Morgunblaðið - 11.01.2013, Síða 30

Morgunblaðið - 11.01.2013, Síða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013 ✝ Björn Kol-beinsson fædd- ist í Lúxemborg 25. júlí 1977. Hann lést af slysförum á Þingvöllum þann 28. desember 2012. Foreldrar hans eru Kolbeinn Sig- urðsson, f. 11.8. 1943, og Jónína Jó- fríður Gunnars- dóttir, f. 13.1. 1942, d. 10.2. 1987. Systkini hans eru: 1) Sigurður Kolbeinsson, f. 7.12. 1966. 2) Jóhannes Ingi Kol- beinsson, f. 24.9. 1969, maki Andrea Kristín Jónsdóttir, f. 7.7. 1966. Börn þeirra eru Jón- ína Jófríður Jóhannesdóttir, Rökkvi Dan. Börn Elíasar með Kolbrúnu Haraldsdóttur eru Sigurður Heiðar og Hrafndís Katla. 3) Hrafnhildur Þórhalls- dóttir, maki Guðjón Ingi Við- arsson, þau skildu. Barn þeirra er Kría Sól. Björn ólst upp í Lúxemborg til 15 ára aldurs. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi starfaði hann í nokkur ár við ýmsa banka í Lúxemborg, en hóf síðan nám við Háskólann í Reykjavík og lauk þaðan BA- og MA-prófum í lögfræði. Að loknu námi starfaði hann hjá einkaleyfastofu og einnig um tíma hjá Kortaþjónustunni þar til hann hóf störf hjá EFTA í Genf. Útför Björns fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 11. jan- úar 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Högni Steinn Jó- hannesson og Þurí Gunnarsdóttir. 3) Friðdóra Dís Kol- beinsdóttir, f. 28.2. 1982. Barn hennar Aðalheiður Ísmey Davíðsdóttir. Seinni kona föð- ur Björns er Aðal- heiður Ingvadóttir, f. 28.4. 1947. Henn- ar börn eru: 1) Þórhildur Þórhallsdóttir, f. 18.9. 1968, maki Pétur Jónsson, f. 30.6. 1968. Börn þeirra Aþena Mjöll, og Þórhallur Dag- ur. 2) Elías Þórhallsson, f. 20.8. 1969, maki Berglind Inga Árna- dóttir, f. 6.2. 1974. Barn þeirra Þegar birta jólaljósanna er sem skærust berst okkur harma- fregnin, allt tekur á sig breytta mynd, missir marks. Sársaukinn nístir að hjartarótum. Fátt getur orðið þungbærara en að setja á blað minningarorð um börnin sín. Ég kom inn í líf hans Bjössa þegar hann var 12 ára er við pabbi hans hófum sambúð. Við vorum fljót að kynnast, hann var ljúfur og hlýr og við náðum fljótt vel saman sem ekki var sjálfgefið fyrir ungan dreng enn í sárum eftir móðurmissinn sem hafði markað djúp ör á sálina. En að eðlisfari var hann glað- vær og vinsæll og áhugamálin margvísleg, vinahópurinn stór. Hann laðaði að sér fólk, hafði djúpa samkennd og átti auðvelt með að setja sig í spor annarra. Námshæfileikar hans voru mikl- ir, skilaði alltaf toppeinkunnum á öllum skólastigum og undruð- umst við foreldrarnir oft hvar hann hefði skotið inn tíma fyrir lærdóm þar sem hann virtist allt- af hafa tíma fyrir áhugamálin og vinina. Var m.a. í nokkrum hljómsveitum og náði langt á því sviði og músíkin skipaði stóran sess í lífi hans. Hann elskaði lífið og lifði hratt, var mikill sportáhugamað- ur, var flinkur skíðamaður og síðustu sumrin tók hann þátt í hestaferðum fjölskyldunnar, þar naut hann sín vel og var efnileg- ur reiðmaður. Vegna starfsins var hann búinn að ferðast um all- an heim, þar sem annars staðar ávann hann sér traust og virð- ingu. Hann sagði okkur frá reynslu sinni á framandi slóðum, notaði alltaf tækifærið og kynnti sér sögu og menningu staðanna. Fjölskyldan hér heima var honum kær, hann hafði einlægan áhuga á högum