Morgunblaðið - 11.01.2013, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.01.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013 Að minnsta kosti ellefu hafa dáið af völdum hríðarbyls og norðangarra í Mið-Austurlöndum síðustu daga. Vetrarhretið hefur einnig aukið á þjáningar hundraða þúsunda sýr- lenskra flóttamanna sem hafast við í tjöldum við landamæri grannríkj- anna Jórdaníu, Tyrklands og Líban- ons. Feðgar hjálpast hér að við að moka snjó frá tjaldi í flóttamanna- búðum í Sýrlandi, nálægt landa- mærunum að Tyrklandi. Hretið hefur einnig aukið neyðina meðal íbúa sýrlenskra borga sem eru orðnir uppiskroppa með elds- neyti til kyndingar. Þar að auki er algengt að rafmagnslaust verði vegna átaka og loftárása hers ein- ræðisstjórnarinnar síðustu 22 mán- uði. Rafmagnslaust varð víða í Mið- Austurlöndum í gær vegna vetrar- hretsins. Hríðarbyljirnir urðu einnig til þess að loka þurfti skólum í Líb- anon, Sýrlandi, Jórdaníu og Ísrael. Ekkert hlé var þó gert á blóðsúthell- ingunum í Sýrlandi. AFP Hríð og hraglandi eykur neyðina Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Tilboðsverð kr. 99.900 Vitamix kanna fylgir með meðan birgðir endast Fullt verð kr. 117.530 Meira en bara blandari! • Mylur alla ávexti, grænmeti klaka og nánast hvað sem er • Hnoðar deig • Býr til heita súpu og ís • Uppskriftarbók og DVD diskur fylgja með Lífstíðareign! FYRIR ALVÖRU KARLMENN Fæst á hársnyrtistofum Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Þegar hafa komið fram nokkrar kenningar um hverjir myrtu þrjár konur úr röðum frammámanna í Verkamannaflokki Kúrdistans (PKK) eftir að þær voru skotnar til bana í Menningarmiðstöð Kúrda í París í gær. Daginn áður var skýrt frá því að tyrkneska ríkisstjórnin hefði hafið friðarviðræður við leið- toga PKK, Abdullah Öcalan, sem hefur verið í fangelsi í Tyrklandi frá árinu 1999. Verkamannaflokkur Kúrdistans var stofnaður seint á áttunda áratug aldarinnar sem leið og hóf vopnaða baráttu sína árið 1984. Hún hefur kostað um 45.000 manns lífið. Leið- togar flokksins féllu frá kröfu sinni um sjálfstæði Kúrda-héraðanna í Tyrklandi og vilja nú að héruðin fái aukin sjálfstjórnarréttindi. Hermt er að í viðræðunum við fulltrúa tyrknesku stjórnarinnar hafi Öcalan fallist á vopnahlé gegn því að réttindi Kúrda yrðu aukin í Tyrklandi, auk þess sem hann og fleiri leiðtogar PKK í tyrkneskum fangelsum yrðu látnir lausir. Manuel Valls, innanríkisráðherra Tyrklands, skoðaði lík kvennanna þriggja, og sagði að enginn vafi léki á því að þær hefðu verið teknar af lífi með byssum. Þær voru allar með skotsár á höfði. Deilt um friðarviðræðurnar Ein kvennanna, Sakine Cansiz, var á meðal stofnenda PKK. Sér- fræðingar í málefnum Kúrda segja að hún hafi verið í nánum tengslum við Öcalan og á meðal talsmanna hans. Þeir telja því líklegt að kon- urnar hafi verið myrtar vegna friðarviðræðna Öcalans við tyrk- nesku stjórnina. Vitað er að í PKK er róttæk fylk- ing sem er andvíg friðarviðræðum við tyrknesk stjórnvöld og hugsan- legt er að hún standi á bak við morð- in. Mikil andstaða er einnig sögð vera meðal Tyrkja við friðarviðræður við PKK og hugsanlegt er að tyrkneskir þjóðernissinnar, leyniþjónustu- menn, morðingjar glæpasamtaka eða útsendarar hersins hafi verið að verki. Ennfremur hefur komið fram sú tilgáta að morðin megi rekja til deilna um peninga í tengslum við fíkniefnasmygl eða fjárkúganir sem liðsmenn PKK hafa verið sakaðir um að stunda. PKK hefur aflað fjár með því að leggja „byltingarskatta“ á Kúrda, sem hafa flúið frá Tyrklandi, og bandarísk yfirvöld hafa sakað nokkra af forystumönnum PKK um fíkniefnasmygl. Myrtu Kúrdar eða Tyrkir konurnar?  Þrjár konur í Verkamannaflokki Kúrdistans teknar af lífi AFP Félagar Sakine Cansiz og Abdullah Öcalan, leiðtogi PKK, árið 1995. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.