Morgunblaðið - 15.02.2013, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.02.2013, Qupperneq 1
Töpuðu miklu » Arion banki og Íslandsbanki eru óskráð félög. » Lífeyrissjóðir töpuðu um 128 milljörðum á hlutabréfum í Kaupþingi, Landsbanka, Glitni og Straumi-Burðarási. » Tap á skuldabréfum banka og sparisjóða nam 100 milljörðum. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Forystumenn innan stéttarfélaga sem eiga fulltrúa í stjórnum lífeyris- sjóða eru tvístígandi yfir fréttum af mögulegum kaupum lífeyrissjóða í Arion banka eða Íslandsbanka, minn- ugir afleiðinga fjármálahrunsins á ís- lenska lífeyrissjóðakerfið. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að Framtakssjóður Íslands, sem er að meirihluta í eigu 16 lífeyrissjóða, tæki þátt í viðræðum um kaup á öðr- um hvorum bankanum. Þótt lífeyrissjóðirnir eigi Fram- takssjóðinn að stærstum hluta má ekki bera einstakar ákvarðanir um fjárfestingar undir þá. Þorbjörn Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Sam- iðnar og stjórnarformaður Sameinaða lífeyrissjóðsins, segir þó að ef menn stígi þessi skref „þá munu menn fara í gegnum þá ferla sem menn lentu í í hruninu og munu örugglega draga af þeim lærdóm“. »13 Dragi lærdóm af hruninu  Tvístígandi vegna viðræðna um kaup á bönkum F Ö S T U D A G U R 1 5. F E B R Ú A R 2 0 1 3  Stofnað 1913  38. tölublað  101. árgangur  VORLITIR, MERKIN Á RFF, ILMIR OG SKART STÓRSTJÖRNUR BLÚSSINS VÆNTANLEGAR 32 SÍÐNA AUKABLAÐ UM TÍSKU OG FÖRÐUN BLÚSHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR 46 Morgunblaðið/Ómar Sætir Gæludýr geta borið með sér um þrjátíu sjúkdóma.  Hunda- og kattaeigendur þrýsta á um að ekki verði lengur gerð krafa um að dýrin verði sett í ein- angrun við komuna til landsins heldur dugi að framvísa heil- brigðis- og upprunavottorðum eða svokölluðum gæludýravegabréfum. Matvælastofnun, dýralæknar, samtök bænda og fleiri leggjast harkalega gegn þessum hug- myndum og benda á hættuna á smitsjúkdómum. Hundar og kettir skipta þús- undum hér á landi. Á höfuðborgar- svæðinu, Suðurnesjum og á Akur- eyri eru skráðir á áttunda þúsund hundar. »14 Eigendur gæludýra vilja að slakað verði á einangrun Kjaradeila á spítala » Á sumum deildum Landspít- alans hafa allir þeir hjúkrunar- fræðingar sem sögðu upp störfum dregið uppsagnir sín- ar til baka. » Á þriðja hundrað starfs- manna spítalans er í Eflingu og fjölmargir eru í Starfsmanna- félagi ríkisstofnana. Ómar Friðriksson Skúli Hansen Efling - stéttarfélag lítur þannig á að stefnumörkun velferðarráðherra og Landspítalans um launahækkun hjúkrunarfræðinga hljóti að ná til allra starfsmanna Landspítalans og mun senda erindi þess efnis til Land- spítalans, að sögn Sigurðar Bessa- sonar, formanns Eflingar. „Starfsmenn innan Eflingar sem vinna hjá Landspítalanum og á hjúkr- unarheimilum eru nánast hrein kvennastétt, enda yfir 96% þeirra sem sinna þessum störfum konur. Efling - stéttarfélag lítur svo á að vel- ferðarráðherra sé að tala til alls þessa hóps í yfirlýsingum sínum,“ segir í samantekt Eflingar vegna málsins. Að sögn Ernu Einarsdóttur, starfsmannastjóra Landspítalans, liggur ekki fyrir hversu margir hjúkrunarfræðingar hafa dregið upp- sagnir sínar til baka. Hún bendir þó á að á sumum deildum hafi allir þeir sem sögðu upp dregið uppsagnir sín- ar til baka. Uppsagnarfrestur hjúkr- unarfræðinga rann út á miðnætti í nótt. Hækkanirnar nái til allra  Efling telur að stefnumörkun um launaleiðréttingar hljóti að ná til allra starfs- manna LSH  Dýrkeypt fyrir hjúkrunarfræðinga að draga ekki uppsögn til baka Aðspurð segir hún að þeim hjúkr- unarfræðingum sem draga uppsagnir sínar til baka eftir að frestinum lýkur verði tekið opnum örmum. Svari þeir eftir að fresturinn rennur út muni þeir þó ekki fá 60 þúsund króna við- bótargreiðslu fyrir nóvember og des- ember. Fleiri stéttir horfa til samninga hjúkrunarfræðinga, því í gær álykt- aði fundur Sjúkraliðafélagsins um að vinnuumhverfi og kjör hjúkrunar- fræðinga og sjúkraliða væru samofin. M„Nánast hrein kvennastétt“ »4 Þessi brosmilda dagmamma í Kópavogi nýtti fal- lega veðrið í gær og hélt í göngutúr með barna- skarann. Sum skoðuðu forvitin umhverfið en önnur kusu að lygna aftur augunum og njóta þess að vera ýtt áfram í vagninum. Dagarnir verða nú æ bjartari og með því létt- ist vafalaust lund margra landsmanna en hver dagur er nú u.þ.b. sex og hálfri mínútu lengri en sá næsti á undan. Morgunblaðið/Ómar Það er ljúft að lúra í kerrunni á björtum og fallegum degi  Vertíðin hefur gengið betur í ár en í fyrra, þrátt fyrir að menn hafi haldið að sér höndum. Þetta segir Pétur Bogason, hafnar- vörður í Ólafs- vík. Að sögn Péturs hefur ýsan valdið vandræðum fyrir vestan, hún þvæl- ist fyrir og ekki sé hagstætt að leigja ýsukvóta. Segir hann menn í Ólafsvík halda að sér höndum vegna þessa. „Nú liggja hér t.d. þrír stórir dragnótabátar við bryggju,“ segir Pétur. »6 Vertíðin gengur betur en í fyrra Sérunnið íslenskt lambakjöt er á matseðlum há- gæða-veit- ingastaða í Moskvu. SS hefur unnið að mark- aðssetningu á sérunnum lamba- kjötsafurðum til hágæða-veit- ingastaða í Moskvu. SS og kjöt- afurðastöð SS taka þátt í stærstu matvælasýningu Rússlands. Kjötút- flutningur til Rússlands hefur margfaldast úr 200 í 700 tonn í fyrra. »12 Íslenskt úrvalslamba- kjöt til Rússlands  Námafélagið London Mining, sem fjármagnað er af Kínverjum, hefur sótt um að hefja umfangsmikinn námagröft eftir járngrýti við Isua í Grænlandi. Auk þess hafa Suður- Kóreumenn sýnt því gríðarlega magni sjaldgæfra málma og stein- tegunda sem finnast í Suður- Grænlandi áhuga. Að sögn Ingu Dóru Guðmundsóttur Markussen, sem býr í Qaqortoq í Grænlandi, er afstaða til nýtingar þessara auð- linda eitt af helstu kosningamál- unum þar í landi. »22 Margir hafa áhuga á auðlindum Grænlands Grænland Mikill áhugi á auðlindum. Hækkandi sól léttir lund og kallar fram bros

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.