Morgunblaðið - 27.11.2012, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012
myndinni, sem gerir ráð fyrir al-
þjóðlegri efnahagskreppu í kjölfar
uppbrots evrópska myntbandalags-
ins, þá yrði 3,5% og 3,6% samdrátt-
ur á fyrstu tveimur árum spátíma-
bilsins, sem nær frá árinu 2012 til
2014.
Augu allra beinast
að Grikklandi
Spár stjórnvalda um stöðugan
vöxt í fjárfestingum yrðu ennfrem-
ur ekki að veruleika. Fjárfesting
myndi dragast saman um meira en
15% á fyrsta ári spátímabilsins, auk
þess sem það yrði hátt í 10% sam-
dráttur í einkaneyslu fyrstu tvö árin
eftir að alþjóðleg efnahagskreppa
brytist út.
Hrun í heildareftirspurn á heims-
markaði vegna djúpstæðrar efna-
hagskreppu hefði óumflýjanlega
mikil áhrif á íslenska útflytjendur.
Samkvæmt sviðsmynd stjórnvalda
myndi útflutningur dragast töluvert
saman fyrstu tvö árin, auk þess sem
mikill samdráttur yrði í innflutningi
samfara því að gengi krónunnar
myndi veikjast verulega. Gert er
ráð fyrir um 20% gengisveikingu og
að krónan yrði um 196 krónur gagn-
vart evru út spátímabilið.
Hin nánu tengsl milli evrópskra
og bandarískra fjármálamarkaða
valda því að markaðir í þessum
löndum eru mjög næmir fyrir stöðu
og þróun mála beggja vegna Atl-
antshafsins. Hagfræðingar telja af
þeim sökum að fari svo að það
kvarnist úr evrusvæðinu, til að
mynda með brotthvarfi Grikklands,
þá gæti slíkt hrundið af stað alþjóð-
legri efnahagskreppu.
Á það hefur þó verið bent að
brotthvarf Grikklands af evrusvæð-
inu hefði um þessar mundir ekki
jafn alvarlegar kerfislægar afleið-
ingar fyrir fjármálamarkaði og áður
var talið. Sumir greinendur óttast
þó að ef Grikkir neyðast til að kasta
evrunni gæti það markað upphaf at-
burðarásar þar sem önnur og stærri
evruríki, sem glíma við djúpstæða
skulda- og bankakreppu, fylgdu í
kjölfarið.
Þriggja ára samdráttarskeið
á Íslandi við uppbrot evru
Samkvæmt sviðsmynd stjórnvalda myndi hagkerfið dragast saman um 8%
Ísland berskjaldað gagnvart
hættum á evrusvæðinu
2012 2013 2014
Hagvöxtur -3,5% -5,2% -3,6% -5,9% -0,8% 4,7%
Einkaneysla -5,6% 7,1% -3,9% -7,3% 3,6% 0,4%
Atvinnuleysi 6,9% 0,7% 7,3% 2,3% 7,7% 3,7%
Fjárfesting -15,7% -39,6% -1,4% -7,8% 0,6% -12,8%
Verðbólga 6,7% 2,1% 3,8% 0,8% 1,3% -1,3%
Útflutningur -5,8% -7,8% -4,0% -6,0% 2,8% 0,3%
Innflutningur -16,3% -19,7% 0,4% -4,5% 13,7% 10,6%
ISK/Evran 196,2 32,7 196,2 32,7 196,2 32,7
Sviðsmynd fyrir efnahagshagsþróun á Íslandi samhliða alþjóðakreppu
Tölurnar sem eru bláar sýna frávikið frá gunnspá stjórnvalda.
Dökk sviðsmynd
» Ef það brytist út alþjóðleg
efnahagskreppa í kjölfar
mögulegs uppbrots evrunnar
þá myndi það hafa mjög nei-
kvæðar afleiðingar fyrir ís-
lenskt efnahagslíf.