allra, spurði frétta af mannskapnum og sýndi börnunum í fjölskyldunni ótrú- lega umhyggju enda elskuðu þau öll hann Bjössa. Sjálfur átti hann draum um að eignast fjölskyldu og mörg börn. Alltaf kom hann hlaðinn gjöfum hingað heim, allt valið af kostgæfni, t.d. eðalkon- fekt og gæðaostar frá Sviss. Guatemala-kaffi færði hann mér úr síðustu vinnuferð sinni í S- Ameríku, okkur bar saman um að þarna værum við með heims- ins besta kaffi. Við eldhúsborðið, gjarnan yfir góðum kaffibolla, deildum við sameiginlegum áhugamálum, allt frá kaffitegundum og matar- gerð til andlegra málefna. Hann var ótrúlega þroskaður og fróður enda áhuginn fjölbreytilegur. Hann bar djúpa virðingu fyrir eldra fólki, ömmurnar hans voru honum einkar kærar og skipuðu háan sess í líf hans. Réttlætis- kennd hans var rík og mannrétt- indi voru honum hugleikin, for- dómalaus og kom jafnt fram við alla. Hjálpsemin var honum í blóð borin, ávallt til taks, í eld- húsinu sem annars staðar. Ég mun sakna þín, elsku ljúf- lingurinn minn, megi englar him- insins umvefja þig ljósinu, vaka yfir þér og leiða á nýjum braut- um. Björt minning þín mun lýsa okkur veginn áfram. Almættið gefi okkur öllum styrk. Kom, huggari, mig hugga þú, kom, hönd, og bind um sárin, kom, dögg, og svala sálu nú, kom, sól, og þerra tárin, kom, hjartans heilsulind, kom, heilög fyrirmynd, kom, ljós, og lýstu mér, kom, líf, er ævin þver, kom, eilífð, bak við árin. (Vald. Briem) Hafðu þökk fyrir allt sem þú varst okkur. Þín fósturmamma, Aðalheiður. Elsku karlinn minn. Það er sjaldan sem maður er sleginn. Ég er til skiptis svekktur og reiður. Og svo gefst ég upp. Þetta er óskiljanlegt. Eins og þú veist, þá gefst ég aldrei upp, en nú veit ég ekki hvað. Þetta átti ekki að fara svona – en þessu verður ekki breytt. Elsku bróðir minn, þú hefur gefið mér svo ótrúlega margt. Ég hef svo oft verið stoltur af þér, því sem þú hefur verið að gera og fyr- ir hvað þú hefur staðið. Þú varst alltaf þú sjálfur, aldrei að þykjast vera einhver annar eða þóknast því sem öðrum fannst. Það er með miklum söknuði sem ég kveð þig, kæri bróðir. Til að taka það saman í stuttu máli hver þú varst og fyrir hvað þú stóðst, þá varstu til að byrja með prakkari, ljúfur, óþekktar- angi, góður strákur, unglingavill- ingur, hjartahlýr, pönkari, góð- menni, anarkisti, réttsýnn, uppátækjasamur og síðast en ekki síst rokkari. Árangur þinn í námi og starfi var engin tilviljun, því þú varst bráðgreindur, eld- klár, útsjónarsamur og lausna- miðaður. Þessi samsetning leiddi þig til árangurs. Meðfram stund- aðir þú áhugamálin af miklum eldmóði. Ég myndi giska á að nú fari að verða partíhæft þarna hinumegin hjá þér. Haltu áfram að vera þú, hvar sem þú ert. Við munum sjá um málin hérna megin og svo verður ærleg veisla þegar við hittumst aftur. Þú munt áfram vera fyrirmynd mín í svo mörgum málum og ég mun halda þínum hugsjónum á lofti. Rokk on, bróðir. Jóhannes Ingi Kolbeinsson. Elsku Bjössi minn. Ég hugsa og trúi því að við munum finna leið saman í gegnum þessar breytingar. Við skulum hjálpa hvort öðru að venjast þessu. Nú höfum við í gegnum tíðina mikið rætt um það hvað taki við þegar við kveðjum tilveruna eins og við þekkjum hana. Við trúðum saman á ýmislegt. Ég er alveg sannfærð um að þú sért kominn til mömmu núna, og felst mikil huggun í því. Ég veit að þér líður vel og að þú hefur fundið frið og sátt. Ég er gífurlega þakklát, elsku Bjössi minn, fyrir að hafa fengið að verða samferða þér í gegnum lífið og fyrir að eiga þig fyrir bróður. Þú hefur verið mér algjör stoð og stytta. Takk fyrir að passa alltaf svona vel upp á mig og fyrir að vera svona mikið yndi. