandi. Hið besta veganesi
fyrir veturinn.
Með æfingabúðunum hófst vetr-
ardagskrá Skíðasambands Íslands og
henni lýkur með Fossavatnsgöng-
unni 4. maí. Í göngunni er hægt að
velja um að ganga 7 km, 10, 20 eða 50.
Gangan getur því hentað öllum og
ekki að furða að hún nýtur sívaxandi
vinsælda, bæði á meðal Íslendinga og
útlendinga. Gangan sjálf er skemmti-
leg og verðug áskorun en eitthvað
mun vera um að menn taki þátt bara
til að komast í hið fræga kaffihlað-
borðið við endamarkið.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012
Ingimar Sigurðsson, forstöðumaður
www.volkswagen.is
Volkswagen Passat
eigendur eru ánægðir
með metanið
Volkswagen Passat EcoFuel, bíll ársins 2012
Sparnaður og lúxus fara
einstaklega vel saman
í Highline útfærslunni
Eigendur Passat EcoFuel taka þátt í því að
minnka losun koltvísýrings í andrúmsloftið,
spara dýrmætann gjaldeyri með því að nota
íslenskan orkugjafa og lækka eldsneytis-
kostnaðinn um nær helming.
Passat TSI EcoFuel kostar frá
3.990.000 kr.
Meðaleyðsla 6,8 l /100 km bensín, 6,6 m3 4,3 kg/100 km metan m.v. blandaðan akstur.
mv. Volkswagen Passat TSI Eco Fuel og óverðtryggðan
bílasamning með gullvildarkjörum frá Ergo til 84 mánaða
og 25% útborgun. Hlutfallstala kostnaðar 10,30%.
49.426kr.
á mánuði
Krakkarnir í 1.-4. bekk á Ísafirði velja sér ekki eina íþrótt til að stunda
heldur er þeim boðið upp á að æfa blak, körfubolta, fótbolta, handbolta,
sund og gönguskíði og alpagreinar yfir veturinn. Kostnaður er 7.000
krónur fyrir önnina. Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, gönguskíðakappi með
meiru, segir að þetta hafi verið gert til að börnin fengju að kynnast sem
flestum íþróttagreinum áður en þau velja sér hvaða grein þau vilja æfa af
krafti. Mikil ánægja sé með þetta fyrirkomulag
Hólmfríður Vala og Daníel Jakobsson, eiginmaður hennar, fluttu til Ísa-
fjarðar árið 2010. Hólmfríður Vala er afar virk í starfi Skíðafélags Ísafjarð-
ar og sér m.a. um æfingar fyrir börnin en býður einnig upp á önnur nám-
skeið, m.a. kvennaæfingar á gönguskíðum. Um 20 konur voru mættar á
slíkt námskeið á sunnudag. „Þetta hvetur konur til að koma í fjallið,“ seg-
ir hún. „Strákarnir hafa reyndar líka rukkað um að fá karlaæfingar.“
Krakkarnir æfa af kappi
HÓLMFRÍÐUR VALA SVAVARSDÓTTIR ER VIRK Í SKÍÐAFÉLAGINU
Æfing Hólmfríður Vala á krakkaæfingu sl. laugardagsmorgun. Þann dag var hún við
kennslu í fjallinu frá kl. 10-18.30 og börnin hennar þrjú voru í fjallinu allan tímann og
kveinkuðu sér aldrei. „Þau eru alin upp við þetta,“ sagði hún.
Í æfingabúðunum fyrir Fossavatns-
gönguna sem haldnar voru á Ísafirði
um helgina sýndi Bobbi, Kristbjörn
Róbert Sigurjónsson, hvernig bera á
áburð á gönguskíði. Hér fylgir stutt
samantekt um nokkur atriði sem þar
komu fram.
Rennslisáburður er í fjórum litum;
gulum, rauðum, fjólubláum og bláum.
Sá guli er notaður ef hiti er við eða
fyrir ofan frostmark en sá blái er fyrir
10-20 stiga frost. Hinir litirnir eru fyr-
ir hitastig þar á milli. Guli áburðurinn
er eins konar grunnáburður en val á
öðrum áburði fer eftir hitastigi og að-
stæðum hverju sinni. „Ég nota þann
rauða sem áburð dagsins í svona 80-
90% tilvika,“ sagði Bobbi.
Sá gamli skafinn af
Byrjað er á að rífa upp sólann á
skíðinu og er best að nota til þess
koparbursta. Síðan er straubolti not-
aður til að bræða áburðinn, sem er úr
vaxi, niður á skíðið, dreift er úr hon-
um, hann skafinn niður og loks burst-
að yfir með öðrum bursta og áburður-
inn þannig bónaður ofan í skíðin. Best
er að strauboltinn sé þykkur til að
hitastigið sé jafnt og ekki er hægt að
nota gufustraujárn.
Gönguskíði eru ýmist riffluð eða
slétt en þau síðarnefndu eru einnig
kölluð áburðarskíði því þá þarf einnig
að bera áburð undir miðjuna á skíð-
unum. Áburðurinn myndar þá tak fyrir
spyrnuna í stað rifflnanna.
Aldrei skal setja rennslisáburð und-
ið miðjuna á skíðunum (ekki heldur á
rifflurnar), það svæði er frátekið fyrir
svonefndan fattáburð eða fyrir klístur
en það er aðeins notað þegar snjór er
mjög blautur. Þessum efnum er einn-
ig skipt í litaröð. Fattáburðinn þarf
ekki að bræða en hann er í litlum
staukum sem gönguskíðamenn bera
með sér úti í braut, bera á eftir þörf-
um og nudda hann síðan niður með
korki.
Sé fólk í vafa um hvaða áburð á að
nota er yfirleitt best að spyrja bara
einhvern sem lítur út fyrir að vita
hvað hann er að gera.
Smurðu sig út úr keppni
Áburðarmálin eru flókin og Bobbi
benti á að jafnvel þeir sem hefðu
stundað sportið í 30-40 ár gætu mis-
lesið aðstæður og smurt vitlaust.
Þannig hefði t.d. norska skíðagöngu-
landsliðið „smurt sig gjörsamlega út
úr keppni“ á vetrarólympíuleikunum í
Tórínó fyrir nokkrum árum.
Það væri þó engin ástæða til að
óttast áburðinn; fólk væri ekki ýkja
lengi að læra að smyrja skammlaust.
Áburðarskíðin rynnu mun betur en
þau riffluðu en hann mælti þó yfirleitt
með að byrjendur fengju sér riffluð
skíði til að byrja með á meðan þeir
væru að ná tökum á göngutækninni.
Væri fólk hins vegar harðákveðið í að
stunda gönguskíði af krafti gæti verið
betra að kaupa áburðarskíðin strax.
Vísindafyrirlestur um áburð í æfingabúðunum
Morgunblaðið/Rúnar Pálmason
Sýnikennsla Bobbi mundar strauboltann yfir spánnýjum gönguskíðum.
Einfalt að byrja en líklega
ómögulegt að verða fullnuma