Morgunblaðið - 11.01.2013, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013
Parki býður upp á
fjölbreyttar lausnir
í loftakerfum
Mono hjóðísogsloftin frá Rockfon eru án
allra sýnilegra samskeyta og gefa rýminu
stílhreint yfirbragð. Einnig býður Parki upp
á hefðbundin kerfisloft af ýmsum gerðum.
Loftin eru ofnæmisprófuð með 15 ára
ábyrgð.
Láttu drauminn rætast hjá okkur.
Dalvegi 10-14 ▪ 201 Kópavogur ▪ Sími: 595 0570 ▪ parki.is
H Ú S G Ö G N
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík
Sími: 557 9510 | Vefsíða: www.patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Útsala Útsala Útsala Útsala
30%
60%20%
30%
70%
10% 70%50%40%
Verðdæmi:
Borðstofustólar 4.900
Tungusófar 75.400
Hornsófar 119.450
Sófasett 130.900
Kommóður 15.000
Höfðagaflar 5.000
Náttborð 5.000
Heilsukoddar Sófasett PúðarHornsófar
Sjónvarpsskápar Borðstofuhúsgögn
Rúm Fjarstýringavasar Hægindastólar
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Talið er að um fjórðung ónýttra
birgða af jarðefnaeldsneyti sé að
finna á norðurslóðum. Ef það á að
fara að brenna þessu eldsneyti á öld-
inni eru öll markmið um að stöðva
loftslagsbreytingar af mannavöldum
rokin út í veður og vind. Svo einfalt er
það,“ segir Hjörleifur Guttormsson,
fyrrverandi ráðherra fyrir Alþýðu-
bandalagið og einn hugmyndafræð-
inga VG í umhverfismálum, um áform
um olíuleit og síðar vinnslu á Dreka-
svæðinu.
Hjörleifur telur aðspurður að fyrir-
huguð olíuleit gangi í berhögg við
stefnu VG í loftslagsmálum.
Samræmist í engu stefnu VG
„Ég sé ekki að þetta samræmist
stefnu VG á nokkurn hátt. VG hefur
einn flokka verið með ákveðna stefnu
í loftslagsmálum og hún hefur heldur
betur riðlast með útgáfu þessara sér-
leyfa. Ég tel að aðrir flokkar sem hafa
tjáð sig um málið hafi ekki haft neina
ákveðna stefnu. Eftir útgáfu sérleyf-
anna í síðustu viku, þ.e.a.s eigi sú
ákvörðun að standa óbreytt, eru allir
flokkarnir komnir í sömu lest hvað
þetta varðar. Í rauninni er það undr-
unarefni hvað stjórnmálaflokkarnir,
svo ég spyrði þá saman, eru veik-
burða í stefnumörkun og við mat á
þeim háska sem sækir að jarðarbúum
vegna loftslagsvandans. Þeir hafa þar
enga skýra stefnu. Þetta er átakan-
legt og ekki er Sjálfstæðisflokkurinn
barnanna bestur í þeim efnum. Á
þeim bæ eru að mér virðist engir
fyrirvarar gerðir um losun gróður-
húsalofttegunda.“
– Þú gagnrýndir andvaraleysi for-
ystumanna VG í olíumálum í nýlegri
blaðagrein. Hefur grasrótin í flokkn-
um ekkert komið að málum?
„Nei. Það er mér ekki kunnugt um.
Mér vitanlega hafa þessi mál ekki
komið upp á yfirborðið í neinni opin-
berri umræðu hérlendis og ekki held-
ur innan VG.“
Engin umræða innan flokksins
– Þannig að forystan er ekki að
fylgja eftir samþykktum innan
flokksins með útgáfu sérleyfa?
„Nei, ekki mér vitanlega. Ég hef
ekki séð nein merki þess. Þegar
Orkustofnun tilkynnti að veita ætti
sérleyfin til rannsókna og vinnslu á
Drekasvæðinu 3. desember sl. þá
hafði ekki nokkur umræða farið fram
um málið, enda áttuðu fæstir sig á
hvað væri í vændum.“
– Guðmundur Hörður Guðmunds-
son, formaður Landverndar, sagði í
tilefni sérleyfanna að skapast hefði
þörf fyrir nýjan umhverfisflokk. Ertu
sammála?
