Morgunblaðið - 11.01.2013, Page 23

Morgunblaðið - 11.01.2013, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013 Golli Á tvo vegu Þær urðu allt í einu fjórar og hrossin líka þegar þær riðu út í gær þessar blómarósir. Áramótin eru nú liðin hjá með ræðu forsætisráðherra á gaml- ársdag, viðræðum í Kryddsíld og greinum forystumanna í Morg- unblaðinu. Hvað skilur það eftir? Ekkert nema vonbrigði, sér- staklega með forsætisráðherra, sem setti fram margar rangar full- yrðingar um bata, kaupmátt- araukningu, leiðréttingu á skuld- um heimila, fjölgun starfa, aukna fjárfestingu og minnkandi vanskil og gjaldþrot! Hinir forystumenn flokkanna sögðu ekkert nýtt í greinum sínum og endurspegluðu rifrildishefð Alþingis í Kryddsíldinni. Skilgreindu þeir vandamálin? Hvað á að gera í hrikalegum vanda þjóð- arinnar? Síhækkandi skuldir ríkissjóðs, gjald- eyrishöft, eignir gömlu bankanna erlendis og hér heima. Eignir banka, vogunarsjóða, jökla- bréf og aðrar eignir sem leita út með allan okk- ar gjaldeyri, þannig að þjóðargjaldþrot blasir við, sé höftunum sleppt. Um tuttugu og átta þúsund einstaklingar eru í verulegum greiðsluerfiðleikum og áttatíu þúsund einstaklingar eiga ekkert á banka- reikningum sínum. Þeir sem eru á aldrinum 22-42 ára eru með eignastöðu upp á mínus 82 milljarða króna. Getur hagkerfið gengið án eft- irspurnar og skattgreiðslna þeirra í framtíð- inni? Vandi þeirra sem tóku verðtryggð hús- næðislán, sem hafa hækkað um 450 milljarða frá hruni, og vandi 5.000 heimila, sem geta ekki greitt húsnæðislán sín er alþekktur. Er hann ekki líka þekktur sá mikli mismunur sem er á þeim sem eiga von um 30% leiðréttingu geng- islána og hinum sem eru að missa eignir sínar og sjá engan tilgang í að greiða af verð- tryggðum lánum áfram? Hefur ekki legið fyrir í tvö ár, að gengislánin voru dæmd ólögmæt af Hæstarétti? Alþingi tók afstöðu með bönk- unum gegn fólkinu, en það var einnig dæmt ólöglegt. Bankar bíða enn með útreikninga og vilja fleiri dóma Hæstaréttar. Hefur ekki verið greint frá staðreyndum um veiðigjaldið, sem hefur ekkert með afkomu hvers fyrirtækis að gera og að óbreyttu mun leggja nær allar minni útgerðir niður og leggja af fiskveiðar, þar sem aflinn er unninn úti á sjó? Breytinga er þörf Það verður að skilgreina vandamálin og horfast í augu við þau. Erfiður tími er framundan, sem kallar á samstarf allra flokka um lausnir. Mikla einurð þarf að sýna vogunarsjóðum og afnema heimildir til útgreiðslna á vöxtum lána í gjaldeyri. Móta ber stefnu um „eftirleguskatt“ á allar eignir þeirra eða margra ára bindingu þessa fjár. Setja ber reglur um að gengi krónunnar myndist í viðskiptum með andvirði inn- og útflutnings, án fjár- magnsflutninga. Þeir skekkja ævinlega gengið og valda um leið ójöfnum gangi neysluvísitölu. Setja ber húsnæðislán undir sérstaka vísitölu sem taki breytingum eftir hækkun eða lækkun húsnæðisverðs og bjóða þeim sem eru að missa húsnæði sitt vegna verðtryggðra lána, sem tekin voru eftir 2004, möguleika á að lengja lánið til margra ára með föstum vöxtum. Breyta ber veiðigjaldinu með hækkun grunngjalds, vegna aðgöngu að þjóðareign. Útgerðir og önnur fyrirtæki í sjávarútvegi greiði tekjuskatt af hagnaði eins og önnur