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir vináttu okkar. Öll ferðalögin okkar, sem við skipulögðum sjálf í gegnum tíðina, eru afar dýrmæt í minningunni, hvort sem það voru ferðir um landið hér heima, skíða- ferðir erlendis, tónleikar eða öll þessi margbreytilegu erindi sem við höfum átt víðsvegar um Evr- ópu. Ævintýrin sem við lentum í, sum alveg óstjórnlega fyndin og önnur sem voru meira bara fynd- in eftir á. Eitt dæmi þegar pústið brotnaði undan bílnum og við neyddumst til að keyra bílinn þannig frá Danmörku til Lúx. því á sunnudegi voru öll verkstæði lokuð í Danmörku. Sú ferð hefði vanalega tekið um níu tíma í akstri en tók rúma 12 tíma því vegna hávaðamengunar af okkar völdum var bara hægt að fara mest upp í 80 km hraða, jei. Og það á hraðbraut í Þýskalandi þar sem enginn keyrir undir 100 km, það var ekkert horft á okkur, nei nei. Tónlistin í botni til að gera lætin aðeins bærilegri. Mikið var ljúft að koma svo loks heim til Junglinster og skella sér í sólbað með fuglasöng. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa náð að heimsækja þig í Sviss. Þú lagðir þig alltaf svo mikið fram og það er ekkert lítið sem hefur þú verið stórtækur fyrir litlu syst- ur. Ég varð alveg undrandi þegar ég var hjá þér í Genf fyrir ári og þú varst búinn að panta útsýnis- flug í þyrlu fyrir litlu systur í þrí- tugsafmælisgjöf. En sökum óveð- urs varð flugmaðurinn að hætta við. Þú varst með dvöl okkar mæðgna alveg skipulagða og fórst með okkur í nærliggjandi bæi við Genfarvatnið að skoða kastala og á jólamarkað þar sem við drukkum Glühwein. Æðislegt var að fara upp í Alpana í pano- rama-lest. Það var ævintýri, fyrst var það sporvagn frá heimilinu, svo lest, labb, aftur lest, loks panorama-lestin, svo rúta og aft- ur lest og loks stigið út í Gstaad þar sem við fórum á veitingastað að slaka aðeins á áður en við skoð- uðum bæinn. Ferðalagið varð að- eins lengra á leiðinni til baka, þegar við hlupum upp í einhverja lest sem við héldum að við værum að missa af, en það var einfald- lega vitlaus lest sem fór með okk- ur í þveröfuga átt. Við hlógum að þessu rugli í okkur og rifjuðust upp í kjölfarið ýmis fyndin brot úr ferðalögum okkar í gegnum tíð- ina. Nú langar mig að fá kisa til mín, sem er bara í pössun, eig- andalaus í Sviss. Elsku bróðurhjarta, mér þykir óendanlega vænt um þig og hlakka til að hitta þig aftur seinna. Sakna þín þangað til. Friðdóra Dís Kolbeinsdóttir. Stundum á lífsleiðinni kynnist maður fólki sem einfaldlega gerir lífið betra og fallegra, fólki sem maður nýtur þess að vera með og gerir mann sjálfan og aðra sem það umgengst að betri manneskj- um. Bjössi var einn af þessum mönnum, hann var hrein og góð sál sem lýsti allt upp í kringum sig og var alltaf glaður. Við vorum ungir þegar við hitt- umst fyrst, mamma mín og pabbi hans höfðu tekið saman eftir að hafa bæði misst maka sína og við Bjössi því orðnir