Morgunblaðið - 11.01.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Gjafavara
Mikið úrval gjafavöru,
borðbúnaðar og
skúlptúra.
Handsmíðaðir gull- og
silfurskartgripir með
Íslenskum steinum
Góðar gjafahugmyndir
á nýju ári
Eyjafjallajökull, skál
5.900 kr
Vatnajökull, skál
7.900 kr
Salattöng
17.800 kr
Smjörhnífur
8.900 kr
Sultuskeið
6.900 kr
Sultuskeið
8.900 kr
Ostahnífur
6.900 kr
Stálarmband
13.900 kr
Stállokkar
6.900 kr
Stállokkar
9.800 kr
Íslensk hönnun
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Bjarki Þór Grönfeldt út-skrifast í dag með stúd-entspróf frá MenntaskólaBorgarfjarðar í Borg-
arnesi eftir aðeins tveggja og hálfs
árs nám. Bjarki Þór hefur hlotið
svokallaðan nýnemastyrk við Há-
skólann í Reykjavík sem veittur er
afburðanemendum á fyrstu önn
þeirra og hefur sálfræðinám við
skólann á mánudaginn.
Stúdent í ensku í 10. bekk
„Ég tek bara helgarfrí á milli
menntaskóla og háskóla,“ segir
Bjarki Þór í léttum dúr, en hann
ætlar að fagna áfanganum á morg-
un með veislu fyrir nánustu ætt-
ingja.
Bjarki Þór er fæddur árið 1994
og býr á Brekku í Norðurárdal sem
er rétt norðan við háskólaþorpið á
Bifröst. Hann hefur ferðast dag-
lega í skólann um 33 km síðastliðin
ár ásamt Dagbjörtu skólasystur
sinni og nágranna í Tröð, en for-
eldrar og aðrir hjálpuðust að við
aksturinn þar til þau fengu bílpróf.
Bjarki Þór útskrifast af félags-
fræðibraut en hann tók ensku í
fjarnámi við skólann í 9. og 10.
bekk sem gerði honum kleift að
verða stúdent í ensku í 10. bekk og
útskrifast fyrr. „Það má segja að
ég hafi alltaf verið mikill náms-
maður og ég hef haft nóg að gera
enda bætt félagsstörfum við líka,“
segir Bjarki Þór. Við skólann í
heild stunda 170 manns nám en í
útskriftarhópnum eru um 30 nem-
endur. Áfangakerfi er í skólanum
en Bjarki Þór segir þó mikla bekkj-
arheild geta skapast þar sem skól-
Helgarfrí á milli
mennta- og háskóla
Bjarki Þór Grönfeldt er í hópi útskriftarnema frá Menntaskóla Borgarfjarðar sem
útskrifast í dag. Bjarki Þór lýkur náminu á aðeins tveimur og hálfu ári og hefur
einnig verið ötull í félagsstörfum á þeim tíma. Hann hefur nám í sálfræði við
Háskólann í Reykjavík eftir helgina og hefur hlotið nýnemastyrk til námsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Námsmaður Bjarki Þór hefur nám í sálfræði við HR í næstu viku.
Ljósmynd/Dagbjört Birgisdóttir
Leikfélag Leikarar í uppsetningu Litlu Hryllingsbúðarinnar hjá M.B.
Breska vefsíðan wastewatch.org.uk
er áhugaverð síða þar sem finna má
fréttir bæði frá Bretlandi og víðar um
hversu mikið af sorpi við mennirnir
látum frá okkur ár hvert. Margt
mætti betur fara og nútímalífshættir
hafa orðið til þess að hellingur fer í
ruslafötuna sem mætti endurnýta.
Á vefsíðunni má bæði lesa fréttir
af stöðu þessara mála í dag og einnig
leita ráða og hugmynda fyrir þá sem
vilja taka sig á í þessum efnum.
Á vefsíðunni má meðal annars lesa
athyglisverða grein þar sem segir að í
heiminum öllum fari 50% matvæla til
spillis á meðan einn milljarður manna
svelti. Grípa þurfi til aðgerða hvað
þetta varðar og það átak hefjist í eld-
húsum okkar sem nóg höfum að bíta
og brenna. Það er þörf áminning að
kíkja á þessa vefsíðu og sjá hvað
maður getur gert til að huga betur að
jörðinni okkar og lífríki hennar.
Vefsíðan www.wastewatch.org.uk
AFP
Mótmæli Frakkar útbúa stóran karrírétt úr grænmeti sem annars færi til spillis.
Ruslahaugurinn fer stækkandi
Nú í byrjun árs er um að gera að
láta hugann reika og drauma sína
rætast. Hvers vegna ekki að gera
2013 að ferðaárinu mikla? Ákveða
að skoða borg eða land sem þig
hefur lengi langað til að sjá? Mögu-
leikarnir eru óteljandi og hægt að
komast alla leið eða í það minnsta
áleiðis með flugfélögum hér heima.
Asía hefur verið vinsæll áfanga-
staður hjá mörgum upp á síðkastið
en þar er víða hægt að lifa spart þó
nokkuð kosti að koma sér á áfanga-
stað. Byrjaðu að plana og safna
strax í dag og láttu draumana þína
rætast.
Endilega…
…ferðist um og
skoðið heiminn
AFP
Ferðalög Hugurinn ber mann hálfa leið.
Nýbökuð og volg sneið af brúnku
(brownie) er alltaf jafn góð og rennur
ljúflega niður með mjólkurglasi.
Brúnku-bitarnir mega ekki vera of
mikið bakaðir og þurfa að fara vel
undir tönn. Dálítið eins og tyggjó.
Það er um að gera að prófa sig áfram
við baksturinn og finna þá áferð sem
manni finnst best. Margir eiga sína
leyniuppskrift og sumum finnst gott
að setja hnetur út í deigið.
Kosturinn við svona bakstur er líka
að bitana má skera ýmist meðalstóra
eða bara litla sem eftirrétt eins og
konfekt. Ef þig langar að skreyta
brúnkusneið fallega á rómantískan
hátt handa einhverjum sérstökum
eða sérstakri í þínu lífi er til einföld
leið til þess. Klipptu út pappírshjarta
í þeirri stærð sem þú kýst og settu á
miðja sneiðina. Dustaðu síðan flór-
sykri yfir og fjarlægðu hjartað að því
loknu. Þannig má búa til einfalda
skreytingu. Svo má líka klippa ým-
islegt annað út en hjarta eða skreyta
sneiðina með ávöxtum.
Rómantískur bakstur
Fallega skreyttar brúnkur
Rómantískt Það er líka hægt að baka hjartalaga brúnkur eins og þessar.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.