Morgunblaðið - 27.11.2012, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 27.11.2012, Blaðsíða 35
tímavörslu og undirbúningsnefnd um Norrænan skjaladag. Nýtur ferðalaga til hins ýtrasta Svanhildur hefur sérstakt dálæti á ferðalögum: „Ég var búsett um skeið í New York og í Den Haag í Hollandi. Þetta eru mjög ólíkir staðir en hafa samt togað í mig síðan, hvor um sig, enda hef ég reynt að heimsækja þessar borgir og lönd eins oft og ég hef tækifæri til. Ég nýt þess að ferðast á öllum tím- um ársins. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á því að ferðast og kynnast öðrum þjóðum, nær og fjær. Mér er t.d. sérstaklega minn- isstætt ferðalag um hluta Rússlands um hávetur, þegar úti var um -35 gráða frost. Það var lærdómsríkt að kynnast kjörum fólks þarna og að- stæðum en alls staðar var mér tekið opnum örmum. Þegar ég ferðast er ég ekki ein- göngu að elta uppi söfn og sögufræga staði heldur nýt ég þess að þvælast um í fjölbreyttu mannhafinu, skoða markaði og kynnast lífi fólksins. Sama er að segja um ferðalög inn- anlands. Það er frábært að ferðast um landið okkar og upplifa nálægð þess. Ekki þjóta sem lengst á hverj- um degi, heldur koma víða við og njóta þess sem umhverfið hefur upp á að bjóða. Við eigum alveg ein- staklega fjölbreytta náttúru og blæ- brigði veðursins auka á síbreytileik- ann. Ég les mikið, einkum skáldsögur og fræðirit. Þá hlusta ég mikið á tón- list af öllu tagi, allt eftir aðstæðum og eigin stemningu hverju sinni. Lík- lega er uppáhaldstónlistin rokk- tónlist og framsækin fersk tónlist. Ég miða oft ferðalög mín við tónleika erlendis en meðal eftirminnilegustu tónleika sem ég hef sótt erlendis eru tónleikar með Jethro Tull í London; Red Hot Chili Peppers; Foo Fig- hters, Blonde Redhead í New Jersey og Santana í Hollandi. Þá eru ótaldir ýmsir frábærir klassískir tónleikar, til dæmis uppfærsla á óperunni Waz- zeck eftir Alban Berg sem ég sá í Stokkhólmi. Fjölskylda Fyrri maður Svanhildar 1985-1999 var Ríkharður Helgi Friðriksson, f. 5.11. 1960, tónskáld og tónlistarkenn- ari. Hann er sonur Friðriks Péturs- sonar, kennara í Kópavogi, og k.h., Jóhönnu H. Sveinbjörnsdóttur hús- freyju. Dætur Svanhildar og Ríkharðs eru Jóhanna Vigdís Ríkharðsdóttir, f. 8.8. 1991, læknanemi; Kristín Helga Ríkharðsdóttir, f. 14.3. 1993, mynd- listarnemi. Núverandi maður Svanhildar er Friðrik Vignir Stefánsson, f. 18.1. 1962, organisti og tónlistarkennari. Foreldrar hans eru Anna Magdalena Jónsdóttir, f. 2.8.1930, húsfreyja, og Stefán Jón Ananíasson, f. 1925, bíl- stjóri. Dóttir Svanhildar og Friðriks er Rósa Dís Friðriksdóttir, f. 26.12. 2004. Systkini Svanhildar eru Kristín Bogadóttir, f. 6.9. 1966, búsett í Reykjavík; Diðrik Sveinn Bogason, f. 5.9. 1974, búsettur í Taívan. Foreldrar Svanhildar eru Bogi Helgason f. 28.4. 1939, húsasmiður, og k.h., Gíslína Vigdís Guðnadóttir, f. 13.7. 