einskonar bræð- ur og ekki hefði maður getað hugsað sér betri bróður. Það er ekki auðvelt að sameina svona tvær fjölskyldur og ekki sjálfgef- ið að ungur drengur sem nýlega hafði misst móður sína tæki því vel en það lýsir Bjössa kannski best hvernig hann tók okkur. Við urðum strax góðir vinir og styrkt- ust þau vinabönd mikið er árin liðu. Það eru forréttindi að fá að kalla þig vin og bróður. Þú varst mikið náttúrubarn og dýravinur, þrátt fyrir að þú hefðir ekki stundað hestamennsku fyrr en seinni árin varst þú fljótur að ná tökum á henni og voru hesta- ferðirnar sem þú komst með okk- ur í ógleymanlegar. Þrátt fyrir að ég geti ekki boðið þér í reiðtúr hérna megin þá veit ég að pabbi mun glaður þeysa með þér um grundu Paradísar enda ætti sá gamli að vera nokkuð vel hestaður ef ég þekki hann rétt. Þrátt fyrir að við öll sem eftir sitjum séum buguð af sorg og skiljum ekki þetta óréttlæti að taka þig frá okkur þá er ég samt svo óendanlega þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Þú gerðir mig og alla sem þér kynnt- ust að betri manneskjum. Takk Bjössi fyrir hvað þú varst alltaf góður við börnin mín. Takk Bjössi fyrir hvað þú varst góður við mig. Takk Bjössi fyrir að hafa verið til. Þar til við sjáumst aftur, þinn vinur og bróðir, Elías. Elsku bróðir minn. Ég er ekki að skrifa til að kveðja þig. Það ætla ég ekki að gera. Ég ætla að leyfa mér að lifa í blekkingunni aðeins lengur. Ímynda mér að þú sért á einu af þínum löngu ferða- lögum og að bráðum fái ég bréf frá þér þar sem þú segist koma heim innan tíðar. Segir mér að dvölin á Balí hafi verið frábær, að nú sértu að rjúka til Indlands og spyrð hvort mig vanti ekki eitt- hvað úr kasmír. Í lok bréfsins minnirðu mig á að ég þurfi að finna handa þér konu. Mér hefur ekkert orðið ágengt í því máli. Hvar á ég að finna konu sem er jafn leiftrandi gáfuð og hæfileika- rík og þú? Jafn opin og endalaust áhugasöm um lífið og tilveruna. Jafn fyndin og einlæglega góð. Og síðast en ekki síst jafn óvenju hjartahlý, kærleiksrík og falleg manneskja. Fólk af þínu tagi er ekki á hverju strái, elsku Bjössi minn. Þú ert einhver besta mann- eskja sem ég hef kynnst. Mér hef- ur alla tíð þótt innilega vænt um þig og okkar á milli var alltaf þessi hlýi þráður. Jafnvel þegar við vorum unglingar og engan veginn á sömu blaðsíðunni, þú í þungarokkinu á efri hæðinni og ég í poppmúsíkinni á þeirri neðri, var alltaf einhver skilningur á milli okkar sem ekki þurfti að færa í orð. Okkur varð aldrei sundurorða og ég hef alltaf borið djúpa virðingu fyrir réttlætis- kennd þinni og heilindum. Þú hafðir þann einstaka hæfileika að geta hlustað á sjónarmið annarra af opnum hug, velt hlutunum fyr- ir þér fordómalaust og séð marg- ar hliðar á hverju máli. Líklega átti þessi eiginleiki stóran þátt í því hvað þér gekk vel í vinnunni þar sem þú varst á stöðugum ferðalögum um heiminn og í sam- skiptum við fólk af ólíkum upp- runa og menningu. En þótt líf þitt síðustu ár hafi verið annasamt og fullt af ævintýrum og velgengni gafstu þér alltaf tíma til að senda mér línu og spyrja hvernig ég hefði það, hvort þú gætir ekki gert eitthvað til að gleðja mig. Það er sjaldgæft að kynnast fólki sem er raunverulega gæskufullt og ég er heppin að þú skyldir koma inn í líf mitt. Það