Morgunblaðið - 27.11.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012
-Viðhaldsfríir
gluggar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 28 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Þátttaka í forvali Vinstri grænna á
höfuðborgarsvæðinu nú um helgina
var mun minni en fyrir síðustu þing-
kosningar, vorið 2009. Tæplega sex
hundruðum færri kusu í forvalinu
nú en fyrir rúmum þremur árum.
Í Reykjavík kaus 1.101 félagi í VG
í forvali flokksins í mars árið 2009. Í
forvalinu sem haldið var nú um
helgina greiddu aðeins 639 manns
atkvæði. Þetta er fækkun um 462
manns eða 42%. Í Suðvesturkjör-
dæmi var það sama uppi á teningn-
um. Þar tóku 769 manns þátt í for-
vali árið 2009 en 487 manns nú. Það
er fækkun um 282 manns eða um
37%.
Að mati Daða Heiðrúnarsonar
Sigmarssonar, formanns svæðis-
félags VG í Reykjavík, er dræmri
þátttaka líklega til marks um að
áhugi á pólitík hafi almennt minnk-
að.
Þá geti fjöldi frambjóðenda átt
þátt í því að áhuginn á forvalinu var
minni en þeir voru mun færri nú en
árið 2009. Einnig gæti sú staðreynd
að forvalið hafi verið lítið auglýst átt
þátt í litlum áhuga.
Hann segir flokksmenn ekki hafa
sérstakar áhyggjur af því að þetta
sé fyrirboði um það sem koma skal í
þingkosningunum næsta vor.
„Þetta er áminning um að við
þurfum að standa okkur betur. Við
þurfum að líta í eigin barm og sjá
hvað við getum bætt og gert betur.
Við höfum ekki sérstakar áhyggjur
af þessu,“ segir Daði.
Tvær konur, þær Katrín Jakobs-
dóttir og Svandís Svavarsdóttir,
voru í tveimur efstu sætunum í for-
valinu í Reykjavík og munu þær
leiða listana í Reykjavíkurkjördæm-
unum tveimur. Ekki er um svokall-
aðan fléttulista að ræða hjá VG þar
sem karlar og konur eru til skiptis á
listunum heldur kveða reglur
flokksins á um að röðun frambjóð-
enda verði breytt ef hallar á konur
til að fjölga þeim á þingi. Engin slík
ákvæði eru um karla í reglum
flokksins.
VG lítur í eigin barm í
kjölfar minni þátttöku
Morgunblaðið/Eggert
Efst Katrín Jakobsdóttir náði 1. sætinu í forvali VG í Reykjavík um helgina.
Reglur flokksins
um kynjajöfnun til
þess að fjölga konum
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Fyrir utan Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur sem sigraði í prófkjöri Sjálf-
stæðismanna í Reykjavík nú um
helgina enduðu þær fjórar konur
sem komust í tíu efstu sætin í fjór-
um neðstu sætunum.
Á eftir Hönnu Birnu raða sér
fimm karlmenn áður en þær Sigríð-
ur Á. Andersen, Áslaug María Frið-
riksdóttir, Ingibjörg Óðinsdóttir og
Elínbjörg Magnúsdóttir skipa sér í
7.-10. sæti í prófkjörinu.
Óttarr Guðlaugsson, formaður
Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík, segir að
það sé engu að síður jákvætt að af
tíu efstu frambjóðendum í prófkjör-
inu séu fimm karlar og fimm konur.
Kjörnefnd geti þó gripið til að-
gerða til þess að jafna hlutföll
kynjanna við uppstillingu fram-
bjóðenda á lista.
„Þetta er málefni sem kjörnefnd
tekur á og skoðar. Hún hefur öll
þau tæki og tól sem þarf til að gera
þær breytingar sem þarf þegar
kosningin er ekki bindandi. Það er
þeirra hvort þeir fara í það eða
ekki,“ segir Óttarr.
