Morgunblaðið - 15.02.2013, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 15.02.2013, Qupperneq 4
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Makríll Stefna á að 125 smábátar veiði makríl árið 2013. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Við viljum ná góðum veiðiheim- ildum og sækjum þetta fast því ým- islegt hefur orðið til þess að gera út- gerð smábáta erfiðari,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands smábátaeigenda. Landssambandið hefur óskað eftir að makrílpottur fyrir smábáta, þ.e. undir 15 brúttótonnum, verði aukinn í 18% af heildarafla í makríl sem eru ríflega 20.000 tonn. Hugmyndirnar voru kynntar Steingrími J. Sigfús- syni, atvinnuvega- og nýsköp- unarráðherra, í gær. „Þetta hafa verið tilraunaveiðar hjá okkur undanfarin ár. Í fyrra var sýnt fram á að smábátar geti veitt makrílinn með góðum árangri. Þá voru ekki nema 17 bátar sem stund- uðu veiðarnar og náðu 1.100 tonnum af tæplega 150 þúsund tonna kvóta,“ segir Örn. Í ályktun sem Landssambandið sendi frá sér er vísað til norskrar fyrirmyndar. „Í ljósi reynsl- unnar sem Norð- mennirnir hafa þá teljum við okk- ur þurfa að hafa þetta inn í framtíð- ina,“ segir Örn. 125 smábátar á makríl 2013 Makríllinn hefur gengið langt inn á mið smábáta sem hefur gert það að verkum að þeir hafa átt auðvelt með að veiða hann. Örn bendir á að jafn- framt verði menn að vera tilbúnir að taka við honum en dýrt þykir að koma upp þeim tækjum og tólum sem til þarf til að stunda makrílveið- ar. Landssambandið kannaði hvort smábátaeigendur hefðu hug á að stunda makrílveiðar á árinu. Rúm- lega hundrað óskuðu eftir því og er áætlað að í ár muni um 125 smábátar veiða makríl. „Það veitir heldur ekki af því, ef makríllinn heldur áfram að ganga svona nálægt landi þá þarf að vera öflugur floti til að veiða hann þar,“ segir Örn. Hann bendir á að það séu margar litlar fiskverkanir út um allt land sem séu verkefnalausar, hafi lítið að gera og geti bætt við sig með vinnslu og verkun á makríl. Makríllinn sem smábátarnir veiða er eftirsóttur að sögn Arnar. Hann hefur farið inn á annan markað en sá makríll sem er veiddur í troll. Sá markaður hefur byggst upp hægt og rólega og mun vera í sókn. Atvinnuskapandi makrílveiðar Örn segir að helstu rök fyrir auknum veiðiheimildum til smábáta í makríl séu m.a. að veiðarnar séu umhverfisvænar, skili hágæða- hráefni, séu mannaflsfrekar og þar af leiðandi atvinnuskapandi. Veiði- heimildirnar afla mikillar þekkingar um göngu makríls á grunnslóð. Þá éti makríll mikið af seiðum svo sem grásleppu-, þorsk- og ýsuseiðum, sandsíli, rauðátu og smásíld. Svo ekki sé minnst á laxaseiðin. Smábátar fái 18% af makrílkvóta  Áætla 125 smábáta á makrílveiðar 2013  Veiðarnar eru umhverfisvænar og atvinnuskapandi Makrílveiðar » 125 smábátar veiði ríflega 20.000 tonn. » Noregur fyrirmyndin. » Verkanir víða úti á landi verkefnalausar og geta bætt við sig. » Umhverfisvænar og atvinnu- skapandi veiðar. Örn Pálsson 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013 Frystigeymsla HB Granda er að rísa við Norð- urgarð í Örfirisey í Reykjavík. Frystigeymslan er stærðarinnar hús og breytir ásýnd hafnarsvæð- isins verulega. Aðspurður segir Gísli Gíslason hafnarstjóri ekki vera neinar aðrar stórar framkvæmdir á döf- inni við Reykjavíkurhöfn í sumar. „Það er aðeins líf við gömlu höfnina en ekkert svona stórt og áberandi eins og frystigeymslan sem verið er að byggja,“ segir Gísli. Framkvæmdir eru í gangi í Vesturbugt þar sem verið er að vinna í lengingu á bryggjuköntum og flotbryggju. Gísli segir það vera upphafið að meira lífi út við Vesturbugtina og Sjóminjasafnið. „Við erum með tilbúnar lóðir út við Fiskislóð sem bíða eftir áhugasömum að- ilum sem við vonum að skili sér með góða starf- semi,“ segir Gísli. Framkvæmdir á þeim lóðum myndu breyta svip hafnarsvæðisins enn meira. Ásýnd hafnarsvæðisins breytist Morgunblaðið/Ómar Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Efling – stéttarfélag lítur svo á að stefnumörkun velferðarráðherra og Landspítalans varðandi leiðrétting- ar á launum hljóti að ná til allra starfsmanna Landspítalans og ætlar félagið að senda erindi um þetta efni til spítalans, skv. upplýsingum