Morgunblaðið - 11.01.2013, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013
Ríkiskaup hafa opnað tilboð í leigu á
þyrlum fyrir Landhelgisgæsluna. Nú
í haust auglýstu Ríkiskaup eftir til-
boðum í leigu á tveimur björg-
unarþyrlum, til gæslu- og björg-
unarstarfa. Í auglýsingunni kom
fram að leigan væri til næstu 6-8 ára
og skyldu þyrlurnar afhendast á
tímabilinu frá apríl 2013 fram á mitt
ár 2014.
Í tilkynningu frá Landhelgisgæsl-
unni og Ríkiskaupum segir að tilboð
hafi borist frá tveimur aðilum í leigu á
tveimur þyrlum. Jafnframt kemur
fram að um sé að ræða tilboð í leigu á
þyrlum af gerðinni Super Puma, nán-
ar tiltekið EC 225.
Landhelgisgæslan hefur haft tvær
þyrlur sömu gerðar að láni und-
anfarin ár, TF-SYN og TF-GNA.
Leigusamningur um TF-SYN átti að
renna út um áramótin en framlengd-
ist vegna skoðunarmála. Leigusamn-
ingur vegna TF-GNA rennur út um
mitt ár 2014.
Niðurstaða innan fjögurra vikna
Ríkiskaup og Landhelgisgæslan
munu fara yfir tilboðin á næstu miss-
erum og kanna hvort þau standist
þær kröfur sem settar voru fram í út-
boðsgögnum. Ennfremur segir í til-
kynningu að stefnt sé að því að yfir-
ferð Ríkiskaupa og Landhelgis-
gæslunnar á tilboðunum ljúki innan
fjögurra vikna.
Von á nýjum björgunarþyrlum
Tvö tilboð í leigu á
tveimur Super Puma
þyrlum bárust
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Nauðsyn Þyrlur Gæslunnar hafa
oft skipt sköpum þegar neyð ber að.
TF-LIF, þyrla Landhelgisgæsl-
unnar hafði ekki erindi sem erfiði
þegar hún ætlaði að sækja veikan
sjómann um borð í skip sem var á
Halamiðum, 21 sjómílu frá landi, í
fyrrakvöld. Þung undiralda tor-
veldaði aðgerðir mjög og ekki náð-
ist að koma sigmanni um borð,
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Í
samráði við áhöfn var því ákveðið
að sigla með manninn til Ísafjarðar.
Hjá Landhelgisgæslunni fengust
þær upplýsingar að atvik af þessu
tagi væru ekki algeng. Skipverjinn
sem átti að sækja liggur á fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Ísafirði þar
sem hann gekkst undir rannsóknir
og fær viðeigandi meðferð.
Undiralda hefti
björgunaraðgerðir
Lögreglan lagði hald á um 1200 kannabisplöntur
í tveimur húsleitum í Hafnarfirði í fyrradag.
Kannabisplönturnar sem voru á ýmsum stigum
ræktunar voru ræktaðar í iðnaðarhúsnæði.
Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn
vegna rannsóknarinnar og játaði hann aðild að
málunum tveimur. Maðurinn hefur áður komið
við sögu lögreglu. Við húsleit sem lögreglan
framkvæmdi á heimili hans var lagt hald á pen-
inga, tugi gramma af marijúana og verulegt
magn af áfengi að því er segir í tilkynningu frá
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
1200 kannabisplöntur
fundust í Hafnarfirði
Kannabis Plöntur sem
lögregla lagði hald á í
Hafnarfirði.
Íslenska ullin
er einstök
Skoðaðu litaúrvalið í næstu verslun
Sjá sölustaði á istex.isBæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Allt nýjar og
nýlegar vörur
Nýtt kortatímabil
ÚTSALA
50%
afsláttur
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Verslunin
Belladonna
á Facebook
ÚTSALAN ER HAFIN
30-50% afsláttur
af öllum útsöluvörum
ÚTSALA
ÚTSALA
30 - 50 % AFSLÁTTUR
Eikjuvogur 29, 104 Reykjavík
sími : 694-7911