Morgunblaðið - 15.02.2013, Page 6

Morgunblaðið - 15.02.2013, Page 6
BAKSVIÐ Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is „Það er búið að ganga vel, búið að vera mjög gott fiskirí,“ segir Grétar Sigurbjörnsson, yfirmaður í Sand- gerðishöfn. Hann bætir við að litlu línubátunum hafi gengið mjög vel, þeir fái aðallega þorsk sem sé stór og vænn. Frá Sandgerðishöfn róa aðallega dragnótabátar og línubát- ar, sæmilega hefur gengið hjá drag- nótabátunum að sögn Grétars þó í afla þeirra blandist fleiri tegundir, t.a.m. koli. „Litlu handfærabátarnir hafa líka verið að kroppa hérna rétt fyrir ut- an.“ Grétar segir að um 2.400 tonn- um hafi verið landað í Sandgerðis- höfn í janúar og hann telur að um 1.400-1.500 tonn séu komin á land það sem af er febrúar. Verðtíðin fari því heldur betur af stað en í fyrra. Segja að það borgi sig ekki að leigja ýsukvóta Lítill ýsukvóti stendur þó mönn- um fyrir þrifum í Sandgerði eins og víða annars staðar. „Menn eru ósáttir hversu mikið ýsukvótinn var minnkaður, það háir mönnum veru- lega, nóg er af ýsu hér fyrir utan,“ segir Grétar og bætir við að ekki borgi sig að leigja ýsukvóta. „Það hefur bara gengið ágætlega, við höfum aðallega verið hérna á heimaslóðum, t.a.m. við Sandvík. Það hefur verið dálítið af stórufsa, meira heldur en áður,“ segir Árni Ólafur Þórhallsson, skipstjóri á Sig- urfara, 140 tonna dragnótabáti sem hefur verið að róa frá Sandgerði. Bestu túrarnir hjá Sigurfara hafa verið 10-12 tonn en að jafnaði hefur skipið komið inn með 4-5 tonn. Gengið þokkalega í Grindavík Örlítið færri bátar en vanalega hafa verið að róa frá Grindavík að undanförnu vegna óhagstæðra vinda, að sögn Arnfinns Antons- sonar sem starfar á hafnarvigtinni í bænum. Arnfinnur á von á því að eitthvað minna hafi komið á land það sem af er ári miðað við sama tíma í fyrra. Það stafi að einhverju leyti af því að nokkrir stærri línu- bátanna í bænum hafi verið að landa annars staðar á landinu. „Ein- hverjir hafa verið að róa frá Sand- gerði. Veðrið er hagstætt fyrir okk- ur í dag, það er allavega slatti af bátum hérna fyrir utan í dag,“ sagði Arnfinnur í samtali við Morg- unblaðið í gær. „Annars hefur vertíðin gengið þokkalega, þetta er helst þorskur, ýsa og keila,“ segir Arnfinnur og bætir við að nokkrir handfærabátar séu úti enda sé veður gott. „Það er búið að vera ágætis fisk- irí, svona eins og menn þora og mega veiða. Margir eru stopp því þá vantar ýsukvóta,“ segir Pétur Bogason, hafnarvörður í Ólafsvík. Línubátar sem gerðir eru út frá Ólafsvík hafa verið að komast upp í 13 tonn í einum túr. Þorskur og ýsa hafa verið uppistaðan í aflanum. Ýsan að þvælast fyrir Ýsan hefur einnig valdið vand- ræðum fyrir vestan, er að þvælast fyrir og fregnir herma að gríðarlegt magn af ýsu sé á miðunum. Eins og áður segir er ekki hagstætt að leigja ýsukvóta. Pétur segir að menn í Ólafsvík haldi að sér hönd- um þessa vegna. „Nú liggja t.d. þrír stórir drag- nótabátar við bryggju,“ segir hann og bætir við að menn bíði þess og voni að ýsan syndi í burtu. Pétur segir að vertíðin hafi geng- ið betur í ár en í fyrra, þrátt fyrir að menn hafi haldið að sér höndum, hann áætlar að um 1.500 tonn hafi veiðst. Þá hefur tíðin verið með skásta móti eftir grimma óveðurs- kafla um áramótin, að sögn Péturs. 16-17 bátar landa í Ólafsvík dag- lega, þeir veiða ýmist með línu, í net eða á dragnót. Þegar strandveiðar hefjast með vorinu eykst fjöldinn og þá landa 30-40 bátar á dag. „Það hefur gengið alveg ljómandi, við reynum að veiða allt nema ýsu, það gengur skarpt á ýsukvótann enda er hún alls staðar,“ segir Heiðar Magnússon, skipstjóri á Brynju, 15 tonna línubáti frá Ólafsvík. „Það er erfiðara að forðast hana, hún er miklu víðar heldur en í fyrra,“ segir Heiðar. Einkar vel gekk hjá Brynju á þriðjudag þegar hún kom með 13,5 tonn til hafnar, þar af 9 tonn af vænum þorski, jafnvel of stórum. Að jafnaði hefur Brynja fengið um 8 tonn í hverjum túr en á þessum árs- tíma siglir Brynja að jafnaði um 10- 15 mílur út. Ýsan veldur vandræðum á vertíðinni  Fiskast ágætlega og víða gengur betur en í fyrra  Erfitt að forðast ýsuna fyrir vestan  Dæmi um að bátar séu stopp í Ólafsvík  Þrír dragnótabátar við bryggju í Ólafsvík í gær Morgunblaðið/Alfons Finnsson Sjómennska Bræðurnir Guðlaugur og Snorri Rafnssynir, skipverjar á Katrínu SH, voru sáttir með aflabrögð við komuna í Ólafsvíkurhöfn í gær. Ágætlega hef- ur viðrað fyrir vestan á yfirstandandi vertíð og aflabrögð verið með ágætum. Mikið líf er á höfninni í Ólafsvík, þessa dagana landa þar daglega 16-17 bátar. Morgunblaðið/Ómar Ferðalög Ögmundur Jónasson er nýkominn heim úr vikulangri ferð til Kína og er á leið til Indlands. