Morgunblaðið - 11.01.2013, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.01.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Smurostar við öll tækifæri ms.is H VÍ TA H Ú SI Ð / SÍ A -1 1- 05 09 g g H VÍ TA H Ú S ... ný bra ðte und SI Ð / SÍ A -1 1- 05 09 Ný bragðtegund með pizzakryddi Ný viðbót í ... ... baksturinn ... ofnréttinn ... brauðréttinn ... súpuna eða á hrökkbrauðið Friðlandið við Vífilsstaðavatn er eftirsóknarvert til útivistar á öllum tímum árs. Lífríki vatnsins er fjölbreytt og góð aðstaða til að njóta náttúr- unnar, meðal annars útivistarstígur hringinn í kringum vatnið og slóði upp í Grunnavatns- skarð. Þótt veður fari heldur kólnandi er ekki að sjá annað en vel klæddir íbúar höfuðborg- arsvæðisins geti áfram notið útivistar við Vífils- staðavatn næstu daga. Friðlandið við Vífilsstaðavatn er útivistarparadís á öllum tímum árs Morgunblaðið/Golli Vel klæddir íbúar geta áfram notið útivistar Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það skiptir þá ekki máli hvaða flokkar taka við eftir kosningar, þeim yrði algerlega ljóst hver af- staða okkar er,“ segir Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka at- vinnulífsins, um þá samþykkt stjórn- ar SA að leita eftir samstöðu með Al- þýðusambandi Íslands um meginþætti atvinnustefnu sem lögð yrði fyrir stjórnmálaflokkana fyrir komandi alþingiskosningar. Forseti ASÍ segir að í slíku samráði þyrfti einnig að fjalla um það hvernig ætti að halda aftur af verðbólgunni. Í samþykkt stjórnar SA er lýst yf- ir vilja til viðræðna við ASÍ og lands- sambönd þess um að stytta samn- ingstíma núgildandi kjarasamninga um mánuð, til 31. desember 2013. ASÍ hefur lagt til rauð strik og enn frekari styttingu samningstíma. „Samtökin telja í því samhengi nauð- synlegt að samningsaðilar hefji nú þegar vinnu vegna næstu kjara- samninga sem þarf að felast í mótun á sameiginlegri sýn á getu atvinnu- lífsins og samfélagsins til launa- hækkana og aukins kaupmáttar á næstu árum. Ennfremur þarf að hefja sameiginlega stefnumörkun til að tryggja vöxt og viðgang atvinnu- lífsins og efnahagslegan stöðugleika sem eru forsendur framfara og bættra lífskjara,“ segir í samþykkt stjórnar SA. Samtökin vilja á næstu vikum leita samstöðu með Alþýðusambandinu um meginþætti atvinnustefnu sem hefur hagvöxt, fleiri og betri störf og bætt lífskjör á grunni stöðugleika að markmiði. Niðurstaða þeirrar vinnu yrði lögð fyrir stjórnmálaflokkana til þess að ná fram afstöðu þeirra fyrir komandi kosningar. Eftir kosningar og myndun nýrrar ríkisstjórnar gef- ist síðan möguleiki til að fullvinna raunhæfa aðgerðaáætlun til næstu ára. Vilmundur segir að með þessu sé stjórn SA að taka mið af reynslu- heimi samskipta við núverandi rík- isstjórn. Hún hafi svikið allt jafnóð- um sem lofað var. Þá segir hann mikilvægt að bæta vinnubrögð við gerð kjarasamninga og gera þau markvissari. Fagnar vilja til viðræðna „Það er fagnaðarefni að Samtök atvinnulífsins eru komin inn á það að ræða við okkur um lausnir og kalla eftir samstöðu í atvinnumálum,“ seg- ir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, þegar viðbragða hans er leitað. Hann segist hins vegar sakna þess að sjá fjallað um aðgerðir gegn verð- bólgu í yfirlýsingu SA. „Við hljótum að eiga samræður um það á hvaða grundvelli við ætlum að móta stefnu í gengis- og verðlagsmálum.