Sig- urðar Bessasonar, formanns félags- ins. Hefur félagið óskað eftir því að stofnanasamningur vegna starfs- mannanna verði endurskoðaður en á þriðja hundrað starfsmanna á spít- alanum eru félagsmenn í Eflingu og fjölmennur hópur er í Starfsmanna- félagi ríkisstofnana. Forsvarsmenn Eflingar hafa ákveðið að vekja athygli á kjörum þess fólks sem vinnur almenn störf á Landspít- alanum nú þegar fyrir liggi nýr stofnanasamn- ingur á milli hjúkrunarfræð- inga og spítalans. „Í yfirlýsingum velferðaráðherra hefur komið fram að nú sé kominn tími til að leiðrétta launakjör starfsmanna þar sem mik- ill meirihluti starfsmanna séu konur. Starfsmenn innan Eflingar sem vinna hjá Landspítalanum og á hjúkrunarheimilum eru nánast hrein kvennastétt enda yfir 96% kvenna sem sinna þessum störfum. Efling – stéttarfélag lítur svo á að velferðar- ráðherra sé að tala til alls þessa hóps í yfirlýsingum sínum enda hefur hann vakið athygli á að laun þessa fólks séu allt of lág,“ segir í sam- antekt Eflingar vegna málsins. Launabreytingar hljóta að ná til allra umönnunarstarfa Forsvarsmenn verkalýðsfélagsins vísa til þess að í öllum launakönn- unum innan Eflingar komi fram að óútskýrður kynbundinn launamunur á heildarlaunum sé um 19%. Með- altal heildarlauna í umönnunarstörf- um sé um 265 þúsund krónur en fyrir dagvinnu 231 þúsund. „Því verður ekki trúað að þessum nýgerðum stofnanasamningi Land- spítalans og hjúkrunarfræðinga sé ætlað að brjóta nýtt blað varðandi launaþróun komandi ára. Að hér sé verið að taka upp launastefnu þar sem að leggja eigi til meiri laun- hækkanir til þeirra sem fyrir hafa mun betri kjör. Því hljóta þessar launabreytingar að ná til allra umönnunarstarfa,“ segir Sigurður. Einnig lýsir hann yfir verulegum áhyggjum af þeirri lausn sem spít- alinn hefur boðað að launabreyting- ar verði bornar upp með hagræðingu innan spítalans. Hagræðingar sem átt hafa sér stað á undagengnum ár- um hafi verið fólgnar m.a. í því að bjóða út nánast alla ræstingu spít- alans. Gerir Efling þá kröfu bæði til spít- alans og ríkisstjórnarinnar sem rekstraraðila að störf okkar fólks verði tryggð og lagðir verði til nægj- anlegir fjármunir til þess að standa undir þessum launabreytingum. „Nánast hrein kvennastétt“  Efling – stéttarfélag krefst þess að félagsmenn þess sem starfa á Landspít- alanum fái sömu leiðréttingar á launum og samið var um við hjúkrunarfræðinga Sigurður Bessason Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að fella úr gildi úrskurð kærunefndar húsamála þess efnis að samningur um leigu lóðar númer 4 í landi jarð- arinnar Trönu (Ferjubakka) í Borg- arbyggð framlengist til 1. júlí árið 2030. Í málinu var deilt um það hvort leigusamningur málsaðila hefði á grundvelli 4. mgr. 12. gr. laga um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús framlengst sjálfkrafa um 20 ár vegna svokallaðs málskots leigutakanna til kærunefndar húsa- mála, en eins og áður segir hafði nefndin úrskurðað á þann veg. Ef niðurstaðan hefði orðið sú að samn- ingurinn hefði framlengst með þessum hætti þá var einnig ágrein- ingur um það hvort það fyr- irkomulag sem mælt er fyrir um í fyrrnefndu lagaákvæði samrýmist eignarréttarákvæði stjórnarskrár- innar. Talið var að leigusamningurinn hefði fallið undir sérreglu í lög- unum og því gætu málskotsreglur 12. gr. þeirra ekki átt við í lög- skiptum aðilanna. Málskot leigu- takanna hefði því ekki haft þau réttaráhrif að samningurinn fram- lengdist sjálfkrafa um 20 ár. skulih@mbl.is Leiga ekki fram- lengd um 20 ár Morgunblaðið/Ómar Kúrir Haustlitadýrð í Grímsnesi. Frá árinu 2008 hafa verið höfðuð 614 mál á hendur ríkinu og eru áfrýjanir mála meðtaldar. Ef eingöngu er horft á málshöfðanir fyrir héraðs- dómi þá eru þær 455 og 26 fyrir fé- lagsdómi. Þetta kemur fram í svari forsætis- ráðherra við fyrirspurn Lilju Mós- esdóttur þingmanns. Öll málin að frátöldum 24 á þessu tímabili hafi verið flutt af ríkislög- manni eða lögmönnum sem starfa við embættið. Þá er tekið fram að allmörg þjóð- lendumál að auki hafi verið rekin af öðrum lögmönnum með heimild rík- islögmanns og fjármála- og efna- hagsráðuneytis. Þau séu um 50. Yfir 600 mál gegn ríkinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.