Til þess að kosningin teljist bind-
andi þarf kjörsóknin að vera yfir
fimmtíu prósent auk þess sem
frambjóðandi þarf að fá yfir fimm-
tíu prósent atkvæða í það sæti sem
hann lendir í, að sögn Óttarrs. Kjör-
sóknin í prófkjörinu nú um helgina
var rúmlega 35%.
Rúmlega 7.300 manns tóku þátt í
prófkjörinu og eru það um 500
færri en kusu í prófkjöri flokksins
árið 2009. Það eru um 3.500 færri
en tóku þátt í prófkjöri fyrir alþing-
iskosningarnar árið 2007.
Morgunblaðið/Golli
Sigur Hanna Birna í karlahópi á
kosninganóttina.
Flestar konurn-
ar enduðu neðar
Kynjahlutföll tíu
efstu engu að síður
jöfn í prófkjörinu
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Niðurstöður forvals Vinstri grænna
í Reykjavík eru að konur verða í
fyrstu sætum beggja Reykjavík-
urlista flokksins, karl og kona verða
í 2. sæti á báðum listum og það sama
gildir um 3. sætið. Þetta þýðir þó
ekki að þrjú fyrstu sæti annars
Reykjavíkurlistans verði eingöngu
skipuð konum, þótt það væri vissu-
lega möguleiki, sé miðað við nið-
urstöður forvalsins.
Slíkur listi verður ekki boðinn
fram, ekki frekar en listi þar sem
þrjú efstu sætin væru skipuð körl-
um eingöngu.
Í forvalsreglum Vinstri grænna er
kveðið á um að tryggja skuli að ekki
halli á konur við uppstillingu á lista
flokksins. Engin slík ákvæði eru um
karla, enda er reglan sett fram til
þess að tryggja lágmarkshlut
kvenna í stjórnmálum. Í þriðju grein
laga flokksins segir að við val í trún-
aðarstörf innan
og á vegum
flokksins og í
starfi hans í hví-
vetna skuli gæta
jöfnuðar milli
kynja.
Jafnt kynja-
hlutfall 2009
Vinstri græn
fengu 14 þing-
menn í síðustu alþingiskosningum
2009, sjö konur og sjö karla. Nokkr-
ar breytingar hafa orðið á þing-
mannahópnum síðan þá, en einn
karl hefur bæst í hópinn og tveir
karlar og ein kona sagt sig úr þing-
flokknum.
„Við erum ekki með reglu um
fléttulista, þar sem karlar og konur
eiga að skiptast á,“ segir Auður
Lilja Erlingsdóttir, framkvæmda-
stýra VG. „Þetta ákvæði um jafnan
hlut kynjanna á bara við ef það hall-
ar á konur. Hugmyndin á bak við
það er að fjölga konum á Alþingi
með því að þær séu meðal þeirra
sem eru í efstu sætum lista flokks-
ins.“
Að loknu forvali VG í Reykjavík á
laugardaginn liggur fyrir að þær
Katrín Jakobsdóttir og Svandís
Svavarsdóttir munu skipa efstu sæti
á framboðslistum VG í Reykjavík-
urkjördæmunum. Árni Þór Sigurðs-
son og Álfheiður Ingadóttir verða í
2. sæti og þau Steinunn Þóra Árna-
dóttir og Ingimar Karl Helgason í 3.
sætum listanna. Ekki liggur fyrir á
hvorum Reykjavíkurlistanum þau
hyggjast vera.
Gætu konur skipað þrjú efstu
sætin á öðrum hvorum Reykjavík-
urlistanum samkvæmt þessari nið-
urstöðu forvalsins?
„Nei, alls ekki,“ segir Auður Lilja.
„Listinn yrði aldrei boðinn þannig
fram, því að þá hallar verulega á
annað kynið. Ekki frekar en við
myndum bjóða fram lista þar sem
karlar skipuðu þrjú efstu sætin.“
Kynjareglu eingöngu
beitt ef hallar á konur
Engin krafa um að karlar og konur skiptist á á listum VG
Morgunblaðið/Ómar
Þingflokkur VG á fundi Samkvæmt forvalsreglum flokksins er kveðið á um að tryggja skuli að ekki halli á konur.
Auður Lilja
Erlingsdóttir