“ Vilja samstöðu um atvinnustefnu  Stjórn Samtaka atvinnulífsins tilbúin að stytta samningstímann um mánuð og hefja viðræður við ASÍ um undirbúning næstu kjarasamninga  ASÍ vill einnig ræða varnir gegn verðbólgunni Vilmundur Jósefsson Gylfi Arnbjörnsson Nokkrir fyrrverandi atvinnuleitend- ur hafa undanfarna daga haft sam- band við Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík í kjölfar bréfa sem þeir hafa fengið þar sem Greiðslustofa Vinnumálastofnunar er að innheimta skuldir vegna ofgreiddra atvinnu- leysisbóta. Um er að ræða einstak- linga sem á sínum tíma fengu tiltekið hlutfall af atvinnuleysisbótum á móti skertu starfshlutfalli. Aðalsteinn Á. Baldursson, formað- ur stéttarfélagsins Framsýnar segir kröfurnar sem fólk hefur fengið á sig á bilinu 30-200 þúsund krónur og hafi þær orðið til 2009-2010. Hann furðar sig á vinnubrögðum Vinnu- málastofnunar og þykir með ólíkind- um að innheimtar skuli skuldir allt að þremur árum eftir að til þeirra var stofnað. Þá þykir honum ámæl- isvert að bréfunum fylgi engir út- reikningar eða nánari skýringar. Að- alsteinn segir að stéttarfélagið sé að skoða málið bæði með sínum lög- fræðingum og lögfræðingum ASÍ. Innheimta þriggja ára gamlar skuldir  Fyrrverandi atvinnuleitendur rukkaðir Morgunblaðið/Ómar Skuld Fyrrverandi atvinnuleitendur fá bakreikninga þessa dagana. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurð- ardóttir, áréttar í pistli á heima- síðu embættisins að prestar og forysta safnaða þjóðkirkjunnar eigi að gæta var- úðar og fylgja starfs- og siða- reglum þjóð- kirkjunnar. Agnes segir það þyngra en tárum taki að það al- varlega kynferð- isbrotamál sem nú er í hámæli í samfélaginu skuli hafa viðgengist um áratuga skeið. Hugur hennar og hjarta sé með þeim sem brotið hafi verið á. Í Kastljósþætti í gærkvöldi kom fram að biskup segði Sigurð Jóns- son, sóknarprest í Áskirkju hafa brotið reglur kirkjunnar þegar hann tilnefndi Karl Vigni Þor- steinsson sem nú situr í gæslu- varðhaldi, til að þiggja viðurkenn- ingu frá þjóðkirkjunni. Í þættinum kom fram að biskup mundi funda með sóknarnefnd og prestinum í Áskirkju á næstunni. » 14 Biskup minnir á starfsreglur Agnes M. Sigurðardóttir  Mun funda með sóknarpresti í Áskirkju Kjarasamningar aðildarfélaga ASÍ við Samtök atvinnulífsins gilda frá 5. maí 2011 til 31. jan- úar 2014. Nú stendur yfir end- urskoðun, út frá þróun for- sendna. Niðurstaða þarf að liggja fyrir 21. janúar næstkom- andi þegar frestur til að segja samningunum upp rennur út. Laun hækka um 3,25% 1. febr- úar, ef samningar gilda áfram. Niðurstaða 21. janúar ENDURSKOÐUN SAMNINGA Inflúensa færist nú í aukana hér á landi eins og í nálægum lönd- um, samkvæmt upplýsingum sóttvarnalæknis. Á Íslandi hafa tvær gerðir inflúensunnar einkum verið áberandi og er önnur þeirra svínainflúensan frá 2009 en hún er nú orðin að árlegri inflúensu. Tekið er fram að inflúensa sé oftast skaðlaus þeim sem hraustir eru en geti valdið alvarlegum ein- kennum, sérstaklega hjá þeim sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Inflúensan hafi verið staðfest í öllum landshlutum nema í Vest- mannaeyjum og á Vestfjörðum. Inflúensa að aukast Flensa Tvær teg- undir eru algengar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.