Morgunblaðið - 11.01.2013, Síða 1

Morgunblaðið - 11.01.2013, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 1. J A N Ú A R 2 0 1 3  Stofnað 1913  8. tölublað  101. árgangur  VINSÆLAR OG LOFSUNGNAR MYNDIR HVERJIR SLÁ Í GEGN Á SPÁNI? HELGARFRÍ Á MILLI MENNTA- OG HÁSKÓLA SÉRBLAÐ UM HM 2013 BJARKI ÞÓR GRÖNFELDT 10FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ 38 Ljósmynd/Einar Á.E. Sæmundsen Örtröð Oft er mikil umferð á og við Hakið og brýn þörf á því að bæta aðstöðuna.  Mikið álag er á Hakinu við Þing- velli yfir sumartímann og stundum örtröð, enda talið að um hálf millj- ón manna staldri þar við á ári hverju. Vonir standa til að fram- kvæmdir hefjist á næstu vikum við stækkun fræðslumiðstöðvarinnar á Hakinu og fjölgun bílastæða. Ekkert er ákveðið með aðra upp- byggingu á Þingvöllum, en Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður gerir sér vonir um að framkvæmdir við veitingahús í stað Valhallar geti hafist á næsta ári. Ólafur Örn vill að í byggingunni verði aðstaða fyr- ir fundi Alþingis. „Slíkt er einfald- lega samofið sögu staðarins og eðli- legt að Alþingi eigi þar ríkan þátt,“ segir Ólafur. »17 Úrbætur við Hakið og mögulega byrjað á veitingahúsi 2014 Bætt vinnubrögð » Stjórn Samtaka atvinnulífs- ins leggur til að samningsað- ilar á almennum og opinberum vinnumarkaði bæti vinnubrögð við gerð kjarasamninga. » Vill stjórnin horfa til ná- grannaríkja sem tekist hafi að tryggja kaupmáttaraukningu samfara lítilli verðbólgu. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Samninganefnd Alþýðusambands Ís- lands samþykkti á fundi í gærkvöldi að hitta fulltrúa Samtaka atvinnulífs- ins á fundi í dag til að ræða útspil vinnuveitenda vegna endurskoðunar kjarasamninga sem nú stendur yfir. „Við viljum sjá hvort hægt er að spinna eitthvað úr þessum þræði,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, eftir fundinn. Stjórn SA lýsti sig reiðubúna til viðræðna við ASÍ og landssambönd þess um að stytta samningstíma kjarasamninga um einn mánuð, til 31. desember nk., og hefja viðræður um undirbúning næstu kjarasamninga. Stjórnin mun leita eftir samstöðu með ASÍ um meginþætti atvinnustefnu og reyna að fá fram afstöðu stjórnmála- flokkanna fyrir komandi alþingis- kosningar. Eftir myndun nýrrar rík- isstjórnar gefist möguleiki til að fullvinna raunhæfa aðgerðaáætlun til næstu ára. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, segir að með þessu sé stjórn SA að taka mið af reynsluheimi sam- skipta við núverandi ríkisstjórn. Hún hafi svikið allt jafnóðum sem lofað var. Gylfi Arnbjörnsson segir að fulltrú- um ASÍ þyki boð SA um styttingu samningstíma heldur lítið. Þá vilji ASÍ einnig ræða um forsendur verð- lagsmála. Þótt ekki sé gert lítið úr mikilvægi atvinnumála sé verðbólgan mesta ógnin við kjör launafólks. MVilja samstöðu »2 Reynt að spinna úr þræði  SA tilbúið að stytta samningstíma og vill viðræður um sameiginlega atvinnustefnu  Forseti ASÍ telur verðbólgu mestu ógnina  Samninganefndir funda í dag Fjallagarpur Andri Kristinsson á leið sinni upp á Aconcagua. „Þetta er sá sjúkdómur sem dregur flesta háfjallamenn til dauða. Ég fékk strax súrefni og það var spraut- að í mig sterum, ég fékk líka eina Viagratöflu til að koma blóðinu af stað. Þetta er víst