1940, fulltrúi. Úr frændgarði Svanhildar Bogadóttur Svanhildur Bogadóttir Gíslína Pálína Jónsdóttir húsfr. Vigfús Benediktsson frá Oddakoti á Álftanesi Kristín Vigfúsdóttir húsfr. í Rvík. Guðni Jónsson sjóm. í Rvík Gíslína Vigdís Guðnadóttir húsfr. í Kópavogi Guðrún Guðnadóttir húsfr. í Grashúsum Jón Diðriksson b. í Grashúsum á Álftanesi Guðríður Björnsdóttir vinnukona Gísli Eiríksson vitavörður Helgi Gíslason verkam. í Rvík Svanhildur Bogadóttir húsfr. í Rvík Bogi Helgason húsasmiður í Kópavogi Vigdís Þorvarðardóttir húsfr. í Varmadal Bogi Þórðarson b. í Varmadal á Rangárvöllum Þórður Bogason oddviti á Hellu á Rangárvöllum Bogi Vignir Þórðarson loftskeytam. í Rvík Þórður Bogason lögmaður Stella Guðnadóttir húsfr. í Rvík Guðni Kjartansson aðstoðarskólastj. Bragi Guðnason skipasmiður í Rvík. Sigurður Bragason óperusöngvari og söngkennari Guðni Bragason deildarstj. í utan- ríkisráðuneytinu Afmælisbarnið Svanhildur Boga- dóttir borgarskjalavörður. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012 Ásgerður Sverrisdóttir, krabbameins- læknir á LSH, hefur lokið doktorsnámi við Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Doktorsritgerðin nefnist „Adjuvant ta- moxifen and luteinizing hormone- releasing hormone agonists in pre- menopausal breast cancer; on long- term benefits and side effects in a ran- domised study“, eða „Tamoxífen og gulbúsvakalosandi hormón (LHRH) í viðbótarskyni meðal kvenna fyrir tíða- hvörf með brjóstakrabbamein; slembi- rannsókn á langtíma gagnsemi og aukaverkunum“. Rannsóknin var gerð í því skyni að kanna gagnsemi LHRH-örvans góserel- íns í viðbótarmeðferð kvenna fyrir tíða- hvörf með brjóstakrabbamein, þýðingu milliverkana góserelíns og tamoxífens og áhrifa magns estrógen-viðtakans. Einnig voru skoðaðar langtíma auka- verkanir með tilliti til virkni eggja- stokka, beinþéttni og beinumsetningar. Rannsóknin var gerð á 927 konum þar sem gefin var meðferð með slembivali í 2 ár með tamoxífeni, tamoxífeni að við- bættu góserelíni, góserelíni eða engri hormónameðferð. Metin var gagnsemi meðferðarinnar, áhrif magns estrógen- viðtakans ásamt áhrifum á eggja- stokkastarfsemi, beinþéttni og bein- umsetningu. Konunum var fylgt eftir í 12 ár að meðaltali. Helstu niðurstöður sýndu að tamoxífen gefið með góserel- íni gaf ekki ávinning umfram meðferð með tamoxífeni einu sér eða góserelíni einu sér með tilliti til lifunar án end- urkomu sjúkdóms. Góserelín-meðferð lækkar beinþéttni og eykur beinumsetningu en þau áhrif eru mun minni þegar tamoxífen er gefið með góserelíni. Ennfremur virðist gós- erelín hafa viss verndandi áhrif á eggja- stokkavirkni.  Ásgerður útskrifaðist með kandí- datspróf frá Læknadeild Háskóla Ís- lands 1989 og var við framhaldsnám og störf í krabbameinslækningum á Karol- inska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi 1989- 2005 en hefur síðan verið starfandi krabbameinslæknir á Landspítala – Há- skólasjúkrahúsi. Foreldrar hennar eru Dóra Bergþórsdóttir, húsmóðir og Sverrir Erlendsson skipstjóri, d. 1991. Sambýlismaður er Steinn Auðunn Jónsson nýburalæknir og eiga þau syn- ina