fyr- irtæki, sem tryggir afgjald í samræmi við hagnað. Hvað leggur Sjálfstæðisflokkurinn til um úrlausnir? Fullreynt virðist að þingmenn flokksins komi fram með tillögur til lausnar á fjárhags- vanda heimilanna í samræmi við samþykkt Landsfundar 2011 og flokksráðsfundar 2012. Því verður að vænta breytinga með nýjum þingmönnum og að sjálfstæðismenn móti skýra stefnu á Landsfundi í febrúar um þau mörgu ágreiningsmál, sem bíða úrlausnar hjá þjóð í miklum vanda. Eftir Halldór Gunnarsson » Það verður að skilgreina vandamálin og horfast í augu við þau. Erfiður tími er framundan, sem kallar á sam- starf allra flokka um lausnir. Halldór Gunnarsson Höfundur er bóndi í Holti og fyrrverandi sóknarprestur. Hvað sögðu forystumenn stjórnmálaflokkanna? Sagt er að allir menn hafi nokkuð til síns ágætis, og efa ég það ekki. Hitt skilur menn oft að, hvernig málin eru borin fram, mýktin sigrar hörkuna. Hnef- inn stöðvar mál og skapar átök og reiði. Það er nýtt að sjá í um- ræðu um breytingar á stjórnarskrá að tæpur meirihluti á Alþingi ætli með málið áfram á hnefanum. Það er því fróðlegt að bera saman vinnubrögð Gunnars Thoroddsen og Jóhönnu Sigurðardóttur, en bæði voru í lok forsætisráðherrastarfa sinna með stjórnarskrána efst á dag- skrá óskalistans. Stjórnarskráin er fjöregg þjóðar, hún er leiðsögn og biblía, hana má aldrei brjóta eða skapa um hana hatrammar deilur. Stjórnarskrá á að vera fámál en skýr um aðalatriði. Íslendingar eignuðust nýja stjórn- arskrá árið sem landið varð lýðveldi 1944 og studdu hana 99% kjósenda. Sú stjórnarskrá hefur reynst vel þó vilji og full ástæða sé til að endur- skoða nokkur atriði enn sem eðlilegt er í tímans rás. Stjórnarskráin var Gunnari heilagur sáttmáli, hann vann að endurskoðun hennar með mönnum úr öllum flokkum, var sjálf- ur formaður stjórn- arskrárnefndarinnar og trúði því að hann næði að láta kjósa um breytingarnar 1983. Nokkrir nefndarmanna eru enn lífs og á góðum aldri, svo sem Ólafur Ragnar Grímsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Ragnar Arnalds, Matt- hías Bjarnason, Sig- urður Gizurarson. Þarna sátu menn á borð við Gylfa Þ. Gíslason og Þórarin Þórarinsson, báðir mikilsvirtir stjórnmálamenn en látnir. Sagt var um glæsileika Gunn- ars að hann hefði ,,gengið sparibúinn að reiptogi stjórnmálanna“. Jón Baldvin segir svo í ævisögu sinni Flokksbróðir Jóhönnu Sigurð- ardóttur, Jón Baldvin Hannibalsson, minntist vinnubragða Gunnars Thor- oddsen í ævisögu sinni, og hversu hann vann sitt starf vel og kunni að vinna með mönnum ólíkra sjón- armiða. Jón Baldvin segir: ,,Doktor Gunnar hélt mönnum hægt og hljóð- lega við efnið. Það var auðfundið að hann bjó yfir ótrúlegri þekkingu, ekki bara á stjórnarskránni, sögu hennar og merkingu, heldur nánast allri löggjafarsögu landsins. Stjórn- málasöguna hafði hann á hraðbergi og þekkti út í æsar. Hann kryddaði mál sitt með gamansögum sem ein- kenndust af fínlegum húmor.