eitthvert há- fjallabragð sem þeir nota. Síðan var kallað á þyrlu vegna bráðatilfellis og ég fluttur umsvifalaust niður,“ segir Andri Kristinsson, viðskipta- fræðinemi við Stanford-háskóla og þaulvanur fjallamaður, sem gekk ásamt hópi Bandaríkjamanna á hæsta fjall Ameríku, Aconcagua í Argentínu, nokkru fyrir jól. Fjallið er um 7.000 metra hátt en í 4.300 m hæð fékk Andri háfjalla- lungnabjúg. Hann minnir óvant fólk á að Aconcagua sé varasamt og dauðsföll í hlíðum þess fleiri en á nokkrum öðrum þekktum fjöllum. Nokkrum dögum eftir það sem henti Andra dóu tveir menn í fjallinu eftir að hafa veikst af háfjallalungnabjúg. Tómas Guðbjartsson læknir tekur undir varnaðarorð Andra en í Morg- unblaðinu sl. helgi greindi Halla Vil- hjálmsdóttir leikkona frá ferð sinni á sama fjall, en hún hafði enga reynslu í fjallaklifri eða naut leiðsagnar. »16 Var hætt kominn á fjallinu  Veiktist á hæsta fjalli Ameríku  Segir fjallið varasamt Í skammdeginu taka skuggarnir á sig margar og skemmtilegar myndir. Konan sem gekk framhjá menn- ingarmiðstöðinni Hafnarborg í Hafnarfirði var ein á ferð en engu að síður í góðum félagsskap. Á gangi í góðum félagsskap Morgunblaðið/Golli  Kveikt verður á blysum eftir allri gossprung- unni sem opn- aðist í eldgosinu í Heimaey 23. janúar 1973. Þess verður minnst með margvíslegum hætti í Eyjum að 40 ár eru liðin frá upphafi eldgossins. Gosminn- ingarhátíðin verður á lág- stemmdum nótum. Síðar á árinu verða fleiri viðburðir, meðal ann- ars vegleg Goslokahátíð í byrjun júlí. »12 Blys á allri gossprungunni Jón S. von Tetzchner, annar stofnandi norska hugbúnaðarfyrirtækisins Opera, hefur komið með 1,1 milljarð króna til landsins í gegnum fjárfest- ingarleið Seðlabankans. „Ég hef mikla trú á Íslandi,“ segir hann í sam- tali við Morgunblaðið. „Það er ekki enn búið að fjárfesta fyrir alla þessa fjármuni. En það er gott að hafa þá til reiðu því ég hef trú á því að álitleg fjárfestingartækifæri finnist.“ Hann hefur fjárfest í nokkrum at- vinnufasteignum og tveimur tölvufyr- irtækjum hér á landi: OZ, sem hefur þróað nýja aðferðafræði við að dreifa sjónvarpsútsend- ingu í háskerpu á netinu, og Ís- lenskum vefversl- unum. Fjárfestinga- leið Seðlabankans gengur út á að fjárfestar komi með gjaldeyri til landsins og skipti honum fyrir krón- ur og fjárfesti hér til lengri tíma. Gul- rótin fyrir fjármagnseigendur er að þeir fá 20% afslátt af krónunum. »18 Jón von Tetzchner kom með milljarð Jón S. von Tetzchner Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi ráðherra og einn hugmyndafræð- inga VG í umhverfismálum, segir að áform um olíuleit á Drekasvæðinu gangi í berhögg við stefnu VG í lofts- lagsmálum. „VG hefur einn flokka verið með ákveðna stefnu í loftslagsmálum og hún hefur heldur betur riðlast með útgáfu þessara sérleyfa,“ segir Hjör- leifur. Hann segir fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu umhverfismála og að allir flokkar þyrftu að skoða sína stöðu í því samhengi. Spurður um þörf fyrir nýjan umhverfisflokk seg- ist Hjörleifur vonast til að menn vakni og á það verði að reyna hvort það gerist í núverandi flokkum eða með nýjum. »15 Morgunblaðið/Skapti VG Steingrímur J. setur landsfund. Olíuleit gegn stefnu VG

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.