Morgunblaðið - 15.02.2013, Side 10

Morgunblaðið - 15.02.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013 Skapandi og ævintýragjarnir einstaklingar ættu að leggja leið sína í Tjarnarbíó á morgun en þar fer fram kynning á fagháskólanámi erlendis á sviði skapandi greina frá kl. 12.30-17. Ef áhugasviðið tengist hönnun, miðlun, listum eða tísku er ekki ólíklegt að eitthvað forvitnilegt verði á veginum. Í skólum sem þessum koma nemendur víða að úr heiminum og því myndast þar oft alþjóðlegt um- hverfi og mikilvæg tengsl við atvinnulífið á sviði skapandi greina. Í Tjarnarbíói verður hægt að fá ein- staklingsviðtöl við fulltrúa skóla sem staðsettir eru í Bournemouth, London, Barcelona, Glasgow og Míl- anó. Viðtölin eru veitt í anddyrinu og á sama tíma er hægt að fræðast um ýmislegt í salnum eins og til dæmis „portfolio“ gerð, starfsmöguleika á sviði hönnunar og framtíðarsýn í tískuheiminum. Endilega … … kynntu þér skap- andi háskólanám Í þessari viku hafa nemendur Förð- unarskólans í Snyrtiakademíunni ver- ið að læra förðun eldri kvenna og í gær mættu nemendurnir á hjúkr- unarheimilið að Droplaugarstöðum og förðuðu áhugasamar eldri konur. Á síðustu önn fóru nemendur í Sunnuhlíð og á Aflagranda og voru móttökurnar engu líkar, konurnar voru þakklátar og glaðar yfir heim- sókninni. Hugmyndin að heimsókn til aldraðra kom frá einum nemand- anum sem vinnur á hjúkrunarheimili fyrir aldraða ásamt því að vera í nám- inu. Thelma Hansen framkvæmda- stjóri segir að yfirleitt hafi nemendur fengið ömmur sínar til að æfa sig í förðun eldri kvenna, en viðbrögðin hafi verið svo góð í fyrra þegar þau fóru á dvalarheimili aldraðra til að æfa sig, að ákveðið var að gera þetta aftur núna. „Það er virkilega gaman að geta glatt þessar konur, en það er nauð- synlegt fyrir nemendur okkar að æfa sig í förðun eldri kvenna því þær læra það sérstaklega, þá eru allt aðrar áherslur en í förðun yngri kvenna.“ Nemendur buðu konum upp á förðun Dásamlegur dagur hjá konunum á Droplaugarstöðum Morgunblaðið/Styrmir Kári Augnmálning Eins gott að vanda sig þegar augnlokin eru máluð. Viðmælendur mínir, sem flestirkoma úr viðskiptalífinu,segja margt skemmtilegt sem ekki ratar á prent. Þrjú gull- korn eru í miklu uppáhaldi hjá mér og er æskilegt að halda þeim til haga í Morgunblaðinu. Ég týni öllum öðr- um blöðum. „Þetta þarf nú ekki að koma fram í fréttinni en Ólafur Ragnar Grímsson er góður vinur minn,“ sagði einn. Svona á að neimdroppa. Hin tvö snúa að mér – og þar fer ekki fyrir mikilli aðdáun í minn garð. Ég hringdi á föstudegi á skrifstofu glúrins forstjóra. Hann var ekki við og ég skildi eftir skilaboð. Karlinn hringdi ekki til baka, þannig ég reyndi aftur á mánudegi og var gefið samband við mann- inn. Hans allra fyrstu orð voru: „Nennir þú að hætta að pesta mig!? Mér líkar ekki við þig! Mér líkar ekki við nafnið þitt!“ Síðasta setningin er í sérstöku uppáhaldi. Rétt er að nefna að við þekkjumst ekki og í þessu samtali var hvorki sagt sæll né bless. En ég er upp með mér. Ekki nóg með að stórlax- inn viti hvað ég heiti, þá hefur hann myndað sér skoðun á mér – og það sem er öllu óvenjulegra; hann hefur skoðun á nafninu mínu. (Ég á reyndar ekki heiðurinn að því, þannig að ég ætti kannski ekki að vera upp með mér, en er það nú bara samt, enda fylgir nafnið mér hvert sem ég fer.) Jæja, og að lokum eru það býsna harkaleg viðbrögð frá viðmælanda eftir að hann las yfir viðtal sem ég átti við hann, daginn fyrir birtingu. Viðtalið var ósköp hefðbundið og málefnið snerti ekki hans eigin hagsmuni á nokkurn hátt. Ég fór því miður rangt með ein- hver atriði sem auðvelt var að laga. Viðtalið fór jú í yfirlestur til að fyrir- byggja að villur rötuðu í blaðið. Viðmælandinn hringdi í mig alveg snaróður og sagði: „Ef þú birtir þetta viðtal frem ég sjálfsmorð!“ – Mjög eðlilegt. Svona á að ná sínu fram. » „Þetta þarf nú ekki aðkoma fram í fréttinni en Ólafur Ragnar Gríms- son er góður vinur minn“ Heimur Helga Vífils Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ að verður mikið um dýrðir hjá okkur og gaman að vera í Hörpu í fyrsta sinn,“ segir Pálmar Þór Hlöðvers- son, formaður Kaffibarþjónafélags Íslands, um Kaffihátíð þá sem hefst í dag. „Við ætlum að hafa opið fyrir gesti og gangandi í Hörpu í dag og líka á morgun, laugardag. Allskonar vörukynn- ingar og smakk verður á boð- stólum og einnig verður haldið Ís- landsmót kaffibarþjóna sem og Íslandsmótið Kaffi í góðum vín- anda,“ segir Pálmar sem ekki keppir þetta árið en sjálfur er hann tvöfaldur Íslandsmeistari kaffibarþjóna. „Við höldum þessa hátíð í samvinnu við Evrópu- samtök um sælkerakaffi (SCAE) en þau ásamt systursamtökum í Bandaríkjunum eiga saman World Coffee Events, sem sér um að halda heimsmeistaramót í kaffi- greinum. Sá kaffibarþjónn sem hampar Íslandsmeistaratitlinum núna um helgina, fer fyrir Íslands hönd á næsta heimsmeistaramót, en það verður í Melbourne í Ástr- alíu í vor.“ Bragð, áferð og ilmur Pálmar segir að kaffibar- þjónakeppnin sé elsta og virtasta kaffikeppni í heimi. „Hún fer þannig fram að þeir kaffibar- þjónar sem taka þátt fá fimmtán mínútur til að laga tólf staka kaffi- drykki fyrir fjóra smakkdómara. Þetta þurfa að vera fjórir espresso, fjórir cappuccino og fjórir frjálsir kaffidrykkir. Hver Kaffi býr yfir fegurð og ótal blæbrigðum Mikil kaffihátíð hefst í Hörpu í dag þegar Íslandsmót kaffibarþjóna fer fram en þá þarf hver keppandi að laga tólf kaffidrykki á fimmtán mínútum. Einnig verður Ís- landsmótið Kaffi í góðum vínanda en þá eru keppendur ekki bundnir við espres- sovélina. Margt verður að skoða og smakka í fjölbreyttum kaffiheimi. Morgunblaðið/Styrmir Kári Fallegt Kaffi þarf ekki aðeins að smakkast vel, það þarf líka að líta vel út. Vandaverk Pálmar að laga kaffi á kaffihúsinu sínu Pallett Kaffikompaní.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.