» Samkvæmt sviðsmynd sem
stjórnvöld teiknuðu upp fyrr á
þessu ári myndi íslenska hag-
kerfið dragast saman um 8%
yfir þriggja ára tímabil.
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Mögulegt uppbrot evrópska mynt-
bandalagsins hefði skelfilegar af-
leiðingar í för með sér fyrir íslenskt
efnahagslíf og gæti þýtt um 8%
samdráttarskeið yfir þriggja ára
tímabil. Atvinnuleysi myndi enn-
fremur aukast umtalsvert og fjár-
festing dragast saman um tæplega
20% en ekki aukast að meðaltali um
11% árlega næstu þrjú árin.
Þessi dökka sviðsmynd var teikn-
uð upp af íslenskum stjórnvöldum
fyrr á þessu ári, að því er kemur
fram í úrskurði Eftirlitsstofnunar
EFTA (ESA) frá því í september
sl., um samþykkt ríkisaðstoðar sem
Landsbankanum var veitt í kjölfar
hruns bankakerfisins 2008. Þrátt
fyrir að íslensk stjórnvöld hafi oft
séð ástæðu til þess að minna á að
vöxtur og viðgangur íslensks efna-
hagslífs eigi mikið undir því að evr-
ópskir stefnusmiðir afstýri upp-
lausn á evrusvæðinu þá hefur slík
sviðsmynd ekki verið birt opinber-
lega áður um þær afleiðingar sem
uppbrot evrunnar gæti haft fyrir
efnahagsþróun hér á landi.
Fram kemur í úrskurði ESA að
sviðsmyndin sé teiknuð til að meta
rekstrarhæfi Landsbankans til að
mæta fjármálaáföllum ef efna-
hagsþróunin á Íslandi þróast hratt
til hins verra í kjölfar alvarlegra
ytri áfalla. Samkvæmt verstu sviðs-
Lánshæfismatsfyrirtækið Moody’s
staðfesti á föstudaginn lánshæfis-
einkunn ríkissjóðs Íslands. Einkunn-
in er eftir sem áður Baa3/P-3 fyrir
langtíma- og skammtímaskuldbind-
ingar. Í tilkynningu Moody’s segir að
staðfesting á lánshæfiseinkunninni
endurspegli að íslenska hagkerfið,
opinber fjármál og þróun skulda hins
opinbera eru talin vera á réttri leið.
Þá býst Moody’s við að efnahags-
leg endurreisn haldi áfram á viðun-
andi hraða þrátt fyrir áhættu vegna
afturkipps í hagkerfum Evrópu sem
getur haft neikvæð áhrif á útflutning
og hamlað vexti. Þá segir í tilkynn-
ingu matsfyrirtækisins að opinber
fjármál séu á skynsamlegri braut og
verulega hafi dregið úr halla á rík-
issjóði. Þetta kemur fram í morgun-
korni greiningardeildar Íslands-
banka.
Moody’s nefnir þrjár sviðsmyndir
til sögunnar sem gætu leitt til áfalla
sem hefðu mikil áhrif á stöðu lands-
ins. Í fyrsta lagi gæti afnám hafta or-
sakað mikið útflæði fjármagns og
óstöðugleika.
Í öðru lagi gæti neikvæð niður-
staða í Icesave-málaferlinu haft nei-
kvæðar afleiðingar fyrir ríkissjóð.
Í þriðja lagi er enn fyrir hendi
áhætta vegna bankakerfisins, sem
enn er veikburða og viðkvæmt fyrir
ytri áföllum að mati Moody’s. Bendir
fyrirtækið þar sérstaklega á há van-
skilahlutföll.
Óbreytt einkunn
Moody’s segir bankakerfið veikburða
og viðkvæmt fyrir ytri áföllum
AFP
Moody’s Afnám hafta gæti orsakað
mikið útflæði fjármagns.
● Bandaríska netfyrirtækið Amazon-
.com ætlar að opna fjórðu dreifing-
armiðstöð sína í Frakklandi á næstunni
og kemur fram í tilkynningu að þetta
muni væntanlega skapa 2.500 ný störf.