“ Svo minnist Jón Baldvin þess hvernig hann bar klæði á vopnin þegar deilur hófust meðal nefndarmannanna. En Gunnar náði aðeins að tala fyrir nýju frv. til stjórnarskipunarlaga. Sumt er orðið að lögum sem hann dreymdi um og komið í stjórnarskrá, annað ekki. Jóhönnu er reiðin og hnefinn Nú gerðist það að stjórnlagaráð náði saman um drög sem eru komin til þingsins. Ekki efast ég eina stund um að margt er gott sem þar kemur fram. En samt er það svo að frum- varpið verður umdeildara eftir því sem lengra líður. Stjórnlaga- ráðsmaðurinn Salvör Nordal, en hún var forseti stjórnlagaráðsins, efast um vinnubrögð og varar við deilum og telur málið ekki í farvegi af- greiðslu eins og það stendur nú. Fræðimannasamfélagið gagnrýnir vinnubrögð og ýmsar hættur sem í frv. séu. Forseti landsins leggur fram bókum í ríkisráði og í nýársá- varpi tekur hann nokkra kafla frv. og afhjúpar galla og átakalínur. Telur að verði það að lögum færi hér af stað tilraun um allt annað stjórnkerfi en við höfum búið við og stjórnkerfi sem ætti ekki sinn líka á Vest- urlöndum. Svo óttast forsetinn það vald sem standi til að færa forsætis- ráðherra og forseta. Forsætisráð- herra verði fært vald til að ráðskast með alla hina flokkana. Bendir á hvernig málsvarar landsbyggð- arkjördæmanna verði á Alþingi að- eins 11 (af 63 þingmönnum). Jóhanna Sigurðardóttir bregst við þessu öllu reið og steytir hnefann og segir mál- ið muni keyrt áfram og um það kosið í vor. Valgerður Bjarnadóttir, formaður Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins, er helmingi reiðari og varð- ar ekkert um gallana og átakalín- urnar. Steingrímur J. Sigfússon gæti tekið í taumana, hann veit betur, trúi að Ögmundur Jónasson rísi gegn vinnubrögðunum. Þorvaldur Gylfa- son, prófessorinn af stjórnlagaþingi, segir of seint að gera athugasemdir. Þorvaldur rær nú einn á báti á móti flestöllum prófessorum háskólanna. Venja þingsins er samt sú að mál sem komið er í gegnum fyrstu um- ræðu er enn á byrjunarstigi, tekur breytingum í nefndinni eftir umsagn- ir og umræður sem enn eru af skorn- um skammti. Forseti Alþingis stöðvar ráðherravaldið Eins og stjórnlagafrumvarpið er nú búið í átök eftir þessar hremm- ingar sem það er komið í hefði það samkvæmt venju um mikilvæg mál verið saltað fram yfir kosningar. Ein leið er reyndar fær sem væri Jó- hönnu til heiðurs, að afgreiða þá þætti sem samstaða er um. Forseti Alþingis hefði á hverjum tíma talið ófært að taka það til annarrar um- ræðu með deilum um allt þjóðfélagið á þeim stutta tíma sem eftir er. Það verður því að treysta því að nýr þing- vilji komi fram sem svæfir málið í þessum búningi, og það bíði nýs þings. Forseti Alþingis á hverjum tíma lætur sér annt um stjórn- arskrána, þannig er Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur forseta farið. For- seti Alþingis hlýtur að kalla á sátt um málið í forsætisnefnd og meðal þing- flokksformanna. Hún getur ekki látið framkvæmdavaldið kollvarpa göml- um og góðum siðum Alþingis. Aðeins eitt er í stöðunni, að fara að eins og Gunnar Thoroddsen gerði að við- urkenna að málið er fallið á tíma. Eftir Guðna Ágústsson »Nú gerðist það að stjórnlagaráð náði saman um drög sem eru komin til þingsins. Ekki efast ég eina stund um að margt er gott sem þar kemur fram. En samt er það svo að frumvarpið verður um- deildara eftir því sem lengra líður. Guðni Ágústsson Höfundur er fyrrv. alþm. og ráðherra. Gunnar Thoroddsen átti sér draum - Jóhanna ætlar á hnefanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.