Morgunblaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013 15% afsláttur Gildir út febrúar Það er ekkert grín að fara í út-varpsviðtöl áður en farið er á fætur. Velferðarráðherra svaraði spurningum um Landspítalann í gærmorgun og mörg svörin voru sérstök eins og við var að búast. Sér- kennilegust voru þó svörin sem sneru að ákvörðun hans í fyrra um launa- hækkun forstjór- ans.    Spurður um þá ákvörðun sagð-ist Guðbjartur búinn að biðj- ast afsökunar á henni en bætti svo við: „Aftur á móti hafi það leitt til þess að við getum bætt stöðu heilbrigðisstéttanna innan stofn- unarinnar í framhaldinu og það hafi orðið til þess að þar verði möguleiki að rýmka eitthvað þá verðum við að líta á það frá þeim sjónarhóli líka.“    Hvað á ráðherrann við? Þurftihann að hækka laun forstjór- ans og hætta svo við hækkunina til að geta samið um launahækkun við hjúkrunarfræðinga? Var þetta þá í raun farsæl ákvörðun? En hvers vegna baðst hann þá afsök- unar?    En þetta var ekki allt. Spurðurnánar út í málið svaraði Guð- bjartur: „Sú aðferð sem þarna var notuð, það sem var verið að hafna í rauninni, það var það að vera með einstaklingslausnir vegna þess að það væri yfirvofandi að einhverjir færu frá okkur. En svo getur maður sett það í samhengi við eitthvað annað – bíddu er það ekki það sem margir eru einmitt að vænta, það er að við kaupum fólk til þess að vera heima.“    Getur einhver tekið að sér aðvekja velferðarráðherra áður en hann fer í næsta viðtal? Guðbjartur Hannesson Furðusvör í morgunsárið STAKSTEINAR Veður víða um heim 14.2., kl. 18.00 Reykjavík 2 léttskýjað Bolungarvík 2 súld Akureyri 2 rigning Kirkjubæjarkl. 5 skýjað Vestmannaeyjar 3 heiðskírt Nuuk -7 léttskýjað Þórshöfn 6 skýjað Ósló -2 snjókoma Kaupmannahöfn 0 alskýjað Stokkhólmur 1 skýjað Helsinki -1 skýjað Lúxemborg -2 snjókoma Brussel 1 skýjað Dublin 7 léttskýjað Glasgow 7 léttskýjað London 8 skúrir París 5 skýjað Amsterdam -1 slydda Hamborg 0 heiðskírt Berlín 1 skýjað Vín 0 þoka Moskva -5 heiðskírt Algarve 17 léttskýjað Madríd 15 heiðskírt Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 16 léttskýjað Róm 12 heiðskírt Aþena 8 alskýjað Winnipeg -18 skýjað Montreal 0 alskýjað New York 2 heiðskírt Chicago 3 skýjað Orlando 18 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 15. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:22 18:02 ÍSAFJÖRÐUR 9:37 17:57 SIGLUFJÖRÐUR 9:21 17:40 DJÚPIVOGUR 8:54 17:29 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Það hefur varla snjóað korn hér í vetur og nú eru öll snjómokst- urstækin komin í síldarmokstur,“ segir Bjarni Sigurbjörnsson, bóndi á Eiði í Kolgrafafirði, en hreins- unarstörf í fjörunni þar hófust á mið- vikudag. Moksturstækin eru nú nýtt til þess að ýta síldinni sem skolaði á land hinn 1. febrúar í djúpa skurði í fjörunni þar sem hún verður urðuð. „Þetta er tilraun sem hefur ekki verið reynd áður og lofar góðu. Þessi aðferð er margfalt ódýrari en að flytja síldina. Hún fær þá að grotna niður þar sem hún er,“ segir Bjarni. Hann gerir ráð fyrir að það taki viku til tíu daga að hreinsa fjöruna miðað við hvernig starfið hefur gengið hingað til. Menn séu reyndar bundnir af sjávarföllum en hægt sé að ná tæpum sex tímum af vinnu á dag ef starfið er vel skipulagt. Vandasamasti hlutinn við hreins- unarstarfið er að eiga við grútinn sem myndaðist þegar síld drapst fyrst í miklu magni í firðinum um miðjan desember. Hann myndast þegar síldin brotnar niður og er hann nú að mestu efst í fjörunni. „Við erum meðal annars að berj- ast við þá drullu í dag. Grúturinn er erfiðari og seinlegri að eiga við. Við þurfum að moka honum upp á vagna og svo þarf að fara með hann í við- urkenndan urðunarstað í Fífl- holtum,“ segir Bjarni Hann lofar viðbrögð allra þeirra sem að málinu hafa komið eins og Umhverfisstofnunar, umhverf- isráðuneytis og atvinnuvega- og auð- lindaráðuneytis og segir þá eiga heiður skilinn. „Þetta lítur vel út og við erum í skýjunum með að svona vel hafi ver- ið tekið á þessu,“ segir Bjarni. Þyrfti að ganga fjörur Grúturinn sem safnast hefur fyrir í fjörunni er hættulegur fuglum en ef hann kemst í fiður hættir það að einangra og fuglarnir hætta jafnvel að geta flogið. Þeir geta þá drepist úr hungri eða kulda. Að sögn Róberts Arnars Stef- ánssonar, líffræðings og forstöðu- manns Náttúrustofu Vesturlands, hafa engir dauðir fuglar fundist ennþá. Ekki sé þó líklegt að þeir finnist nema fjörur verði gengnar skipulega. „Við ættum að sjá þetta ef dauðir fuglar væru í miklu magni. Við kíkj- um í fjörurnar en höfum ekki gengið þær skipulega hingað til. Fjár- magnið sem við höfum dugar ekki í það,“ segir hann. Telur að hreinsun taki tíu daga Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Grotnar Síldinni er mokað í skurði en grúturinn er urðaður annars staðar. Föðurnafn misritaðist Birt var viðtal við Finn Kristinsson, framkvæmdastjóra Landslags teiknistofu, í Viðskiptablaði Morg- unblaðsins á fimmtudag. Í greininni misritaðist föðurnafn Finns svo hann var óvart kallaður Krist- jánsson. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Hæstiréttur dæmdi í gær að fjórum greiðslum frá B09 ehf., áður Víkur- verki, til framkvæmdastjórans og eina hluthafa Víkurverks yrði rift. Samtals nam fjárhæðin 25,8 millj- ónum króna. Framkvæmdastjórinn millifærði upphæðina á reikning sinn skömmu fyrir gjaldþrot félagsins. Hæstirétt- ur taldi að þessar greiðslur hefðu verið á ótilhlýðilegan hátt til hags- bóta fyrir framkvæmdastjórann og á kostnað annarra kröfuhafa. Rifti 25 milljóna greiðslum frá B09

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.