Fyrirtækið er þegar með þrjár dreif-
ingarmiðstöðvar í Frakklandi og er
stefnt að því að sú fjórða taki til starfa á
öðrum ársfjórðungi á næsta ári.
Atvinnuleysi hefur aukist jafnt og
þétt í Frakklandi undanfarin misseri og
ekki algengt að fyrirtæki skapi jafn-
mörg störf á einu bretti og Amazon
stefnir að.
2.500 ný störf hjá
Amazon í Frakklandi
● Alls var 123 kaupsamningum um
fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæð-
inu 16. nóvember til og með 22. nóv-
ember 2012. Þar af voru 93 samningar
um eignir í fjölbýli, 23 samningar um
sérbýli og sjö samningar um annars
konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heild-
arveltan var 4.608 milljónir króna og
meðalupphæð á samning 37,5 milljónir.
Á sama tíma var fimm kaupsamn-
ingum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af
var einn samningur um eignir í fjölbýli,
þrír um sérbýli og einn um annars kon-
ar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildar-
veltan var 92 milljónir króna og með-
alupphæð á samning 18,3 milljónir.
Í frétt á vef Þjóðskrár Íslands kemur
fram að sjö kaupsamningum var þing-
lýst á Akureyri. Þar af voru fimm samn-
ingar um eignir í fjölbýli og tveir um sér-
býli. Heildarveltan var 110 milljónir og
meðalupphæð á samning 15,7 milljónir.
Á sama tíma var tíu kaupsamningum
þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru
þrír samningar um eignir í fjölbýli og
sex um sérbýli. Heildarveltan var 203
milljónir króna og meðalupphæð á
samning 20,3 milljónir króna.
Veltan var 4,6 milljarðar
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
,11.23
+,4.+4
,+.505
,,.++-
+0.02/
+/3.00
+.-,53
+2,.,
+4,.-+
+,-.40
,1+.3/
+,4.-/
,+.0-+
,,.+0
+0.230
+/-.,4
+.-/+2
+2,.55
+4,.24
,,3.3315
+,-.20
,1+.2,
+,4.2
,+.2+-
,,.,3-
+2.11/
+/-.43
+.-/43
+2/./3
+4/.3+
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Í kjölfar frétta í gærmorgun um
könnun sérstaks saksóknara á
meintri markaðsmisnotkun ALMC
hf. (áður Straumur-Burðarás fjár-
festingabanki hf.) vill Straumur
fjárfestingabanki hf. koma því á
framfæri að málið tengist ekki á
nokkurn hátt bankanum.
Segir Pétur Einarsson, forstjóri
Straums fjárfestingabanka, í til-
kynningu að bankinn hafi verið
tengdur við rannsóknina án
ástæðu. „Þrátt fyrir þessa augljósu
staðreynd er ekki hægt að skilja
umfjöllun sumra fjölmiðla öðruvísi
en þannig að málið beinist að
Straumi fjárfestingabanka hf. Í
sumum fréttum hefur verið vísað í
nafnið „Straumur“ og birtar mynd-
ir af logoi Straums fjárfestinga-
banka hf. sem er allt annar aðili en
sá sem málið beinist að,“ segir í til-
kynningu frá Straumi fjárfesting-
arbanka.
Ótengt
Straumi
A World of Service
Við erum í hádegismat
Við bjóðum upp á hollan og
góðan hádegisverð alla virka
daga fyrir fjölbreyttan hóp
viðskiptavina.
Þrjá daga vikunnar
bjóðum við að auki upp á
grænmetisrétt – til að
mæta þörfum sem flestra.
Skoðaðu matarmálin hjá
þér og vertu í samband við
veitingasvið ISS.
www.iss.is - sími 5 800 600.
”Ég eldaði fyrir
890 manns í
hádeginu”
Mér finnst frábært að
elda venjulegan heimilismat
og heyra ”takk fyrir góðan mat”