Morgunblaðið - 11.01.2013, Page 7

Morgunblaðið - 11.01.2013, Page 7
Komdu og skoðaðu Volvo XC60 í Brimborg í dag. opið kl. 9-17 virka daga og kl. 12-16 laugardaga. Mikil eftirspurn eftir notuðum Volvo. Gerðu góð skipti. Settu Notaða bílinn uppí nýjan Volvo. Lestu meira um sportjeppann Volvo XC60 á volvo.is • Borgaröryggi • SIPS hliðarárekstrarvörn • WHIPS bakhnykksvörn • Bluetooth símatengi • Nálægðarskynjarar að aftan • Brekkubremsa • 23 cm undir lægsta punkt Sá hæfasti kemst af Skoðaðu Volvo XC60. Sjáðu öryggið í snilldinni. Lifðu í lúxus. Veldu volvo. Komdu í Brimborg í dag. Volvo XC60 er margverðlaunaður sportjeppi frá Volvo. Komdu í Brimborg og sjáðu sportjeppann sem sameinar framúrskarandi aksturseiginleika fólksbílsins og notagildi jeppans. Sjáðu bílinn sem sækir innblástur sinn í jafnvægi, fegurð og látleysi skandinavískrar hönnunar. Njóttu þæginda og hlýju rúmgóðs innanrýmis í harðneskjulegri veðráttu norðlægra slóða. Volvo XC60 er búinn framúrskarandi öryggisbúnaði enda hefur bíllinn hlotið margvíslegar viðurkenningar. Hann var kosinn sportjeppi ársins af bílablaðinu What Car* og fékk hæstu einkunn í árekstrarprófunum Evrópsku umferðaröryggisstofnunarinnar (EuroNCAP) og Bandarísku umferðaröryggisstofnunar- innar (NHTSA). Komdu í Brimborg og sjáðu glæsilegan og vel útbúinn Volvo XC60. Sjáðu hvað snilldin veitir þér mikið öryggi. * http://www.automobilesreview.com/auto-news/volvo-xc60-what-car-winner/8980/ FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Ekki er talið að tveir erlendir karl- menn sem stöðvaðir voru á Kefla- víkurflugvelli með kókaín í fórum sínum nýlega tengist. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú málin tvö. Mennirnir voru báðir einir á ferð en annars vegar er um fertugan mann frá Senegal, búsettan á Spáni, að ræða og hins vegar rúm- lega fertugan Rússa. Sá fyrrnefndi var stöðvaður við landamæraeftirlit en að sögn lög- reglu vaknaði fljótlega grunur um að hann hefði fíkniefni í fórum sín- um. Reyndist hann vera með rúm- lega hálft kíló af kókaíni innvortis. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er ekki vitað til þess að maðurinn hafi áður komið til Íslands en mögulegt er að hann hafi tengst fíkniefnamálum erlendis. Hann hef- ur verið úrskurðaður í gæsluvarð- hald til 11. janúar. Ekkert hefur komið fram um hugsanlega íslenska tengiliði mannsins og enginn annar hefur verið handtekinn vegna máls- ins. Var með kókaín á sér Hinn maðurinn er nú í farbanni en hann var stöðvaður við hefð- bundið tolleftirlit á flugvellinum vegna gruns um að hann væri með fíkniefni. Við leit á honum fundust 300 grömm af kókaíni. Maðurinn var að koma frá París þegar hann var tekinn höndum. Lögreglan hefur yfirheyrt nokkra í tengslum við málið en eng- inn hefur verið handtekinn vegna hugsanlegrar aðildar. Fíkniefnin fundust í kjöl- far landamæraeftirlits  Handteknir á Keflavíkurflugvelli með kókaín í fórum sínum Morgunblaðið/ÞÖK Landamæri Annar maðurinn er frá Senegal en hinn Rússlandi. Sérstakur saksóknari hefur ákært fyrrverandi starfsmann flokkahóps íhaldsmanna í Norðurlandaráði fyrir umboðssvik á árunum 2009 til 2011. Maðurinn sveik út rúmar 19 millj- ónir króna á tímabilinu og tók til dæmis sjaldnast minna út úr hrað- bönkum en 100 þúsund krónur í einu. Maðurinn sem er þrítugur, nú með lögheimili í Rúmeníu, var ritari flokkahóps íhaldsmanna í Norður- landaráði. Sem slíkur hafði hann að- stöðu á skrifstofu Sjálfstæðisflokks- ins í Valhöll en var ekki starfsmaður flokksins. Vegna starfa sinna fékk hann þó kreditkort frá Sjálfstæðis- flokknum og var honum ætlað að greiða með því útgjöld tengd störf- um flokkahópsins. Grunsemdir vöknuðu á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins og fór svo að flokkurinn kærði manninn til efna- hagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra í apríl 2011. Þegar málið kom upp hvarf maðurinn sporlaust. Utanrík- isráðuneytið var beðið um aðstoð við að hafa uppi á honum og fannst hann í New York. 321 úttekt af korti Í ákæru sem gefin var út 18. des- ember sl. er maðurinn ákærður fyrir að misnota aðstöðu sína og skuld- binda Sjálfstæðisflokkinn þegar hann í 321 skipti notaði kreditkort flokksins til úttekta á reiðufé, kaupa á vörum og þjónustu fyrir 19,4 millj- ónir króna. Hann tók til dæmis 100 þúsund krónur út úr íslenskum hrað- bönkum í 82 skipti. Margar háar út- tektir voru hjá flugfélögum og raun- ar víða um lönd. Hæsta einstaka færslan nam 510 þúsund krónum vegna viðskipta við úrsmíðameistara í Vínarborg í september 2010. Sjálfstæðisflokkurinn gerir þá kröfu í málinu að maðurinn verði dæmdur til að greiða flokknum upp- hæðina alla, þ.e. 19,4 milljónir króna, auk vaxta. Þá er þess krafist að mað- urinn greiði flokknum málskostnað að skaðlausu. andri@mbl.is Sveik út 19 millj- ónir af kreditkorti  Fv. starfsmaður flokkahóps ákærður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.