Morgunblaðið - 11.01.2013, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013
Hluti af leiktjöldunum í aðildar-viðræðunum var að skipa sér-
staka „samninganefnd“ og skipa
„aðalsamningamann“, þótt ESB
taki skýrt fram að engar samninga-
viðræður fari fram
og biðji sérstaklega
um að þjóð sem sæk-
ir um aðild blekki
ekki íbúa sína í þeim
efnum. Þess vegna
láta þeir búrókrat-
ann, sem íslenski
„aðalsamningamað-
urinn“ afhendir
áfangaskýrslur um aðlögun, heita
„stækkunarstjóra“.
Vinstri vaktin skrifar: Það erfróðlegt að skoða þau skjöl
sem lýsa samningsafstöðu Íslands í
ýmsum málum í viðræðum við Evr-
ópusambandið.
Þar er í meginatriðum sagt að Ís-land fallist á regluverk ESB
eins og það liggur fyrir og að áður
en af mögulegri aðild geti orðið
muni Ísland vera búið að ljúka inn-
leiðingu á öllu regluverki sem ekki
hefur þegar verið innleitt.
Í ljósi þessa á sér nú stað um-fangsmikil aðlögun að reglu-
verki sem stór hluti íslenska stjórn-
kerfisins tekur þátt í á fullu.
Þjóðin hefur verið blekkt. Þaðeru ekki samningaviðræður
sem eru í gangi, heldur aðlögunar-
viðræður sem miða að því að búið
verði að uppfylla öll helstu skilyrði
ESB þegar mögulegur samningur
liggur fyrir.“
Samningaviðræður er sagðarhafa staðið á fjórða ár. Hverju
hefur „nefndin“ náð fram í þeim
samningum? Er nefndin launuð? Ef
svo er hefur hún samvisku til að
þiggja þau laun?
Stefán Haukur
Jóhannesson
Ósvífin
blekkingariðja
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.1., kl. 18.00
Reykjavík 3 rigning
Bolungarvík 2 alskýjað
Akureyri 2 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 5 alskýjað
Vestmannaeyjar 6 alskýjað
Nuuk -8 alskýjað
Þórshöfn 5 alskýjað
Ósló -1 alskýjað
Kaupmannahöfn 0 skýjað
Stokkhólmur -2 snjókoma
Helsinki -5 snjóél
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 3 skýjað
Dublin 7 skýjað
Glasgow 2 þoka
London 2 skýjað
París 7 skýjað
Amsterdam 7 skýjað
Hamborg 1 skýjað
Berlín 2 skýjað
Vín 5 skýjað
Moskva -12 alskýjað
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 11 léttskýjað
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 11 skúrir
Aþena 8 heiðskírt
Winnipeg -2 alskýjað
Montreal 2 alskýjað
New York 6 heiðskírt
Chicago 3 alskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:03 16:09
ÍSAFJÖRÐUR 11:38 15:45
SIGLUFJÖRÐUR 11:22 15:26
DJÚPIVOGUR 10:40 15:32
Fulltrúar allra flokka í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar mótmæla því harðlega að staða sýslumannsins á
Sauðárkróki hafi ekki verið auglýst og í hana ráðið til eins
árs á meðan óvissa ríkir um framtíðarskipan embættisins.
Kemur þetta fram í bókun byggðaráðs sem oddvitar Fram-
sóknarflokksins, Vinstrihreyfingarinnar – græns fram-
boðs, Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar og Frjáls-
lynda flokksins rita undir.
Fyrir Alþingi liggur lagafrumvarp sem gerir ráð fyrir að
aðskilja sýslumanns- og löggæsluhluta sýslumannsembætta
landsins. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki hættir um mánaðamót og ákvað innan-
ríkisráðherra að fela sýslumanninum á Blönduósi að gegna stöðunni tíma-
bundið. Byggðarráð telur óeðlilegt að á meðan lagafrumvarpið hefur ekki
hlotið fullnaðarafgreiðslu á Alþingi, sé staða sýslumannsins á Sauðárkróki
lögð niður. Byggðarráð telur eðlilegt að ákvörðun um framtíðarskipun sýslu-
mannsembætta sé tekin á Alþingi en ekki innan veggja ráðuneytis.