er heldur ekki sjálfgefið að stjúpsystkini tengist sterkum böndum en þannig var það með okkur og í mínum huga verður þú alltaf Bjössi bróðir. Þakka þér fyrir alla vináttuna og hlýjuna sem þú hef- ur sýnt mér. Takk fyrir hvað þú hefur verið Kríu minni góður frændi og mömmu yndislegur fóstursonur. Takk fyrir að vera góð manneskja. Ég óska þér góðrar ferðar, elsku bróðir, þótt ég vilji mest af öllu að þú sért áfram hérna hjá okkur. Ég ætla að treysta Guði og reyna að brjóta heilann ekki of mikið um það sem mér er ekki ætlað að skilja. Við sjáumst aftur. Þín fóstursystir, Hrafnhildur. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þér, elsku Bjössi minn, allar góðu stundirnar í Daltúninu þar sem rætt var um alla heima og geima. Ógleyman- legar eru hestaferðirnar okkar þar sem þú naust þín í botn og sýndir snilldartakta þegar þú reiðst um grænar grundir. Öllum leið vel í návist þinni, út- geislun þín, bros þitt, smitandi hlátur þinn og umhyggja þín fyrir öðrum var aðdáunarverð. Elsku hjartans Bjössi, það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast þér. Grámi dagsins grætur hin góðu, liðnu ár, þá hlupu fimir fætur og féllu gleðitár. Nú faðmast fólk sem lifir og fegurð leitar að en engill svífur yfir þeim yndislega stað. Nú tala englar aðrir um allt sem hérna var. Til jarðar falla fjaðrir sem fagrar minningar. (Kristján Hreinsson) Sjáumst aftur seinna, kæri vin- ur, þín mágkona, Berglind Inga Árnadóttir. Jæja Bjössi minn. Svona veit maður aldrei hvernig þetta fer allt saman. Einhvernveginn trúir maður því alltaf að tíminn sé næg- ur en svo koma endalokin miklu fyrr en reiknað var með. Þú varst nú bara fermingar- gutti þegar við bróðir þinn fórum að skjóta okkur saman og ég kynntist þér fyrst. Ég sá þig ekki oft þar sem þú bjóst úti í Lux en við Jói vorum á Bifröst. En þú komst samt strax inn í líf mitt þar sem hann bróðir þinn kunni af þér ótal sögur sem honum leiddist ekki að rifja upp. Æska og upp- vöxtur í Lux, ævintýrin hér heima og ytra og um allan heim. Þú varst sannarlega kraftmikill strákur og ýmis samskipti þurftu að vera milli foreldra og skóla þar sem uppátækin voru ýmisleg, það var engin lognmolla í kringum þig. Svo fluttir þú hingað heim og fórst í menntaskóla og stundum skildi maður ekki hvernig þú fórst að því að klára hann svona vel með svona fínar einkunnir þar sem þú varst nú ansi oft upptek- inn við eitthvað annað en námið. Tónlistin skipaði stóran sess í þínu lífi og fólkið í kringum þig líka. Ekki bara fjölskyldan heldur allir. Þú hafðir strax svo ríka rétt- lætiskennd og hafðir auga fyrir hinum smáu og þeim sem ekki áttu eins auðveldan gang í lífinu. Þegar þú fórst að velta fyrir þér framtíðinni þá var ljóst að þú vild- ir læra eitthvað og starfa þar sem þú gætir haft áhrif til góðs, gera eitthvað sem skiptir máli. Þegar kom að framhaldsnámi valdir þú lögfræðina og eins og endranær reyndist námið þér ekki erfitt. Þú varst alltaf kominn í vinnu um leið og þú þurftir á því að halda, bæði meðfram námi og eftir útskrift. Um tíma komstu við í Kortaþjón- ustunni hjá honum bróður þínum og þar tala verkin þín enn. Svo flaugstu út í heim og hófst störf hjá EFTA og þessi ár þín í Sviss hafa sannarlega verið ævintýra- leg. Það hefur verið svo gaman að fylgjast