Sverri, háskólanema, f. 1990 og Ax- el menntaskólanema, f. 1994 og Steinn á að auki Hákon, lyfjafræðing, f. 1982. Doktor Doktor í læknisfræði 90 ára Matthías Jónsson 85 ára Aðalsteinn Bjarnason Guðmunda Hermannsdóttir 80 ára Anna María Pálsdóttir Einar Kristinn Karlsson Jón Pétursson Karl Stefánsson Magnea Jónsdóttir Magnús Sigurjónsson Pétur Björnsson Sigríður Jónsdóttir 75 ára Baldur Ólafsson Edda Þorkelsdóttir Óli Sveinn Bernharðsson Sigríður K. Skarphéðinsdóttir Svava Stefánsdóttir Þórgrímur Björnsson 70 ára Áslaug Sigurjónsdóttir Þorvaldur Jónsson Örn Sævar Daníelsson 60 ára Bragi Ágústsson Guðmundur B. Guðbjörnsson Ingileif Jónsdóttir Laufey Hrönn Þorsteinsdóttir Leifur Jónsson Magnús Björn Björnsson Svanhildur H. Gunn- arsdóttir Þorsteinn Guðmundsson 50 ára Barbara Maria Poranska Björn Hersteinn Herbertsson Emelía Bára Jónsdóttir Gunnhildur H. Gunnlaugsdóttir Jóhann Axel Geirsson Jónas Gunnarsson Maria Goslinska Páll Elfar Pálsson Sigurbjörg Ólafsdóttir Þórunn Hafdís Karlsdóttir Þuríður Guðmundsdóttir 40 ára Ausra Basiene Bjargey Ólafsdóttir Bjarki Guðnason Bjarki Þór Magnússon Erlingur Guðbjörnsson Eydís Auðunsdóttir Guðmundur Kristinn Pétursson Gunnar Vigfús Gunnarsson Ragnheiður Líney Pálsdóttir Sigrún Elsa Smáradóttir Steinunn Þórhallsdóttir 30 ára Alexander Jensson Elín Hermannsdóttir Grzegorz Kulesza Marta Bukowska Ric Ian Orongan Alilin Sara Eleonora Makocka Vilborg Hrund Kolbeinsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Ragnheiður lauk BA-prófi í uppeldisfræði við Hovedstadens Pæda- gog Seminarium í Kaup- mannahöfn og er leik- skólakennari. Maki: Gunnar Þ. Leifsson, f. 1978, sálfræðingur. Börn: Elísa Margrét, f. 2009, og Sindri, f. 2012. Foreldrar: Rannveig Jónsdóttir, f. 1954, leik- skólakennari, og Jens Ólafur Bogason, f. 1955, hjúkrunarfr. í Noregi. Ragnheiður Ósk Jensdóttir 40 ára Svava ólst upp á Drangsnesi, lauk MA-prófi í skjalastjórn frá North- umbria University í New- castle og er skjalastjóri hjá Arion banka. Dætur: Auður Björk, f. 2012, og Guðrún Hall- dóra, f. 2012. Foreldrar: Sigurbjörg Halldóra Halldórsdóttir, f. 1947, húsfreyja á Drangs- nesi, og Friðgeir Hösk- uldsson, f. 1947, útgerð- armaður á Drangsnesi. Svava Halldóra Friðgeirsdóttir 30 ára Finnur ólst upp á Blönduósi, lauk stúdents- prófi frá Framhaldsskól- anum í Austur- Skaftafellssýslu og starfar hjá Nettó á Höfn. Börn: Karen Hulda, f. 2007, og Hlynur Ingi, f. 2010. Foreldrar: Björn Vignir Björnsson, f. 1961, at- hafnamaður á Blönduósi, og Hólmfríður Sigrún Óskarsdóttir, f. 1961, skólaliði á Blönduósi. Finnur Karl Vignisson HEITT & KALT Sími: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is | www.heittogkalt.is Hátíðarstemning að þínu vali: Þægileg jólaveisla Heimilisleg jólaveisla Klassísk jólaveisla Jólasmáréttir Jólaveisla sælkerans Verð á mann frá: 4.890 kr. Allar upplýsingar og matseðlar á www.heittogkalt.is Jólaveisla Fyrirtækja- og veisluþjónusta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.