Morgunblaðið - 15.02.2013, Qupperneq 9
Framboð til setu í
stjórnum málefnanefnda
Sjálfstæðisflokksins
Málefnanefndir eru skipaðar með hliðsjón af nefndaskipan Alþingis
á hverjum tíma og eru sem hér segir:
Sjálfstæðisflokkurinn auglýsir eftir framboðum til stjórna málefnanefnda
í samræmi við skipulagsreglur flokksins. Kosið verður á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins sem haldinn verður 21. til 24. febrúar. Allir flokksmenn
geta boðið sig fram. Nánari upplýsingar má finna á XD.is.
Nánari upplýsingar á www.xd.is Sjálfstæðisflokkurinn
∑ Allsherjar- og menntamálanefnd
∑ Atvinnuveganefnd
∑ Efnahags- og viðskiptanefnd
∑ Fjárlaganefnd
∑ Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
∑ Umhverfis- og samgöngunefnd
∑ Utanríkismálanefnd
∑ Velferðarnefnd
Framboðum skal skilað á netfangið frambod@xd.is og skal skýrt tekið fram til
stjórnar hvaða nefndar framboðið er. Fram skal koma nafn, kennitala, starfsheiti og
heimilisfang. Öllum frambjóðendum býðst einnig að kynna sig með því að senda 200
orða texta ásamt mynd í góðri upplausn.
Frestur til að skila inn framboði er til 15. febrúar.
Dansinn dunaði í Hörpu í gær þar sem yfir 1.500
manns sameinuðust í dansi gegn kynbundnu of-
beldi. „Stemningin og krafturinn voru ólýsanleg
og mætingin fór fram úr okkar björtustu von-
um,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir, fram-
kvæmdastýra UN Women á Íslandi. Markmiðið
var að ná einum milljarði manna saman út um
allan heim til að dansa gegn kynbundnu ofbeldi.
Það voru 193 lönd sem tóku þátt í þessu átaki og
lögðu Íslendingar sitt af mörkum. „Það sýndi sig
vel í dag að fólk lætur sig þessi málefni varða,“
segir Inga Dóra hæstánægð með daginn.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Femínísk flóðbylgja í Hörpu
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Nýtt frá
Jakki kr. 16.900.-
Litir: svart, coral
Freyr kom nýr til
landsins í ágúst 1960.
Freyr er systurskip
Mai, Sigurðar og
Víkings sem komu til
landsins sama ár. Í
febrúar 1961, héldum
við einskipa til veiða
á Nýfundnalandsmið.
Afli var strax ágætur,
en aðstæður voru
erfiðar -frost um 10-20°C og sjávarhiti -2°C. Þegar á þriðja hun-
drað tonn af karfa voru komnar í lestar og skipið orðið talsvert
ísað af minniháttar pusi dagana á undan hvessti skyndi-lega og
sjór ýfðist mjög. Á stuttum tíma yfirýsaðist þetta mikla sjóskip svo
illilega að það missti nær allan stöðuleika.
Ef einhver lesandi var með í þessari ferð –væri gaman að heyra
frá viðkomandi.
Hafið samband við Guðmund í síma :892 0394 eða með
tölvupóst: gudmundur@hler.is
Síðutogarinn FREYR RE1
Kjartan Ingimarsson,
hópferðabílstjóri og at-
hafnamaður, lést á
Hrafnistu 12. febrúar
síðastliðinn, 94 ára að
aldri.
Kjartan hóf bílaút-
gerð með Ingimar bróð-
ur sínum árið 1937 og
m.a. fluttu þeir bræður
fólk á Alþingishátíðina á
Þingvöllum 1944, í
fyrstu rútunni sinni.
Kjartan og Ingimar
voru með sérleyfið að
Ljósafossi og Miðfelli í
Þingvallasveit og sáu
um allan akstur að virkjununum í
Soginu.
Kjartan stofnaði
síðar fyrirtækin
Hópferðabíla Kjart-
ans Ingimarssonar
og Bílaleiguna Aka
sem hann rak fram
til ársins 2008, þegar
hann lét af störfum
89 ára gamall eftir
að hafa verið í bíla-
útgerð í 71 ár.
Kjartan var frá
Laugarási í Reykja-
vík, fæddur 2.1.
1919. Hann eignaðist
5 börn með eig-
inkonu sinni, Sig-
urbjörgu Unni Árnadóttur sem lést
1981.
Andlát
Kjartan Ingimarsson
mbl.is
alltaf - allstaðar