með þér, hvernig þú hef- ur notið þín í starfi, þessi áhugi á framandi menningarheimum, virðing þín fyrir náunganum og öðrum þjóðum og þessi iðandi kraftur sem í þér býr. Ég er svo ákaflega stolt af þér, kæri mágur, ekki bara eða endilega vegna þess sem þú hefur áorkað í námi og starfi, heldur vegna þess hver þú ert og hvernig þú ert. Þú ert ein af mínum fyrirmyndum í lífinu (þó þú sért miklu yngri en ég). Það er nú ekkert lítið búið að ræða um þig á mínu heimili í gegnum tíðina og sú umræða mun halda áfram um ókomna tíð enda af nægu að taka þar sem þú ert. Þú munt alla tíð verða partur af okkar lífi og halda áfram að lifa með okkur þó þú hafir kvatt þessa jarðvist. Stórfjölskyldan hefur safnast saman þar sem við höfum haldið hvert utan um annað í leit að huggum og fró á þessum erfiða kveðjutíma. Kæru ættingjar og vinir Bjössa sem ég hef ekki náð í, ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur. Öll hafið þið átt ykkar líf með Bjössa og í hugum ykkar og hjörtum mun hann lifa áfram. Verið dugleg að rifja upp minningar til að ylja ykkur við og haldið hvert utan um annað. Bjössi minn, ég kveð þig úr þessum heimi með söknuði en jafnframt þakklæti fyrir góða samferð. Þín mágkona, Andrea. Elskulegur bróðursonur minn, Björn Kolbeinsson, sem við kveðjum í dag, var einstakur maður um margt. Hann sá fleira á sinni allt of stuttu ævi en flestir, fæddur í Lúxemborg og bjó síðan víða um heim. Lauk menntaskóla- námi á Íslandi og átti alltaf sterk- astar rætur hér. Höggið er þungt og óvænt þeg- ar hann er skyndilega tekinn frá okkur. Söknuður fjölskyldunnar er sár og djúpur. Við minnumst ungs manns sem náði langt, naut virðingar í erf- iðum störfum og var hvers manns hugljúfi hvar sem hann kom. Fyr- ir það ber að þakka. Það var engan veginn ljóst hvaða leið Bjössi myndi velja þeg- ar hann hafði lokið menntaskóla- námi. Hann var í tónlist og spilaði í hljómsveitum, um tíma langaði hann að vera leikari. Ég minnist samtals okkar Bjössa, þar sem ég ráðlagði honum frekar að læra lögfræði, en á því hafði hann alltaf áhuga eins og fleiri í fjölskyld- unni. Það kom í ljós að það fag átti einkar vel við hann. Við fylgd- umst stolt með fjölskyldan þegar hann sótti um krefjandi sérfræði- starf hjá EFTA í Genf og ekki síð- ur þegar hann var valinn úr mikl- um fjölda umsækjenda. Hann naut þess að hafa alls staðar kom- ið sér vel og ekki hefur tungu- málakunnáttan tafið fyrir honum, en hann talaði mörg tungumál reiprennandi þótt íslenskan hafi alltaf verið móðurmálið. Í þessu erfiða starfi í Genf hef- ur hann notið mikillar virðingar. Hann var sífellt á förum á ein- hverjar óþekktar slóðir þegar maður hitti hann eða nýkominn úr löngum ferðum til fjarlægra heimshluta á vegum starfsins. Hress og skemmtilegur, leitandi og frjór. Það er þungur harmur sem kveðinn er að fjölskyldunni, eink- um Kolla og Heiðu og systkinum Bjössa. Megi minning um ein- stakan dreng styrkja þau á þess- ari erfiðu stundu. Þórunn Sigurðardóttir. Það var helgi í loftinu þann 28. desember, tímaleysi jólanna í al- gleymingi, hvorki dagur né nótt en birtan dimm og snjónum kyngdi niður. Þennan dag hvarf hann Bjössi okkur, inní heilag- leikann, staddur í ægifögrum iðr- Björn Kolbeinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.