„Hann verður að útfæra það nánar,
ef hann er með áskorun í þessa veru.
Hitt er annað mál að það er full
ástæða til að hafa áhyggjur af stöðu
umhverfismála almennt hér á landi
og auðvitað á heimsvísu. Ég held að
allir flokkar þyrftu að skoða sína
stöðu í því samhengi. Ætla menn að
sitja uppi sem nátttröll andspænis
þeirri loftslagsvá sem er orðin al-
mennt viðurkennd af fræðasamfélag-
inu og vísindamönnum? Ætla stjórn-
málamenn að standa eins og þvörur
og taka ekkert tillit til þessa í sínum
ákvörðunum og stefnumörkun? Það
er hið stóra áhyggjuefni.
Það er vonandi að menn vakni og
það verður bara að reyna á það hvort
það gerist í núverandi flokkum eða
með nýjum flokkum. Ég hef orðið
fyrir miklum vonbrigðum með að
þetta skref skuli hafa verið stigið.
Þetta er í engu samræmi við stefnu
flokka á svipuðum slóðum og VG ann-
ars staðar á Norðurlöndum. Þar vísa
ég til Sosialistisk Venstreparti í Nor-
egi sem hefur haldið höfði í þessu
máli og spyrnt við fótum gegn því
sem ríkisstjórnarflokkur að farið
verði í olíuvinnslu á nýjum svæð-
um norður með Noregi, við
Lófót og norðar, hvað þá í
Barentshafi.“
Menn vakni ella komi nýir flokkar
Einn hugmyndafræðinga Vinstri grænna í umhverfismálum segir olíuleit þvert á stefnu flokksins
Grasrótin hafi ekki verið höfð með í ráðum VG beri að fylgja systurflokkum á Norðurlöndum
Morgunblaðið/Eggert
Stefnan mótuð Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, og Katrín Jakobs-
dóttir, varaformaður flokksins, á flokksþingi í sumarlok 2011.
Sú ákvörðun forystu VG að fall-
ast á olíuleit á Drekasvæðinu
hefur fallið í grýtta jörð meðal
umhverfisverndarsinna.
Árni Finnsson, formaður
Náttúruverndarsamtaka Ís-
lands, gagnrýndi olíustefnu for-
manns VG í samtali við mbl.is.
„Það sem kemur okkur á
óvart er að Steingrímur J. Sig-
fússon skyldi taka á móti
norska olíumálaráðherranum og
fagna þessu … Við eigum að
láta olíuna á Drekasvæðinu
liggja kyrra.“
Guðmundur H. Guðmunds-
son, formaður Land-
verndar, tók í sama
streng á mbl.is. „Ef
það er ekki til
stjórnmálaflokkur
í landinu sem er
andsnúinn olíuleit
hlýtur að vera
pláss fyrir einn
flokk í við-
bót.“
Ólga meðal
græningja
OLÍULEIT MÓTMÆLT
Hjörleifur
Guttormsson
Íslandsmót
barna í skák fer
fram í Rima-
skóla laugardag-
inn 12. janúar
og hefst klukkan
12. Þátttökurétt
hafa börn í 1. til
5. bekk (fædd
2002 og síðar)
og sigurvegar-
inn fær sæmdarheitið Íslands-
meistari barna 2013 og keppnis-
rétt á Norðurlandamótinu í
skólaskák sem haldið er á Bifröst í
febrúar 2013.
Þetta er í 20. sinn sem keppt er
um Íslandsmeistaratitil barna. Sig-
urður Páll Steindórsson sigraði á
fyrsta mótinu árið 1994, en meðal
annarra meistara má nefna titil-
hafana Dag Arngrímsson, Guð-
mund Kjartansson og Hjörvar
Stein Grétarsson. Núverandi Ís-
landsmeistari barna er Nansý
Davíðsdóttir. Hún er eina stúlkan
sem hefur hampað titlinum.
Íslandsmót barna í
skák í Rimaskóla
Nansý Davíðsdóttir