Fulltrúar allra flokka mótmæla
Frá Sauðárkróki.
Andri Karl
andri@mbl.is
Bakkavararbræður, þeir Ágúst og
Lýður Guðmundssynir, hafa stefnt
Inga Frey Vilhjálmssyni, frétta-
stjóra á DV, vegna leiðaraskrifa
hans um þá. Telja þeir að skrifin
séu ærumeiðandi og krefjast þess
að fern tiltekin ummæli verði dæmd
dauð og ómerk. Málið verður þing-
fest í Héraðsdómi Reykjavíkur 17.
janúar næstkomandi.
Bræðurnir krefjast þess ekki að
Ingi Freyr verði dæmdur til að
greiða þeim miskabætur heldur
„aðeins“ 800 þúsund krónur til að
kosta birtingu dóms í málinu í
tveimur dagblöðum og að DV verði
gert að birta forsendur og dómsorð
í málinu í blaðinu og á vefmiðlinum
dv.is strax að dómi gengnum.
Meðal annars er vísað í umfjöllun
Inga Freys í helgarblaði DV um
nokkur af þeim hlutafélögum þar
sem Ágúst og Lýður komu að
rekstri fyrir hrunið haustið 2008.
Blaðið kom út 19.-21. október 2012.
Þeir gera ekki sérstakar athuga-
semdir við umfjöllunina en vekja at-
hygli á því í stefnu, að fréttinni hafi
verið sá tilgangur að kynda undir
andúð í garð þeirra vegna þátttöku í
atvinnurekstri og atvinnuuppbygg-
ingu. „Skrif þessi fela almennt ekki
í sér málefnalega eða upplýsandi
umfjöllun, heldur bera þau ríkan
keim af hatursáróðri í garð tiltek-
inna einstaklinga. Hatursáróður í
fjölmiðlum er bannaður sbr. 27. gr.
laga um fjölmiðla nr. 38/2011 og
refsiverður sbr. 56. gr. sömu laga.“
Fela í sér grófa aðdróttun
Ummælin sem krafist er að
dæmd verði dauð og ómerk birtust
hins vegar í leiðara sem kom út 24.
október undir fyrirsögninni „Ættu
Bakkabræður að eiga níu millj-
arða“.
Í stefnu segir að Ingi hafi haldið
uppteknum hætti og dregið upp
sem dekksta mynd af bræðrunum.
„[Skrif Inga] eru ósönn og fela í sér
grófa aðdróttun, sem borin var út
opinberlega og gegn betri vitund.
Ummælin eru til þess fallin að vera
virðingu stefnenda til hnekkis,
móðgandi og fela í sér aðdróttun í
garð stefnenda og fara því í bága
við 234., 235. og 236. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940.“
Þá segir að það skerði ekki tján-
ingarfrelsi Inga að dæma ummælin
dauð og ómerk, enda sé honum
frjálst að fjalla um bræðurna sé það
gert í samræmi við siðareglur sem
blaðamenn hafi sett sér og reynt sé
að tryggja upplýsta og vitræna um-
ræðu.
„Bera ríkan keim
af hatursáróðri“
Bakkavararbræður stefna blaðamanni
Ummælin
» Þetta voru peningar sem
þeir höfðu tekið í arð út úr ís-
lenskum hlutafélögum sínum á
árunum fyrir hrunið.
» Bakkabræður halda hins
vegar arðgreiðslum upp á millj-
arða sem þeir tóku út úr eign-
arhaldsfélaginu sem þarf að
afskrifa 22 milljarða hjá.
» Arðgreiðslurnar byggðu því
á blekkingum.
» Þau uppkaup kunna að vera
fjármögnuð með arðgreiðsl-
unum sem þeir tóku út úr ís-
lenska hagkerfinu á árunum
fyrir hrunið.
Morgunblaðið/Heiddi
Bakkavararbræður Ágúst og Lýður
Guðmundssynir.