Morgunblaðið - 11.01.2013, Síða 34

Morgunblaðið - 11.01.2013, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013 Heimsóknir til fjarlægra landa eru lærdómsríkar. Síðustu ár-in hef ég komið til allra heimsálfanna og á marga áhuga-verða staði. Ég heillaðist af Japan, vestrænu samfélagi í austri, og ekki síður var gaman að koma á mörgæsaslóðir á suður- skautinu; Antarktíku eins og landið er stundum nefnt,“ segir Sturla Geir Pálsson í Þorlákshöfn, sem er 42 ára í dag. „Leikjatölvur áttu hug minn í æsku og svo rafeindatæknin en á því sviði aflaði ég mér menntunar,“ segir Sturla sem starfaði lengi við sjónvarpsstöðvar og ýmsa rafeindaþjónustu. Hefur síðustu árin verið í áhöfn The World, sem gert er út til skemmtisiglinga með efnafólk um höfin sjö. Skipið er um 50.000 tonn og tekur 250 far- þega – sem aftur kallar á að um borð séu úrræðagóðir tæknimenn. „Hvert úthald er tíu vikur. Síðasta ferð sem ég tók var frá Mont- réal suður með Bandaríkjunum um Karabíska hafið, til Mexíkó og víðar,“ segir Sturla. Þessar fjarvistir frá fjölskyldunni reyni vissu- lega á en tæknin hafi þó gert veruleikann bærilegri. „Þótt ég sé á fjarlægum slóðum er fjölskyldan hjá mér og ég fylg- ist með. Tölum saman og sjáumst á skype,“ segir Sturla Geir sem er Stokkseyringur. Hefur sl. tuttugu ár búið í Þorlákshöfn, en þaðan er kona hans, Elsa Þorgilsdóttir, og eiga þau tvær dætur á unglings- aldri. sbs@mbl.is Sturla Geir Pálsson er 42 ára í dag Ljósm/Úr einkasafni Tæknimaður „Frá Montréal suður með Bandaríkjunum um Karab- íska hafið, til Mexíkó og víðar,“ segir Sturla Geir Pálsson. Fjölskyldan fylgir í siglingunum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Reykjavík Þórunn Birta fæddist 14. desember 2011. Hún vó 3.500 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Einar Már Björnsson og Sig- urlaug Þóra Kristjánsdóttir. Nýr borgari B erglind fæddist í Reykjavík en ólst upp í Kópavogi. Hún var í Digranesskóla, lauk stúdentsprófi frá MK 1993, lærði tanntækni við FÁ og lauk þaðan prófum 1995. Þá lauk hún 1. stigs kennaraprófi í hatha-jóga 2002. Berglind vann lengst af með námi. Á unglingsárunum stundaði hún verslunarstörf í Hagkaupum í Skeif- unni, við bakaríið Kornið í Kópavogi, vann í matvöruverslun og með úti- flokki hjá Loftorku í Hafnarfirði við ýmiss konar jarðvegsvinnu, lagna- vinnu, hellulagnir og jarðvegsund- irbúning fyrir malbikun. Eftir útskrift sem tanntæknir var Berglind tanntæknir á Egilsstöðum hjá Þóri Schiöth tannlækni í eitt ár og var síðan tanntæknir með hléum vegna barneigna og uppeldis, m.a. hjá tannlæknunum Þórarni Sigþórs- syni og Sæmundi Pálssyni. Hún starfar nú aðra hverja viku hjá Þóri Schiöth í Reykjavík. Berglind var prestsfrú á Skaga- strönd 2001-2006, í Ólafsvík 2006- 2010 og hefur verið prestsfrú á Berglind Guðmundsdóttir, prestsfrú og tanntæknir – 40 ára Fjölskyldan Talið frá vinstri: Magnús, Guðmundur Grétar, Rannveig Erla, Guðrún Helga og Berglind. Alsæl á landsbyggðinni Rómantík í Köben Berglind og Magnús á góðri stund á Bakken í Kaup- mannahöfn síðastliðið sumar. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Omega 3 í sinni hreinustu og öflugustu mynd Sótt í Suðurskautshafið, hreinasta hafsvæði veraldar • Gott fyrir hjarta, heila, taugar og liði • 1-2 hylki á dag! • Ekkert eftirbragð og engin uppþemba NORÐURKRILL NORÐURKRILL fæst í heisubúðum, apótekum og heilsuhillum stórmarkaðanna Taktu þátt í vísnaleik Norðurkrill á facebook Sendu inn vísu um Norðurkrill, við veljum vísu vikunnar og verðlaunum með einum pakka. Þú finnur upplýsingar um Norðurkrill á www.gengurvel.is Í Norðu rkrilli v el er vir k vænsta efnabla nda, geðheils unni ge fur styr k og gjarn an leysi r vanda . Kristjá n Hrein sson P R E N T U N .IS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.