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Ætla má að kostnaður við vikulanga ferð Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra og föruneytis til Kína í byrjun febrúar hafi numið tæpum 2,4 milljónum króna. Ráðherrann hélt á ný utan í dag, að þessu sinni til Ind- lands, einnig í vikuferð. Í för sinni til Kína fundaði Ögmundur meðal annars með þarlendum ráðamönnum um flug- og ættleiðinga- mál en flest börn sem ættleidd eru hingað til lands koma frá Kína. Auk þess undirritaði ráðherrann sam- komulag um samstarf um neytendavernd. Samkomu- lagið varðar meðal annars vöruvottun og merkingar á þeim vörum sem fluttar eru á milli landanna tveggja. Íslendingar fluttu vörur út fyrir um átta milljarða króna í fyrra en 7% af öllum innflutningi hingað til lands eru frá Kína. Alls fóru fimm manns frá ráðuneytinu í ferðina en samkvæmt upplýsingum þaðan nam flugkostnaður hvers og eins um 230.000 krónum. Samtals gerir það því um 1,15 milljónir króna. Sé miðað við ákvörðun Ferðakostnaðarnefndar ríkisins má áætla að dagpen- ingakostnaður vegna ferðarinnar hafi numið rúmum 1,2 milljónum fyrir þær sex gistinætur sem ferðin tók. Heimsækir barnaheimili Auk innanríkisráðherra fóru ráðuneytisstjóri og skrifstofustjóri ráðuneytisins með í ferðina til Indlands auk ráðgjafa ráðherrans. Aðalerindi ferðarinnar er al- þjóðleg ráðstefna um ættleiðingamál í Delí en auk ráðu- neytisins senda samtökin Íslensk ættleiðing fulltrúa á hana. Þar kemur Ögmundur til með að funda með þeim ráðherra sem fer með ættleiðingamál á Indlandi. Ráð- stefnan stendur yfir á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku. Áður en að ráðstefnunni kemur er á dagskrá ráð- herrans heimsókn á barnaheimili í Kalkútta þaðan sem mörg þeirra barna sem ættleidd hafa verið til Íslands hafa komið í gegnum tíðina. Þá hefur komið fram ósk um að ráðherrann haldi er- indi í háskóla í Delí um mannréttindamál á Íslandi. Hann snýr svo aftur heim til Íslands á föstudag eftir viku. Ráðherra á faraldsfæti  Innanríkisráðherra á leið til Indlands að ræða ættleiðingar og mannréttindi  Kostnaður við Kínaför rúmar 2 milljónir 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013 Íslendingar munu í fyrsta skipti taka þátt í árlegri fjarskiptaæf- ingu Evrópuherstjórnar Banda- ríkjanna í september næstkom- andi. Æfingin verður haldin í Þýskalandi. Á fimmta tug ríkja taka þátt í fjarskiptaæfingunni en fram kemur í nýútkominni skýrslu ut- anríkisráðherra til Alþingis um utanríkismál að sérstök útstöð verði sett upp á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í tengslum við æfinguna, þar sem tækifæri gefist til að nýta aðstöðuna sem þar er að finna ,,og beina sjónum að nærumhverfi Íslands og norðurslóðum,“ segir í skýrsl- unni. Styrkara varnarsamstarf Fram kemur í skýrslu utanrík- isráðherra að varnarsamstarfið við Bandaríkin hafi styrkst á liðnu ári. Reglulegum samráðs- fundum um varnar- og öryggis- mál hafi fjölgað og nýjar línur verið lagðar í samstarfinu, sem taki nú einnig til áhættuþátta á borð við hryðjuverkaógn og vefvá, þróunar öryggismála á norðurslóðum o.fl. Þar segir einnig að Bandaríkin muni eftir sem áður skipa árlega vakt í loftrýmisgæslu á Íslandi, sem haldin er undir merkjum Atlantshafsbandalagsins. omfr@mbl.is Taka þátt í fjar- skiptaæfingu yfir 40 ríkja Repjuolía sem notuð var við útlögn vegklæðingar árið 2011 uppfyllir ekki skilyrði til slíkrar notkunar en hún er að of miklu leyti vatnsuppleysanleg. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem gerð var á olíunni vegna mikilla blæð- inga í klæðningunni, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. G. Pétur Matthíasson, upplýsinga- fulltrúi Vegagerðarinnar, segir að notkun á repjuolíu hafi verið hætt ár- ið 2011 og þá hafi ekki staðið til að nota hana áfram. Fyrr í vetur ollu blæðingar úr bundnu slitlagi töluverðum skemmd- um á bílum og var líklegasta skýr- ingin talin gölluð repjuolía. Rannsóknin á olíunni var gerð í Þýskalandi og um leið voru könnuð gæði svonefndra etýlestera sem unn- ir eru úr lýsi og einnig eru notaðir í klæðingar. Í ljós kom að lýsisefnið uppfyllti skilyrði. Ljósmynd/Umferðarstofa Repjuolía Tjara safnaðist fyrir á dekkjum og olli tjóni. Repjuolían var gölluð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.